Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 9
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986. 9 Utlönd Utlönd Utlönd „ Vín dauðans “ Svisslendingar skera upp herör Frá Gissuri Helgasyni, fréttaritara DV í Ziirich: Yfirvöld hér í Sviss munu í dag, mánudag, skera upp herör gegn ít- ölskum vínum og munu í því skyni heimsækja ílestöll innflutningsfyrir- tæki, veitingahús og aðra þá staði þar sem vín er á boðstólum. Talið er hugsanlegt að mikið af vínum frá Italíu innihaldi verulegt magn metanóls og ekki er talið óhugsandi að það sé einnig í Vermo- uth hér í Sviss. Ummæli þessi eru höfð eftir Dr. Hans Schwab sem er fulltrúi heil- brigðisráðuneytisins í þessum málum. Þriðja hvert glas, sem Svisslend- ingar drekka af rauðvínum, kemur frá Italíu. Á undanförnum dögum og vikum hefur mjög dregið úr vínkaup- um Svisslendinga frá Ítalíu en hér má nefna að Svisslendingar kaupa um 45 milljónir lítra af borðrauðvín- um þaðan. Fundist hefur verulegt magn metanóls í Vermouth og í Dan- mörku og á Sardiníu hefur verið lagt hald á um 25 þúsund lítra. Ein milljón flöskur Yfirvöld.í Danmörku hafa að auki stórlega varað almenning þar í landi við neyslu ítalskra vína á meðan rannsókn ó dreifingu eiturefna í ít- ölskum vínum fer fram. Samkvæmt ítölskum heimildum þá mun um ein milljón flaskna vera með eitruðu víni á markaðnum og sú er ástæðan fyrir fyrirhugaðri innrás svissneskra yfirvalda á ákveðna staði hér í Sviss. Yfirvöldum er mikill vandi á hönd- um og hér er fjöldi smáinnflytjenda sem hafa verður uppi á og auk þess berst alltaf eitthvert magn yfir landamærin án þess að yfirvöldum sé kunnugt þar um. Eitur þetta hefur nú dregið 19 manns til dauða og hætt er við að fleiri bætist við þennan lista á Ítalíu. FARÞEGARSKIPIÐ LAURO STRANDAD ítalska skemmtiferðaskipið Achille Lauro strandaði í gær ekki langt frá þeim stað þar sem hryðjuverkamenn Palestínu- araba rændu skipinu í fyrra. Steytti skipið á skerjum við inn- siglingu hafnarinnar í Alexandr- Um 600 farþegar voru um borð í þessu 24 þúsund smálesta skipi, en þeim þótti engin hætta búin. Um skemmdir er ekki vitað full- komlega en tilraunir hefjast í dag við að koma skipinu á flot aftur. I október síðasta héldu arab- ískir hryðjuverkamenn 400 farþegum og áhöfn skipsins í gísl- ingu í rúma tvo sólarhringa. Myrtu þeir fatlaðan bandarískan ferðamann, aldraðan og í hjóla- stól, áður en þeir gáfust upp fyrir egypskum yfirvöldum. Bandarísk herþota neyddi síðar egypska farþegavél, með fjóra flugræn- ingjanna innanborðs, til þess að lenda á Sikiley þar sem þeir voru handteknir. Norski ríkiskassinn tapar hundruðum milljóna króna á hveijum degi verkfalls starfsmanna i norska olíuiðnaðin- um. Menn spá nú harðnandi verkfallsátökum. Spá harðnandi verk- fállsátökum í Noregi Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari DV í Osló: Þessa dagana er hörð barátta um laun í norsku atvinnulifi. Eftir að samningatilraunirnar við verkamenn á olíuvinnslusvæðunum í Norðursjó fóru út um þúfur í gær var öll vinna á olíuborpöllunum stöðvuð og þyrlur fluttu fólkið í land i gærkvöldi. Það voru 4.300 manns er hófu verk- fall í gærkvöldi. Á meðan verkfallið stendur yfir tapar ríkið 130 milljón- um norskra króna á sólarhring. Aðrir samningar ganga heldur ekki vel. Fulltrúar fimm annarra atvinnu- greina hafa einn dag til þess að ná samkomulagi en ríkissáttasemjarinn Björn Haug er svartsýnn á árangur og býst við harðnandi verkfallsátök- um. Minnst er vonin um samkomulag er lægst launuðu hóparnir geta sætt sig við. Eftirmaður Palmes mjög vinsæll Gunnlaugur A. Jónsson, fréttarit- ari DV í Lundi: Næstum tveir þriðju hlutar sænsku þjóðarinnar eða 62% bera mikið traust til Ingvars Carlssonar forsæt- isráðherra. Er hér talað um nýtt met í sænskri pólitík. Enginn flokksfor- ingi hefur áður fengið svo góða útkomu úr skoðanakönnunum. Versta útkomu fékk Gösta Adelsohn, aðeins 16% kjósenda sögðust bera mikið traust til hans. Skoðanakönnun þessi var gerð á tímabilinu 5. til 21. mars eða á fyrstu vikunum eftir morðið ó Olof Palme. Ingvar Carlsson vildi ekki tjá sig við fréttamenn um þessa útkomu. „Það er föst regla hjá mér að tjá mig aldrei um niðurstöður skoðanakann- ana,“ sagði hann. Eftir mikinn kosningasigur jafnað- armanna 1968 fékk Tage Erlander 60% út úr sambærilegri skoðana- könnun. Síðan hefur enginn sænskur flokksformaður fengið svo góða út- komu þar til Ingvar Carlsson slær metið nú. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. • Viðskiptafræðingur óskast í fjármála- og rekstrar- deild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Hér er um að ræða nýja stöðu sem mun hafa að viðfangsefnum innra eftirlit varðandi fjárhagsað- stoð og umsjón með rekstri stofnana í þágu aldr- aðra ásamt verkefnum á sviði tölvuvæðingar. Upplýsingar gefur yfirmaður fjármála- og rekstrar- deildar í síma 25500. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 13. apríl. VIKAN AUGLÝSINGADEItD Þverhohi 11, sími 27022 F YRIRTÆKI - ATVINNUREKENDUR! VIKAN selst jafnt og þétt, í dreifbýli og þéttbýli. Þess vegna geta auglýsendur treyst því að auglýs- ing í VIKUNNI skilar sér. iH RÍKISSPÍTALARNIR Meinatæknir óskast til litningarannsókna við Rann- sóknastofu Háskólans í meinafræði. Starfsreynsla við litningarannsóknir æskileg. Upplýsingar veitir forstöðumaður Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði í síma 29000. Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á taugalækninga- og lyflækningadeildum Landspítalans, svo og á kven- lækningadeild 21 A. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Landspítalans í síma 29000. Hjúkrunardeildarstjóri óskast við Geðdeild Landspít- alans, deild 12 að Kleppi. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Geðdeildar Landspítalans í síma 29000. Aðstoðardeildarstjóri óskast við Geðdeild Barnaspít- ala Hringsinsvið Dalbraut. Fóstra eða þroskaþjálfi óskast við Geðdeild Barnaspít- ala Hringsins. Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri í síma 84611. Starfsmaður óskast til frambúðar við taugarannsókna- stofu augnlækningadeildar Landspítalans. Starfið er m.a. fólgið í töku heila- og taugarita. Sjúkraliðamennt- un æskileg en ekki skilyrði. Upplýsingar veittar í síma 29000 (459). Reykjavík, 6. apríl 1986.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.