Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Side 20
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997 JjV 20 mttir Fjórar kvikmyndir hlutu framleiðslustyrki upp á áttatíu milljánir úr Kvikmyndasjóði: Fjórir reyndir kvikmyndageröar- menn, þeir Ágúst Guðmundsson, Óskar Jónasson, Hilmar Oddsson og Ari Kristinsson, skipta á milli sín 80 milljóna króna framleiðslustyrk frá Kvikmyndasjóði. Ágúst Guðmunds- son fær 24 milljónir til þess að gera Dansinn en um er að ræða fram- lengingu á vilyrði sem gildir til 31. maí á þessu ári. Um hvað fjalla þessar myndir? Drama og glens Ágúst Guðmundsson fékk hæsta styrkinn eða 24 milljónir til þess að gera Dansinn. Myndin segir frá brúðkaupi sem haldið er á lítilli eyju í Atlantshafi árið 1913. Myndin gerist á þremur dögum og lýsir ýms- um furðulegmn atburðum. „Það má segja að þama sé á ferð dramatísk mynd með gamansömu ívafi um eyjarskeggja. Það er ennþá verið að vinna að fjármögnun fyrir myndina. Við reiknum með að fá fjármagn frá Englandi, Þýskalandi og Danmörku. Myndin er tekin að hluta á íslandi og í Færeyjum. Ekki hefur verið gengið frá ráðningum á leikurum ennþá þar sem tökur hefj- ast ekki fyrr en í haust,“ segir Ágúst Guðmundsson. Gamansöm fjölskyldu- mynd „Myndin fjallar um litla stúlku sem býr ein með mömmu sinni. Mamma hennar hefur sagt henni að pabbi hennar búi í útlöndum og hún hefur aldrei kynnst honum. Dag nokkurn fréttir hún að pabbi henn- ar búi í Breiðholtinu. Henni finnst endilega að hún verði að fara að kynnast pabba sínum. Þetta er barna- og fjölskyldumynd í gaman- sömum tón,“ segir Ari Kristinsson um kvikmyndina Stikkfrí sem hann - segir Úskar Jónasson „Þýskaland er einn besti mark- aður fyrir íslenskar myndir vegna þess að Þjóðverjar talsetja allar myndir. Við sitjum þá jafnfæt- is ameriskum myndum vegna þess. Það er allt öðruvisi í Bretlandi þar sem fólki þykir óþægilegt að hlusta á svo skrítið tungu- mál. Með til- komu Norður- landasjóðsins hafa Norður- löndin komið líka. Það er létt- ara að koma barna- og fjöl- skyldumyndum inn á markað á Norðurlöndun- um því börn hafa minni for- dóma gagnvart tungumálinu heldur en ung- lingar,“ segir Ari. Perlur og svín fær 20 milljóna styrk frá Kvik- myndasjóði til þess að gera. Það er 26% af áætluðum heildar- kostnaöi við myndina. Handritið er tilbúið fyrir skömmu og upptökur hefjast væntanlega síðari hluta ágústmánaðar. Dóttir Ara, Bergþóra Aradóttir, mun leika aðalhlutverk- ið. Handritið er eftir Ara en byggt á hugmynd frá Hrafni Gunnlaugssyni og hefur verið Cögur ár í vinnslu. Myndin er einnig styrkt af Þjóðverjum, Dönum og Norðmönnum og hefur verið fjármögnuð 80%. Besti markaður í Þýskalandi Óskar Jónasson fær 17,5 milljónir króna til þess að gera Perlur og svín. Með einni milljón, sem hann hafði áður fengið, er um að ræða 26,3% af áætluðum heildar- kostnaði. „Myndin fjallar um hjón sem eru að reyna að koma sér til Karabíska hafsins í siglingu. Frúin telur að það muni bjarga hjónabandinu. Til þess að eiga fyrir ferð- inni fara þau út í alls kyns brask og vesen. Eiginmaður- inn er mikill ijárglæframað- ur og fer að versla með eró- tísk undirfot og Lödur til Rúss- anna, svo að eitthvað sé neftit. Hann fer alveg með það þegar hann kaupir bakarí þar sem þau kunna ekkert að baka. Þau reyna að skrimta á þvi en það fer allt á hvín- „bömmer“ þegar þau undir- bjóða pylsubrauðamarkaðinn," seg- ir Óskar Jónasson kvikmyndagerð- armaður. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Jó- hann Sigurðarson leika aöal- hlutverkin í myndinni og vonast Óskar til þess að myndin verði tilbúin á ár- inu. Handritsgerðin hófst á því að leikarahópurinn spann verkið og bjó til persónurnar. Óskari þótti þetta góð aðferð til þess að koma handritsvinn- unni af stað. Textinn varð til síðar en tals- Ágúst Guðmunds- son gerir kvikmynd- ina Dansinn sem er drama með gaman- sömu ívafi. vert af hugmyndunum um hvemig karakteramir líta út er komið frá leikurunum sjálfum. Ennþá er ekki búið að brúa alla fjárhagshliðina en myndin verður mjög dýr. Perlur og svín er styrkt af Norræna sjónvarps- og kvikmynda- sjóðnum. íslensk spennumynd „Ég vil helst ekki segja mikið um söguþráðinn sjálfan þar sem þetta er spennumynd,“ segir Hilmar Oddsson sem fær 18 miUjónir króna til að gera kvikmyndina Sporlaust og er styrkurinn 24% af áætluðum heUdarkostnaði. Myndin er svo gott sem fjármögnuð. í myndinni lendir ungt fólk í hremmingum í Reykjavík samtím- ans. Ekki hafa verið gerðar margar tilraunir tU íslenskra spennumynda og akurinn er tUtölulega óplægður. Það finnst Hilmari talsverð ögrun. Hann segir að það sé mjög mikiU galdur að gera íslenska spennu- mynd þar sem við lifum á íslandi í talsvert saklausum heimi miðað við það sem gerist i stórborgum erlend- is. Löggur í leit að réttvís- inm „Samt verða menn fyrir ýmsum ósóma hér á landi. Það er um einn slíkan ósóma sem við ætlum að fíaUa. Þetta er glæpamynd með lögg- um í leit að réttvísinni og öUu tU- heyrandi. Það er einnig mikU ögrun fyrir mig að gera mynd sem er mjög ólík Tár úr steini. Ég tekst hér á við nýjan frásagnarmáta og kem öðru- vísi að henni en áður. Handritið er eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson en ég kom að því á síðari stigum sem leikstjóri," segir Hilmar. -em Óskar Jónasson vinnur aö gerö myndarinnar Perlur og svín. Ari Kristinsson gerir fjölskyldumyndina Stikkfrí á þessu ári. Hilmar Oddsson tekst á viö geróiíkt verkefni sem er spennu- myndin Sporlaust. DV-myndi Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.