Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 5
lesendahorniá 25. mars 1986 - DAGUR - 5 Morandi í villum „Garðeigandi“ kom á ritstjórn- ina og hafði eftirfarandi til mál- anna að leggja: Ég fékk um daginn bréf frá garðyrkjudeild bæjarins, sem í sjálfu sér er ekki í frásögur fær- andi. En mér brá í brún þegar ég fór að lesa bréfið, því það var morandi í stafsetningarvillum. Fyrsta villan var í haus bréfsins, þar sem stóð „garðyrkjydeild“. Næsta villan var í föðurnafni mínu. Síðan rak hver villan aðra, eins og meðfylgjandi mynd af bréfinu sýnir glögglega. Éins og sjá má eru þessar villur svo aug- ljósar, að ég trúi því ekki að þær hafi átt sér stað vegna vankunn- áttu bréfritara. Ég held að þarna sé hroðvirkni um að kenna. Eða á ef til vill að kenna tölvunni um, því bréfið er greinilega skrifað á tölvuprentara? En skila tölvurnar öðru en því sem þær eru mataðar á? Mér finnst ekki boðlegt af opinberri stofnun að senda út bréf sem þessi. Vonandi er þetta „slys“ sem heyrir til undantekn- inga hjá stofnunum bæjarins. Slysagildra á Austursíóu Árni Valur hringdi og hafði eftir- farandi til málanna að leggja: Mig langar til að vekja athygli á slysagildru á gatnamótum Aust- ursíðu og Hlíðarbrautar. Slysa- gildran er fólgin í því, að Aust- ursíðunni hallar til austurs, þar sem hún tengist Hlíðarbrautinni. Ef til vill dregur hún nafn sitt af því. Hallinn er svo mikill, að þeg- ar reynt er að hemla í hálku eins og nú er, rennur bifreiðin eðli- lega undan hallanum og þá í veg fyrir þær bifreiðir sem koma úr gagnstæðri átt. Par við bætist, að óskiljanlegur hlykkur er á Aust- ursíðunni rétt við gatnamótin, sem eykur enn á slysahættuna. Ég veit að það hafa fleiri en ég lent í erfiðleikum á þessum gatnamótum. Þess vegna vek ég athygli á þessu, í þeirri von að lagfæringar verði gerðar. Ráöstefnusalir á Hótel Hluti nýrrar álmu Hótel Sögu var tekinn í notkun hinn 19. mars, þegar fundur WHO, Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar, hófst í ráðstefnusölum álmunnar. Nýju ráðstefnusalirnir marka tímamót hjá Hótel Sögu og auka til muna möguleika íslendinga á að bjóða aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalds eins og hún gerist best erlendis. Ráðstefnusalir hótelsins eru af mismunandi stærð og því auðvelt að verða við margvíslegum ósk- um viðskiptamanna. Þar eru möguleikar til mismunandi upp- stillinga, eftir þörfum hverju sinni. Salirnir eru með nýtísku bún- Sögu aði til ráðstefnuhalds og í tengsl- um við þá eru sérstök tækniher- bergi. Þar eru kvikmyndasýning- arvélar, myndbandstæki, skugga- myndavélar, skyggnuvélar, sýn- ingartjöld og flettitöflur. Einnig er séð um að útvega önnur tæki, svo sem túlkunarkerfi og hvers konar ráðstefnuþjónustu, sem óskað er eftir. Sérstök skrifstofa er til afnota fyrir þá sem halda ráðstefnur á hótelinu. Með því að nýta einnig þá aðstöðu sem fyrir hendi er í eldri álmu hótelsins, getur Hótel Saga nú hýst mun fjölmennari ráðstefn- ur en hægt hefur verið á hóteli hér á landi hingað til. Vörumar koma til okkar milliliðalaust beint frá verksmiðjum og eru því á óvenju lágu verði. Fatalagerínn Hafnarstræti 88, sími 23450. Aldraðir fá frítt í laugina Um síðustu áramót ákváðu bæjaryfirvöld að fólk 67 ára og eldra hafi frían aðgang að Sund- laug Akureyrar. í því sambandi má minna á að fullorðinskennsla í sundi er á hverjum fimmtudegi kl. 18.30- 20.00 í innilauginni þar sem til- valið er fyrir fólk að læra sund eða skerpa á sundkunnáttunni. Kennari er Ásdís Karlsdóttir. 20% afsláttur af hvítu postulíni og postulínslitum til páska. A-B búðin Kaupangi - Sími 25020. Opið laugard. 10-12. Framsóknarfélag Húsavíkur heldur almennan félagsfund miðvikudaginn 26. mars nk. kl. 20.30 í Garðari. Dagskrá: Tekin ákvörðun um framboðslista. Stjórnin. Hagkaup auglýsir Egg kr. 49.00 kg. Kjúklingar kr. 189.00 kg. Unghænur kr. 99.00 kg. Kalkúnar kr. 399.00 kg. Gæsir kr. 250.00 kg. Pekingendur kr. 248.00 ★ Erum að taka upp mikið úrval af fallegum fatnaði í sumarlitum. ★ Opið frá kl. 9.00-18.00 miðvikudaginn 26. mars Opið frá kl. 9.00-12.00 laugardaginn 29. mars HAGKAUP Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.