Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Page 24
32 Neytendur xeei ai.Tisaaí si huoaoutcíöi FÖSTUDAGUR12. FEBRÚAR1993 Það er ekki sama gengið á krónunni hér og í Reykjavik „Okkur blöskrar að sjá þessar töl- ur í samanburði við það verð sem Reykvíkingar eiga kost á. Ég hef fylgst með vikulegum verðkönnun- um DV og mér gremst hreinlega þessi mismunur," segir Svava Árna- dóttir, formaður Verkalýðsfélags Raufarhafnar. „í verðkönnuninni sést líka gífurlegur munur milli verslana innan þessa svæðis.“ Rio-kaffi - ódýrast ( Rvík og Þingeyjarsýslum - 120 100 80 60 40 20 0 ...---a^jy»gjj[s= . - 107 kt, QA qn..lrr Þingey Bónus Rió-kaffi - dýrast ( Rvík og Þingeyjarsýslum - 140' 120' 100' 80 ■ 60 • 40 ■ 0 • llflLkr. | 139 kr. Kaupst. Versl. Raufarh. DV - segir Svava Ámadóttir hjá Verkalýðsfélagi Raufarhafnar Verkalýðsfélögin í Suður- og Norð- ur-Þingeyjarsýslum gerðu ítarlega verðkönnun í lok janúarmánuðar í átta verslunum á svæðinu. Sam- kvæmt könnuninni er hagstæðast að versla í Þingey á Húsavík, þá KEA á Grenivík, Kaupfélagi Þingeyinga Húsavik og versluninni á Kópaskeri. Allar þessar voru um og undir með- allagi. Ofan við meðallag var Kaupf. Kornax-hveiti - ódýrast ( Rvík og Þingeyjarsýslum - 120 100 80 60 40 20 0 Langnesinga, Þórshöfn, Verslunin Ásbyrgi, Búrfell á Húsavík og Versl- unarfélag Raufarhafnar sem var dýr- asta verslunin af þessum átta. Það má bæta við að KÞ Húsavík veitir 3% staðgreiösluafslátt sem ekki er í tölunum hér að ofan. Mánaðarlegar verðkannanir Rúmlega fjörutíu algengar hrein- lætis- og matvörur voru teknar inn í könnunina en á meðfylgjandi töflu eru fimmtán dæmi sem valin eru með tiUiti til þess að vörurnar feng- ust í flestum verslunum. Félögin gerðu slíkar verðkannanir fyrir nokkrum misserum en síðan lágu þær niðri þar til nú. Svava segir að stefnt sé að því að hafa þessar verðkannanir mánaöarlega eða á tveggja mánaða fresti. „Auðvitað ætlumst við til að ná fram verðlækkun með því að veita þetta aðhald með reglulegum verö- könnunum. Það er eitthvað að þegar vöruverðið er svo hátt sem raun ber vitni. í sumum verslunum er verið að blanda saman gjafavöru og mat- vöru og að mínu mati væri hag- kvæmara að verslun einbeitti sér að því að sinna matvörunni eingöngu." Paprikan á þúsund kall í þessari verðkönnun er ekkert grænmeti en Svava sagði að það yrði tekið með næst og ekki veitti af. „Þeg- ar talað er um lágt verð á agúrkum í Reykjavík kostar kílóið hér nærri átta hundruð krónur og paprikan er á nærri þúsund krónur hvert kíló.“ Þingey á Húsavik er sú verslun sem kemur best út í könnuninni. Svava sagöist ekki geta skýrt það út nema að því leyti að þama væri um ein- hver tengsl að ræða milli Bónuss í Reykjavík og Þingeyjar á Húsavík. Verslað í Reykjavík „Það em dæmi um að fólk hér láti ættingja og vini versla fyrir sig í Reykjavík og senda hingað norður. Mikið af verslun fer af þessu svæði yfir til Akureyrar og ég hef verslað í KEA-Nettó á Akureyri og fékk nærri því kaupæði því aRt var svo ódýrt. Það ér bara ekki sama gengið á krón- unnihérogíReykjavík." -JJ í meðfylgjandi verðkönnun geta felli á 119 krónur og er munur á 13 af hundraði. Ef lægsta verð í verðglöggir lesendur fljótlega séð hæsta og lægsta verði 72% sem Þingeyjarsýslum er borið saman hversu munurinn á milli verðlags veröur að teljast dágott. við hæsta verð þar, sem er 139 í Reykjavík og Þingeyjarsýslum er Annaö dæmi er af Frón kremkexi krónur, er munurinn 30 af hundr- mikill. Sem dæmi má taka Komax sem kostar 89 krónur í Þingey en aði. hveitiö en það var tekiö í verkönn- 136 krónur á Raufarhöfh. Munur á Lægsta verð á Royal karmellu- un DV í gær. Munurinn liggur þó hæsta og lægsta verði er 59%. búöingi er í Þingey kr. 69 en dýrast- ekki í staðnum eingöngu þvl verðið Rió-kaffi var í verðkönnun DV í ur er búðingurinn á Raufarhöfn á i Þingey á Húsavík er það sama og gær og var lægsta verð 94,50 en kr. 105. Munur á hæsta og lægsta í Ejarðarkaupum og Hagkaupi eða lægsta verö í þingeysku könnun- verði er 52 prósent 69 krónur. Dýrast er hveitið í Búr- inni er 107 krónur. Þama munar -JJ Kooshies taubleian fæst víða um land: Bleiur í sængurgjöf Gömlu bleiurn- ar eru bestar - segir Elva Hjálmarsdóttir móöir „Ég byrjaði á því að nota bréfbleiur en þegar barnið fékk bleiuofnæmi var mér ráðlagt af lækni að skipta yfir í taubleiur. Ég nota þessar gömlu ferhyrndu og hef góða reynslu af þeim. Mér fannst það galli á þessum nýtísku taubleium aö þær má helst ekki sjóða en gasbleiurnar má sjóða aftur og aftur,“ segir Elva Hjálmars- dóttir. Bamið er núna tíu mánaða og þrátt fyrir að Elva vinni fuUan vinnudag utan heimilis telur hún ekki eftir sér að þvo og hirða um bleiurnar. Hún er meö 36 bleiur í gangi og utan yfir hefur hún plast sem er bundið saman á hliðunum. Plastinu hendir hún þegar það er farið að láta á sjá. „Fyrst var ég í mínu sex mánaða fæðingarorlofi og fannst bara gaman að snúast. Það var sumar og gott að þurrka úti. Eftir að ég fór að vinna aftur hélt ég mig við taubleiurnar. Núna þvæ ég annan hvern dag og nota milt þvottaduft og frekar htið af því. Ég hengi bleiurnar upp og finnst þær verða haröar úr þurrkara. Áöur en ég fór að sofa í gærkvöldi setti ég í vél og maðurinn minn tók út úr henni í morgun því hann fer í vinnuna á eftir mér. Okkur finnst þetta ekkert mál og viö spörum áreiðanlega tugi þúsunda," segir Elva Hjálmarsdóttir. -JJ „Það er engin spuming að taublei- umar eru ódýrari kostur en bréfblei- ur. Það er endalaust hægt að gera kröfur á ríkisstjómina um betri tíð en ég held að það sé tími til kominn að hvert og eitt okkar hti í eigin barm og spari heima, “ segir Aðalheiður Karlsdóttir í Englabömum. Verslunin Englaböm flytur inn taubleiur af gerðinni Kooshies. Sú bleia er úr 8 lögum af rakadrægri 100% bómull. Þær má sjóða en ekki er talið nauðsynlegt að gera það í hvert skipti og mælt með hitastigi á milli 40 og 60°. Samkvæmt upplýsing- um frá Aðalheiði er grunnkostnaður um það bil 29.000 krónur en eins og áður hefur komið fram er lágmarks kostnaður við bréfbleiur 150 þúsund krónur á bleiutíma bamsins. „Ég hef rekið mig á það að vinir og ættingjar hafa keypt bleiur í stað t.d. útigalla í sængurgjöf með þeim orðum að betra væri að hjálpa bama- fólkinu að spara," segir Aðalheiður. „Þaö er ákveðin upphæö sem fer til heimihsins og spamaður í bleiu- kaupum gefur fólki kost á að gera eitthvað annað og kannski skemmti- legra." Kooshies bleiur fást víða um land. í Reykjavík í Englabörnum, Þumal- ínu, Bamaheimum, Háleitisapóteki, Ingólfsapóteki, Apóteki Garðabæjar, Vesturbæj arapóteki, Nesapóteki og Breiðholtsapóteki. A landsbyggðinni fást bleiumar í Barnabreki á Akra- nesi, Krakkakoti Sauðárkróki, Vögg- unni á Akureyri og Hvönn í Grund- arfirði. Aðalheiöur segist leggja áherslu á að seljendur hafi sem gleggstar upplýsingar um bleiurnar og ætti starfsfólk ofangreindra versl- ana að geta gefiö góð ráð og upplýs- ingar. -JJ Bleiur í Neyt- í næsta tölublaði Neytendablaðs- tugum. Fólki sero er í bleiuhugleið- ins, sem út kemur í marsbyrjun, ingum er bent á að blaðið fæst á verður fjallaö ítarlega um bleiur, skrifstofu Neytendasamtakanna og hvortsemertaubleiureðabréfblei- í bókaverslunum og kostar 300 ur.Fariðeryfirþærbleiursemem krónur. Einnig er hægt aö gerast á markaði hérlendis en þær skipta áskrifandi. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.