Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 12

Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 12
Opnunartími uni páska: Opið alla hátíðardagana, bæði á Bauta og í Smiðju. Pantið borð i Smiðju tímanlega. Sjallinn og KSÞ: Ekki komið til sak- sóknata „Ég get ekkert um þessi mál sagt annað en það sem ég sagði í síðustu viku, þessi erindi eru ekki komin til embættisins,“ sagði Þórður Björnsson ríkis- saksóknari í samtali við Dag í gær. Hann var þá spurður um hvað liði rannsókn á málefnum Sjall- ans á Akureyri og Kaupfélags Svalbarðseyrar. í síðustu viku skýrði Dagur frá því aö bæjár- fógetaembættið á Akureyri hefði sent saksóknara niðurstöður rannsóknar á málefnum Sjallans, og þá sagði bæjarfógetinn á Húsavík að skýrslur varðandi rannsókn á málefnum Kaupfé- lags Svalbarðseyrar væru að fara frá embætti hans. Fiskeldi í Fljótum: Rafveitan á Sigló hluthafi Undirbúningsnefnd um stofn- un laxeldisfélags í Austur- Fljótum hefur ákveðið að gefa landeigendum að veiðisvæði Miklavatns og Fljótaár kost á að gerast hluthafar að hinu væntanlega félagi. Minnsti hlutur í félaginu verði 10 þúsund krónur. Þá hefur verið ákveðið að Rafveita Siglufjarðar verði aðili að þessu félagi fyrir hlutafé að upphæð 1,5 milljón krónur sem greiðist á næstu þremur árum. Þessi ákvörðun var tekin með tilliti til þess að raf- veitan á mikilla hagsmuna að gæta varðandi það að byggð hald- ist í Fljótum og að góð samvinna haldist við bændur þar. „Ófremdar- ástand“ Á fundi Bæjarráðs Akureyrar 20. mars s.l. var lagt fram bréf frá Jóni Árna Sigfússyni fyrir hönd Öndvegis hf. I bréfinu er kvartað undan ófremdar- ástandi í þjónustu við ferða- menn í bænum s.s. því að sér- leyfis- og hópferðaleyfishafar hafi aðsetur á tveimur stöðum í bænum. Bæjarráð ályktaði um málið og segir í ályktuninni að það „ófremdarástand“ sem bréfritari lýsir stafi af skipulagsleysi þeirra sem að sérleyfis- og hópferðum standa og hvetur þá til aukins samstarfs á þeim vettvangi. Bent er á að bæjarstjórn Akureyrar hafi á undanförnum árum stutt rekstur upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn í samvinnu við ferða- málaaðila á Akureyri. Þá lýsir bæjarráð sig reiðubúið til þess að taka þátt í eflingu slíkrar þjón- ustu í samstarfi við framan- greinda aðila, ef sú þjónusta get- ur tengst slíkri ferðamiðstöð. gk-- Fjárhagsáætlun Húsavíkurbæjar: Rekstrarafgangur 52,3 milljónir króna Fjárhagsáætlun Húsavíkur- bæjar verður til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Húsavíkur í dag. Gerð fjárhagsáætlunar- innar tafðist á meðan kjara- samningar stóðu yfir vegna væntanlegra breytinga á verð- lagsforsendum. Alls voru haldnir 17 fundir í fjárhags- nefnd um fjárhagsáætlunina. Samkvæmt fjárhagsáætlun er rekstrarafgangur bæjarsjóðs og bæjarfyrirtækja 52,3 milljónir króna sem nemur 23,69% af tekjum. Bjarni Aðalgeirsson bæjarstjóri telur að hér sé um all- góðan tekjuafgang að ræða enda sé rekstrinum skorinn mjög þröngur stakkur í áætluninni. Tekjuafgangur af rekstri bæjarsjóðs 30 milljónir 740 þús- und krónur, framlög ríkissjóðs samtals 3 milljónir 107 þúsund krónur, þar af 3 milljónir til byggingar íþróttahúss. Helsti gjaldaliður bæjarsjóðs er til byggingar íþróttahússins, 13 milljónir króna, en áætlað er að 28,3 milljónir kosti að ljúka framkvæmdum við húsið fyrir Landsmót sem haldið verður á næsta ári. Til gatnagerðar verður varið 6,6 milljónum króna, þar af 2,6 milljónum til gerðar gang- stétta við 6 götur. Til dvalarheim- ilisins aldraðra verður varið 4,1 milljón og er það 50% hækkun frá síðasta ári. Húsavíkurbær stendur undir 61,3% af framlögum sveitarfélag- anna til dvalarheimilisins. Fram- lag til framkvæmdalánasjóðs er 2 milljónir sem svarar til 2% af tekjum bæjarsjóðs. IM-Húsavík. Hængsmótiö, opið íþróttamót fatlaöra var haldið um helgina. Þar höfðu ýmsir keppcndur ærna ástæðu til að fagna, eins og þessi piltur á myndinni. Nánar frá mótinu á bls 8 og 9. Mynd: KK Ibúðir fyrir aldraða á Akureyri: Verið að vinna við teikningar „Það er engan veginn komið að því að fara að bjóða bygg- ingu þessara íbúða út,“ sagði Stefán Reykjalín sem á sæti í undirbúningsnefnd að bygg- ingu íbúða fyrir aldraða á Akureyri. Félag aldraðra á Akureyri hef- ur fengið úthlutað lóðum við Víðilund og er ætlunin að byggja þar tvö fjölbýlishús með samtals um 60 íbúðum, einnig raðhús með 14 íbúðum og þjónustumið- stöð sem yrði tengd þessum húsum. „Það er verið að vinna tillögu- teikningar núna og þegar þær verða tilbúnar þá verða könnuð viðbrögð meðal félagsmanna í Félagi aldraðra um kaup á íbúð- unum. í*á er einnig verið að skoða lánamöguleika í húsnæðis- málakerfinu en við vorum reynd- ar áður búnir að leggja inn beiðni um fyrirgreiðslu þegar að þessu kæmi. En þangað til að afstaða fólksins liggur fyrir þá er ósköp lítið um þetta mál að segja og það er ekki komið að útboði á næstunni,“ sagði Stefán Reykja- lín. gk-. Kvöldmat- urinn brann „Þetta fór betur en á horfðist,“ sagði Axel Gunnars- son slökkviliðsstjóri á Þórshöfn, en klukkan 18,40 var slökkviliðið kallað að Langanesvegi 10, sem er gamalt tvílyft íbúðarhús. íbúi á neðri hæð var að elda kvöldmatinn. skrapp frá og gleymdi pottinum á eldavélinni. íbúar á efri hæð urðu varir við reyk og kölluðu til slökkviliðs. Þegar að var komið var mjög mikill reykur í íbúðinni og fóru reykkafarar inn til að leita mannsins, sem fannst ekki. Fljót- lega gekk að fjarlægja kolbrunn- inn kvöldmatinn af eldavélinni, en nokkrar skemmdir urðu á íbúðinni af reyk. gej- Viðbygging Hótels KEA: Rætt í bæjarstjórn „Skipulagsnefnd hefur ekkert við framkomnar hugmyndir um stækkun Hótels KEA að athuga,“ sagði Jónas Karles- son verkfræðingur formaður skipulagsnefndar Akureyrar. En nokkrar vangaveltur hafa verið uppi vegna hugsanlegrar stækkunar Hótels KEA. Fyrir einu ári var lögð fram til- laga fyrir skipulagsnefnd um stækkunina. Nefndin samþykkti þá tillögu. Málið fór síðan fyrir byggingarnefnd sem fór fram á aðrar hugmyndir sem féllu betur að umhverfinu. Borist hafa 3 tillögur um við- bygginguna. Tillögur þ.e. sam- hliða kirkjutröppunum og tillaga með snúningi frá tröppunum til suðurs. Byggingarnefnd synjaði tillögum um byggingu samhliða kirkjutröppunum en nefndin tel- ur að best fari á að byggja sam- kvæmt tillögum um snúning bygg- ingarinnar til suðurs frá tröppun- um. í bókun skipulagsnefndar segir að nefndin telji að tillaga sem felur í sér bygginguna suður frá tröppunum falli betur að aðstæðum. Bæjarstjórn mun taka þessar tillögur að viðbyggingu hótelsins og samþykktir skipulags- og byggingarnefndar til umfjöllunar á fundi sínum í dag. gej-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.