Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR12. FEBRÚAR1993 Spumingin Heldurðu að mestu vetrar- hörkurnar séu að baki? Ólöf Magnúsdóttir ræstitæknir: Ég held þaö sé svona mánuður í að þeim ljúki, held það eigi eftir að snjóa meira. Guðlaug Gisladóttir: Það á að minnsta kosti eftir að snjóa meira. Þóra Karlsdóttir hjúkrunarfræðing- ur: Já, ég held það versta sé að baki. Sjöfn Ásgeirsdóttir húsmóðir: Ég vona að þær séu að baki. Hákon Birgisson nemi: Ég vona að það fari að hlýna. Halldóra Ingólfsdóttir verkakona: Það ætla ég aö vona. Lesendur H vað gera kennarar? starfi sem þar fer fram“, segir m.a. í bréfinu. Óskar J. Sandholt, form. Kennara- samb. Austurlands, og Sverrir Gests- son, varaform. Kennarasamb. Aust- urlands, skrifa: Dagana 15.-19. febr. stendur yfir opin vika í austfirskum grunnskól- um. Þá gefst foreldrum og öörum áhugamönnum um skólastarf kostur á að fylgjast með kennurum og nem- endum í starfi í kennslustundum. Það er mikilvægara nú en oft áður vegna þess að málefni grunnskólans eru ofarlega á baugi um þessar mundir. Fleiri ástæður eru og fyrir því að nú skiptir máli að sem flestir myndi sér eigin skoðun á grunnskól- anum og því starfi sem þar fer fram. Nú standa yfir samningar á milli kennara og ríkisins. Það er ástæða til að vekja athygli á því að verið er að mótmæla aðgerðum ríkisstjómar- innar en ekki ríkisstjórninni sjálfri. Það gera þeir sem það vilja í kosning- um á fjögurra ára fresti. Það er líka rétt að benda á að forveri þessarar ríkisstjórnar stóð sig ekki síður vel í að skera kaupmátt almennings nið- ur við trog. Erfitt er að sjá úr hvaða átt almennir launþegar geta helst vonast eftir stuðningi á borði. Stuðn- ingur í orði kemur hins vegar úr öll- um áttum. En það er önnur saga. Nú virðist ljóst að kröfum kennara hefur verið hafnað af samninganefnd ríkisins. Fyrir ári síðan stóðu kenn- arar eins og aðrir launþegar í þeim sporum að vega og meta hvernig bregðast skyldi við. Þá ákváðu laun- þegar að taka á sig kaupmáttarskerð- ingu í trausti þess að ekki yrði höggv- ið tvisvar í sama knérunn. Það hefur hins vegar verið gert og það er ekki hægt að búast við að þvi verði tekið með þögn og þolinmæði í þetta skipti. En hvað er þá til ráða? Eina löglega aðgerðin sem kennarar (og reyndar fleiri launþegar) geta gripið til og hefur einhvem slagkraft er hið óynd- islega úrræði, verkfall. Það er ósanngjörn aðgerð, þótt ekki sé nema vegna þess að það bitnar á þeim sem síst skyldi, þ.e. nemendum og foreldrum. En kostirnir, sem kennarar standa frammi fyrir, em í aðalatriðum tveir og báðir slæmir. Annars vegar að fara í verkfall, sem er slæmt, og hinn kosturinn, sem er verri, er sá að taka því enn einu sinni þegjandi og hljóðalaust að lífskjör séu skert langt umfram það sem sanngjarnt getur talist. Það er ekki auðvelt að segja til um það núna hvor kosturinn verður fyrir valinu, en heimsókn í skóla auðveldar von- andi foreldrum að móta skoðun á því hvort kröfur kennara séu sanngjam- ar, en án samstöðu launþega og skilnings almennings er lítil von til þess að bjartari dagar séu framund- an í baráttunni við framfærsluna. Lipurð í bif reiðaþjónustu Árni St. Árnason skrifar: Föstudagsmorguninn 5. þ.m. bilaði jeppabifreið mín sem ætlunin var að ferðast á það sama kvöld frá Hafnar- firði norður í land. Ég vildi vera á vel útbúnum bíl þar sem spáð var slæmu veðri þennan dag. Nú voru góð ráð dýr því að fostudagur er einn annríkasti dagur á verkstæðum og bílaþjónustunni yfirleitt. Ég fór þó með jeppann á verkstæði Toyota-umboðsins með þá veiku von að hægt væri að aðstoða mig. Þar tók á móti mér einkar vingjarnlegur eldri maður sem mun hafa verið verkstjóri á staðnum. Hann skoðaði jeppann og reyndi síðan að finna mér stað á yfirfullri dagskrá verkstæðis- ins. Það var að vísu ekki hægt, en hann útvegaði mér tíma á öðrum stað á nokkrum mínútum. - Ég færi Toy- ota-mönnum þakkir fyrir lipurðina og mun snúa mér til þeirra síðar er á þarf að halda. Stuttu síðar var ég staddur í Bíla- búö Benna þar sem ég þurfti að kaupa tjakk fyrir ferðalagið. í rælni spurði ég hvort mikið annríki væri á verkstæðinu hjá þeim enda eftir- sótt af jeppaeigendum. Verkstjórinn á því verkstæði tók á móti mér af sömu alúð og lipurð og þeir hjá Toy- ota, nema hvað þama var mér boðið að ljúka viðgerð á stundinni. Toyota og Bílabúð Benna tryggðu mér því öruggan fararskjóta. Svona lipurð mætti vera á fleiri stöðum í bílaþjón- ustunni hérlendis. Til að allir njóti f élagaf relsis Beðið eftir farseðlum á vegum stéttarfélaganna. alla ævi í lífeyrissjóð til að fá hungur- Gunnar Ólafsson skrifar: Manni getur orðið bumbult er mað- ur les ummæli launþegaforingjanna sem rembast eins og ijúpan við staurinn að verja óréttlætið sem fylg- ir skylduaðild aö stéttarfélögunum. Þannig mátti lesa svar eins þeirra í dálkinum „Með og móti“ í DV sl. þriðjudag. Þar svaraði formaður Iðju, félags verksmiðjufólks, og reyndi aö rökstyðja þessa skylduað- ild að stéttarfélögunum. Aðalrökin voru þau að út á hana fái fólk ýmiss konar réttindi, eins og hann orðar það. Og endurtekur þetta svo með því að segja „margháttuð réttindi". Fólk sé um leið að borga í sameiginlega sjóði sem skapi skilyrði til að njóta þeirrar þjónustu og hlunninda sem félögin bjóði fólki upp á. - „Fólk getur náttúrlega ekki feng- ið nein réttindi hjá félagi sem það er ekki í. Ef fólk vill ekki vera í félagi á það heldur ekki neina kröfu á því að fá þá þjónustu sem félagið veit- ir,“ segir formaður Iðju ennfremur. Ef hann er hér að tala um hlunn- indi í formi sumarbústaöaafnota eða afsláttar af flugfarseðlum til útlanda þá eru ekki nærri allir launþegar sem notfæra sér þessi hlunnindi stéttarfélaganna. Annarra „hlunn- inda“ minnist ég nú ekki í svipinn. - Réttindum eða þjónustu ættu stéttar- félögin ekki að flagga um of. Hvort tveggja er í lágmarki og fást mun betri á frjálsum markaöi. Eða eru það eftirsóknarverð réttindi að greiða lus til baka að loknum starfsdegi? Er sjóðfélagi deyr fær makinn enn minna og deyi hann einnig hirðir líf- eyrissjóðurinn innlegg hins látna fé- lagsmanns. Eru þetta eftirsóknar- verð réttindi eða þjónusta? Sannleik- urinn er auðvitað sá að félagafrelsi felst fyrst og fremst í sjálfdæmi um félagsaðild. Ólafur hringdi: Maður sér í fréttum að hinir árvissu samningafundir vhmu- markaðarins eru að hefjast. Þetta er alltof fjölmennt hð til að sitja að spjalli dag eftir dag. Ég tók eftir því að enn eru fulltrúar Vinnumálanefndar samvinnufé- laganna mættir til leiks. Fyrir hverja eru þeir að semja? Er ekki búið að segja öllum upp hjá SÍS? Skólamáltíðir Sigurdis skrifar: Eg flokka skólamáltíðir í öllum skólum einíaldlega undir menn- ingarmál. Þetta fyrirkomulag tíðkast um allan heim þar sem á annað borð er viðhlítandi skóla- kerfi. Þetta ætti ekki að vera stór- mál í framkvæmd. Ég minnist til- raunastarfsemi Mjólkursamsöl- unnar á fyrírtaks skólanesti, snyrtilega útbúnu i smekklegum boxum. Hví má ekki taka það upp aftur þar til skólamáltíðir eru fyrir hendi í öllum skólum? Afnámskylduað- ildarrétflætismál Guðrún, nemi í H.Í., skrifar: í DV fyrir nokkru var athygli- verður leiðari Ellerts B. Schram ritstjóra. Hann gerði að umtals- efni afnám skylduaðildar að fé- lögum og sérstaklega þá umræðu sem verið hefur i gangi í Háskóla íslands um afnám skylduaðildar að SHÍ. Ég hef fylgst með þeirri umræðu og vil lýsa ánægju með að einhverjir skuli hafa kjark til að taka á þessu máli. Það er kom- inn tími til að við háskólanemar göngum fram fyrir skjöldu með afnáml skylduaðildar. Ég myndi persónulega ekki ganga úr SHÍ, enda augljósir kostir þess að vera með. Ég vil hins vegar geta nýtt mér lögbundinn rétt til að ganga úr félaginu líki mér ekki vistin. Alttofhá tekjumörk I.G. skrifar: Nýlega var hent inn dreifibréfi til mín þar sem ég bý. í þessu bréfi auglýsir Húsnæðisnefnd Mosfellsbæjar eftir umsóknum um félagslegar íbúðir. Mér þykja tekjumörkin, sem tilgreind eru, hins vegar vera nokkuð há eða 1.707.352 kr. eins og það er áætlað af Hagstofu fyrir árið 1992, eða um 140 þús. kr. mánaðartekjur. Er þetta kannski hin rétta við- miðun þegar laun verkamanna eru höfð í huga? Mér er það mjög til efs. Sorgmæddir Selfossbúar Regina Thorarensen skrifar: Selfossbuar eru sorgmæddir eftir tap Selfossliðsins í Laugar- dalshöllinni sl. laugardag. Vals- menn voru frábærir í seinni leik. Ég átti tal við Hörð Valdimarsson, matreiðslumann á Hótel Selfossi. Hörður segir: „Við áttum von á fleiri hundruð manns á hótelið hefðu okkar meim unnið og vor- um búnir að kalla allt okkar fólk út, einnig hljómsveitina. Kræs- ingar af fullkomnustu gerð og þá hefði orðið karnivalstemning á Hótel Selfoss.“ Ég sagði hinum unga og góða matreiðslumanni, aö þetta tilheyrði lífshlaupi íþróttahreyfingarinnar og gangi lifsins. - Við eigum aö gleðjast með Valsmönnum og ég óska þeim allra heilla og einnig þess- um duglegu mönnmn á Selfossi. Leikurinn var drengilegur og fór mjög vel frarn. Selfossliðið þarf bara að vera úthaldsbetra en raun ber vitni hvaö eftir annað. Það þarf að æfa sig meira í út- haldi. Ég bið svo að guðsblessun fylgi báðuin liöunum i nútíð og framtíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.