Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 36
36 D’/SPOfíT MIÐVIKUDAOUR 13.ÁCÚST2003 DV Sport Keppni í hverju orði Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 ■ 550 5889 Pires og Vieira KNATTSPYRNA: Frönsku landsliðsmennirnir Patrick Vieira og Robert Pires skrifuðu í gær undir nýja samninga við ensku bikarmeistarana í Arsenal. SamningurVieira er til ársins 2007 en Pires samdi ein- göngu til ársins 2006. „Ég hef alltaf sagt að ég væri ánægður hjá Arsenal og vildi alltaf gera nýjan samning við félagið," skrifa undir sagði Vieira eftir undirskriftina og Pires tók í sama streng. Sögusagnir þess efnis að Vieira sé á förum til Real Madrid eru því á enda í bili. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagðist aldrei hafa verið í vafa um að þeir myndu gera nýjan samning við félagið en neitaði því ekki að það væri léttir að málið væri frá. SÁTTUR: Robert Pires ánægður með nýja samninginn. Úrleik KNATTSPYRNA: Guðjón Þórð- arson og strákarnir hans hjá Barnsley eru úr leik í ensku deildarbikarkeppninni eftir tap gegn Blackpool á heimavelli, 1-2. Guðjón Þórðarson sagði að varnarmistök hefðu orðið liðinu að falli en honum fannst það engu að síður leika betur en um síðustu helgi er þeir lögðu Colchester að velli. - segir Veigar Páll Gunnarsson, leikmaðurjúlímánaðarhjá DV-sporti Það kemur líklega fáum á óvart að DV-sport skuli útnefna Veig- ar Pál Gunnarsson, leikmann KR, sem leikmann júlímánaðar f Landsbankadeild ícarla. Af þeim fimm leikjum sem hann spilaði í mánuðinum skoraði hann þrjú mörk, lagði upp fimm önnur fyrir félaga sína og var þrívegis vaiinn maður leiksins af DV- sporti. „Ég átti eiginilega alveg eins von á því að verða valinn. Maður er náttúrlega búinn að spila vel að undanförnu, eins og aðrir leik- menn, og ég taldi mig allavega koma til greina ásamt öðrum leik- mönnum," sagði Veigar Páll þegar honum voru tjáð tíðindin. Sáttur við mína frammistöðu Þessi magnaði leikmaður, sem blómstrað hefur hjá KR undanfarin tvö ár, hefur verið allt í öllu hjá ís- landsmeisturunum í sumar og vilja sumir meina að það sé honum ein- um að þakka að KR-ingar eru enn í baráttuni um íslandsmeistaratitil- „Ég er mjög sáttur við frammistöðu mína í sumar. Ég er í fínu formi og líklega að spila mitt besta tímabil á ferlin- um, ásamt kannski tímabilinu í fyrra." inn. Eins og sést í tölfræðiþáttum annars staðar á síðunni hefur Veig- ar átt þátt í 13 af 20 mörkum KR það sem af er leiktíð, og þar af hafa sjö þeirra komið á síðasta stundar- fjórðungi. Skemmst er að minnast sigurmarksins gegn KA á sunnu- daginn var þar sem Veigar skoraði þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir hefðbundinn leiktíma - og hélt liði sínu þar með í skottinu á Fyiki, sem er efstur á markatölu. ALLT UM MÖRK VEIGARS Hvar: Mörk á helmavelli: 5 Mörk á útivelli: 1 Hvenær: Mörk I fyrri hálfleik: 1 Mörk í seinni hálfleik: 5 Hvernig: Mörk með vinstri fótar skoti: 0 Mörk með hægri fótar skoti: 3 Mörk með skalla: 3 Mörk úr vltaspyrnu: 0 Mörk úr aukaspyrnu: 0 Hvaðan: Mork ui markteig: 2 Mörk úr vltateig utan markteigs: 4 Mörk utan teigs: 0 Aðferð: Mörk I fyrstu snertlngu: 6 Mörk eftir 2 til 4 snertingar: 0 Mörk eftir 5 eða fleiri snertingar: 0 Mörk úr uppsettu atriðl: 0 Aðdragandi: Mörk eftlr gangandi leik: 0 Mörk eftir fast leikatriðl: 6 „Ég er mjög sáttur við frammi- stöðu mína í sumar. Ég er í fínu formi og líklega að spila mitt besta tímabil á ferlinum, ásamt kannski tímabilinu í fyrra. Ég hafði miklar áhyggjur af því í upphafi móts, þeg- ar ég tognaði á liðbandi í hnénu, að það ætti eftir að há mér eitthvað en svo er ekki, sem betur fer. Ég finn FLEST SKÖPUÐ MÖRK í SUMAR: Velgar Páll Gunnarsson, Kfí 13 6 mörk skoruð + 7 undirbúin Sören Hermansen, Þrótti 11 6 mörk skoruð + 5 undirbúin Gunnar Heiðar Þorvaldsson, (BV 11 9 mörk skoruð + 2 undirbúin Jón Þorgrímur Stefánsson, FH 11 3 mörk skoruð + 8 undirbúin Björgólfur Takefusa, Þrótti 10 9 mörk skoruð + 1 undirbúiö Jóhann Hreiðarsson, Val 9 6 mörk skoruð + 3 undirbúin Allan Borgvardt, FH 8 6 mörk skoruð + 2 undirbúin SKÖPUÐ MÖRK EFTIRTÍMA: (Mörk skoruö + mðrk undlrbúln) l.tillS.mln. 0+1 = 1 16. til 30. mín. 1+3 = 4 31. til 45. mln. 0+0 = 0 46. til 60. mln. 0+0 = 0 61. tll 75. mln. 0+1=1 76.til90.mln 5+2=7 ekki fyrir þessu inni á vellinum og það skiptir miklu máli að vera alveg heill. Mikið áfall að fótbrotna Veigar Páll er 23 ára og hefur ver- ið að æfa fótbolta frá sex ára aldri. Hann spilaði upp alla yngri flokk- ana hjá Stjörnunni og var aðeins 15 ára þegar hann fékk eldskírn sína hjá félaginu. Árið 2000 urðu síðan ákveðin þáttaskil á ferli Veigars VEIGAR PÁLL í JÚLÍ 2003 Lelkir: S Mínútur: 450 Mörk skoruð: 3 Mörk undirbúin: 5 Þáttur I mörkum: 8 Meðaleinkunn: 3,60 Maður leikslns hjá DV-sporti: 3 TÖLFRÆÐI VEIGARS PÁLS 2003 Leikin 10 Leikir I byrjunarliði: 10 Mlnútur spilaðar: 836 Mörk skoruö: 6 Mörk undirbúin: 7 Mörk sköpuð: 13 Mlnútur mllli skoraöra marka: 139 Mínútur milli skapaðra marka: 64 Markalauslr leikir: 5 Tvennur: 1 Þrennur: 0 þegar hann fór ívíking til Noregs og gekk til liðs við úrvalsdeildarliðið Strömsgodset. Þar staldraði Veigar tiltölulega stutt við, eða aðeins í tæpt ár, og segir hann ýmsar ástæður liggja þar að baki. „Ég var keyptur þangað fyrst og fremst til að styrkja hópinn hjá lið- inu. En svo komst ég í byrjunarliðið og fannst að ég stæði mig mjög vel. Ég náði að skora þrjú mörk og leggja upp önnur fjögur í einum tíu leikjum, að ég held," segir Veigar. Það var þá sem ógæfan dundi yfir. „Ég lenti í því að ristarbrotna og þegar ég gat byrjað að spila aftur voru ekki nema tveir leikir eftir af tímabilinu. Ég var óánægður þarna PUNKTAR UM VEIGAR PÁL öllsexmörkVeigars Páls Gunnarssonar I sumar hafa komið eftir föst leikatriði, fimm eftir aukaspyrnur og eitt eftir horn. Af þeim sjö mörkum sem Veigar Páll hefur lagt upp hefur hins vegar aðeins eitt mark komið eftir fast leikatriði. VeigarPáll hefur komið að öllum fimm sigurmörkum KR-inga I deildinni I sumar en ekkert lið hefur skorað fleiri sigurmörk. Veigar Páll hefur skorað þrjú sjálfur, mest allra leikmanna, og hefur einnig lagt upp tvö sigurmörk. VeigarPáll hefur skorað fimm af sex mörkum sínum á síðustu 15 mínútum leiksen eina markið sem hann hefur skorað á öðrum tíma gerði hann á 25. mínútu fyrrri hálfleiks. VetgarPállhelur skapað flest mörkallra leikmanna í Landsbankadeildinni þráttfyrir að hafa misst af þremur leikjum vegna meiðsla. KR-ingar hafa tapað öllum þremur leikjunum án hans en unnið átta og tapað engum af þeim tiu leikjum sem hann hefur spilað. VelgarPáll heíur skorað öll sex mörkin sín í sumar í fyrstu snertingu, þar af þrjú þeirra með skalla. Veigar Páll skoraði aðeins tvö af sjö mörkum sínum í fyrra í fyrstu snertingu. VeigarPáll hefur verið fjórum sinnum valinn maður leiksins hjá blaðamönnum DV- sports í sumar, oftar en nokkur annar leikmaður Landsbankadeildarinnar. Öll tölfræði: ooj.sport@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.