Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 7 DV Fréttir Enn einn íslendingur til liðs við Harrison Ford í K19 - The Widow Maker: Bondasonur ur Borgar- firði slæst í hópinn - kvikmyndað á slóðum Vestur-íslendinga við Gimli í Kanada „Þessir kvikmyndaframleiðendur auglýstu eftir statistum í dagbiöð- um í Winnipeg og mér skilst að 500 manns hafi sótt um. Úr þeim hópi voru valdir 20 og þeirra á meðal Jó- hannes sonur minn,“ sagði Snorri Jóhannesson, bóndi á Augastöðum í Borgarfirði, sem að vonum er stolt- ur yfir frammistöðu Jóhannesar sonar síns sem búsettur hefur verið á slóðum Vestur-íslendinga í Gimli i Kanada síðustu tvö ár og starfað þar sem smiður. Þangað er mætt kvikmyndatökulið Sigurjóns Sig- hvatssonar sem framleiðir stór- Ingvar Sigurðsson. Harrison Ford. myndina K19 - The Widow Maker með Harrison Ford, Liam Neeson - og Ingvari Sigurðssyni í aðalhlut- verkum. Guðni Ágústsson á búnaðarþingi í gær Höföar til heilbrigðrar skynsemi og vonar eö menn hætti viö bændaferöina. m KSk J||| Enn fjölgar í bændaferðina til Bretlands: Trúi þessu ekki - segir landbúnaðarráðherra „Við höldum þessu til streitu þar til annað kemur í ljós. Nú eru þátttakend- ur orðnir 35 talsins, Qórir hafa bæst við síðustu daga en tveir hætt við,“ segir Helga Magnúsdóttir sem hefur umsjón með bændaferð Úrvals-Útsýnar sem skipulögð hefúr verið um Bretiands- eyjar þar sem nú ríkir neyðarástand vegna gin- og klaufaveikifaraldurs. Öll- um samkomum til sveita hefur verið frestað, fólk fer ekki á milli bæja og breskir bændur óttast um afkomu sína og lifsviðurværi. „Ég trúi þessu ekki,“ segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og höfðar til skynsemi bændastéttarinnar þegar hann bætir við: „Ég harma að ís- lenskar ferðaskrifstofur og ferðalangar geti ekki breytt tilhögun ferða sinna í ljósi þess ástands sem er á Bretiands- eyjum. Gin- og klaufaveiki er stórhættu- legur sjúkdómur og ég tel að almenning- ur á íslandi sé mjög meðvitaður um að nú þurfi að fara varlega." - Getur þú ekki bannað bændaferð- ina? „Nei, ég get það ekki þó ég vildi. Nú verð ég bara að treysta á heil- brigða skynsemi þessara manna og vona að þeir hætti við,“ segir Guðni Ágústsson en hann setti búnaðar- þing á Hótel Sögu í gær þar sem hann hvatti bændur til að taka höndum saman við stjórnvöld um að sníða þá agnúa og galla af sem á íslenska landbúnaðaðarkerflnu eru. Fimmtíu sæti eru i boði í bændaferð Úrvals-Útsýnar en ráðgert er að ferðin verði farin um miðjan næsta mánuð. -EIR Nýtt bókunarkerfi hjá Herjólfi: Skylda að skrá alla farþega - samkvæmt reglum frá Evrópusambandinu Nýtt bókunarkeríi, þar sem skrá þarf nafn og kennitölu hvers farþega, hefúr verið tekið upp hjá Herjólfi sem nú er rekinn af skipafélaginu Samskipum. Að sögn Björgvins Amaldssonar, rekstrar- stjóra Herjólfs, var nýja bókunarkerfið tekið upp þar sem nú er skylda að skrá alla farþega sem eru um borð í farþega- skipum. „Þetta er samkvæmt reglum frá Evrópusambandinu sem voru teknar upp í kjölfar slysa sem orðið hafa í far- þegasiglingum og við höfum því ekkert val,“ segir Björgvin. Hann segir að slíkt kerfi hafi ekki verið til og ekki var hægt að kaupa sam- bærileg kerfi hjá fyrirtækjum eins og Flugleiðum. „Við létum því hanna bók- unarkerfi inn í tölvukerfið okkar,“ seg- ir Björgvin. Síðastliðinn sunnudag seinkaði einni ferð Herjólfs, meðal ann- ars vegna þess að vélarbilun kom upp í kerfmu. Björgvin segir að nokkrir hnökrar hafi komið upp i kerfinu í byrj- un en verið sé að vinna að því að shpa það tiL Hann segir að seinkunin á sunnudag hafi verið óviðráðanleg og að fyrirtækið harmi að hún skyldi hafa orðið. -MA Fótbolti á ísnum „Þegar ég talaði við strákinn í gær var búið að krúnuraka hann og hann var að máta búninga. Þeir eru að kvikmynda þarna á Winnipegvatni og fluttu með sér stóran kafbátsturn sem komið hefur verið fyrir á vatninu míðju sem er ísi lagt. ísinn hafa þeir svo sprengt svo það líti út fyrir að kafbáturinn hafi brotið sér leið upp,“ sagði Snorri á Augastöðum sem taldi að hlutverk sonar síns í stórmynd- inni væri að leika einn úr áhöfn rúss- neska kafbátsins. Jóhannes hafi vafa- lítið verið valinn vegna þess að hann er stór og ljós yfirlitum og með mikið alskegg. Eftir að hafa verið krúnurak- aðir og klæddir i búninga hafi statistunum verið gert að liðka sig og spila fótbolta á ísnum svona eins og kafbátaá- höfn gerir þegar hún kemst upp eftir langa dvöl í undirdjúpum. Ingvar frekar en Ford „Jóhannes var að vonast til að hitta Ingvar Sigurðsson þarna á tökustað en i gær vissi hann ekki hvort hann væri á staðnum. Hann var eiginlega Kafbátsturninn Kafbátsturninn sem komiö hefur veriö fyrir á ísilögöu vatninu. spenntari fyrir Ingvari en Harrison Ford,“ sagði Snorri á Augastöðum. Gerð stórmyndarinnar , K19 - The Widow Maker hefur vakið mikla at- , hygli vestan hafs og þá , sérstaklega vegna þeirra launa sem Harrison Ford þiggur , fyrir að leika í , myndinni. Hafa slíkar tölur ekki Kanadíska pressan - þar sem sagt var frá mynda- tökunni. heyrst i Hollywood síðan Marlon Brando lék í nokkrar minútur í upp- hafsatriði einnar StarWars-mynd- anna fyrir allmörgum árum. Ekki heim í bráð „Jóhannes kann vel við sig þama í Gimli. Allt ódýrara en hér heima í Borgarfirðinum og þó smiðskaupið sé eitthvað lægra en hann á að venjast er afkoman miklu betri. Þá eigum við mikið af skyldfólki þarna vestra þannig að ég á ekkert frekar von á syni minum heim í bráð,“ sagði Snorri Jó- hannesson sem biður spenntim frekari frétta af syni sínum, Ingvari Sigurðs- syni og Harrison Ford á Winnipegvatni. -EIR Til að rýma fyrir Office 1 stórmarkaði sem opnar seinna í mánuðinum bjóðum við hjá Tæknivali tölvubúnað og rekstrarvörur á verulega Lækkuðu verði. Þetta er tækifæri sem hvorki fyrirtæki né einstaklingar hafa efni á að missa af! Office 1 verslun opnar á sama tíma á Akureyri! Verðdæmi Acer geislabrennari 12x8x32 með Nero hugbúnaði n^l^jgOO kr. (á „gamla verðinu" fyrir hækkun vegna STEF- gjalda) Nokia GSM 6210 nú 27.990 kr. - áður 34.985 kr. Microtek 3600 usb skanni nú 8.990 kr. - áður 14.990 kr, Samsonite ferðataska með fartölvuhólfi nú 9.900 kr. - áður 17.900 kr. Tæknival Skeifunni 17 • Reykjavík • Sími 550 4000 Furuvöllum 5 • Akureyri • Sími 461 5000 Superstore

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.