Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Blaðsíða 46
 Helqarblctð !DV LAUGARDACUR I. JÚNÍ 2002 Þrúgur gleðinnar I Frakklandi verða menn vínfræðinqar eftir fimm ára flókið oq fræðileqt nám. Þessi stétt manna dreifir sér um allt land oq elur upp vínin ílandinu eins oq börnin sín. Fátt er forvitnileqra en að sækja þá heim. Oq kqnnast qirnilequm qaldrinum. Að horfa á vínfræðinq smakka á víni setur að manni þá spurn hvort maður sjálfur sé skqnlaus skepna... „Stundum tala ég við vínin mín - Og hvað gerist? „Þau svara mér á sinn hátt..." - Elskarðu þau? „Ég verð að elska þau ..." - Innilega? „Já, þetta er annaðhvort eða, það er ekki hægt að endast í þessum bransa öðruvísi en fullur ástríðu." - Drekkurðu mikið? „Ætli ég skyrpi ekki meiru en ég kyngi. Það er eðli starfsins. Og þó, því er ekki að neita að mér fmnst fátt færa lífinu meiri ró en að opna flösku af góðu víni. Gott vín gerir mann að betri manni.“ Hér talar Jean-Luc Soty, fertugur franskur maður sem hefur þann starfa að laða fram það besta úr þrúg- unum sem kreistar eru og kramdar hjá franska vín- framleiðandanum Pascal Jolivet i miðlöndum Frakk- lands. Það er heitur vordagur og inni i rúmgóðum gerjunarsalnum hjá Soty er staddur islenskur hópur sem er á ferðalagi um frönsku vínhéruðin í Loire- dalnum, einum þeim lengsta og frjósamasta í Frakk- landi. Soty er vínfræðingur að mennt. Hann er með öðr- um orðum oenologist eins og það heitir á skírteininu sem honum var afhent með viðhöfn í háskólanum í Dijon fyrir góðum áratug. Háskólinn þar i borg er einn fimm franskra háskófa sem kenna fófki að gera vín - og það er strangur skófi, enda víngerð bæði við- kvæmt fag og flókið sem snertir jafn erfiða þætti og smekk og hefðir, að ekki sé talað um keim, lykt og lit. Að hlusta á vín Enda þótt Frakkland sé að mörgu leyti mekka vin- gerðar í heiminum er vínfræöi ekki gömul háskóla- grein í þessu Ijúfa landi. Jean-Luc Soty er af fyrstu kynslóð vínfræðinga i landinu, en starfsbræður hans sem farið hafa sama menntaveginn eru að sögn Soty’s fá hundruð manna. Þeir hafa dreift sér um allt land og hlusta þar eftir gerjun hvítra vína og rauðra eins Jean-Luc Soty gefur ferðalöngum að smakka úr ein- um tankanna í gerjunarsalnum. Það þótti ekki nógu þroskað og fullskýjað, gott ef jarðvegurinn átti ekki cftir að koma betur í ljós. Gamla miðaldaþorpið Sancerre stendur á nokkurri hœð, umkringt vínekrum þar sem Sauvignon-þrúgurnar dafna. og þeir einir geta gert sem hafa lært að hlusta á vín. „Já, það er partur af skólagöngunni að hlusta á vín,“ segir þessi geöþekki og prúði Frakki sem held- ur á glasi af hvítu víni framan við svalan tank. Og tankurinn er enginn smásmíði, rúmar fylli 26 þúsund flaskna og inni í salnum eru 30 álíka tankar sem fylla vínið þroska og þokka. Soty segir mikilvægt að beita öllum skynfærum við að meta vínið og þroska þess, jafnvel heyrnina og hann ber glasið upp að eyranu og lætur innihaldið gutla, en rekur að svo búnu nefið sitt djúpt ofan i glasið og lyktar lengi. Fulllengi finnst þeim sem á hann horfa. Og ekki er það sopið þessu næst, því Soty horfir eða miklu fremur gónir á lit vínsins í dágóða stund áður en hann lætur það eftir sér að smakka loks á sjálfum guðaveigunum. Munnur hans gengur fram og aftur á meðan hann lætur vínið baða bragðkirtlana. Og augunum lygnir aftur. Ólíkt okkur hinum sem höfum beðið eftir því alllengi að dreypa á, spýtir vínfræðingurinn sopanum í rennu undir tankinum, en á meðal okkar hinna situr sopinn eftir í sælum maga. Góður mjög. Kalk, tiima og leir Soty bendir á lit vínsins hvita og segir það ekki almennilega þroskað. Það sé of skýjað og þá sé sýrustigið „ennþá á flakki" eins og hann orðar það. „Jarðvegurinn er að koma í ljós“, heldur hann áfram og ekki er laust við að við hin hváum, á að giska fráfróð í þessum fræðunum. Vínfræðingurinn bendir okkur á að jarðvegurinn skipti sköpum í vínviðarrækt. Vín sín vinni hann úr þrúgum sem þroskist og vaxi í ólíkum jarðvegi, ýmist kalkrík- um eða nægum af leir og tinnu. Þessar þjár tegund- ir jarðvegs skili af sér gerólíkum afurðum. Eins skipti tíðarfarið máli - og mOt veður og stillt ásamt jöfnum hita sé það besta sem hann geti hugsað sér i þessum efnum. Loks hafi lega ekranna áhrif á þroska þrúgnanna, alla jafna snúi gjöfulustu ekrurnar í austsuðaustur. í heitfengum Loire-dalnum er að finna mörg af stærstu vínræktarhéruðum Frakklands. Og þetta er ekki lítið svæði. Dalurinn að tarna ristir eina fimm hundruð kílómetra inn í landið frá ströndum At- lantshafsins. Hann er víðast hvar víður og liggur í hæðardrögum og er mótaður af samnefndu fljóti sem á upptök sin í miðju Frakklands. Þar um slóð- ir situr þorpið Sancerre uppi á nokkurri hæð, alda- gamall miðaldabær sem minnir á að Frakkar lifa ekki á einum tíma. f jaðri Sancerre, sem er um- kringt gylltum vínekrum, hefiu- víngerð Pascal Jolivet verið rekin í á annan áratug. Víngerðin er nefnd eftir eiganda sinum, jafnaldra Jean-Luc Soty, en þeir félagar kynntust fyrir rifum áratug og átt- uðu sig strax á að afstaða þeirra til víngerðar var nákvæmlega sú sama. Það er nefnilega svo að i Frakklandi og öðrum þroskuðum víngerðarlöndum Hér standa tankarnir 30 og er hver þeirra f>-lli 26 þúsund flaskna. Vínið er geymt í tönkunum frá október og fram í maí, en fer þá á flöskur. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.