Þjóðviljinn - 07.09.1975, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 07.09.1975, Blaðsíða 21
Sunnudagur 7. september 1975. ÞJÓÐVILJÍNN — SÍÐA 21 Hjördís Bergsdóttir velur gítargrip við vinsæl lög Tökum lagið SÆL NC! 1 dag tek ég fyrir þriöja og um leiö siBasta lagið (I bili aB minnsta kosti) af plötu þeirra STUÐMANNA „Sumar á Sýrlandi”. Lagiö heitir: „Út’ á stoppistöö”. 1 næsta þætti mun ég koma meö eitthvaö úr verkalýösbaráttunni fyrir eldri lesendur þáttarins. Þakka ykkur fyrir bréfin og vonast til aö fá fleiri á næstunni. ÚT’ Á STOPPISTÖÐ G C trt’ á stoppistöð D7 G ég skunda nú með flösk’ i hendi C i partýi hjá Stinu stuð D7 G ég stól’ á að ég lendi. E a7 Með bros á vör ég bið D7 G og von’ að bráðum komi billinn. C í veislunni er voða lið D7 G og valinkunnur skrillinn. e B7 Hæ! Stina stuð. C E Halló, Kalli og Bimbó a7 hér er kátt á hjall’ og D7 hér ég dvelja vil. G Nil þrumuskuö ég narra vil I Limbó og svo negla þær og tálga aöeins til. Hæ! Stina stuö o.s.frv. endurtekiö Ef ekki i húlla hopp mér tekst aö gabba hana Hönnu, helst þá vil ég Ellu kropp, Þuru eöa önnu. Hæ! Stina stuö o.s.frv. C-hljómur C ) (5 í D D7-hljómur c D q D (D B7-h(.jómur- C p C c !> T ■ E-hijómur C r D Q K D A 7- hijómur ( DC )C V • i úr hverri áttinni Tannlausasta þjóð í heimi Skotar eru tannlausasta þjóð heims. Heilbrigðisyfirvöld i Skotlandi hafa komist að þessari niðurstöðu á grundvelli visindalegrar rannsóknar. Samkvæmt henni eru 44% allra skota sem orðnir eru sextán ára að mestu tannlausir. Aðeins tveir af hundraði halda þá öllum sinum tönnum. Orsökin fyrir þessu tannleysi er rakin til mikils sykuráts. Hver skoti étur að meðaltali 55 kg af sykri á ári. Ekki eru allar ferðir til fjár Gerald Jenkins, sem er 190 sm á hæð og 107 kg á þyngd, festist i þröngum arni i húsakynnum verslunar einnar i Boston, sem hann reyndi að brjótast inn i Slökkviliðsmenn hjálpuðu hon- um að losna með þvi að hella yfir hann gegnum stromp húss- ins nokkrum litrum af jurtaoliu — meðan aðrir tosuðu sem ákafast i fætur Jenkins. Siðan var karlanginn Jenkins afhent- ur lögreglunni. Lífsviska Gamall maður var beðinn um að segja eitthvað af ævi sinni i beinni útsendingu hjá norska sjónvarpinu. Hann hikaði stundarkorn, siðan sagði hann: — A æskuárunum eiga menn að leggja stund á ástir. A blómaskeiði ævinnar eiga menn að skrifa bækur. Og þegar maður er orðinn gamall er kom- inn timi til að segja sannleik- ann. Grillauglýsing Maður verður að fá góðar hugmyndir, sagði bisnessmaður einn i borginni Rouen i Frakk- landi og opnaði „English Grill” þar á staðnum. Að sjálfsögðu gleymdi hann ekki að geta þess i auglýsingu sinni um ágæti mat- sölustaðarins að „Einmitt á þessum stað brenndu eng- lendingar Meyna frá Orleans árið 1431.” Æöri sálfræöi Sálfræðingur einn skrifar svo- fellt heilræði i kvennablað eitt i London: Ef þér eruð mjög hnugginn, ef yður finnst lifið tilgangslaust og enga lausn að finna, þá skulið þér bregða yður niður i þvotta- hús og þvo eina umferð af mis- litum þvotti. Það hjálpar alltaf. VANTAR TEXTA Nr. 15 Nú erum viö aö hugsa um aö breyta dálitiö til og láta ekki hálfan mánuð liða á milli þess að mynd birtist og þess aö töllögur texta viö hana birtast heldur aðeins viku. Reynslan er sú, að annaðhvort bregðast menn við hart og titt og senda texta strax eða þá að þeir gleyma þvi alveg. Nokkrar tillögur við þetta apatetur: — Snafs skaltu fá, segöu bara já. (Þ.G.) — Ætli mamma segi nokkuö þó ég fái mér dreitil? (T.S.) — Best aö fá sér einn gráan áöur en ég fer í veisluna hjá Vilhjálmi ráðherra. (H.S. Vestmannaeyjum). — Nei mamma, ég fer ekki tii Islands fyrr en þeir eru lika farnir aö greiða niöur rauðvinið. (H.J.) Ekki meira um það. Og svo kemur mynd nr. 16, sem býöur upp á að farið sé inn á mjög viökvæm sviö eins og hver maður getur séð. Skrifið eöa hringiö I snatri. Námsstyrkur Zontaklúbbur Reykjavikur býður fram styrk að upphæð kr. 150 þús. til kennara, sem vill afla sér sérmenntunar i kennslu og uppeldi heyrnarskertra barna. Æski- legt er að umsækjandi hafi reynslu i al- mennri kennslu og hafi lokið námi i fram- haldsdeild Kennaraháskóla íslands. Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. okt. nk. i pósthólf 699 i Reykjavik. — Nánari upplýsingar veittar i sima 33855.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.