Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 5
S0B DV. FÖSTUDAGUR14. JUNI1985. 5 PEKING ENDURFUNDIR Á LÁGU VERDI Nú er kominn tími til aö endumýja kynnin við Pekingendur, því nú er þessi gómsæti hátíðar- matur á ótrúlega lágu verði, aðeins um kr. 295 kg og hækkaði ekkert um síðustu mánaðamót. Til að gera þessa endurfundi sem eftirminni- legasta fylgja hér matreiðsluuppskriftir þriggja meistara. MATREÐSLUUPPSKRIFTIR MEISTARANNA PEKINGÖND MEÐ PÚRT- VÍNSLEGNUM PERUM Hilmar B Jónsson Fyrir 2-3. Efni: 1 pekingönd 3 stórar perur 1 appelsína 2 dl púrtvín salt og pipar Sósa: Innmaturinn úr öndinni 1 gulrót 1 laukur 6-10 þurrkuð einiber 2 dl vatn óbráðið smjör Afhýðið perurnar, kjarnið og skerið í báta. Leggið í djúpa skál og hellið púrtvíninu yfir. Látið standa í 3-4 tíma. Snúið við öðru hverju. Skerið laukinn og gulrótina í bita og setjið í steikingar- skúffu ásamt innmatnum. Afhýðið appelsínuna og skerið í bita. Hreinsið öndina og þerrið vel. Setjið perurnar ásamt appelsínubátunum innaní öndina og bindið hana upp. Geymið safann af perunum. Nuddið salti og pipar vel inn í haminn á öndinni og leggið hana síðan ofan á innmatinn í steikarskúffunni. Setjið önd- ina inn í 250°C heitan ofn og steikið þar til öndin er orðin fallega brún. Penslið af og til með feitinni sem af drýpur. Lækkið hitann niður í 150°C og steikið í um 45 mín. í allt. Þá er fitunni hellt úr steikar- skúffunni og púrtvíninu hellt í skúffuna með öndinni ásamt vatninu. Sjóðið í 15 mín. í við- bót. Þá er soðið sigtað í pönnu, einiberjunum bætt útí og soðið niður þar til orðið er hæfilega bragðsterkt. Óbráðnu smjörinu er hrært út í sósuna. Eftir það má sósan ekki sjóða. Öndin er tekin úr ofninum, bandið fjarlægt og perurnar og appelsínubátarnir fjar- lægðir með skeið og borið fram með öndinni ásamt t.d. sykurbrúnuðum kartöflum og léttsoðnu selleríi. APPELSÍNUÖND Úlfar Eysteinsson Pekinganda krydd: (fyrir ca. 4 — 5 endur). 1 bolli sykur 1 bolli salt (Sama kornastærð afsykriog saiti, annars minna salt) 1/2 bolli kjúklingakrydd (Eurospice, Lederhausen) 1 matsk. paprikuduft Matreiðsla: Kryddið öndina og setjið inn í 190°C heitan ofn. Steikið í 15 mín. með bringuna upp, snúið öndinni við og steikið í 15 mín. Hellið fitunni af og geymið fyrir sósuna, kryddið öndina aftur og steikið í 30 mín. (miðast við 1900 gr önd). Sósa: Brúnið innmatinn og væng- endana ásamt niðurskornum lauk og gulrót, hellið vatni yfir og sjóðið. Rífið appelsínu- börk og kreistið appelsínu útí soðið eftir að hafa sigtað það. Búið til smjörbollu úr andafit- unni (hveiti + andafita) bætið sósulit og kjötkrafti útí. Ef ekki er nóg appelsínu- bragð af sósunni má bæta hana með sykurlausu Egils appelsíni. PEKINGÖND MEÐ RIFS- BERJASÓSU Skúli Hansen Efni: 1 stk Pekingönd 1 stk laukur 1 stk gulrót 2 stönglar selleri 2—3 lárviðarlauf heill pipar 5. .6 korn maizena sósujafnari Matreiðsla: Úrbeinið fuglinn, losið lærin og bringuna frá beininu, hreinsið^fituna vel frá. Kryddið með salti og nýmöluðum pipar og brúnið rólega í smjörlíki á báðum hliðum. Færið upp úr og geymiíi. Sóaa: Smjörlíki er brætt í potti og beinin höggvin niður og brúnuð vel ásamt öllu ferska grænmetinu. Kryddið með salti og nýmöluðum pipar og lárviðarlaufum. Bætið vatni í pottinn og sjóðið í 30-40 mín. Sigtið soðið og jafnið sósuna með maizena sósu- jafnara. Bragðbætið sósuna með salti og pipar, 3ja kryddi, örlitlu af ,,sage“ eða ,,ört seasoning“ lítið eitt af kjöt- krafti. Að lokum er bætt í sós- una rifs- eða títuberjasultu og portvíni. Andarbringan og lærin eru nú sett út í sósuna og soðin rólega í 15-20 mínútur. ísfugl Fuglasláturhúsið Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit Sími: 666103 Væri ekki þjóðhátíðardagurinn tilvalinn til Peking endurfunda?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.