Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Blaðsíða 48
KÍN H ÞrefaMw 1. uímdngur Vertu viðbúín(n) vinningi FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tðkum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblaö LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 Læknadeild: Níu nemar í viðbót kom- ' ist áfram „ Tillaga fulltrúa stúdenta í há- skólaráði er sú að þessir níu nem- endur fari áfram og næstu níu líka. Þá er tryggt að þetta skaði ekki þá sem hefðu komist áfram ef mistökin hefðu ekki átt sér stað,“ segir Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson, fonnaður stúdentaráðs Háskóla íslands, vegna þeirra mistaka sem urðu við tímavörslu í efnafræðiprófl á fyrsta ári í læknadeild í desember. 20 nemendur fengu lengri tíma en aðrir til að ljúka prófinu og af þeim voru níu með 30 efstu á prófinu og komust áfram í læknisfræðinni. Ef tillaga fulltrúa stúdentaráðs nær fram að ganga komast 39 nemendur áfram í læknisfræði. Læknadeild Háskóla íslands mun taka ákvörðun í næstu viku og gefa námsmönnunum níu, sem um ræð- ir, kost á að tjá sig um þá ákvörðun. Málið verður síðan tekið fyrir á há- skólaráðsfundi eftir tvær vikur. „Rektor hefur verið falið að halda þessum níu nemendunum níu upp- lýstum um gang mála á meðan og gefa þeim kost á því að sækja fyrir- lestra þó að þeir séu ekki formlega þomnir inn í áframhaldandi nám í deildinni," segir Vilhjálmur. -RR Stóriðjumengun: Kjalnesingar áhyggjufullir Hreppsnefnd Kjalarneshrepps tekur undir áhyggjur íbúa við Hval- fjörð vegna hugsanlegrar mengrmar og hvetur til varkárni. Svæðið sé mikilvægt vegna matvælafram- leiðslu, útiveru og landbúnaðar. í ályktun hreppsnefndarinnar segir að nefndin sé áhyggjufull vegna frétta af mengun frá Jám- blendiverksmiðjunni og beinir því til iðnaðar- og umhverfisráðherra að þeir beiti sér fyrir úrbótum í mengunarvömum og eftirliti með stóriðju. -SÁ Bláfjöll: Nægur snjór „Það er nægur snjór i Kóngsgili og önnur stólalyftan í gangi. Skíða- færið er gott en harðfenni svo brettamenn eru e.t.v. ekki ánægð- ir,“ sagði Þorsteinn Hjaltason, um- sjónarmaður með skíðasvæðinu í Bláfjöllum, sem hefur verið opið alla daga frá 3. janúar. Hann býst við fjölmenni um helgina ef veðrið verður gott. -ingo Fáheyrð dómsathöfn í „stóra hassmálinu“ fyrir héraðsdómi: Fíkniefnalög- reglan krefst að lögmaður víki - telur að hann hafi ekki rækt starf sitt sómasamlega Sá fáheyrði atburður gerðist í gær að fíkniefnadeild lögreglunn- ar í Reykjavík krafðist þess í Hér- aðsdómi Reykjavíkur að verjandi grunaðs manns í fikniefnamáli viki úr starfi sínu. Um er að ræða lögmann eins hinna grunuðu í stóra fíkniefnamálinu þar sem m.a. var lagt hald á 20 kíló af hassi og verulegt magn amfetamíns og alsælu. Ástæðan fyrir kröfu lög- reglunnar er sú að hún telur að lögmaðurinn „ræki ekki starf sitt sómasamlega". Krafan var lögð fram um leið og farið var fram á framlengingu gæsluvaröhalds yfir skjólstæðingi lögmannsins, einum af fjórum ís- lendingum í málinu, en tveir Hol- lendingar sitja einnig inni. Svo fór að héraðsdómur hafnaði kröfu lögreglunnar um að lögmað- urinn viki. Dómurinn féllst hins vegar á kröfu hennar um fram- lengingu gæsluvarðhalds og úr- skurðaði manninn í hald til 7. febrúar. Fíkniefnadeildin undi ekki nið- urstöðu dómsins varðandi lög- manninn og kærði hana til Hæsta- réttar. Lögmaðurinn, fyrir hönd skjólstæðings síns, kærði sömu- leiðis gæsluvarðhaldsúrskurð dómsins til Hæstaréttar. Búast má við að Hæstiréttur taki afstöðu til beggja kæranna eftir helgi. -Ótt Lestrar- hestar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, afhenti verðlaun í Mími, stóru norrænu lestrarkeppninni. Verðlaunafhend- ingin fór fram við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu á föstudag. Hér sést forsetinn afhenda verðlaun í yngsta ald- urshópnum en verðlaun voru veitt fyrir lestur og bestu veggspjöldin sem nemendur í grunnskólum unnu í tengslum Við Mími. DV-mynd BG Færeyskur togari: íslendingur lést og tveir Færeyingar- slösuðust Þrjátíu og eins árs Islendingur, búsettur í Færeyjum, lést eftir vinnuslys sem varð um borð í fær- eyska togaranum Fonix um klukk- an níu í fyrrakvöld. íslendingurinn og tveir Færeyingar urðu fyrir vír þar sem þei voru að vinna á dekki togarans. Vírinn slitnaði þegar verið var að hífa gamlan vír úr sjónum. Mennirnir voru strax flutt- ir á sjúkrahús á Suðurey. Um miðnætti í fyrrakvöld var ís- lendingurinn síðan fluttur með þyrlu á Landssjúkrahúsið í Þórshöfn þar sem hann lést í gær- morgun. Hann hlaut mikla áverka á líkama en samkvæmt upplýsingum fréttamanns færeyska útvarpsins, sem DV ræddi við í gærkvöld, sluppu Færeyingarnir mun betur og voru þeir útskrifaðir af sjúkrahúsi í gær. íslendingurinn lætur eftir sig færeyska konu og tvö börn í Færeyjum. Hann átti að auki eitt bam á íslandi. -sv Reykhólar: Þangsláttur um miðjan vetur „Við erum núna að þurrka þang sem var slegið um síðustu helgi. Menn fullyrða að það sé einsdæmi að þang sé slegið hér í janúar. Vanalega byrjar þangsláttur ekki fyrr en í apríl og stendur fram 1 október eða nóvember en það fer eftir tíðarfari. En í janúar hefur þang aldrei fyrr verið slegið," sagði Guðjón Guðmundsson, starfsmaður í þörungaverksmiðjunni á Reykhól- um, í samtali við DV. Það er auðvitað þetta góða tíðar- far sem gerir það mögulegt að slá þangið á þessum árstíma. Guðjón sagði að í fyrravetur hefði þang- sláttur byrjað í mars vegna þess milda vetrar sem þá var. Það var líka einsdæmi og nú væri bara febr- úarmánuður eini mánuðurinn sem þang hefur ekki verið slegið í. Guðjón Guðmundsson sagði að yfir vetrarmánuðina, þegar ekki er hægt að slá þang, væri verið að þurrka þara og það væri gert um þessar mundir. Þangið sem slegið var um síðustu helgi var ekki meira en einn farmur. ER KANNSKI HÆGT A£> FÁ FÍKNÓ TIL AÐ SKRIFA UPP Á VÍXIL? Veðrið um helgina: Breyti- leg átt Um helgina má búast við breytilegri átt eða kalda. Það verða smáél norðaustanlands en víða annars staðar verður frost. Hitastigið verður á bilinu -8-1 stig. Veðrið í dag er á bls. 49. MERKILEGA MERKIVELIN brother pt-2pa íslenskir stafir 5 leturstærðir 8 leturgerðir 6, 9 og 12 mm prentborðar Prentar í tvær línur Verð kr. 6.995 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.