Vísir - 25.07.1968, Qupperneq 8
3
VÍSIR . Fimmtudagur 25. júlí 1968.
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent h.f.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjóm: laugavegi 178. S&ni 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í lausasölj kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f.
Samstarf í læknaþjónustu
„Samband og samvinna milli heimilislækna, sérfræð-
inga og sjúkrahúslækna er ekki eins gott og æskilegt
er. Heimilislæknar gefa ekki nægar upplýsingar um
sjúklinga sína, þegar þeir vísa þeim til sérfræðinga
eða biðja um rúm fyrir þá á sjúkrahúsi. Sérfræðingar
láta iðulega heimilislækni lítið vita, og stundum ekk-
ert, um niðurstöður rannsókna sinna á sjúklingum
heimilislæknisins, eða um meðferð á þeim. Sérfræð-
ingar, sem leggja sjúklinga á sjúkrahús, gefa og spít-
alalæknum mjög misjafnlega góðar upplýsingar um
sjúklingana.
Sumar sjúkradeildir tilkynna læknum, sem lagt
hafa inn sjúklinga á deildirnar, fljótt og vel niður-
stöður þær, sem deildirnar hafa komizt að, einnig
um meðferð, og láta venjulegast ráðleggingar fylgja.
Aðrar deildir gera þetta ýmist seint og ekki nægi-
lega vel, eða láta lækna þá, sem sent hafa sjúkling
á deildirnar, ekkert vita, þegar sjúklingurinn hefur
verið útskrifaður af deildunum.
Það gefur auga leið, að þáð er mikilvægt við grein-
ingu á sjúkdómi og meðferð, að læknir sá, sem hefur
sjúkling undir höndum hverju sinni, hafi sem fylistar
upplýsingar um sjúklinginn til að styðjast við. Það
er því nauðsynlegt, að læknar, sem annast sama sjúkl-
ing, hafi náið samband sín á milli um hann. Það getur
einnig sparað tíma, fé og fyrirhöfn."
Þessi tilvitnun er úr greinargerð læknisþjónustu-
nefndar Reykjavíkur um endurbætur á læknaþjón-
ustu í borginni. Leggur nefndin til, að heimilislæknir-
inn verði eins konar mið'punktur í þessu samstarfi og
hafi á einum stað allar upplýsingar, sem þetta sam-
starf gefur um hvern sjúkling. Með þessum hætti
verður til nákvæm sjúkrasaga um hvern sjúkling, en
það ætti að tryggja honum betri lækningu en ella.
Á öðrum stað í tillögum nefndarinnar er gert ráð
fyrir þeirri nýskipan í heimilislækningum, að læknar
taki sig nokkrir saman um hvern borgarhluta, — og
er það raunar meginatriði tillagnanna. Með þeim hætti
geta þeir veitt borgurunum betri þjónustu, hlaupið
í skarðið hver fyrir annan og komið sér upp ýmsum
gagnlegum tækjum, auk ýmislegs annars hagræðis.
Þessar hugmyndir hníga í sömu átt og viðleitni heil-
brigðisyfirvalda til að koma á læknamiðstöðvum úti
um land. Sú þróun er nú að hefjast og vænta menn
mikils árangurs af henni í framtíðinni. Þetta aukna
samstarf lækna á að geta stóreflt heilsugæzlu hér á
landi. Við erum á réttri braut í þessum efnum. Vissu-
lega mun taka langan tíma að koma á sæmilega full-
komnu samstarfi. En með góðum vilja allra þeirra,
sem hlut eiga að n)álinu, og stuðningi almennings
má hraða framkvæmd þessara þjóðþrifamála.
(i
Yonlítið um sigur Humphreys
— nema Edward Kennedy
verði varaforsetaefni hans
— fundir i Hyannis Port — áhrif Jacqueline
Kennedy réðu úrslitum þar, en hún bað hann
um oð helga sig málum fjölskyldunnar
Ijótt skammt sé þar til kunn-
ugt verður um forsetaefni
demokrata og republikana hefir
þeim, sem keppa um að verða
fyrir vali, ekki teklzt að vekja
verulegan áhuga kjósenda að þvi
er virðist, en vanalega lifnar yf-
ir öllu fyrir kjörmannaþingin.
Deyfð hefir ríkt og sinnuleysi
um kosningabaráttuna, allt síð-
an er Robert Kennedy var
myrtur.
Hubert Humphrey.
Þetta kemur fram í blöðum
og útvarpi og um þetta iöulega
getið í fréttum fréttastofnana
sem að líkum lætur, og seinast
í gær var að þessum málum
vikiö í NTB-frétt frá Washing-
ton. Þar segir, að keppinautar
um að verða fyrir vali sem for-
setaefni reyni allir aö koma
einhverju lífsmarki á allt í
kringum sig, — allir virðast
vera að leita að einhverju nýju,
til þess að ræða um, og draga
fleiri menn en áður fram á sjón-
arsviðið, á tíma svo mikillar
stjórnmálaóvissu, að hún hefir
ekki verið meiri í 36 ár.
Edward Kennedy.
í fréttinni var sagt, að
Humphrey varaforseti ynni nú
að yfirlýsingu varðandi Víetnam
styrjöldina, sem hafi inni aö
halda nýjar tillögur, boöi nýja
stefnu „án þess þó að hafna
þeirri stefnu, sem Johnson for-
seti hefir fylgt“. Verður vafa-
laust fróölegt aö sjá hvemig
tekst til meö að koma þessu
saman. Og hann sagöi í ræðu i
fyrradag að byggja „þyrfti nýjar
brýr" til þess að koma sambúð
Kína og Bandaríkjanna f gott
horf. Og loks segir í fréttinni,
að „Humphrey virðist ákafur í
að vinna Edward Kennedy til
fylgis við sig og ef til vill að fá
hann til að veröa varaforseta-
efni“.
Þetta verður ekki skilið
nema á einn veg, að þótt
Humphrey hafi ,flokksvélina‘ aö
baki sér, í Chicago — að öllum
líkindum að minnsta kosti —
sé hann ékki sérlega sigurstrang
legur í augum fólksins. Sein-
ustu kosningaúrslit benda til,
að mjög hafi dregið úr fylgi
Humphreys í hlutfalli við Nix-
son, en samtímis hafi Nelson
Rockefeller unnið á og komizt
yfir Humphrey, en McCarthy
hefir enn forustuna, meira fylgi
en hinir republikönsku keppi-
nautar hans, Nixon og Rocke-
feller.
Séu horfurnar þær — eða
verði — að engin von sé um
sigur Humphreys í kosningun-
um, — nema vinsældir Edwards
Kennedy bjargi þvi það —
verður án efa lagt fast að hon-
um að verða í framboöi flokks-
ins vegna.
Annað mál er hvað Edward
Kennedy gerir i raun og veru,
en þess ber aö geta, að þátttaka
hans í stjórnmálum hefir verið
mikið rædd á vettvangi
Kennedy-ættarinnar. Og eftir
marga f„ndi skyldmenna- og
vinafólks, er Edward sagður
hafa tekið þá ákvörðun, aö taka
ekki virkan þátt í stórpólitísk-
um málum um sinn, að minnsta
kosti ekki þetta árið.
Það er sagt, að konurnar i
Kennedy-ættinni hafi í reynd-
inni ráöið úrslitum um ofan-
greinda ákvörðun Edwards, og
einkum er sagt að Jacqueline
'le.medy hafi lagt sig alla fram
til þess að fá hann til aö draga
sig út úr allri stórpólitík og
helga sig fjölskyldumálum. Við-
ræður þessar áttu sér stað á
ættarsetrinu í Hyannis Port,
Massachusetts.
„Hver hugsun hennar, fram-
koma hennar öll, ber merki
tveggja mikilla harmleika, harm-
leiksins, er maður hennar John
F. Kennedy forseti var myrtur,
og harmleiksins, er bróðir hans,
Robert sem bezt studdi Jacque-
line i harmi hennar, var myrt-
ur“ (tilvitnun í frétt fréttaritar-
ans Stig Kámphs).
Huber' Humphrey varaforseti
er vafalaust hæfileikamaður,
prúömenni, og þéttur fyrir, þótt
Wwwæi'mwmwmtæfwsmm/ft.
Jacqueline Kennedy
hægt fari, reynsla hans sem
varaforseta vafalaust mikils
viðri — en skyldi það reynast
svo, sem sagt var í einum pistli
um kosningamálin vestra:
„Hann er allt of gamall allt of
samofinn Víetnamstefnu John-
sons“. Og þess vegna séu sigur-
vonirnar litlar þótt valinn yröi
á kjörmannaþinginu — og þurfi
fylgi yngra manns, manns eins
og Edwards Kennedys til þess
aö koma skútunni í höfn?
a.
ur, að verða fyrir valinu sem
forsetaefni republikana- Nelson
Rockefeller er að sækja sig.