Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Side 27
MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1997 35 I_________ir L Ls^ f CH. Kvenhetja Hetjur spennu- og hasarleikjanna hafa yfirleitt veriö karlmenn. Svo er þó ekki í nýjasta spennuieik Sega sem kallast Enemy Zero. Hetja þessi heitir Laura Lewis og stjórnar hún herflokki sem á aö útrýma herská- um geimverum sem hafa ráöist á jöröina og íbúa hennar. Laura verö- ur að reyna aö bjarga sjálfri sér, hernum og öllum jaröarbúum meö hyggjuviti sínu og klækjum. Leikur þessi er sem stendur aðeins til fýr- ir Sega Saturn-leikjatölvuna en PC- útgáfa af honum er væntanleg í febr- úar. Kappakstur GT Interactive hefur sent fra sér nýj- an kappakstursleik sem kallast Bug Riders. í þessum leik er hægt aö velja um sex brautir. Mjög góö þrí- víddargrafík er f leiknum og meðal annars er hægt að fara fram úr keppinautum meö því aö keyra yfir þá og jafnvel undir. Einnig er hægt aö nota vopn í kappakstursbarátt- unni þannig aö allra bragöa er neytt til aö komast í mark á tilsettum tíma. Þessi leikur er bæöi til fýrir Playstation og Windows 95. Quake II kominn Framhaldiö af hinum sívinsæla of- beldisleik Quake er loksins komiö f verslanir. Aödáendur leiksins, sem eru fjölmargir um allan heim, hafa beöið þessa framhalds meö mikilli eftirvæntingu og loksins á laugar- daginn kom hann í verslanir. Fram- leiöendur hafa lítiö viljaö láta hafa eftir sér um hvernig þessi leikur veröur annaö en aö töluveröar end- urbætur hafi verið gerðar á honum frá sföustu útgáfu. Vonandi á þessi leikur ekki eftir aö valda Quake-að- dáendum vonbrigðum. Flight Simulator enn efstur Right Simulator frá Microsoft er enn efstur þegar söluhæstu leikir októ- bermánaöar eru kannaðir. Mun fleiri * , mm ‘ VSj ÍfjJl/iJi' Sega Rally Championship: Keyrt um skóga, borgir og eyðimerkur mclar nýir leikir eru hins vegar á listanum nú en oft áöur. Meðal þeirra eru Riverfrá Brpderbund (2), Jedi Knight: Dark Forces (3), Lego Island (5), Ultirma Online (9) og NHL Hockey 98 (10). Myst fellur um tvö sæti, niður í það fjórða, en Command & Conquer er hins vegar á hraöri upp- leið. Minni hræringar eru f Macin- tosh-leikjum. Þar er Civilization 2 enn efstur og gamlir kunningjar eins og Quake, Duke Nukem og Myst halda sínum hlut. Hvaða leiki ber að forðast? Samtökin NIMF, sem eru samtök margmiölunar og fjölskyldu, hafa greint nokkra leiki til að athuga hvort óhætt sé aö gefa börnum leikina. Meðal leikja sem ekki þóttu henta fyrir börn voru Duke Nukem 3D fýr- ir Sega Saturn; Doom 64, Mace: The Dark Age og Turok: Dinosaur Hunterfýrir Nintendo; Resident Evil fýrir Playstation og Blood, Diablo, Postal og Quake II fyrir PC-tölvur. At- hygli vakti aö ekki þótti ráölegt fyr- ir ung börn að leika Hercules-leik- inn frá Disney Interactive vegna of- beldis í honum og ótta sem hann kynni aö vekja hjá þeim. EBSil Kappakstursleikir hafa lengi verið vinsælir í tölvuleikjunum hvort sem um er að ræða hefð- bundna bíla eða Formula 1 kappakstursbíla. Sega hefur sent frá sér leikinn Sega Rally Champ- ionship fyrir PC-tölvur. Eins og nafnið gefur til kynna er þama um hefðbundið rallí að ræða þar sem menn keyra um borgir, skóga og eyðimerkur í kappakstri við tímann og aðra bíla. Aðstoðarökumaður og árekstrar Til að byrja með er hægt að æfa sig á þeim þremur brautum sem boðið er upp á í keppninni. Þær eru miserfiðar og þegar í alvömna er komið er byrjað á léttustu brautinni og ef mönnum tekst að komast í gegnum hana er farið í næstu og þannig gengur það þang- að til brautirnar eru kláraðar. Hægt er að velja um fjórar teg- undir bíla, tvo sjálfskipta og tvo beinskipta. Aðstoðarökumaður er með í för og hann segir til um ef kröpp beygja er fram undan og gefur til kynna ef verið er að gera einhverja vitleysu. Einnig er hægt að skipta um sjónarhorn eftir því sem hentar mönnum. Reynt er að gera allt sem best úr garði til að gera stemninguna sem líkasta venjulegri rallíkeppni. Menn eru ræstir á hefðbundinn hátt og áhorfendur em alveg ofan í brautunum. Það kom jafnvel fyrir undirritaðan að hann keyrði yfir áhorfanda en það virtist ekki hafa teljandi áhrif á keppnina! Góð hönnun Hönnuðum leiksins hefur tekist mjög vel upp. Hljóðið er gott og er einkar sannfærandi þegar að- stoðarökumaðurinn hrópar aðvör- unarorð eða þegar mönnum verð- ur hreinlega á að rekast utan í kletta eða annað sem fyrir verður. Grafíkin er einnig mjög góð og allt er gert til að skapa andrúmsloft eins og í alvöru rallíkeppni. Það sem ég hef helst út á þenn- an leik að setja er að ekki er hægt að velja úr nógu mörgum braut- um. í þeim kappaksturleikjum sem nú em að koma út tíðkast að hægt sé að velja úr sex eða jafnvel fleiri brautum þó að reyndar séu þeir öðruvísi uppbyggðir heldur en þessi. Þessi litla fjölbreytni get- ur gert það að verkum að fólk fær mun fyrr leið á leiknum en ella og þá endar hann fljótt neðst í tölvuleikj askúffunni. Að öðru leyti hefur Sega tekist vel til við framleiðslu leiksins og er líklegt að margir aðdáendur slíkra leikja muni skemmta sér vel yfir þessum leik. Allavega varð undirritaður nokkuð spennt- ur. Einkunn: 8,0. -HI Leiðarljós á Netið Útgáfufyrirtækið Leiðarljós. ehf. hefur opnað heimasíðu á Netinu. Slóðin er: http://www.centrtun. is/leidarljos. Leiðarljós sérhæfir sig í að gefa út efni um andleg málefni. Meðal efnis eru bækur, staðfestingarkort, Víkingakortin, Reyklaus að eilífu kortin, hugleiðslusnældur og ýmislegt annað sem tengist þessum málaflokki. í framtíðinni er stefnt að þvi að hægt verði að panta slíkar vörur beint í gegnum Netið. -HI « f # Slakið á við hugljúfa og seiðmagnaða tónlist sem samin er Friðriki Karlssyni gítarleikara. Friðrik hefur einnig samið leií hverju lagi um hvernig best má nýta það til slökunar og huj WM» Far - Oskar Guðjónsson Far er einstaklega góð djassplata með frábæmm hljóðfæraleikurum. Þetta er fyrsta sólóplata Óskars Guðjónssonar, saxófónleikara Mezz en með honum spila ekki ómerkari menn en Skúli Sverrison bassal Matthías Hemstock trommuleikari og Hilmar Jensson gítarl iviusik pyiyNdÍR) Austurstræti 22 Álfabakka í Mjódd Reykjavíkurvegi 64, Hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.