Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Blaðsíða 26
34 Afmæli FOSTUDAGUR12. FEBRUAR1993 Marta Guðrún Halldórsdóttir Marta Guðrún Halldórsdóttir, starfskona á Garðvangi, Bjarma- landi í Garði, er sjötug í dag. Starfsferill Marta fæddist í Vörum í Garði og ólst upp í Garði. Að loknu barna- skólanámi stundaði hún nám í kvöldskóla Ungmennafélagsins Garðars og var í Húsmæðraskólan- um á Laugarvatni veturinn 1941-42. Marta hóf ung að árum að starfa við fiskverkun hjá föður sínum í Vörum. Hún gegndi síðar ýmsum störfum í Garðinum en hefur síð- astliðin sjö ár starfað við eldhús- störf á Garðvangi, dvalarheimiii aldraðraíGarði. Marta hefur unnið að bindindis- málum frá unga aldri og verið æðsti- templari í stúkunni Framfór nr. 6 síðastliðin sex ár. Einnig er hún formaður áfengisvarnanefndar Gerðahrepps, skipuð af Áfengis- vamaráði ríkisins. Hún hefur gegnt ýmsum trúnað- arstörfum fyrir Gerðahrepp um ævina, m.a. verið formaður bama- vemdarnefndar í nokkur ár og er nú formaður bókasafnsnefndar hreppsins. Marta er ennfremur fé- lagi í kvenfélaginu Gefn, slysa- vamadeild kvenna í Garði og var einn af stofnfélögum Tónlistarfélags Gerðahrepps sem stofnað var árið 1979. Fjölskylda Marta giftist 28.11.1943 Kjartani Ásgeirssyni, f. 8.6.1922, vélstjóra, nú pípulagningamanni á Keflavík- urflugvelli. Hann er sonur Davíðs Ásgeirs Bjamasonar, sjómanns á ísafirði, og Jóhönnu Amelíu Jóns- dóttur, ljósmóður á sama stað. Börn Mörtu og Kjartans eru: KristjanaHalldóra, f. 20.7.1943, fóstra og kennari í Gerðaskóla í Garði, gift Jóhannesi S. Guðmunds- syni stýrimanni, nú varðstjóra á Keflavíkurflugvelli, og eiga þau þrjú böm; Davíð Ásgeir, f. 13.11.1948, húsasmíðameistari í Garði, kvænt- ur Sólveigu Björk Gránz hjúkrunar- fræðingi og eiga þau fjóra syni; Þor- valdur, f. 21.11.1953, húsasmíða- meistari í Garði, kvæntur Jóhönnu Svanlaugu Sigurvinsdóttur sjúkra- liða og eiga þau fjögur börn; Jó- hanna Amelía, f. 17.10.1957, verka- kona í Garði; Gísli Lúðvík, f. 21.11. 1960, húsasmíðameistari í Garði, kvæntur- Guöbjörgu Kristínu Jónat- ansdóttur sagnfræðinema og eiga þau tvær dætur; og Ólafur Þór, f. 29.11.1965, tækjastjóriáKeflavíkur- flugvelli, búsettur í Garði, kvæntur Alíhildi Sigurjónsdóttur ritara og eigaþau þijúbörn. Systkini Mörtu eru: Þorsteinn Kristinn, f. 22.2.1912, d. 19.1.1990, útgerðarmaður og bifreiðastjóri í Garði; Vilhjálmur Kristján, f. 5.7. 1913, bifreiðastjóri í Garði; Gísli Jó- hann, f. 10.6.1914, skipstjóri í Kefla- vík; Halldóra, f. 27.9.1915, húsmóðir í Keflavík; Steinunn, f. 29.10.1916, húsmóðir í Keflavík; Guðrún, f. 23.2. 1918, húsmóðir í Reykjavík; Elísabet Vilborg, f. 22.5.1919, húsmóðir í Keflavík; Þorvaldur, f. 17.8.1920, skipstjóri og útgerðarmaður í Garði; Kristín, f. 22.11.1921, húsmóðir í Reykjavík; Þorsteinn Nikulás, f. 10.1.1927, d. 24.12.1984, skipstjóri og útgerðarmaður í Keflavík; og Karitas Hallbera, f. 12.9.1928, hús- móðiríKeflavík. Foreldrar Mörtu voru Halldór Þorsteinsson, f. 22.2.1887, d. 3.1. 1980, útvegsbóndi og Kristjana Pá- lína Kristjánsdóttir, f. 2.11.1885, d. 1.8.1975, húsmóðir. Þau bjuggu all- an sinn búskap í Vörum í Garði. Ætt Faðir Halldórs var Þorsteinn Gíslason, Jakobssonar, Snorrason- ar, prests á Húsafelli, Björnssonar. Móðir Halldórs var Kristín Þorláks- dóttir sem var áttundi liður frá séra Hallgrími Péturssyni. Foreldrar Kristjönu voru Kristján Jónsson, b. Hellukoti á Vatnsleysu- Marta Guðrún Halldórsdóttir. strönd, og k.h. Vilborg Halldórsdótt- ir sem ættuð var frá Framnesi á Skeiðum. Marta og Kjartan taka á móti gest- um í Sæborgu, húsi Verkalýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps, eftir kl. 17 á afmælisdaginn. Jóhannes Gunnarsson Jóhannes Gunnarsson bifvélavirki, Heiðargerði 15, Akranesi, er áttatíu áraídag. Starfsferill Jóhannes fæddist að Kistufelli í Lundarreykjadal og ólst þar upp í foreldrahúsum til tvítugs en þá flutti fjölskyldan til Akraness þar sem Jóhannes hefur átt heima síð- an. Jóhannes var gjaman í kaupa- vinnu þegar hann var ungur maður en árið 1939 hóf hann nám í bifvéla- virkjun og lauk hann prófi í iðninni áAkranesi 1943. Eftir það hefur Jóhannes unnið að mestu við bifreiðaviðgerðir, fyrst hjá Daníel Friðrikssyni í ellefu ár, svo hjá Bílaverkstæði Akraness til 1957 en síðan þá starfaði Jóhannes hjá Sementsverksmiðju ríkisins fram til ársins 1987 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Jóhannes var um tíma í stjóm Iðnaðarmannaféiags Akraness og slysa- og sjúkrasjóðs þess. Hann var einnig í stjórn Bindindisfélags öku- manna og Leikfélags Akraness, ásamt því að vera í prófnefnd bif- vélavirkja í mörg ár. Jóhannes starfaði einnig með Skátafélagi Akraness og í góðtempl- arareglunni. Fjölskylda Sambýhskona Jóhannesar er Steinunn Þorsteinsdóttir, f. 23.3. 1911, húsmóðir. Hún er dóttir Þor- steins Erlendssonar b. í Hítarkoti í Hraunhreppi, Mýrasýslu, ogÞor- gerðar Magnúsdóttur. Þau era bæði látin. Jóhannes átti tvö hálfsystkini. Þau eru: Ingvar, f. 17.11.1898, verka- maður á Akranesi, sem nú er látinn; og Guðrún, f. 23.12.1900, vinnukona á Akranesi, en dvelur nú á Dvalar- heimilinu Höfða á Akranesi. Foreldrar Jóhannesar voru Gunn- ar Ólafsson, f. 12.5.1863, d. 21.6.1953, b. í Gröf í Lundarreykjadal og síðar á Kistufelli í sömu sveit, og seinni kona hans, Guðbjörg Jóhannesdótt- ir, f. 28.9.1877, d. 9.6.1970, húsmóðir. Ætt Fööurforeldrar Jóhannesar voru Ólafur, b. í Langholtskoti í Hruna- mannahreppi, Jónsson og kona hans, Guðrún Pálsdóttir. Móðurfor- eldrar Jóhannesar voru Jóhannes, b. í Stóraási, og síðar b. að Skáney í Reykholtsdal, Hannesson, f. 26.9. 1835, d. 30.12.1924, og kona hans, Þóra Guðmundsdóttir, f. 30.12.1831, d.28.6.1882. Foreldrar JóHannesar í Stóraási vora Hannes Sigurðsson, b. á Úlfs- stöðum og Hofsstööum í Hálsasveit, og Sigríður Jónsdóttir. Foreldrar Jóhannes Gunnarsson. Hannesar voru Sigurður Auðuns- son frá Hrísum í Flókadal og Hall- dóra Þórólfsdóttir frá Síðumúla. Foreldrar Þóru voru Guðmundur Jónsson og Ingibjörg Guðlaugsdótt- ir, hjón að Kollslæk í Hálsasveit. Jóhannes verður að heiman á af- mæhsdaginn. Andlát Til hamingju meó daginn 12. febrúar Yilhjálmur G. Bjamason Vilhjálmur G. Bjamason, fyrrv. for- stjóri hjá Kassagerð Reykjavíkur, Laufskálum, Álfheimum 35, Reykja- vík, andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn 4.2. Hann var jarðs- unginn frá Langholtskirkju í gær. Starfsferill Vilhjálmur fæddist í Sauðhúsnesi í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu 2.7.1900 og ólst upp í foreldrahúsum, í Sauðhúsnesi fyrstu sjö árin en síð- an á Heijólfsstöðum. Vilhjálmur varð fyrir hrikalegri lífsreynslu er hann og samferða- menn hans áttu hestum sínum fjör að launa undan jökulhlaupinu á Mýrdalssandi vegna Kötlugossins í októbermánuði 1918 en þeir höfðu þá verið að smala Álftaversafrétt og sluppu ipjög naumlega undan hlaupinu. Eftir Kötlugosið átti Vilhjálmur heima í Vík um skeið en fór síðan til Vestmannaeyja þar sem hann var til sjós í tvö ár. Þá flutti hann til Reykjavíkur 1922 og hóf þar nám í trésmíðum við Iðnskólann í Reykja- vík. Vilhjálmur lauk sveinsprófi í trésmiðum og stundaði ásamt fleira húsasmíðar í Reykjavík, einkum í samvinnu við Arinbjöm Þorsteins- son húsasmíðateiknara. Vilhjálmur stofiiaði Kassagerð Reykjavíkur hf. ásamt Kristjáni Jó- hanni Kristjánssyni árið 1932 og var. þar ásamt honum framkvæmda- stjóri þar til Vilhjálmur seldi sinn hlut snemma á sjöunda áratugnum. Þá átti hann þátt í stofnun og starf- semi ýmissa annarra iðnfyrirtækja. Vilhjálmur starfaði mikið að safn- aðarmálum Langholtssóknar og var þar m.a. formaöur byggingamefnd- ar og safnaðarstjómar um árabil. Fjölskylda Eftirlifandi kona Vilhjálms er Elín Kristjánsdóttir, f. 14.6.1912, hús- móðir, dóttir Kristjáns Ámasonar, sjómanns á Patreksfirði, og Valgerð- ar Jónsdóttur húsmóður. Vilhjálmur og Elín eiga fjögur böm. Þau eru Hilmar, f. 24.12.1934, útflytjandi, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Kristínu Hallgrimsdóttur húsmóður og eiga þau fjögur böm; Valdís, f. 2.11.1938, bankastarfsmað- ur í Reykjavík, í sambýli með Tryggva Hannessyni heildsala og á Valdís tvær dætur; Kristbjörg, f. 2.9. 1945, húsmóðir í Reykjavík, gift Hallgrími Einarssyni, fram- kvæmdastjóra Bílrúðunnar, og eiga þau tvö böm; Bjami, f. 12.8.1951, framkvæmdastjóri í Reykjavík, gift- ur Björgu E. Guðmundsdóttur hús- móður og eiga þau tvær dætur. Vilhjálmur var þriðji í röð fjög- urra systkina en systkini hans eru látin. Þau vora Pálína, f. 1895, lengst af húsmóðir í Reykjavík, Magnús, f. 1897, dó ungur, og Páll Símon Brynjólfur, f. 1907, vörabifreiða- stjóri og lengi verkstjóri í Kassa- gerðinni. Foreldrar Vilhjálms vora Bjami Pálsson, f. í Jórvík í Álftaveri 11.5. 1866, d. í Reykjavík 11.4.1942, bóndi í Sauðhúsnesi og á Herjólfsstöðum, og kona hans, Ragnhildur Brynj- ólfsdóttir, f. í Hraungeröi21.8.1873, d. 17.6.1952, húsfreyja. Vilhjálmur G. Bjarnason. Ætt Bjami var sonur Páls, b. á Jórvík- urhryggjum, Símonarsonar, b. í Mosakoti, Jónssonar, b. í Hlíð, Magnússonar. Móöir Símonar var Guðríður Oddsdóttir. Móðir Páls var Guðrún Pálsdóttir. Móðir Bjama var Kristín Bárðar- dóttir, b. á Hemru, Jónssonar og Valgerðar Ámadóttur. Ragnhildur var dóttir Brynjólfs, b. í Hraungerði og síðar á Þykkva- bæjarklaustri, Eiríkssonar, b. í Holti í Mýrdal, Guðmundssonar, b. í Holti, Loftssonar. Móðir Eiríks var Ástriður Pálsdóttir. Móðir Bryiyólfs var Þórhildur Gísladóttir, b. í Pét- ursey, Guömundssonar. Móðir Þór- hildar var Jórunn Einarsdóttir. Móöir Ragnhildar var Málfríður Ögmundsdóttir, b. í Rofunun, Árna- sonar og Þóru Jónsdóttur. Anna Maria Friðbergsson, Máshólum 10, Reykjavik. Jóhannes Gunnarsson, Heiðargerði 15, Akranesi. 75ára Páll Sveinsson, Hringbraut 50, Reykjavík. 70 ára Marta Guðrún Halldórsdóttir, Bjarmalandi, Garði. Guðný Magnúsdóttir, Öngulsstöðum 3, EyjaQarðai-sveit. Sigriður Guðmundsdóttir, Austurvegi 31, Selfossi. Gestur Guðmundsson, 37KYBE Holmpafreck, Skerris, CoDublin,Ireland. Eiginkona Gests er Kristín Katar- inusdóttir. GuðmundurSveinsson, Jórutúni 10, Selfossi. Bogi G. Thorarensen, Lækjarási 1, Garöabæ. Hálfdán Ágúst Jónsson, Seilugranda 3, Reykjavík. Þorbjörg Jónsdóttir, Austurvegi 2, Þórshöfn. Sigurður Rngnar Antonsson, Smáragrund 3, Sauöárkróki. Kristín A. Samsonardóttir, Álíhólsvegi 88, Kópavogi. Unnur Jónsdóttir, Höíðabrekku 10,Húsavík. Reynir Þórisson, Flögu, Svalbarðshreppi. Stefán Friðriksson, Heiðarvegi 53, Vestmannaeyjum. Unnur Guðmundsdóttir, Eyrarbraut 3, Stokkseyri. Kristján A. Kristjánsson húsgagnasmíða- meistari, Langagerði 70, Reykjavík. Eigin-1 konaKristjáns er I Eh'sabet Jóhanna 1 Sigurbjörnsdótt- ir.Þauveröaað heimanáafmæl- isdaginn. Birgir Ottesen, Lækjargötu lla, Akureyri. Ágústa Traustadóttir, Stekkholti 16, Selfossi. Sigvarður Halldórsson, Brú 1, Jökuldalshreppi. Þórunn Daníelsdóttir, Varmahhö 14, Hveragerðí. Hafdís Bára Eiðsdóttir, Jörfabakka 14, Reykjavik. 40 ára Hildur Friðriksdóttir, Mávahlíö 31, Reykjavík. «Jón Kristinn Jónsson, Árbæ, Mýrahreppi. Jarðþrúður K. Guðmundsdóttir, Brú, A-Landeyjahreppi. Stefán. Jóhannes Sigurðsson, Móatúni 7, Tálknafirði. Annu Guðný Hahdórsdóttir, Brú 1, Jökuldalshreppi. Alda Ólafsdóttir, Hrismóum 1, Garöabæ. Gunnar Halstensgaard, Sundstræti 22, ísafirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.