Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1997 Fréttir Lægra heimsmarkaösverð á bensíni skilar aöeins einnar krónu lækkun: Fjogurra krona lækkun eðlileg segir framkvæmdastjóri FIB Heimsmarkaðsverð á bensíni hefur lækkað um nálægt 17% mið- að við sama tíma í fyrra. Miðað við útsöluverðið eins og það var þá ætti bensín til neytenda að hafa lækkað um 3-4 krónur hver lítri. Olíufélögin lækkuðu hins vegar hensínið í síðustu viku, en aðeins um krónu. Verðiö fyrir lítr- ann af 95 oktana bensíni var 79,30 og lækkaði í lok vikunnar i 78,30 en miðað við lækkun heimsmark- aðsverðs hefði eðlileg lækkun að mati FÍB verið um 4 krónur og lítrinn ætti þá að kosta um 75,50 nú. „Félag ísl. bifreiðaeigenda hefur vissulega verið að bíða tals- vert lengi lækkun á bensíni þar sem heims- markaðsverðið hefur lækkað um- talsvert og lækkimin haldist stöð- ug. Hún hefur hins vegar látið á sér standa þar til Esso lækkaði verðið um krónu,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í samtali við DV. Runólfur segir að ástæða fyrir því að lækkunin er ekki í sam- ræmi við lækkun heimsmarkaðs- verðsins kunni að vera sú að nú flytji aðeins tveir aðilar inn bens- ín til landsins í stað þriggja áður þar sem Olíufélagið og Olís hafa stofnað sameiginlegt innkaupa- og dreifingarfyrirtæki, Olíudreif- ingu. „Við hljótum því að spyrja hvort fákeppnin sé orðin slík í þessari grein að markaðurinn bregðist ekki lengur við og að neytendur njóti ekki lengur góðs af samkeppni milli olíufélag- anna.“ Runólfur segir að ekki sé lengra síðan en árið 1992 að hér voru verðlagshöft. Þá var verði á elds- neyti stýrt af Verðlagsstofnun. „Þó að ég sé sístur manna til að óska eftir slíku fyrirkomulagi á ný þá hlýtur sú spurning að vakna að ef markaðurinn bregst því hlutverki sínu að tryggja neyt- Nálægt 17% lækkun heimsmarkaðs- verðs á bensíni miðað við sama tíma í fyrra ætti að skila neytendum um það bil fjögurra króna verðlækk- un að mati FÍB. Bensín lækkaði hins vegar um eina krónu í síðustu viku. endum hagstæðast verð á hverj- um tíma, þá hljóti stjórnvöld að þurfa að tryggja hagkvæmt verð til neytenda." -SÁ eftir verð- V- Forstjóri Olís um nýja bensínverðið: Fyllilega sam- kvæmt forsendum „Við reiknum verðið út reglulega, jafnvel nokkrum sinnum í viku og endurmetum útsöluverðið stöðugt eftir mánaðarlegu meðalveröi og með hhðsjón af gengi og birgðabreyt- ingum. Það er þó ljóst að heims- markaðsverð á bensíni og ekki síður á gasolíu hefúr falhö allra síöustu daga. Of skammt er þó liöið til að þess sé farið að gæta í útsöluverði hér. Við fáum að jafnaöi einn skips- farm í mánuði þannig að núverandi heimsmarkaðsverðs er ekki farið að gæta hér,“ sagði Einar Benediktsson, forstjóri Olíuverslunar íslands, þeg- ar DV bar undir hann þá skoðun að með réttu hefði bensín átt að lækka um fjórar krónur lítrinn í stað einn- ar krónu si. fimmtudag. Einar sagði að spár geröu ekki ráö fyrir því að sú lækkun sem varð á heimsmarkaði fyrir skömmu, sér- staklega á gasoliu, eigi eftir að hald- ast. Hvað innkaup Olís varðaði, og sjálfsagt hinna olíufélaganna hka, þá væri eldsneyti almennt keypt inn á mánaðarmeðaltalsverði og á því væri útsöluverðið grundvahað. Mihi 70-73% af verði hvers bens- ínlítra er hlutur ríkissjóðs, sem tek- inn er með vörugjaldi, bensíngjaldi og virðisaukaskatti. Þar sem verö á 95 oktana bensíni er nú 78,30 er hlut- ur ríkisins um 54,80. Þá standa eftir 23,50 sem er innkaupsverðið að við- bættri þóknun olíufélaganna. Sé gert ráö fyrir því að olíufélögin greiði um 11 krónur fyrir hvem lítra nú, þá er þeirra hlutur fyrir innflutninginn og dreifmguna um 12,50 fyrir hvem lítra. Verðlækkun á heimsmarkaðs- verði bensíns miðað við sama tíma í fyrra er samkvæmt upplýsingum FÍB nálægt því aö vera tæpar tvær krónur. Sú lækkun ætti að skha neytendum vel á fjórðu krónu lækk- un að mati félagsins. Einar ítrekar að krónulækkunin sem varð sl. fimmtudag sé að öhu leyti í samræmi við tölur yfu* inn- kaupsverð á bensíni undanfama mánuði. Það sé hins vegar skiijan- legt að menn fylgist með þessum málum og hafi á þeim skoðanir. Hann neitar því aö aðeins séu nú tveir innflutningsaðilar. Olís og Esso kaupi inn eldsneyti hvort í sínu lagi þótt þau hafi sameiginlegt dreifi- kerfi. Fyrir komi síðan aö öh félögin þrjú sameinist um að leigja skip th þess að flytja eldsneyti th landsins. -SÁ z Dagfari Heimkoma VestuMslendings Heimsfrægasti Islendingm-inn, ef th vih að Björk undanskhinni, er Eskfirðingurinn Keikó. Enginn sveitungi Keikós kemst með tæm- ar þar sem Keikó er meö hælana, ekki einu sinni Ahi ríki. Skiptir þar engu þótt Keikó sé ekki mennskur, heldur hvalur. Bandaríkjamenn elska hvali nefnilega meira en menn. Banda- ríkin eru forysturiki í heiminum og því telja aðrir sér skylt að fara að dæmi þeirra. Þess vegna njóta hvalir meiri verndar en mann- skepnan. Það þykja ekki stór tíð- indi í því stóra landi þótt illa gangi hjá mörgum manninum. Lokist hins vegar hvalur í vök er það stór- máL Flotinn er sendur á vettvang til þess að bijóta hvalnum leið úr prísundinni. Þessi hvalaást varð til þess að íslendingar fundu sig knúna th þess að hætta að skjóta hvali. Ákvörðunin var landanum þvert um geð og enginn var hatað- ur meira en hvalavinurinn Paul Watson. Watson þessi sökkti tveim- ur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn um árið. Hann hefur síðan gert frændum okkar og fjandvinum Norðmönnum lifið leitt vegna þess að þeir drepa fáeinar hrefnur á ári hverju. Hvalurinn Keikó varð heimsfrægur þegar hann lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni Frelsið Whly. Vegna hennar var stofnaður sjóður til styrktar hinum esk- firska kvikmyndaleik- ara. Keikó var nefnhega gómaður á sínum tíma út af Eskifirði og fluttur nauðungarflutningi til Kanada, síðan Mexíkó og loks til Bandarikjanna. Þar hefur hann sýnt list- ir sinar í sædýrasöfnum með fram kvikmynda- leik. Stuðningsmenn hvals- ins vilja nú flytja hann á æskuslóðir og sleppa honum í sjóinn við Eski- fjörð. Þar á hann að sam- einast íjölskyldu sinni og segja af sínum högum sem Vestur-íslend- ingur. Fróðir menn hér á landi hafa lengi haft efasemdir um þessa ráðagerð. Þeir segja einfaldlega að hinn frægi hvalur kunni ekki að bjarga sér við náttúrulegar aðstæð- ur. Hans biði því beisklegur ald- urthi. Aðrir vhja ekki hlusta á svona úrtölur. Þeir segja að Keikó sé frægari en Reagan og Gorbi til samans. Því verði hér langvinnt fjölmiðlafár þegar Keikó heldur heim úr útlegðinni. Hinn frægi leiðtogafimdur stórveldanna, sem haldinn var í Höfða um árið, sé smotterí eitt í samanburði við bú- ferlaflutning hvalsins. Tugmhljón- ir manna muni fylgjast með. Þessir sömu menn segja að end- urkoma Keikós til fjöl- skyldu og vina viö íslands- strendur verði sannkahað- ur hvalreki fyrir ferða- bransann. Hingað streymi fólk th þess að fylgjast með. Hvalaskoöun muni þrífast hér sem aldrei fýrr. Vafalaust er þetta rétt hjá þessu góða fólki. Hugsað er um Keikó sem ungbarn í sundlaug í Or- egon. Hann er nuddaður á hverjum degi og látinn gera hjartastyrkjandi æf- ingar. Með fullri virðingu fyrir hvalatemjurum verð- ur að telja ólíklegt að hægt verða að koma þess- um kúnstum við á Aust- fjarðamiðum. Það er því eins líklegt að hvalrekinn verði bók- staflegur. Keikó kann ekki að veiða sér til matar og fær ekki sitt daglega nudd. Kvik- myndaleikarinn gæti því endað dauður uppi í fjöru, í mesta lagi hæfúr í refafóður. Hvað gerir ferðaþjónustan þá með gervalla heimspressuna yfir sér? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.