Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
heimili
r
INSTABUS í stað hefðbundinna rofa:
Tölvustýrð rafnotkun heimilanna
- ætlað að spara orku og auka öryggi
Ný viðbygging við Alþingishúsið verður með Instabus-stýringu á Ijósabúnaði. DV-mynd GVA
Þróun á nýjum vörum og kerf-
um fyrir rafmagn í húsum hef-
ur tekið miklum framförum
undanfarið. Fullyrt er að
svokölluð BUS-kerfi séu mesta
byltingin sem komið hefur
fram á þessu sviði í áraraðir.
Farið er að hanna slík stýri-
kerfi fyrir lýsingu í húsum hér
á landi, bæði atvinnu- og íbúð-
arhúsnæði. Þar má m.a. nefna
nýja viðbyggingu við Alþingis-
húsið og er búnaðurinn þar
hannaður af verkfræðifyrirtæk-
inu Víkingi.
Rafbúnaði stýrt með
aðstoð tölvu
BUS-kerfi er í raun búnaður þar
sem rafbúnaði heimilisins er stýrt með
aðstoð tölvu. Orðið BUS kemur einmitt
úr tölvuheiminum og er notað um
samskiptamáta alls sem er inni í tölv-
unni. Þar tengist búnaðurinn innbyrð-
is og fær svo rafmagn í gegnum sam-
eiginlega snúru. í BUS-kerfum þarf
þessi búnaður ekki nauðsynlega að
tengjast við rafmagn heldur getur
hann eins notað innrautt-ljós eða út-
varpsbylgjur. Gömlu góðu „slökkvar-
amir“ eða rofamir sem við fálmum
eftir í myrkrinu til að kveikja ljós
verða þar með úr sögunni. Jafnvel er
hægt að fylgjast með lýsingu heimilis
eða skrifstofu í gegnum síma.
Instabus er þekktasta BUS-kerflð í
dag. Það er í
mikilli þróun
og aukast
möguleikar
þess stöðugt.
Það er raf-
lagnakerfi þar
sem aílar
stofnlagnir að
lömpum eða
öðrum notend-
mn sem nota
rafmagn eru
lagðar á hefð-
bundinn hátt
en kveikingar
og stýringai'
em lagðar á
einum
tölvu/insta-
bus-streng. In-
stabus er
staðlað raf-
lagnakerfl fyr-
ir evrópskan
markað þar
sem ailir
helstu raflagnaframleiðendumir vinna
saman og má þekkja þennan búnað á
skammstöfuninni E.I.B. Hægt er að
kaupa raflagnaeöú eða stjómbúnað frá
öllum stærstu framleiðendum, s.s.
SIEMENS, GIRA, BUS-JAGER,
BERKER, ABB og yflr 50 öðrum aðil-
um.
Með notkun á Instabus er m.a. verið
að sækjast eftir ódýrari rekstrarkostn-
aði þar sem ljós era þá aðeins kveikt
með Instabus þegar þörf er á, ljós
slökkna sjálfkrafa að hluta eða að öllu
leyti, ef utanaðkomandi ljós er nægi-
legt. Hægt er að tengja aðra rekstrar-
þætti, s.s. hita og loftræstingu, inn á
kerfið og minnka þannig rekstrar-
kostnað á þeim.
Með notkun þessa kerfis er hægt að
komast af með minna raflagnakerfi en
ella. Þar er ekki eingöngu verið að
sækjast eftir flárhagslegum spamaði
heldur er ekki síður verið að sækjast
eftir auknu öryggi.
Minna raflagnakerfi þýðir minni
reykur ef um bruna yrði að ræða. í
Evrópu er mikið lagt upp úr þessu þar
sem nokkur slys hafa orðið þegar
byggingar.hafa fýllst af reyk við minni
háttar bruna.
Tölva eða stjórnskjár til
að stýra heilu húsi
Hægt er að fylgjast með ástandi
heillar byggingar eða hluta byggingar
með litlu og meðfærilegu skjámynda-
kerfi sem tengist Instabus þar sem
ástand kemur upp á skjái, t.d. kveikt
eða slökkt á skrifstofu, opinn eða lok-
aður gluggi.
Öryggisþætti byggingar er hægt að
leysa með Instabus þar sem skynjari
kveikir ljós á daginn eða gerir viðvart
um óæskilegar ferðir á nætumar. Með
Instabus er hægt að hafa flókna ljósa-
stýringu, t.d. í fundarherbergjum eða
ráðstefnusölum sem er auðvelt og
ódýrt. Allar breytingar innanhúss eru
auðveldar í framkvæmd og ekki þarf
að leggja nýjar raflagnir ef veggir eru
færðir eða felldir niður.
Nokkrir af kostum Insta-
bus
- Sveigjanleg hönnun með óendan-
legum möguleikum til breytinga eða
stækkunar.
- Stjómun á öllum búnaði frá einum
stað.
- Auðvelt og fljótlegt að fmna upp-
tök bilana.
- Mikill spamaður í orkunotkun
með skynsamlegri nýtingu.
- Fjölbreytt hönnun með fjölmörg-
um úflitsmöguleikum.
- Öraggt og hefur sannað skilvirkni
sína.
- Hægt að stjóma af hverjum not-
anda og/eða úr einni móðurstöð.
Instabus hefur verið reynt í ein 6-8
ár og era sífellt fleiri framleiðendur að
bjóða efni og tækjabúnað sem hægt er
að tengja við það. Það sem tryggir þró-
unina á þessu sviði er að allir fram-
leiðendur era búnir að samþykkja
einn staðal og munu þróa hann í sam-
einingu.
Nú eru að koma símkerfi, aðgangs-
kerfi og fullkomin þjófavamarkerfi
viðurkennd af þýska VDS staðlinum
sem er talinn sá öruggasti í heimi.
Miklu fiármagni hefur verið varið í
þróun Instabus og búast margir við að
slík kerfi koma til með að verða mjög
algeng í framtíðinni.
hlýrstíU
fyrir heimilið... á þœgilegu verði!
Bordstofusett
Sérlega glæsileg
spænsk borðstofusett
á frábæru verði.
Verð stgr. kr.
Sófaborð m/20 skúffum
Kommóða
Verð stgr.kr.
þœgindifyrir þig.
Stóllinn ehf.
Mikið úrval af
kommóðum
\ Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Smiðjuvegi 6
GulH°35
þœgindi fynr þig!
Columbia
Sófasett 3+1 + 1
na^g-jgÉtjT^L,*.
ísá * ■ ’
Vandað ítalskt leðursófasett
Glæsilegt og vandað
sófasett á góðu verði
Cartton
Sófasett 3+1 + 1
Vandað ítalskt
leðursófasett
225.000,-
Verð stgr. kr.
Hornsófi
Glæsilegur hornsófi á
sérlega hagstæðu verði.
Litir: Hvitt, brúnt, grænt
og blátt.
Verð stgr. kr.
149.900,-
Borð og stólar
Sett úr harðviði,
kirsuberjalitur.
Verð stgr. kr.
Borð + 4 stólar
L/tid vid
i**s‘ve
Við erum einnig á Egilsstöðum, Miðvangi 5-7 S. 471 2954