Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Blaðsíða 22
22 unglingar LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 Unglingamót norrænna félagsmiðstöðva í Jönköping í Svíþjóð: Fjórir unglingar frá jafnmörgum félagsmiðstöðvum í Reykjavík fóru ásamt fararstjóra nýlega til Britte- bo, smábæjar í nágrenni Jönköping í Svíþjóð, til að taka þátt í unglinga- móti á vegum samtaka norrænna fé- lagsmiðstöðva. Samtökin nefnast Ungdom i fritid í Norden, skamm- stafað UFN. Markmið mótsins var að skiptast á hugmyndum um starf i félagsmiðstöðvunum, koma á kynnum milli unglinganna, sem mættir voru frá öllum Norðurlönd- um, og efla tengsl landanna. Ferð af þessu tagi hefur ekki áður verið far- in frá íslandi en svona mót eru haldin reglulega á Norðurlöndun- um. UFN voru stofnuð 1978 og innan samtakanna eru 3.700 félagsmiðstöð- var í Finnlandi, Noregi, Sví- þjóð, Dan- mörku, Færeyj- um og á íslandi, Grænlandi og Álandseyjum. Markmið UFN er að viðhalda og auka nor- rænt samstarf á sviði félags- miðstöðva, bæði hvað varðar ung- linga og starfsfólk. Starfsemi UFN hefur verið víðtæk og fjölbreytt í gegnum tíðina. Þau hafa staðið fyr- ir fjölda unglingamóta af ýmsu tagi víða á Norðurlöndunum og haldið mörg námskeið fyrir starfsfólk fé- lagsmiðstöðva. Núverandi formaður UFN kemur frá Islandi, þ.e. Ámi Guðmundssson, æskulýðs- og tóm- stundafulltrúi í Hafnarfirði. Unglingamótið stóð yfir í sex daga í kringum mánaðamótin nóv- ember- desember sl. Fulltrúar ís- in hliðin lands vom Berglind Rafnsdóttir, í 10. bekk Árbæjarskóla, Gunnhildur Guðmundsdóttir, í 9. bekk Folda- skóla, Sigurður Blöndal, nemandi í Iðnskólanum i Reykjavík, og Rúnar Gauti Guðjónsson, starfsmaður á netastofu. Öll hafa þau verið mjög virk í unglinga- starfi í félagsmið stöðvum, Berg- lind í Árseli, Gunnhildur Frostaskjóli, Sigurður í Hólma- kæmu til baka full af nýjum hug- myndum og reynslunni ríkari. Þau hefðu kynnst fúllt af krökkum og mörgum pennavinasambönd- um komið á. seli og Rúnar Gauti í Bústöð- um. Farar- stjóri var Kristrún L. Daðadóttir, starfsmaður i Árseli. Meiri- háttar Fjórir af fimm fulltrúum íslands á unglingamóti sem haldiö var ný- lega í Svíþjóð á vegum norrænna samtaka félagsmiöstöðva. Farar- stjórinn, Kristrún L. Daöadóttir, er í traustum höndum þeirra Gunn- hildar Guömundsdóttur (t.v), Rúnars Gauta Guðjónssonar og Berg- lindar Rafnsdóttur. Á myndina vantar Sigurö Blöndal sem því miö- ur komst ekki í tæka tíö í myndatökuna. DV-mynd Hilmar Þór Þau sögðu í samtali við DV að ferðin hafi verið meiriháttar. Þau Þau voru svo góð að gefa DV leyfi til að glugga í dagbók sem sett var saman um ferðina. Við byrjum á að kíkja á lýsingu á fyrsta deginum. Eftir langt ferðalag frá íslandi var greinilega vel þegið að geta lagst til hvílu: „Það var ákveðið að fara snemma að sofa í kvöld þar sem við vorum svo þreytt eftir langt ferðalag. Rún- ar var fyrstur að koma sér fyrir, hann lagðist sæll og glaður með Turtles sængina sína, án hennar var hann ekkert. Begga, hin ný- kjöma ungfrú Burger King, sem siðar var breytt í „Burger Kind nörd“ af afbrýðissömum drengjum, reyndi að koma öllu sínu dóti fyrir og Gunnhildur fylgdi á eftir með litlu töskuna sína. Siggi var frekar rólegur yfir þessu öllu saman og horfði bara á, ekki alveg búinn að átta sig á þessu.“ Næstu daga tóku við skoðunar- ferðir til hinna ýmsu staða í ná- grenni Jönköp- ing og Brittebo. Unglingamir fengu að kynnast umhverfisvænum bíl, klettaklifri, náttúrulifi í sænskum vötnum, vatnagörð- um og mýrum, heimsóttu nokkra skóla og að sjálfsögðu einnig félagsmiðstöðvar. Mikill tími fór í spjall við unglinga frá öðrum löndum enda ýmislegt til umræðu. Lítmn aðeins í dagbókina góðu: „Strax á öðrum degi vom þessar elskur farin að hljóma eins og þreytt hjón en allt var þetta þó á jákvæðu nótunum enda hópurinn mjög samrýndur. Meira að segja var kvartað undan honum og sagt að við værum ekki nógu félagslynd!! Hópurinn var sjálfur að kynnast og átti greinilega margt sameiginlegt þar sem rætt var um allt frá túr- töppum til stjómmála, en auðvitað leyfðum við hinum að vera með okkur, svona öðru hvoru....“ Besta stuttmyndin Undir lok mótsins fengu þátttak- endur að gera stuttmyndir á mynd- bandi um land sitt og þjóð. Þau segja að sitt myndband hafi að sjálf- sögðu verið það besta. Um þetta seg- ir í dagbókinni: „Það sem kórónaði allt saman var söngur Beggu í lokin. Þar loksins fékk hún uppreisn æm, búin að vera sönglandi alla ferðina (öllum til mikUlar gleði). Nú var brunað heim, sturtan tekin, góða lyktin sett upp og farið í sparifötin því nú lá leið okkar í Eldsland, en þar var svaka ball í gangi. Sætir strákar, sætar stelpur, tískusýning, rapp- hljómsveit og diskó. Það var „sudda- stuð“ en samt svolítið skrítið lið þarna. Er heim kom var bara hald- ið áfram enda stutt í að þessi skemmtilega vika væri á enda og um að gera að nýta allan tímann....“ Að loknu unglingamótinu í Brittebo hélt íslenski hópurinn til Stokkhólms og eyddi þar einum degi áður en flogið var til Islands. Kristrún fararstjóri segir að þetta hafi verið ákaflega vel heppnuð ferð og krakkamir verði þjóð sinni til fyrirmyndar. Fara þurfi í fleiri slík- ar ferðir. -bjb Jóhann G. Jóhannsson leikari: Líkur foreldrunum - sem eru fallegastir Jóhann G. Jóhannsson hefur skipað sér i röð bestu leikara okk- ar af yngri kynslóðinni. Hann út- skrifaðist frá University of Hart- ford í Bandaríkjunum vorið 1994. Fyrsta stóra hlutverkið eftir út- skrift var Voffi í Hárinu. Siðan hef- ur Jóhann leikið í Súperstar, hjá Möguleikhúsinu og víðar. Um þess- ar mundir leikur hann í hinum sí- vinsæla söngleik, Stone Free, og er í einu hlutverkanna hjá Þjóðleik- húsinu í bamaleikritinu Litla Kláus og stóra Kláus sem frumsýnt verður 23. janúar nk. Þá átti Jó- hann góða spretti í nýafstöðnu ára- mótaskaupi Sjónvarpsins. Jóhann sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. -bjb Fullt nafn: Jóhann Gje Jóhanns- son. Fæðingardagur og ár: 23. nóvem- ber 1971. Maki: Guðrún Kaldal. Böm: Ekki eitt, enn. Bifreið: Ýktur Audi 80. Starf: Leikari. Laun: Rosalega fín, ef ég vinn all- an sólarhringinn. Áhugamál: íþróttir, kvikmyndir, dýr, tónlist og tækninýjungar. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Ekki ég einn og sér og mér er skítsama, ég á endalausa peninga. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Þegar mér tekst að gera eitthvað rosalega vel, sama hvað það er: Leika, elda, laga .... Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að húka aðgerðarlaus aö ástæðulausu, það kemur fyrir. Uppáhaldsmatur: Austurlenskur. Uppáhaldsdrykkur: Vatn - í ýmsu formi. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Ætli Michael Jordan standi sig ekki þokkalega. Uppáhaldstfmarit: Lopi og band. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Móðir mín. Fallegasti karlinn er faðir minn, ég er svo líkur foreldrum mínum. Ertu hlynntur eða andvígur rík- isstjóminni? Ég er (hl)andvígur rikisstjóminni. —as— Hvaða persónu lang- ar þig mest til að hitta? Laurence Oli- vier, en lifandi auð- vitað. Uppáhaldsleikari: David Sauchet. Uppáhaldsleikkona: Anna Paquin. Uppáhaldssöngvari: Vilhjálmur Goði í Todmobile. Uppáhaldsstjóm- málamaður: Bergur Geirsson. Uppáhaldsteikni- myndapersóna: Stimpy í „The Ren and Stimpy Show“. Uppáhaldssjónvarps- efiii: Kvikmyndir. Uppáhaldsmatsölu- staður/veitingahús: Núðluhúsið. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég les þær bækur sem mig langar mest til að lesa. Jóhann G. Jóhannsson leikari stendur í stórræöum um þessar mundir. Hver útvarps- rásanna þykir þér best? X-ið. Uppáhaldsútvarps- maður: Siguijón Gnarr. Hvaða sjónvarps- stöð horfir þú mest á? Stöð 3 og Disco- very. Uppáhaldssjón- varpsmaður: David Letterman. Uppáhaldsskemmti- staður/krá: Litli ljóti andarunginn. Uppáhaldsfélag í íþróttum: LA Lakers. Stefnir þú að ein- hverju sérstöku í framtfðinni? Já, fuilt af alls kyns mikil- vægum og skemmti- legum hlutum. Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Fara til Ameríku og Prag. wtWWBBB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.