Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 32
32 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST2003 íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 Áttatíu ára Páll Bergþórsson veðurfræðingur Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, er 80 ára í dag. Starfsferill Páll er fæddur í Fljótstungu í Hvítársíðu 13.8. 1923 og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Hér- aðsskólann í Reykholti og Menntaskólann í Reykjavík en þaðan varð hann stúdent 1944. Páll var tvo vetur við verkfræði- nám í verkfræðideild Háskóla fs- lands og eftir það tvo vetur í Stokkhólmi við veðurfræðinám og lauk þaðan prófi 1949. Hann var veðurfræðingur við Veðurstofu ís- lands frá 1949, deildarstjóri veður- fræðideildar frá 1982 og veður- stofustjóri 1989 til ársloka 1993. Páll var við framhaldsnám og rannsóknir í veðurfræði við Stokk- hólmsháskóla 1953-1955 og síðar í Noregi og Englandi. Veðurffegnir í sjónvarpi flutti hann í 23 ár. Rannsóknir hefur hann stundað á tölvugreiningu veðurkorta, hafís- spám, vexti og hopi skriðjökla, loftslagssögu íslands og samhengi loftslags við landbúnað og fisk- veiðar. Hann kepndi um árabil veðurfræði við jarðfræðiskor Há- skóla íslands. Páll er höfundur bókanna Loftin blá, Flugveður- fræði, Sólskin á Islandi og Veðrið. Bók hans, Vínlandsgátan, fjallar um fund Ameríku og landkönnun- arferðir og hefur einnig komið út á ensku. Hann hefur flutt mörg er- indi í útvarp og skrifað fjölda greina um veðurfræði og fleira í bækur, tímarit og blöð. Páll hefur setið í stjórnum BSRB og KRON og íslenska járnblendi- félagsins og átt sæti í kjararáði BSRB og flugráði Fjölskylda Páll Bergþórsson kvæntist 5. ágúst 1950 Huldu Baldursdóttur, læknaritara og veðurstofuritara, f. 12. júní 1923. Hulda er dóttir Bald- urs Guðmundssonar, bónda á Þúfnavöllum, og síðar þingvarðar, og Júlíönu Björnsdóttur. Baldur var sonur Guðmundar Guð- mundssonar, bónda á ÞúfnavöU- um, og konu hans, Guðnýjar Loftsdóttur. Júlíana var dóttir Björns Arnþórssonar, bónda á Hrísum í Svarfaðardal, og konu hans, Þórhildar Hansdóttur Bier- ing frá Húsavík. Páll og Hulda eiga þrjú börn: Baldur, tölvufræðing í Reykja- vík, f. 4.7.1951, fyrri kona hans var Sigurbjörg Oddgeirsdóttir Ottesen frá Hveragerði og eiga þau tvo syni, Pál og Hjalta, síðari kona hans er Þóra Fríða Sæmundsdótt- ir píanóleikari, en þau eiga eina dóttur, Þórhildi Katrínu; Kristín hjúkrunarfræðingur, f. 14.11. 1952, maður hennar er Jón Steinar Gunnlaugsson prófessor og eiga þau fimm börn: ívar Pál, Gunn- laug, Konráð, Huldu Björgu og Hlyn; Bergþór óperusöngvari, f. 22.10.1957, fv. kona Sólrún Braga- dóttir óperusöngkona, og eiga þau einn son, Braga. Þau skildu. Sam- býlismaður Bergþórs er Albert Ei- rflcsson safnstjóri. Páll Bergþórsson átti sex systkini: Guðrún vefnaðarkennari, f. 9.2. 1920; Þorbjörg kennari, f. 17.5. 1921, d. 7. maí 1981; Jón, framkvæmdastjóri Nýju sendi- bflastöðvarinnar, f. 12.9.1924; Sig- rún, ferðabóndi á Húsafelli, f. 8.8 1927; Gyða skólastjóri, f. 6.4. 1929; Ingibjörg, þýðandi og bóndi í Fljótstungu, f. 27.8. 1930. Ætt Foreldrar Páls voru Bergþór Jónsson, bóndi í Fljótstungu, og kona hans, Kristín Pálsdóttir. Bergþór var sonur Jóns Pálssonar, bónda á sama stað. Jón var sonur Páls Jónssonar smiðs og konu hans, Guðrúnar Bjarnadóttur, en faðir Páls Jónssonar var Jón Auð- unsson, ættfaðir margra Borgfirð- inga og langalangafi MagnúsarÁs- geirssonar skálds og Leifs Ásgeirs- sonar prófessors. Guðrún Péturs- dóttir, móðir Bergþórs, var frá Ánanaustum í Reykjavík, dóttir Péturs Ólafs Gfslasonar tómthús- manns og bæjarfulltrúa, og fýrri konu hans, Vigdísar Ásmunds- dóttur. Pétur var afi Áka Jakobs- sonar ráðherra, Péturs J. Jakobs- sonar læknis og Jakobs Gíslasonar orkumálstjóra, og afabróðir Sverr- is Kristjánssonar sagnfræðings. Kristín Pálsdóttir, móðir Páls veð- urfræðings, var frá Bjarnastöðum í Hvftársíðu, dóttir Páls Helgason- ar, bónda þar, og Þorbjargar Páls- dóttur, konu hans. Páll var kom- inn í fjórða lið frá Snorra presti Björnssyni á Húsafelli. Móður- systir Þorbjargar var Halldóra Bjarnadóttir, amma Guðmundar Böðvarssonar skálds á Kirkjubóli í Hvftársíðu og langamma Böðvars Guðmundssonar rithöfundar. Páll og Hulda kona hans fagna tímamótunum með fjölskyldunni á heimili sínu. Níutíu ára Marqrét Helgadóttir húsmóðir Margrét Þórunn Helgadóttir hús- móðir, Árskógum 8, Reykjavík, er níræð í dag. Hún fæddist 13. ágúst 1913 og er alin upp á Þyrli í Strandarhreppi, Borgarfjarðarsýslu. Fjölskylda Margrét giftist 15.10.1938, Ragn- ari Þorgrímssyni frá Laugarnesi, eftirlitsmanni hjá Strætisvögnum Reykjavíkur og ökukennara, f. 3.12. 1908, d.10.8. 2000. Foreldrar hans voru Þorgrímur Jónsson söðlasmiður og Ingibjörg Þóra Kristjánsdóttir húsmóðir, bændur í Laugarnesi við Reykja- vík. Margrét vann við verslunarstörf fyrst eftir að hún kom til Reykja- vfkur en var lengst af húsmóðir á Hofteigi21. Börn þeirra Margrétar og Ragn- ars: Kolbrún, f. 12.10. 1939, arkitekt í Noregi, giftist Ingvari Mikkelsen arkitekt, f. 5.4. 1936, þau skildu en börn þeirra eru: Edda Margrét f. 11.2. 1963, sambýlismaður Lars Bjerkeli, doktor í verkfræði, f. 1956 og þeirra börn eru Magnús, f. 1991, og Vegar, f. 1995; Ragnar Þór skipaverkfræðingur, f. 28. sept. 1966, kona hans er Marit Walby Anthonsen, f. 1966, doktor í efna- fræði og barn þeirra er Emilía Margrét, f. 2001; Ása María, nemi við listaháskóla í Englandi, f. 4.10. 1972, sambýlismaður Morten Michelsen klarfnettuleikari, f. 1973. Sambýlismaður Kolbrúnar er Egil Hallset, arkitekt. Guðrún, f. 23.8. 1946, nuddfræð- ingur, gift Stefáni Ingólfssyni markaðsstjóra, f. 12.5.1946. Þeirra börn: Ragnar Ingi, rekur vélhjóla- verkstæði, f. 5.12. 1964, fyrrver- andi sambýliskona hans er Stein- unn Björk Valdimarsdóttir, f. 13.6. 1963 og eru þeirra börn Alexander Máni, f. 1994, og Davíð Númi, f. 1999, en sambýliskona Ragnars Inga er Sandra Valdís Guðmunds- dóttir þjónn, f. 1975; Ingibjörg við- skipta- og rekstrarfræðingur, f. 6.11.1967, giftist Jóhannesi Gunn- laugssyni, þau skildu en þeirra barn er Ragnar Örn, f. 2002; Ingólfur Stefánsson, BA í verslun- ar- og viðskiptafraeði, f. 13.1.1970, hans sambýliskona er Ágústa Jóna Pálsdóttir, f. 1972; Margrét Þór- unn, nemi í Danmörku, f. 29.11. 1978, sambýlismaður hennar er Jesper Larsen f. 1977; Stefán Gest- ur nemi, f. 21.2. 1982. Alsystkini Margrétar: Guðleif Helgadóttir, f. 1909, húsmóðir í Reykjavík; Jóhann Helgason, f. 1911, d. 1985, bifvélavirki, bjó lengi f Laugarnesi í Reykjavflc; Bjarni Helgason, f. 1916, d. 2001, bifvélavirki í Reykjavík. Systkini Margrétar, samfeðra: Hannes Ágúst Helgason, f. 1895, d. 1905; Jón Helgason, f. 1896, d. 1974, bóndi í Blönduholti í Kjós; JónÁrni Helgason, f. 1901, d. 1934, bóndi á Þyrli í Saurbæjarsókn; Valgeir Helgason, f. 1903, d. 1986, prófastur í Ásum í Skaftártungu; Sigurður Helgason, f. 1904, d. 1997, bóndi á Þyrlí, síðast búsettur á Akranesi; Ólafur Helgason, f. 1906, d. 1933, trésmiður á Þyrli. Foreldrar Margrétar voru Helgi Jónsson f. 14.7 1876, d. 12.12. 1933, bóndi á Litlasandi frá 1898 til 1911 og á Þyrli frá 1911 tíl dán- ardags og seinni kona hans, Guð- rún Jónsdóttir, f. 1876, d. 1971, húsfreyja á Þyrli tíl 1930, síðast búsett í Reykjavík. Ætt Helgi var sonur Jóns „eldra" Áma- sonar frá Alviðm, f. 1829, bónda á Þyrli, og Valgerðar Árnadóttur, f. á Stöðlum í Ölfusi 1850, d. í Hafnar- firði 1924. Margrét hefur heitt á könnunni fyrir vini og ættingja í salnum að Árskógum 6-8, frá klukkan 16 á af- mælisdaginn. Stórafmæli 85 ára Aðalbjörg Oddgeirsdóttir, Sólvöllum 4, Stokkseyri. Trausti Magnússon, Austurbrún 39, Reykjavík. 80 ára Eiríkur Júlíusson, Kirkjubraut 12, Höfn. Slgrún Jóhannesdóttir, Byggöavegi 88, Akureyri. 75ára Anton Jónsson, Naustum 2, Akureyri. Ásdís Svanlaug Árnadóttir, Akraseli 2, Reykjavik. Friöjón Þorleifsson, Einholti 9, Garöi. Sigrún E. Óladóttir, Njarövíkurbraut 32, Njarövík. Sigvaldi Val Sturlaugsson, Sólheimum 23, Reykjavík. Þuríöur Árna Jóhannesdóttlr, Suöurgötu 78, Hafnarfiröi. 70ára Rögnvatdur Þórhallsson, Helgamagrastræti 53, Akureyri. Stelngrímur Jónasson, Blásölum 24, Kópavogi. Sæunn Þorlelfsdóttir, Gullsmára 9, Kópavogi. 60 ára Garöar Schiöth Sigurösson, Lokastíg 28a, Reykjavík. Gunnar Maron Þórisson, Fellsenda, Mosfellsbæ. Halldóra Guörún BJarnadóttlr, Nóatúni 28, Reykjavík. Sigurlaug Guömundsdóttir, Kópavogsbraut 81, Kópavogi. Þórey Eyþórsdóttir, Kaplaskjólsvegi 43, Reykjavík. 50ára Aldis Bára Elnarsdóttir, Sveighúsum 2, Reykjavík. Bergrún Gyöa Óladóttir, Noröurgaröi 2, Hvolsvelli. Bjami Magnús Guömundsson, Garöabraut 3, Akranesi. Guöbjört G. Ingólfsdóttlr, Holtagerði 20, Kópavogi. Hallgrímur Vlktorsson, Sjávargötu 35, Bessastaðahreppi. Helen Gunnaisdóttlr, Engihjalla 19, Kópavogi. Málfríöur Þórarinsdóttir, Rauöalæk 5, Reykjavík. Ólafur Haraldsson, Rimasíöu 11, Akureyri. Ólafur Matthíasson, Sléttuvegi 3, Reykjavík. Ólína Eybjörg Jónsdóttlr, Tjarnarlundi 15e, Akureyri. Snorri Ólafur Hafstelnsson, Fagrahjalla 7, Kópavogi. Svanhvít Inglbjörg Magnúsdóttlr, Arnartanga 56, Mosfellsbæ. 40ára Agnes Úlfarsdóttir, Njaröarholti 2, Mosfellsbæ. Ása Khuyen Vu, Höröalandi 24, Reykjavík. Ema Valdlmarsdóttir, Arnartanga 14, Mosfellsbæ. Guörún Margrét Jónsdóttir, Sunnubraut 12, Akranesi. Halldór Kristinn Lárusson, Hraunbergi 15, Reykjavík. Helga Slgríöur Þórsdóttir, Áshlíö 7, Akureyri. Hilmar Pétur Gunnarsson, Torfufelli 48, Reykjavík. Jóna Vllhelmína Héðlnsdóttir, Ægisgötu 14, Ólafsfiröi. Magnús Guöjónsson, Hólmi, Höfn í Hornafiröi. Nanna Slguröardóttlr, Hlíðarhjalla 63, Kópavogi. Sigfríö Þormar, Furuhlíö 10, Hafnarfiröi. Sigríöur Stefánsdóttir, Vestursíöu 4a, Akureyri. Þórir Steinarsson, Efstalandi 4, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.