Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 30
 DV. FÖSTUDAGUR14. JUNl 1985. THE TUBES — LOVE BOMB SAMA GAMLA TIIGGAN Þaö er hreint með ólíkindum hvemig sumar hljómsveitir hafa nennu í sér til að hjakka í sama farinu svo árum skiptir. Ekkert nýtt, bara sama gamla tuggan ár eftir ár, plötu eftir plötu. Ein þessara hljómsveita er banda- ríska rokksveitin The Tubes sem eitt sinn fyrir margt löngu var athyglisverö hljóm- sveit Þá varð hún þekkt og vinsæl fyrir stórkostlega hljómleika sem voru á borð við bestu leiksýningar. En þrátt fyrir hið góða oröspor, sem fór af hljómleikum The Tubes, kolféll hver hljómplata hljómsveitarinnar á fætur annarri. Og skýringin er einfaldlega sú að tónlist The Tubes — án leiksýninganna á hljómleikum — er hvorki fugl né fisk- Engu að síöur heldur hljómsveitin áfram að gefa út plötu svo að segja ár- lega en afraksturinn held ég sé ósköp klénn. Vissulega er þetta allt saman vel unniö enda væru þessir kallar ekki lengur á hljómplötusamningi ef þeir væru ekki að minnsta kosti þokkalegir iðnaðarmenn. Og það er einmitt það sem liðsmenn The Tubes eru — þokkalegir iðnaðar- menn sem meöhöndla hljóðfæri í stað- innfyrirverkfæri. En þegar frumleikann vantar í fram- leiðsluna hverfur hún í fjöldann innan um alla hina meðalmennskuna. Eg á ekki von á því að The Tubes nái neitt lengra með þessa plötu sína en hinar fyrri — nema síður sé. -SþS BOBBYSOCKS - BOBBYSOCKS Norskur útflutningur Norski söngdúettinn Bobbysocks skaust upp á stjömuhimininn fyrir stuttu þegar þær stöllur gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í Evrópukeppni sjón- varpsstöðva með laginu Let It Swing, eins og það nefnist á ensku, en sú út- gáfa er á plötunni sem ber heiti þeirra. Þaö var strax ljóst, eftir aö hafa heyrt Let It Swing, hver fyrirmynd Hanne Krogh og Elisabeth Andréasson var. Abba eftirlíkingin var greinileg. Enda fór það svo að Let It Swing heyrðist mikið strax eftir söngvakeppnina en er nú óðum að falla í gleymsku, flestum tónlistarunnendum til mikillar gleði. Því var það með nokkrum kvíða sem undirritaður setti plötu Bobbysocks undir nálina. Let It Swing hljómaði strax og var ég fljótur að svissa yfir á næsta lag og sem betur fer var þar strax annan tón að finna. Þær eru sem sagt ágætar söngkonur, sem greinilega hafa áhuga á annarri tónlist en sykur- sætum melódíum. Þau lög sem best eru á Bobbysocks eru léttjössuö og fara þær stöllur skemmtilega með lög- in. Má nefna gamlan slagara, Don’t Bring Lulu. Sem dæmi um önnur lög í sama stíl eru Midnight Rocks, Shoo Shoo Baby og Booglie-Wooglie Piggy, lög sem gaman er að hlusta á þótt varla sé hægt að tala um neitt afrek. En það eru einnig lög á plötunni þar sem Abbafílingurinn svífur yfir. Má þarnefnam.a. RadioogAdios. Ekki er ég viss um að Bobbysocks dúettinn eigi mikla framtíð fyrir sér á alþjóölegum markaði, til þess er plat- an í heild of venjuleg, það þarf meira til í hinum harða poppbransa. HK. DIRE STRAITS - BROTHERIN ARMS Gæðaplata frá Mark Knopfler Það kom að því að Dire Straits gæfi út stúdíóplötu. Brothers In Arms er fyrsta plata hljómsveitarinnar í tvö ár ef undanskilin er hljómleikaplatan Al- chemy. Og ekki hefur henni farið aftur. Platan er búin öllum þeim kostum sem vænta má af Mark Knopfler og félög- um. Þrátt fyrir að Mark Knopfler hafi ekki komið í stúdíó með Dire Straits lengi, hefur kappinn ekki aldeilis verið aðgerðalaus. Á þessum tveimur árum hefur hann samið tónlist við þrjár kvikmyndir, Local Hero, Cal og Com- fort And Joy, allt gæðamyndir, og hef- ur kvikmyndatónlist Knopflers fengið virkilega góða dóma, eins og kvik- myndimar. Mark Knopfler á sem sagt mikla framtið fyrir sér sem kvik- myndatónskáld ef hann kærir sig um. Ef vikið er aftur að Brothers In Arms þá er platan alveg eins og aðdá- endur Dire Straits gátu bæði vonast eftir og búist við. Síðasta stúdíóplatan, Love Over Gold, olli að vissu leyti von- brigðum, þó undirritaður telji fyrri hlið plötunnar með því allra besta sem komið hefur frá Dire Straits. Seinni hliöin var aftur á móti miklum mun verri og eyðilagði heildarútkomuna. Brothers In Arms er mun betri þegar litið er á heildina, en samt ekki eins góð og Making Movies sem er tvímæla- laust besta piata sem Dire Straits hef- ursentfrásér. Fyrri hliðin er öllu léttari og með- tækilegri. Fyrsta lagið er So Far Away, lag sem nokkuð hefur heyrst undanfarið, litil og létt melódía sem, þegar farið er að hlusta á plötuna, er kannski einna síst eftirminnileg. Money For Nothing er eitt af bestu lög- um á plötunni. Mark Knopfler nýtur þar aðstoðar Sting. Walk Of Life er léttur rokkari, Your Latest Trick og Why Worry eru róleg lög, og nýtur Knopfler aðstoðar Michaels Brecker á saxófón í fyrrnefnda laginu. Bróðir Michaels, Randy Brecker, tekur aðeins í trompetinn í fyrsta lag- inu á seinni hlið plötunnar, Ride Across The River, virkilega góðu lagi með suðrænum takti. The Man Is To Strong og Brothers In Arms eru stór- I SMÆLKI Sæl nú! Greenpeace samtök- in. sem á undanförnum árum hafa meðal annars gert íslenskum hvalveiðimönnum lifið leitt, ætla nú að virkja popparana i baráttunni fyrir verndun hvalastofnsins. Og popphetjurnur sem þegar hafa gengið á mála hjá Græn- friðungum eru ekki af lakara tæinu. Þar má nefna Nik Kershaw, Howard Jones, Eurythmics og gamla bitil- mennið George Harrison. Astæðan íyrir því að ofan- taldir popparar Ijá þessum málstað lið ku vera sú að þeir eru allir grænmetisætur. . . Gamla brýnið Roy Orbison. sem var á hátindi írægðar sinnar um 1965, hyggst nú snúa aftur í sviðsljósið og hef- ur skriíaö undir samning við breska hljömpJötuíyrirtækið ZTT í því skyni... Bandariska kvennahljómsveitin Go-Go's. sem sló í gegn hér um árið, heíur lagt upp laupanu. . . Gh’nn Frey, fyrrum liðsmað- ur Eagles, sem að undan- förnu heíur gert það gott með lagið The Heat Is On, hefur nú sent frá sér nýja smáskííu með iaginu Smugglers Blues. . . KvikmyndatónlistarjÖíur- inn (langt orð!) Giorgio ðloroder og Philip Oakey siingvari The Humau League. sem í vetur uutu mikilia vinsælda með lag- ið Together In Eleetrie Dreams, eru nú komnir á stju með ný1t lug, Goodby Pad Times. Stór plata með þeim féiögum er reyndar væntan- ieg síðar i sumar. . . Gömlu góðu Sqeeze, sem voru endur- reistir í vetur, eru að seiida írá sér litla plötu með laginu Last Time Forever. og í næsta mánuði er stór plata væntanleg. . . Jiminy góð lög sem bera því vitni hversu al- hliða tónlistarmaður Mark Knopfler er. Inn á milli þessara tveggja laga er One World sem vantar herslumuninn á að vera í sama gæðaflokki og tvö fyrr- nefnd lög. Mark Knopfler hefur ekkert farið aftur sem lagahöfundi. Gítarleikur hans er frábær og hefur ekki verið betri. Það má deila um hversu góður söngvari hann er, en hann hefur alla- vega sinn sérstaka stíl. Fyrir utan sína fastamenn hefur Knopfler leitað aðstoðar þekktra manna innan jassins, má þar nefna Brecker, bræðuma Michael og Randy ogMike Mainieri. HK. Sommerviiie. sem yíirgaí Bronski Beat á dögunum. á enn i stökustu vandræðum með að finna ónotað nafn á nýju hljómsveitina siiia. Fyrst átti hún að heita The Committee en i ljós kom aö hljómsveit með því nafni var staríandi. Þá var ákveðið aö breyta nafninu i Body Politie en því nafni hefur nu verið varpaö fyrir roða vegna þess að iinnur hljómsveit heíur notað þetta nafn um alilangt skeið. Nafnaieítin heldur áfram.. . . Þungarokksveitin Motorhead heldur um næstu mánaðamót upp á tiu ára af- mæli sitt með veglegum kon- sert í Hammersmith Odenn i London. . . Finnsk-breska hljómsveitiii Hanoi Roeks á enn i vandræðum meö mann- skapiun, fýrst iést trommar- inn, þá hætti bassaleikariiin og nú er nýi bassaleikarinn hættur... Buið í bili...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.