Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 40
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gaett. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreiffing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. Staðgreiðslukerfi skatta: Halldór fullur efiasemda „Ég er og hef verið áhugamaður um að koma á staðgreiðslukerfi skatta en er fullur efasemda um að það takist á þessu þingi. Ég tel að sá tími sem Al- þingi á eftir að starfa sé of naumur til að koma málinu í gegn. Hér er um stórmál að ræða sem ekki má flana að. Undirbúningur þarf að vera vand- aður og hann tekur sinn tíma. Ég er ekki með þessu að segja að það sé útilokað að koma málinu fram í ár en er fullur efasemda," sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðhena í samtali við DV í morgun. „Ég tel óskynsamlegt að stefria mál- inu i hættu með því að ætla sér of skamman tíma eins og gerðist 1979,“ sagði Halldór Ásgrímsson. -S.dór Konu misþyrmt á heimili sínu Maður á fertugsaldri var handtek- inn í gær grunaður um að hafa ráðist á unga konu á heimili hennar í Vest- urbænum í Reykjavík og veitt henni alvarlega áverka. I fylgd með honum var kona sem einnig var handtekin vegna málsins. Ekki var búið að yfir- heyra fólkið þegar DV fór í prentun í morgun. Lögreglan var kölluð á heimili kon- unnar snemma í gærmorgun og þegar þangað kom var aðkoman vægast sagt ömurleg. Konan lá í rúminu og gat enga björg sér veitt vegna meiðsla og vímu sem hún var í. Tvö böm konunn- ar voru í íbúðinni, 15 mánaða og á þriðja ári og var þeim komið fyrir hjá kunningjakonu móðurinnar. Konan var flutt á slysadeild og síðan lögð inn á sjúkrahús. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær konan varð fyrir áverkunum en fram hefúr komið að maðurinn hafi komið á heimili konunnar einhvem tímann á þriðjudag. Maðurinn, sem er granaður um verknaðinn, hefúr margoft komið við . •^ögu lögreglunnar vegna líkamsárása, innbrota og auðgunarbrota ýmiss kon- ar á undanfömum mánuðum og árum. Hann afþlánaði nýlega dóm á Litla- Hrauni og mörg mála hans eru í vinnslu í dómskerfinu. -SJ Ávallt feti framar 68-50-60 ClBÍL Asr0 ÞRDSTIIR SÍÐUMÚLA 10 Fórst í aðflugi að ísafjarðaiflugvelli „Menn á rækjubát sáu flugvélina út af Amamesi. Það voru blindél þegar þetta gerðist. Þeir sögðu að flugvélin hefði komið lágt yftr bát- inn. Þeir sáu flugvélina hverfa inn i élin,“ sagði Skúli Skúlason, for- maður Björgunarsveitarinnar Skutuls á ísafirði. Flugmaður tveggja hreyfla flug- vélar frá flugfélaginu Emi á ísafirði fórst er flugvél hans fór í sjóinn í ísafjarðardjúpi rétt fyrir klukkan 20 i gærkvöldi. Orsakir slyssins era ókunnar. Flugmaðurinn hét Stefán Páll Stefánsson og var 38 ára gamall. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú böm, á aldrinum 6 til 19 ára. Hann hafði búið á ísaftrði í tvö ár. Flugvélin TF-ORN, með tíu sæti, af gerðinni Piper Chieftain, var að koma úr skoðun frá Akureyri. Klukkan 19.48 tilkynnti flugmaður- inn sig yfir Reykjanesskóla og var að hefja aðflug. Klukkan 19.56 hafði hann aftur samband við Isafjarðar- flugvöll. Flugvallarstarfsmaðurinn staðfesti sambandið en heyrði ekki frekar frá flugvélinni. Varðskipið Óðinn, sem statt var við Æðey, heyrði í neyðarsendi rétt fyrir klukkan 20. Hófst þegar um- fangsmikil leit. Flugvél Flugmálastjómar, útbúin miðunartæki fyrir neyðarsendinn, var komin á vettvang úr Reykjavík aðeins 35 mínútum síðar. Þyrla Landhelgisgæslunnar og Orion-vél Vamarliðsins fóru einnig til leitar. Á landi leituðu björgunarsveitir slysavamadeilda og skáta úr Bol- ungarvík, Hnífsdal, ísafirði og Súðavík. Á sjó leituðu yfir tuttugu skip og bátar. Um klukkan 22 fór að finnast brak um fjórar sjómílur norður af Skut- ulsfirði. Varðskipið fann fyrst olíu- brák en stærsta brakið sem fannst var hluti úr væng. Klukkan 23.50 fannst lík flug- mannsins á floti. Flugfélagið Emir keypti þessa flugvél eftir slysið í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi í apríl í fyrra. „Það er skammt stórra högga á milli. Það er ekki endalaust hægt að verða fyrir þessu,“ sagði Hörður Guðmundsson, flugmaður og aðal- eigandi Emis, í morgun. -KMU Flugvélin TF-ORN. Flugfélagið Ernir keypti hana eftir slysið í Ljósufjölium í fyrra. LOKI Ráðherrarnir verða orðnir miklir efahyggjumenn þegar loks kemur að kosningum! Veðrið á morgun: Súld og þokuloft við suður- ströndina Á föstudaginn verður vestan og suðvestan gola um mest allt landið. Súld og þokuloft víða við suður og vestur ströndina en þurrt og allbjart veður á Norður- og Aust- urlandi. Hiti verður á bilinu 3-5 stig. Jón G. Haukæcn, DV, Akureyrt Það fæst úr því skorið í dag hvort sérframboð Stefáns Valgeirssonar fær leyfi stjómar kjördæmissam- bands framsóknarmanna í Norð- urlandskjördæmi eystra til að nota listabókstafinn BB í komandi al- þingiskosningum. Stuðningsmenn Stefáns eru ekk- ert alltof bjartsýnir á að framboð hans fái BB.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.