Alþýðublaðið - 26.01.1967, Blaðsíða 16
££G2e0ED£ími>
Mótmælum mótmælt
ívlótmælendur eru í essinu sínu
%essa dagana. Félög 'útgerðar-
%nanna víða um land senda dag-
lega frá sér mómtælaorðsending
•ar og mótmæla harðlega takmörk
'<unum á innflutningi veiðarfæra.
vSumir útgerðarmenn mótmæla á
4iti einhverrar togaranefndar þess
cfnis að trollurunum verði hleypt
<nn í landhelgina. Þá hafa ótal
iireppsnefndir og bæjarstjórnir
igert sams konar mótmælasam-
5>ykktir. Ungkommar og einhverjir
’fieiri. mótmæla innrásar.styrjöld
'fc.apitalista 0g heimsveldissinna í
Vietnam. Fara þeir í mótmæla-
•^göngur, bera mótmælasp.iöld og
•<etanda mótmælastöður við banda-
Viska sendiráðið.
Ófá samtök hafa mótmælt Kefla
víkursjónvarpinu harðlega og
Vilja að það verði lagt niður og
'onnur samtök mótmæla harðlega
að það verði lagt niður.
Skeleggur útvarpsmaður flutti
fyrir nokkru erindi þar sem hann
tók upp hanskann fyrir motmæl-
endur og kvað kirkjunnar menn
vera á hörðu undanhaldi frá mót
mælahugsjón sinni og væru að
svíkja mesta mótmælanda allra
tíma, sjálfan Lúter, en innleiða
aftur meiri eða minni pápíska
villu. Ekki stóð á að honum væri
mótmælt og hafa klerkar og verð
andi klerkar sannað hver um ann
an þveran allt síðan að þeir væru
einlægrar mótmælatrúar og væri
útvarpsmanni samra að kynna sér
betur þá góðu trú sem þeir boða
og kirkjusiði en að draga í efa
að þeir færu ekki í einu eða öllu
að góðum siðum mótmælenda.
Eipn kennimanna lét jafnvel að
því liggja að sá vondi úr neðri-
byggð hefði sáð vondu fræi í hug
skot mótmælendans og væri hann
hans verkfæri. Varla þarf vitn-
anna við að þarna sannar kenni-
maðurinn að trú hans er einlæg
Geir Gunnarsson
í Kína er í framför flest,
af fjöri strætin duna,
varðliðana ég met þó mest,
og menningarbyltinguna.
Og þar er endalaus múgur manns
marsérandi á götum.
En hérna fer allt til andskotans
hjá íhaldinu og krötum.
/
*s%s%s%s%s%s%s%s%s%s%^s%s%s%s%s%s%s%s%s%s%s%s%s%.
og hrein hvað sem kirkjusiðum
líður
Ekki er gott að segja hvaða á-
hrif öll þessi mótmæli hafa en
sjálfsagt eru þau einhver, i sum-
um tilfellum. En í öðrum virðast
þau litið stoða. Sennilega fæst
aldrei úr því skorið hvort klerk
ar hérlendis séu einlægrar mót-
mælatiiúar eða ekki enda sýnist
það vera matsatriði hverju sinni
eins og til daémis hjá kommúnist
um. Að vera kommi og kommi
sýnist alls ekki vera það sama
samanber deilur þeirra um rétta
túlkun á trúarritum sínum ■ og
framkvæmd alræðis öreiganna.
Þá er langt frá að allir séu á
einu máli um menningaráhrif
kanasjónvarpsins eða hvaða áhrif
það hefur á fiskistofnanna að
skrapa í landhelgi. En ailir þeir
aðilar sem gaman hafa af mót-
mælum eru náttúrulega vissir í
sinni sök og er þá sjálfsagt að
mótmæla alls konar gerræði sem
framið er hvort sem er í kirkjum,
landhelgi eða á vígvelli hinum
megin á 'hnettinum.
spdug
Myndir hans einkennast af hár
fínum yfirgangi mjög dökkra
tóna — oft svo fínum að augu
áhorfandans sjá bara svartan
flöt í upphafi en greina svo
smám saman fleiri fleti og
marga liti ...
Morgunblaðið
Smjaður er fölsk ávísun, sem
þeir einir taka við, sem ekki
standa undir sér . . .
,
Sannur sjentilmaður, segir kall
inn, er sá, sem opnar dyrnar
fyrir. konunni sinni, þegar hún
kemur með gólfteppið á herð-
unum og er búin að berja það.
Ég hef ekkert álit á þcssu unga
og menntaða kvenfólki. Þegar
bezt lætur hafa þær lesið sér
til um það, sem við gömlu kon-
urnar höftun alltaf vitað. , •