Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. Utlönd Framundan er nú níu mánaða barátta um hver eigi að taka við stöðu Dengs Xiaoping, valdamesta manns Kína. Hu Yaobang hefur kvatt. Brottvikningu hans úr embætti flokksformanns bar Getum er leitt að því að hann hverfi af sjónarsviðinu i október en þá verður ráðstefna flokksins haldin. bráttaðogtaliðervístaðDenghafiekkivikiðhonumfrásársaukalaust. Afsögn Hu Yaobang, flokksfor- manns kínverska kommúnista- flokksins, í síðustu viku ber vitni um mikla valdabaráttu í Peking. Valdamesti maður Kína, Den Xiaop- ing, lét undan þrýstingi íhaldssamari vængs flokksins og fómaði nánasta samstarfsmanni sínum til þess að reyna að koma í veg fyrir að hætt verði við þær endurbætur sem hann hóf fyrir áratug. Hu Yaobang var ekki einungis samstarfsmaður Deng Xiaopings heldur einnig einn af hans nánustu vinum síðastliðin fjörutíu ár. Þykir fullvíst að Deng hafi ekki vikið Hu úr embætti sársaukalaust. Það sama á við tilraun hans til að beina gagnrýni íhaldssamra frá hon- um sjálfúm og að hópi menntamanna sem áttu mikinn þátt í því að endur- bætumar áttu sér stað. í hættu staddur Þegar menntamennimir studdu mótmælaaðgerðir stúdenta í des- ember síðastliðnum var Hu Yaobang í hættu staddur en hann var „vemd- ari“ menntamanna. Til vemdar Hu og sjálfum sér flýtti Deng sér að beina spjótum sínum að mennta- mönnum og vék sumum þeirra úr starfi. Að lokum neyddist hann þó til þess að gefa vin sinn upp á bátinn. Stöðu Hus var þó þegar ógnað. Það hversu opinskár hann var átti ekki upp á pallborðið hjá þeim íhaldssömu sem biðu eftir að hann gæfi færi á sér. Hu var heldur ekki í neinu sérstöku áliti hjá hemum né heldur alþýðunni. Hart barist En það var ekki bara vegna þess- ara atriða sem Hu var neyddur til þess að segja af sér flokksformennsk- unni. Hart er barist um það hver verði eftirmaður Dengs Xiaoping. Hann er orðinn áttatíu og tveggja ára og á flokksráðstefnu, sem haldin minnsta kosti leggja opinberir fjöl- miðlar mikla áherslu á það að sú stefha sem bætt hefur lífsafkomu Kínverja sé óbreytt. Að Zhao Ziang skyldi verða út- nefndur sem flokksformaður þykir einnig benda til að svo sé. Talið er að hann hafi markað þá stefriu sem tekin hefur verið í efnahagsmálum. Valdabarátta Framundan er nú níu mánaða valdabarátta þar til flokksráðstefh- an verður sett. Deng nýtur mikils álits sem skynsemdarmaður og vel getur verið að hæfileikar hans til þess að halda velli í stjómmálunum komi honum einnig að gagni í haust. Svo virðist sem íhaldsmenn séu ekki með neinn sérstakan frambjóðanda á sínum snærum. Sá sem líklegastur hefur verið tal- inn til að komast áfram á frama- brautinni er Hu Qili sem hefur haldið því fram að Kína þurfi að losa sig við úreltar kenningar Marx. Nú er þó talið að Qiao Shi veiti honum harða samkeppni en hann er talinn vera í íhaldssamara lagi. Hefúr hann verið yfirmaður leyni- þjónustunnar. Styrk staða Zhao Ziyang þykir hafa styrkt stöðu sína eftir þessa nýju útnefn- ingu. Hann er sextiu og sjö ára gamall og þykir það ekki mikið á kínverskan mælikvarða. En hann er einnig undir vemdarvæng Dengs og náin tengsl við gamla manninn em ef til vill ekki æskileg í þeirri hörðu baráttu sem framundan er. Verið getur að kænska ráði úrslifr um því sá sem hug hefur á stöðu valdamesta manns Kína þarf að sýna mikla gætni næstu mánuðina. verður í október, er gert ráð fyrir að mikilvægar ákvarðanir varðandi embætti valdamesta manns Kina í framtíðinni verði teknar. Sigur þeirra íhaldssömu í síðustu viku þykir ekki eingöngu vera fólg- inn í því að Hu var látinn víkja heldur einnig hvemig staðið var að brottvikningunni. Eðlilegast hefði verið að hún hefði átt sér stað í október á ráðstefnu flokksins þar sem honum hefði verið þakkað fyrir vel unnin störf. Sjálfúr hefði Hu getað tilkynnt að hann teldi að nú væri kominn tími til þess að einhver yngri tæki við. Mætti fjandskap í staðinn mætti hann fjandskap er hann gagnrýndi sjálfan sig um leið og hann tilkynnti afsögn sína á fundi í miðstjóm flokksins á föstudaginn var. Hu heldur samt sæti sínu í mið- stjóminni. Þykir það benda til mikils þrýstings af hálfú gagnrýnenda hans að brottvikninguna skyldi bera svo brátt að. Þeir íhaldssamari innan flokksins em sagðir aðhyllast þá stefnu er tek- in hefur verið varðandi umbætur í efnahagsmálum en kjósa heldur hægari ferð. Þeir geta vel hugsað sér að notfæra sér vestræna tækniþekk- ingu en hafna aftur á móti vestræn- um hugmyndum. Eru þeir sérstak- lega á móti allri þátttöku almennings í stjómmálum. Óbreytt stefna Þrátt fyrir þá kreppu sem ríkir núna virðist sem umbótum í efna- hagsmálum sé ekki ógnað. Að Zhao Ziang, forsætisráöherra Kína, hefur nú veriö út- nefndur formaður flokksins. Álitiö er aö yfirmaöur leyniþjónustunnar, Qiao Shi, taki þátt í valdabaráttunni sem framundan er. - Símamynd Reuter. Barist um völdin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.