Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 2

Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 25. mars 1986 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR, 420 Á MÁNUÐl LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT P. PÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari._________________________ Þingmenn hafa brugðist fötluðum Á vordögum 1983 ákváðu alþingismenn að gera verulegt átak í málefnum fatlaðra. Þá voru samþykkt ný lög, sem m.a. fólu í sér ákveðið framlag til Framkvæmdasjóðs fatl- aðra næstu fimm árin. Alþingismenn voru einhuga um þetta mál og í lögunum eru ský- laus ákvæði um hve há upphæðin skuli vera. Þrátt fyrir það var framlagið skorið niður um ríflega helming við afgreiðslu síðustu fjár- laga, í þriðja sinn frá því lögin voru sett. Þingmenn hafa því brugðist í þessu máli. Það er að vísu staðreynd, að niðurskurðar- hnífurinn hefur verið notaður óspart við gerð fjárlaga, en var nauðsynlegt að beita honum á framlög til framkvæmda á vegum fatlaðra? Varla, ekki síst þegar litið er til þess, að fatl- aðir hafa verið hornreka í uppbyggingu þjóð- félagsins. Þeirra hlutur hefur verið fyrir borð borinn. Þeir eiga þó fullan rétt á að njóta jafn- réttis á við aðra landsmenn, þannig að þeir geti tekið sem virkastan þátt í samfélaginu. Þar við bætist, að fjárfestingar til hagsbóta fyrir fatlaða þjóðfélagsþegna skila arði, þegar til framtíðarinnar er litið. Þingmenn eru tilbúnir til að tala fallega um nauðsyn þess að búa vel að fötluðum. Það efast heldur enginn um góðan hug þeirra, en þeir eiga að láta verkin tala. Fatlaðir eiga ekki að þurfa að ganga með skertan hlut frá borði við gerð fjárlaga ár eftir ár. Þetta er því alvarlegra þegar litið er til þess, að andlega sem líkamlega fötluð börn bíða jafnvel árum saman eftir nauðsynlegri greiningu. Þetta á sér stað á meðan þau lifa mikilvægasta þroskaskeið sitt. í öðru lagi bíða tugir fatlaðs fólk eftir varanlegum íverustað. í þriðja lagi er það slæmt til afspurnar, að fatl- að fólk, sem þó hefur verulega vinnugetu, þurfi að bíða iðjulaust. í fjórða lagi er það ekki sæmandi, að vistheimili skuli skorta búnað og starfsfólk, til að íbúarnir búi við lágmarksör- yggi. í fimmta lagi er ömurlegt til þess að vita, að ungt fólk sem hefur fatlast af völdum slysa eða sjúkdóma, skuli hafa heimili sitt í einu rúmi, jafnvel á þröngri sjúkrastofu. Hér hafa aðeins fá dæmi verið nefnd. Ástandið í þessum málum er ekki viðunandi. Það er ætlast til þess að þingmenn okkar tryggi úrbætur. - GS. viðtal dagsins. „Römm ersútaug...“ - Tryggvi Gíslason, skólameistari segist ætla að koma aftur til Akureyrar að loknu starfi deildarstjóra í skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar Tryggvi Gíslason, skólameistari. Tryggvi Gíslason hefur verið skólameistari Menntaskólans á Akureyri í tæp fjórtán ár. Nú lætur hann af því starfi um stundarsakir þar sem hann hef- ur verið ráðinn deildarstjóri í skrifstofu norrænu ráðherra- nefndarinnar í Kaupmanna- höfn og mun hann gegna þeirri stöðu næstu fjögur ár, frá fyrsta aprfl að telja. Ég heim- sótti Tryggva einn morguninn og þegar hringt var inn í fyrsta tíma settumst við niður á skrif- stofu skólameistara og ég bað hann að útskýra nánar fyrir mér og lesendum hvaða starf það væri sem hann tæki nú að sér. „Þetta er starf deildarstjóra í skrifstofu norrænu ráðherra- nefndarinnar. í daglegu tali hefur þetta stundum verið nefnt norræna menningarmálaskrif- stofan en það er gamalt nafn og í rauninni úrelt. Skrifstofa norrænu ráðherranefndarinnar er miðstöð norrænnar samvinnu. Norræn samvinna er gamalt fyrirbæri en eftir stríð, árið 1946, hófst formlega þessi norræna samvinna sem við þekkjum, sem er þá bæði samvinna þjóðþing- anna og ríkisstjórnanna. Norður- landaráð kemur saman einu sinni á ári og er sameiginlegt þing Norðurlandanna. Svo er eins kon- ar ríkisstjórn Norðurlandanna sem er ráðherranefndin (den Nordiske minesterraad). Á veg- um ráðherranefndarinnar er þessi miðstöð sem nú verður í Kaupmannahöfn. Skrifstofa norrænu ráðherranefndarinnar skiptist í 5 fagdeildir og ég verð deildarstjóri í mennta- og menn- ingarmáladeildinni. “ - Hvað heyrir helst undir þessa deild? „Öll samvinna á sviði skóla- mála, utan háskóla. Um hann sér sérstakt vísindaráð. Auk þess er öll samvinna á sviði fjölmiðla, m.a. blaðamannaháskólinn í Árósum. Menningarmálasjóður Norðurlandaráðs fellur einnig undir þessa deild en honum er ætlað að styrkja og efla samvinnu á sviði lista og menningar. Samvinna Norðurlandanna er allmikil á þessum sviðum, m.a. um námsbókagerð. Undanfarin 25 ár hefur allmikið verið unnið að því að samræma námsbóka- gerð og samræma afstöðu til ýmissa þátta kennslumála, t.d. með því að reyna að gefa hlut- læga, rétta mynd af þjóðlífi á Norðurlöndunum. Það eimdi lengi eftir af ýmiss konar fordóm- um gagnvart öðrum Norðurlönd- um. Danir voru illa séðir á ís- landi, Svíar voru hataðir í Dan- mörku og Norðmenn kannski misvel þokkaðir í Svíþjóð o.s.frv. Ymiss konar missagnir frá fornu fari eru í skólabókum en fyrir um tuttugu árum var far- ið allrækilega í gegn um kennslu- bækur með tilliti til þessa. Þetta nefni ég nú bara sem áþreifanlegt dæmi um norræna samvinnu. Það er kannski aðalvandinn í sam- vinnu þjóða að rétt mynd sé gefin af öðrum þjóðum. Margur ágreiningur stafar einmitt af rangri mynd sem dregin er upp af öðrum mönnum og þjóðum. Þetta er sammannlegt fyrirbæri.“ - Hvað eru margir starfsmenn hjá skrifstofu ráðherranefndar- innar og hvað verður þú settur yfir marga starfsmenn? „Stofnunin öll hefur um 120 starfsmenn og þar af eru í þessari deild minni á milli 10 og 12 starfsmenn. Þar eru ráðgjafar á hverju sviði, ritarar og annað starfsfólk. Þarna er starfsfólk frá öllum Norðurlöndum eins og gef- ur að skilja.“ - Gildir einhver kvótaregla í sambandi við mannaráðningar þarna? „Nei, það er engin kvótaregla í gildi en þó er leitast við að ráða starfsfólk frá öllum Norður- löndunum. Ég veit að íslensku ráðherrarnir sem sitja í ráðherra- nefndinni lögðu mikla áherslu á að fá íslending í eina af yfir- mannsstöðum þarna núna. Það hefur ekki gerst áður að íslend- ingur hafi gegnt slíku starfi. Auk þessara 5 fagdeilda sem ég nefndi áðan eru tvær stjórnun- ardeildir, upplýsingadeild og fjármáladeild og yfir þessum 7 deildum er svo aðalritari eða for- stjóri.“ - Hafðir þú haft einhver kynni af Norðurlandaráði eða norrænni samvinnu áður en þú sóttir um þetta starf? „Já, það er nú ekki algjör til- viljun að ég sæki um þetta starf. Þegar þessi stofnun var sett á laggirnar árið 1972 var ég búsett- ur í Bergen, var háskólakennari þar. Ég hef haft áhuga á stjórn- málum og þjóðmálum þó að ég sé menntaður til fræðistarfa og ég var að hugsa um að sækja um starf hjá skrifstofu norrænu ráð- herranefndarinnar. En þá kom Menntaskólinn á Akureyri inn í dæmið og breytingar urðu á mín- um högum. Árið 1980 var ég skipaður fulltrúi íslands í ráð- gjafanefnd um menningarmál og starfaði þar í þrjú ár. Áður hafði ég tekið þátt í ýmiss konar sam- starfi Norðurlandanna, einkum á sviði skólamála og hef sótt ráð- stefnur og þing um þau mál.“ - Er ekki dálítið erfitt að yfir- gefa þennan stað eftir 14 ára setu í embætti skólameistara? „Jú, mér er sannarlega mikil eftirsjá í því. Hér hefur mér liðið mjög vel. Enda tel ég mig ekki alfarinn héðan.“ - Þú ætlar þá að koma aftur? „Já, ég er ákveðinn í því og all- ar sögusagnir um annað eru á misskilningi byggðar. Hér líkar okkur vel að vera og ég vil ekki verða gamall í útlöndum. Hins vegar er það hollt, bæði mér og öðrum, að kynnast betur erlendum þjóðum.“ - Kvíðir þú því ekkert að fara með stóra fjölskyldu héðan úr þessu verndaða og kyrrláta sam- félagi í erlenda stórborg? „Nei, ég kvíði því ekki. En ég geri mér grein fyrir því að við tökum öll nokkra áhættu. Mað- urinn á að vaxa af hverri raun og það er ekki æskilegt neinum að vaxa upp í ofvernduðu umhverfi. Það hefur verið gott að vera hér á Akureyri með börn og ég held að það sé gott að vera barn á Akur- eyri en menn mega ekki verða lítilla sanda og lítilla sæva og heimskt er heimaalið barn. Ég held að það sé gott að líta upp og fara utan. Útþráin hefur verið sterk í íslendingum frá fyrstu tíð en það er líka eftirtektarvert að heimþráin hefur líka verið sterk. Römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til. Þannig að þrátt fyr- ir þessa utanferð vona ég að við komum öll heil heim aftur.“ Að þessum orðum töluðum hringdi skólabjallan og eins og af gömlum vana létum við samtali okkar lokið þar með. -yk.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.