Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. Neytendur HÆMO- GLUCO TEST LYFJAVERSLANIR 5000 - 4000- J 3000- í 2000 - 1000 - 50stk. ■g 3 « ■* 1. Árbæjarapótek , 10. Laugamesapótek 2. Kópavogsapótek 11. Laugavegsapótek - 3. Garðsapótek 12. Lyfjaberg 4. Iðunn 13. Lyfjabúð Breiðholts 2000 - 5. Borgarapótek 14. Nesapótek 6. Ap.Norðurb.Hafnarf. 15. Vesturb.apótek J 7. Hafnarfjarðarapótek 16. Reykjav.apótek I 1000- 8. Háaleitisapótek 17. Keflavikurapótek 9. Ingólfsapótek 18. Mosf.apótek 3000 1 25stk. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 40 i 30- 20 • 10- SPRAUTUR i i 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Allt að 35% verðmunur á blóð- sykurmæliblöðum fyrir sykursjúka Athygli okkar var vakin á því að mismunandi verð er á blóðsykur- mælistrimlum sem sykursjúkir þurfa að nota. Þetta heitir Hæmo-gluco- test og munar á 25 stk. pakkningu 7,5% á hæsta og lægsta verði en á 50 stk. pakkningu munar hvorki meira né minna en 35%. Þar sem þessir strimlar eru dýrastir kosta þeir 4.290 kr. en 3.188 kr. þar sem þeir eru ódýrastir. Hins vegar skiptir þetta ekki miklu máh fyrir sjúklingana sjálfa því þeir þurfa aðeins að greiða 10% af verð- inu. Almannatryggingar greiða 90% af kostnaðinum. Það hlýtur aftur á móti að skipta nokkru máli fyrir rík- ið sjálft hvort það greiðir 3.861 kr., þar sem strimlamir eru dýrastir, eða 2.807 kr. þar sem þeir eru ódýrastir. Einnota sprautur, sem sykursjúkir þurfa einnig að nota, eru seldar á mismunandi verði. Við könnuðum verð á Vi cc Terumo sprautum. Þær kosta frá 21 kr. upp í 30 kr., sem er 43% mismunur. Ríkið greiðir einnig 90% af verði sprautanna. Atján apótek á Stór-Reykja- víkursvæðinu Kannað var verð í átján apótekum á Stór-Reykjavíkursvæðinu, þ.e. í Reykjavík, Kópavogi, Hafharfirði, Mosfellssveit og Keflavík. Algengasta verðið á 25 stk. Hæmo-glucotesti er 2.490 kr, dýrust var sú pakkning á 2.675.1 einu apó- tekinu, Reykjavíkurapóteki, var til ein pakkning sem kostaði aðeins 1.725 kr. Næsta verð fyrir ofan þetta var 2.488 kr. Hæmo-glucotestið er ekki til eins hjá heildsalanum eins og er, en þessar tölur tala sínu máli. Að öðru leyti vísast til verðtöflu hér á síðunni þar sem verðið er bor- ið saman á greinilegan hátt. -A.BJ. Hæmo-glucotestið og sprautumar sem verðið var kannað á. DV-mynd Brynjar Gauti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.