Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 13.ÁGÚST2003 FRÉTTIR 11 Fá styrk frá Hveragerðisbæ w TÓNLIST: Eins og fram hefur komið hefur Reykjavíkurborg ákveðið að láta af niðurgreiðsl- um til tónlistarnema sem stunda nám í höfuðborginni en eiga þar ekki lögheimili. ( kjölfarið ákvað bæjarráð Hveragerðis á fundi sínum þann 8. ágúst að koma til móts við þá nemendur sem stundað hafa nám og eiga á hættu að missa þann stuðning sem borgin hefur veitt þeim hingað til. Þessir nemendur fá fjár- stuðning frá bænum sem nemur þeirri upphæð sem Hveragerðisbær greiðir með hverjum nemanda að meðal- tali til Tónlistarskóla Árnesinga samkvæmt fjárhagsáætlun 2003. Sú upphæð nemur rúm- lega 200 þúsund krónum fyrir heilt skólaár. Stuðningur verð- ur þó aðeins veittur til nem- enda tuttugu ára og yngri Stefna Hveragerðisbæjar í mál- inu í heild verður síðan endur- skoðuð um áramót þegar nið- urstaða liggur fyrir í viðræðum sveitarfélaga og menntamála- ráðuneytisins. Heyskap á Suðurlandi víðastlokið: Greiðir fyrir tónlistarkennslu MENNTUN: Bæjarráð Mosfells- bæjar hefur samþykkt að ábyrgjast greiðslur á kostnaði vegna tónlistarkennslu umfram skólagjöld fyrir þá sem stunda nám í tónlistarskólum í Reykja- vík en eru með lögheimili í Mos- fellsbæ. Samþykktin gildirfyrir skólaárið 2003 til 2004. Áður hafði verið ákveðið að ábyrgjast greiðslur vegna nemenda á grunnskólaaldri. Mosfellsbær mun því ábyrgjast greiðslur fyrir alfa nemendur með lögheimili í Mosfellsbæ sem stunda nám í tónlistarskólum utan sveitarfé- lagsins næsta skólaár, jafnt á grunn- sem framhaldsskólastigi, og áskilur sér rétt til þess að miða greiðslur við sömu upp- hæð og Reykjavíkurborg innir af hendi fyrir sína nemendur. Heyfengur sum- arsins aldrei meiri LOFTSÍUR MEIRIKRAFTUR • MINNIEYÐSLA f GLEÐST YFIR GÓÐUM HEYJUM: Heyfengur Þorsteins Ágústssonar á Syðra-Velli í Flóa er um 1.200 rúllur - og þar við bætast talsverðar fyrningar frá fyrra ári. Vagnhöfða 23 • Simi 590 2000 • www.benni.is SKÓLAR - NÁMSKEIÐ - TÖLVUR Magasín kemur aftur út 21. ágúst, eftir sumarfrí. Fjölbreytt og efnismikið blað að vanda. Meðfylgjandi verður aukablað sem helgað er skólum, námskeiðum, tölvum o.fl. Tryggið ykkur auglýsingapláss í tíma. Hafið samband við Ingu í síma 550 5734 eða inga@dv.is vegna auglýsinga. Efnisumjón er í höndum Sigurðar Boga Sœvarssonar í síma 550 5818, eða sigbogi@dv.is „Heyskapur hefur aldrei gengið jafn vel og í sumar í minni tutt- ugu ára búskapartíð hér. Það þakka ég bæði einstakri veður- blíðu og því að vélar og tæki verða sífellt afkastameiri." Þetta segir Þorsteinn Ágústsson, bóndi á Syðra-Velli í Gaulverjabæj- arhreppi í Flóa, sem DV hitti þar eystra um helgina. Eins og velflest- ir bændur á Suðurlandi er hann bú- inn með heyskapinn „... nema hvað menn eiga kannski eftir að skeina einhverja bletti," eins og hann komst að orði. Heyfengur sumarsins hjá Þorsteini er um 1.200 rúllur afheyi og þar við bætast tals- verðar fyrningar frá liðnum vetri. Heyfengur sumarsins hjá Þor- steini er um 1.200 rúllur af heyi og þar við bætast talsverðar fyrningar frá liðnum vetri. í stæðunum fyrir utan fjósið á Syðra-Velli standa því á rösklega þrettán hundruð rúllur BÓNDI ER BÚSTÓLPI: Heyskap hjá Sigurði Pálssyni á Baugsstöðum er að mestu lokið. Hann er með litið bú en nytjar túnin. DV-myndirsbs af heyi - sem er talsvert meira en þarf í búsmalann á bænum. Þor- steinn er því í góðum málum fyrir komandi vetur og hugsanlega af- lögufær með hey enda þótt hann sé með allstórt bú. í fréttum á vefsetri Búnaðarsam- bands Suðurlands segir að hey af fyrsta slætti hafi yfirleitt verið mikil og oft góð. Jafnvel svo að suma ói við að taka hána, það er heyið af seinni slætti. Ráðunautar sam- bandsins benda bændum því á að hafi þeir nægan heyforða fyrir vet- urinn borgi sig hreinlega að henda því heyi strax fremur en fylgja hefð- inni og hirða það. Þetta sé skyn- samlegra en henda heyinu ónýtu næsta sumar. sigbogl@dv.is wm.............................. ÍTR óskar eftir a& ráða hlutastarfsmenn í 30% og 50% stöður í frístundaheimili íVesturbæ, Miðbæ, Breiðholti og Grafarvogi. Hæfniskröfur: Reynsla af starfi með börnum og hæfni í samskiptum. Vinnutími frá kl. 13.00. Tilvalið fyrir áhugasamt fólk í námi! Frístundaheimili ÍTR bjóða upp á þjónustu fyrir nemendur í 1 .-4. bekk eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Nánari upplýsingar veita: Steinunn Gretarsdóttir, verkefnisstjóri í Frostaskjóli, sími 562 2120, netfang steinunng@itr.is, Guðrún Snorradóttir, verkefnisstjóri í Mibbergi, sími 557 3550, netfang gudruns@itr.is, og Bjarney Magnúsdóttir, verkefnisstjóri í Gufunesbæ, sími 520 2300, netfang bjarneym@itr.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.