Þjóðviljinn - 07.12.1983, Síða 2
2 SÍÐÁ — ÞJÓÐVILJÍNN Míðvikuclagur í. desember 1983
Síðumúlafangelsi hefur verið lokað frá því í haust og hefur það gert
rannsókn fíkniefnamálanna erfiðara fyrir að mati Gfsla Björnssonar.
Stóru fíkniefnasmyglin
„Málin ao
skýrast“
„Hávœr orðrómur“ ekki á
rökum reistur, segir Gísli
Björnsson hjá Fíkniefnalögreglu
„Við teljum að rannsókn þess-
ara mála hafi eðlilegan fram-
gang. Málin eru að skýrast“,
sagði Gísli Björnsson
rannsóknarlögreglumaður hjá
Fíkniefnalögreglunni í samtali
við Þjóðviljann í gær, aðspurð-
ur um stóru fikniefnasmygls-
málin sem nú eru í rannsókn.
Eins og fram kom í blaðinu í
gær sitja nú þrír menn í gæslu-
varðhaldi vegna þessara
tveggja stórmála, sem eru þau
umfangsmestu sem fíkniefna-
lögreglan hefur haft afskipti af
hérlendis. Tveimur sjó-
mönnum sem upphaflega voru
handteknir með smyglgóssið
hefur verið sleppt en þrír aðrir
sem tengjast þessum málum
sitja í gæsluvarðhaldi. Einn
þeirra verður laus úr haldi nk.
sunnudag en hann hefur þá set-
ið inni í 45 daga. Annar var
dæmdur í gæsluvarðhald fram
yfir áramót og sá þriðji var
dæmdur í 45 daga gæsluvarð-
hald sl. miðvikudag.
Aðspurður sagðist Gísli
Björnsson ekki geta sagt fyrir
um hvort fleiri yrðu úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald, en ljóst væri
að sjómennirnir sem sleppt hef-
ur verið væru ekki þeir „stóru“ í
þessum fíkniefnamálum. Hvort
lögreglan hefði nú gómað þá
„stóru“ sagðist hann ekki vilja
tjá sig um en líklega yrðu gefnar
út upplýsingar um málið þegar
gæsluvarðhaldsvist mannanna
lýkur.
Varðandi sterkan orðróm
sem gengið hefur í höfuðborg-
inni þar sem nafngreindir at-
hafnamenn hafa verið bendlað-
ir við umrædd fíkniefnamál
vildi Gísli taka fram að þær
sögur væru ekki á rökum
reistar. Ýmsir hefðu verið yfir-
heyrðir vegna þessara smygl-
mála á undanförnum dögum,
málin væru enn í rannsókn og
þau væru að skýrast.
Síðumúlafangelsið hefur ver-
ið lokað frá því í haust vegna
sparnaðarráðstafana og sagði
Gísli að það hefði komið sér illa
við rannsókn þessara mála og
jafnvel spillt fyrir rannsókninni
þar sem löggæslumenn teldu
Hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg ekki nógu öruggt sem
einangrun. Að vísu var Síðu-
múlafangelsið opnað í einn
sólarhring um síðustu helgi, en
engir fangar eru geymdir þar nú
heldur er unnið að lagfæringum
og endurbótum á fangelsinu.
-Ig-
Kvennalista- og Kvennaframbodskonur:
Funda um fíkniefni
Næstkomandi sunnudag, 11.
desember, kl. 14 gangast
Kvennalista- og Kvennaframboðs-
konur fyrir opnum fundi um fikni-
efnavandann á Hótel Borg.
Framsögumenn-verða: Árni B.
Einarsson, fræðslufulltrúi, Ásgeir
Friðjónsson, fíkniefnadómari, Jó-
hannes Bergsveinsson, læknir,
Snjólaug Stefánsdóttir, uppeldis-
fulltrúi, og Þuríður Jónsdóttir, fé-
lagsráðgjafi.
Skólastjórum, formönnum nem-
endafélaga og foreldra- og kenna-
rafélaga hefur verið sent fundar-
boð þar em lögð er áhersla á að
virkja þann meðbyr sem umræðan
um fíkniefnavandann hefur fengið
núna nýlega. Ráðgert er að hafa
pallborðsumræður á fundinum og
gefa tíma til fyrirspurna og
skoðanaskipta. Á fundinum verð-
ur safnað í hugmyndabanka um
vænlegar leiðir til úrbóta og er
fundinum ætlað að verða eitt skref
af mörgum til að spyrna fæti gegn
þessu stórfellda vandamáli.
Skákferð á ein-
vígið í London
Samvinnuferðir - Landsýn hafa
ákveðið að efna til vikuferðar til
Lundúna fyrir áhugamenn um
skáklistina og sitthvað fleira.
Flogið verður til London sunnu-
daginri 11. desember og komið til
baka 18. desember. Verður búið á
fyrsta flokks hóteli en verð ferðar-
innar er tæplega 14 þúsund krónur
miðað við gistingu í 2-manna her-
bergi. Þar eru m.a. innifaldir 3 að-
göngumiðar að einvíginu. Auk
þess mun ferðaskrifstofan hafa um-
sjón með útvegun á miðum í
leikhús, leik Arsenal og Watford í
ensku knattspyrnunni.
2.500 manns yfir áttrœtt í Reykjavík:
Afstýra verður
algerri neyð
segir Þórir
Guðbergsson
ellimálafulltrúi
um húsnœðismál
gamla fólksins
í Reykjavík
„Nei, það dugir ekki að vísa þessu
fólki á úrbætur 1986, það verður
að grípa til skjótra ráðstafana.
Meðal tillagna sem ég legg fyrir fé-
lagsmálaráð n.k. fimmtudag er að
nú þegar verði kannað hvort um
eitthvert húsnæði gæti verið að
ræða sem hægt er að taka á leigu og
breyta fyrir þá sem eru í algjörri
neyð nú“, sagði Þórir S. Guðbergs-
son, ellimálafulltrúi borgarinnar, í
gær.
Eins og komið hefur fram eru nú
1165 ellilífeyrisþegar á biðlista eftir
leiguhúsnæði hjá borginni. Aðeins
55 þeirra eru á aldrinum 67-70 ára,
325 eru 80 ára og eldri og sífellt
lengist listinn.
„Menn verða að setjast niður og
Þórir Guðbergsson, ellimálafulf
trúi Reykjavíkurborgar.
reikna út hversu mörg prósent
þessara aldurshópa það eru, sem á
næstu árum þurfa aðsto.ð, því enda
þótt áfram verði haldið með fyrir-
byggjandi aðgerðir, þá verður
aldrei komist hjá því að ákveðinn
hluti þarf þjónustuíbúðir eða stofn-
anir vegna heilsufarslegs og féfags-
legs öryggis,“ sagði Þórir. „Það má
finna þetta út frá mannfjöldaspám
og biðlistunum okkar, en á þeim
hefur orðið mikil breyting undan-
farin ár. Spárnar sýna að ástandið
mun enn versna. Það bætist sífellt í
eldri árganganna. Sem dæmi um
það, þá voru 150 manns 80 ára og
eldri á biðlista um áramótin 1980
og 81, en nú eru þeir orðnir 325.“
Nú eru um 2.500 manns í
Reykjavík 80 ára og eldri, en ellilíf-
eyrisþegar í borginni eru nálægt 10
þúsundum. „Það þýðir ekki að
byggja eitt og eitt hús“, sagði Þórir.
„Það verður að gera framtíðaráætl-
anir og meta að hve miklu leyti hið
opinbera á að axla þéssa ábyrgð
eitt og hvernig það getur verið í
forsvari fyrir og til fyrirmyndar
með að leita eftir samvinnu við fé-
lagasamtök, verkalýðsfélög og
aðra aðila. Ég nefni Verkamanna-
bústaðina. Það er ákaflega erfitt
ástand hjá mörgu öldruðu fólki í
Verkamannabústöðunum núna.“
Þórir sagðist á fimmtudaginn
myndu leggja tillögur í 6 liðum fyrir
félagsmálaráð vegna þessara
vandamála. Hann vildi ekki skýra
nánar frá því hverjar þær væru á
þessu stigi.
Eigum að stórefla
verkamannabústaði
Guðjón Jónsson stjórnarformaður
Verkamannabústaða
Bregðumst við á
tilhlýðilegan hátt
segir Jón Rúnar
Sveinsson
formaður Búseta
„Markmiðið með stofnun Hús-
næðissamvinnufélagsins Búseta er
fyrst og fremst það að leysa hús-
næðisvandræðin sem uppi eru í
þjóðfélaginu í dag með félagslegum
hætti og félaginu er ætlað það hlut-
verk að vera önnur tveggja styrkra
stoða undir félagslegar íbúðabygg-
ingar“, sagði Jón Rúnar Sveinsson
formaður Búseta í gær.
„Það hefur gætt þess misskilnings
í fjölmiðlum að okkar álit væri að
framlög til Búseta þyrftu og ættu að
koma frá verkamannabústaðakerf-
inu. Þvert á móti viljum við leggja
áherslu á að framlög til byggingar
verkamannabústaða verði ekki
skert enda vantar talsvert upp á að
staðið sé við ákvæði núgildandi
laga um verkamannabústaði. Þar
er gert ráð fyrir því að um 1/3 íbúða
á hverju ári sé byggður með fé-
lagslegum hætti. Þetta þýðir um
700 íbúðir á ári en hingað til hafa
verið byggðar 3-4Ö0 íbúðir. Við í
Búseta viljum hins vegar gjarnan
taka þátt í að ná 700 íbúða markinu
því vissulega föllum við undir fé-
lagslega íbúðakerfið", sagði Jón
Rúnar ennfremur.
„Það er alveg ljóst að langstærstur
hluti okkar félagsmanna tilheyrir
láglaunahópunum í þjóðfélaginu.
Um 45% okkar félaga eru konur og
margar þeirra einstæðar mæður.
Við erum því að koma til móts við
það fólk sem hefur orðið að treysta
á verkamannabústaði eingöngu og
því teljum við okkur vera að berj-
ast fyrir sömu lausn húsnæðisvand-
ans og þeir“, sagði Jón Rúnar
Sveinsson formaður Búseta að lok-
um.
-v.
- Það er bersýnilegt að það er
verið að rýra og þrengja kost
Verkamannabústaða, sagði Guð-
jón Jónsson stjórnarformaður
Verkamannabústaða í gær.
Guðjón lýsti yfir vonbrigðum
sínum með þetta frumvarp og þá
sérstaklega lækkun lána úr 90% í
80%. Sagði Guðjón að þetta mál
yrði tekið fyrir á fundum innan
verkalýðshreyfingarinnar. Gujón
sagði enn fremur að fé-
lagsmálaráðherra hefði ekki kynnt
stjórn Verkamannabústaða þessar
hugmyndir og þær kæmu þannig í
opna skjöldu. Þessum ótíðindum
þyrfti að bregðast við með tilhlýði-
legum hætti. -óg