Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Síða 22
22 Fréttir MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1997 Kentruck Handlyfti- vagnar ÁRVÍK Armúla 1- Reykiavík, Sími 568 7222 - Fax 568 7295 o\\l mil li hlrt)inií X Smáauglýsingar I 550 5000 hver mínúta eftir kl.23:oo á kvöldin kr. PQSTUR OG SIMI I>V Eiganda Þryms gert að greiða sakarkostnað: Milljónir króna fýrir förgun skips - verði hann fundinn sekur Bolungarvik 1 ísafjöröur 2 Tálknafjöröur 1 Patreksfjöröur 4 Djúpavík 1 Siglufjöröur 3 Kópasker 2 Hólmavík 2 Ólafsfjörður 1 Sauöárkrókur 1 Raufarhöfn 2 Þórshöfn 2 Vopnafjöröur 4 Breiöafjöröur 16' 1 Snæfellsbær 3 «. Grundarfjörður 2 fj frfyjL Garöur 2 Garöabær 1 Reykjavík 4 HafnarQöröur 8 Reykjanesbær 6 Sandgeröl 1 Grindavík 2 Mjólfjöröur 2 Reyöarfjöröur 1 Fáskrúösfjöröur 1 Breiðdalsvík 1 81 draugaskip Kostnaður við leit Landhelgis- gæslunnar og lögreglu að Þrymi BA 7, sem grunur leikur á að hafi verið sökkt í Tálknafirði fyrir tæp- um mánuði, hleypur á milljónum króna. Að sögn Helga Hallvarðs- sonar, forstöðumanns gæslufram- kvæmda, er nú verið að reikna út hver endanleg niðurstaða verður, en varðskip Landhelgisgæslunnar var kcillað út ásamt kafarasveit til leitarinnar. Áhöfnin og kafarar leituðu í tvo daga að skipinu, auk þess sem lögreglan leigði bát til leitar, og því ljóst að um umtals- verða upphæð er að ræða. Rannsókn á hvarfi Þryms úr Tálknafirði er að ljúka, og verður málið sent ríkislögreglustjóraemb- ættinu einhverja næstu daga. Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreksfirði, segist vænta þess að gefin verði út ákæra á hendur eig- anda bátsins, og að öllum líkindum farið þess á leit að hann greiði all- an sakarkostnað. Kostnaður við leit Landhelgisgæslunnar að skip- inu fellur þar inn í. Dýrkeyptara að sökkva en farga Einar Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri Hringrásar sem m.a. endur- vinnur brotajárn úr skipum, segir það rangt sem komið hafi fram í fjölmiðlum að það kosti margar milljónir eða tugi milljóna að farga skipum. Hringrás taki skip inn fyr- ir um 500 þúsund krónur. Kostnað- ur við flutninga að Reykjavíkur- höfn sé í flestum tilfellum lítill, því flestir eigendur fái skip sem eigi leið um til að draga skipið til hafn- ar. Þá segir Einar að Hringrás hafi vitað lengi af vandræöum eiganda Þryms í Tálknafirði og því hafi þeir boðið honum að vinna verkið fyrir 350 þúsund krónur. Það kann því að reynast eigandanum dýr- keypt að hafa farið þá leið að láta skipið hverfa, veröi hann dæmdur til að greiða margar milljónir króna í sakarkostnað. Atvinnumiðlun Reykjavíkurborg- ar hefur boðið 10 atvinnulausum konum að öðlast aukin ökuréttindi. Þetta er tilraunaverkefni hjá at- vinnumiðlun borgarinnar og var ákveðið að byrja á því að leyfa 10 konum að sækja námskeið hjá Öku- skóla S.G. Konumar taka flestallar hópbif- reiðaréttindi. Reykjavíkurborg borgar allan kostnað vegna þessa og er konunum síðan innan handar við að útvega þeim vinnu eftir að þær hafa fengið réttindi sín. 26 ára síbrotamaður, sem lögregla hefur leitað að undanfarinn hálfan mánuð, hefur loks verið handtekinn. Maðurinn var fyrst handtekinn snemma í nóvember ásamt félaga sínum vegna fjölda innbrota. Hér- aösdómur hafnaði kröfu lögreglu 81 draugaskip á skrá Þrymur, sem var um 200 tonna stálskip, hafði legið í fjörunni í Tálknafirði síðan 1990. Báturinn var dæmdur ónýtur og tekinn af skipaskrá fyrir um ellefu árum. Hreppurinn kvartaði fyrst undan skipinu við eigendur þess árið 1991. Málið var tekið fyrir í Hér- aðsdómi Vestfjarða á þessu ári, og hefur eigandinn að öllum líkind- um ætlað að firra sig frekari mála- ferlum með því að færa bátinn. Þrymur er er þó fjarri því að vera eina skipið sem legið hefur árum saman í flæðarmálinu. Sam- kvæmt úttekt sem unnið hefur verið að á vegum nefndar um nið- urrif og förgun skipa eru yfir 80 bátar í reiðileysi í höfnum eða fjörum landsins. Þetta eru sann- kölluð draugaskip, því oftar en ekki er það á reiki hver ber ábyrgð á þeim og hver síðasti eigandi var. Upplýsingar skortir einnig um hvort skip hafi veriö úrelt og hvort greitt hafi verið fyrir þau úr „Þetta gengur mjög vel hjá þeim. Þetta er í fyrsta skipti sem við fáum svona margar konur inn. Við höfum oftast verið með eina til tvær konur í hóp áður en þetta er algert met. Konur hafa almennt verið mjög góö- ar á þessum námskeiðum og staðið sig vel. Þessar tíu eru engin undan- tekning. Þær eru óhemju sam- viskusamar og það hefur komið í ljós í prófunum því þær hafa fengið toppeinkunnir," segir Sigurður Gíslason, eigandi Ökuskóla S.G. -RR um gæsluvarðhald yfir manninum. Það var kært til Hæstaréttar sem hnekkti úrskurði Héraðsdóms og úrskurðaði manninn í gæsluvarð- hald til 22. desember. Lögregla gerði boð eftir mannin- um en hann gaf sig ekki fram. Eftir Þróunarsjóði sjávarútvegsins. Að sögn Eyjólfs Magnússonar hjá Hollustuvernd ríkisins liggja iðu- lega þær upplýsingar fyrir að við- komandi skipum hafi verið fargað eða þau seld úr landi þó svo að þau liggi í reiðileysi við bryggju. Þá eru fjöldamörg skipsflök í fjör- um sem hafa grotnað niður áratug- um saman án þess að nokkuð hafi verið gert til að fjarlægja þau. Breiðafjörðurinn hefur nokkra sérstöðu hvað þetta snertir, því þar eru hvorki meira né minna en 16 skip og skipsflök sem liggja í fjörum. í samantekt Eyjólfs kemur fram að þar á meðal eru að minnsta kosti tvö stálskip sem í eru vélar, en talið er að öll olía hafi fariö úr þeim í sjóinn enda hafa þau legið þarna í 15-20 ár. Förgunarsjóður skipa Hlutverk nefndarinnar um nið- urrif og forgun skipa er að afla gagna um vandann, og einnig að benda á mögulegar leiðir til að taka á honum. Davíð Egilsson hjá Hollustuvemd rikisins, sem á sæti í nefndinni, segir stefnumótunina þríþætta. f fyrsta lagi verði að finna lausn á því hvað gera skuli við þau skip sem komin eru úr notkun og liggja í fjörum og höfn- um um allt land. Af þeim stafi bæði óþrif og sóðaskapur, auk þess sem mengunarhætta geti verið fyr- ir hendi. í öðru lagi verði að móta stefnu um hvað gera skuli við þau skip sem nú eru að sigla, og í þriðja lagi hvernig skuli haga þess- um málum gagnvart skipum fram- tíðarinnar. Davíð segir að ein hugmynd sem rædd hafi verið sé að koma á fót sérstökum forgunarsjóði skipa til að létta kostnaðarbyrði einstak- linga og sveitarfélaga, en þá sé spumingin hvemig eigi að fjár- magna slíkan sjóð. Þá komi tO að mynda til greina að sérstök fjár- veiting komi frá ríki til forgunar á bátum; skipaeigendur greiði sér- stakt gjald; eða að til komi sérstakt mikla leit frétti lögregla af honum í felum í heimahúsi í Breiðholti í fyrrakvöld og þar var hann hand- tekinn. Ljóst er að maðurinn faldi sig á fleiri en einum stað. Hann mun nú sitja í gæsluvarðhaldi til 22. desember. -RR tryggingargjald og skattur, líkt og bifreiðaskattur, sem fari virkilega að telja þegar skipið er komið úr notkun. Það ýtir undir menn að farga slíkum skipum. Víti til varnaöar Hvað snertir Þrymsmálið segir Davíð nauðsynlegt að tekið verði á því þannig að skipaeigendur haldi ekki að það sé ódýr förgunarleið að sökkva skipum eftir afskráningu. Það verði því fróðlegt að sjá hver niðurstaða dómsins verður. Davíð segir hins vegar óvíst hvort Þrym verði lyft af botni Tálknafjarðar. Sé miðað við það hvað kostar að ná Æsvmni, sem sökk í Amarfirði, upp megi fast- lega reikna með því að kostnaður við slíka áðgerð sé milli 10 og 20 milljónir króna. Því yrði að meta það gaumgæfilega hvaða hætta felst í því að Þrymur liggi á sjávar- botni með tilliti til mengunar og siglingaleiða, og þá taka ákvörðun um hvort þeim fjármunum væri ekki betur varið til annarra um- hverfismála. Fingralang- ur puttal- ingur DV, Breiðdalsvík: Brotist var inn í kaupfélagið hér á Breiðdalsvík 1. desember. Rúða var brotin til aö komast inn í húsið, brotin millihurö og fleiri skemmdir unnar. Stolið var um 15 úrum og nær öllu tóbaki í búðinni. Um morg- uninn hringdi þjófurinn í versl- unina og vildi semja um greiðslu fyrir það sem hann skuldaði. Sökudólgurinn, sem var putta- ferðalangur, var tekinn á Höfn í Hornafirði. Hann reyndist vera síbrotamaður með mörg mál á bakinu. Gisti hann á Hótel Blá- felli á Breiðdalsvík um nóttina og gekk út án þess að borga. Nokkrum sinnum áður hefur verið brotist inn í kaupfélagið en þjófamir hafa alltaf náðst áður en þeir komust út úr Aust- urlandsfjórðungi. -HI Tíu atvinnulausar konur: Boðið að öðlast aukin ökuréttindi - Atvinnumiðlun Reykjavíkur stendur að baki Síbrotamaður í felum handtekinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.