Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST2003 DVSPORT 37 Rússar rassskelltir HANDBOLTI: Islenska 18 ára landsliðið stendur í ströngu í úrslitakeppni EM sem fram fer í Slóvakíu þessa dagana. I gær pökk- uðu þeir Rússum saman, 33-24, eftir að hafa verið þrem mörkum undir í hálf- leik. Haukamaðurinn Ás- geir Örn Hallgrímsson átti stórleik og skoraði 11 mörk <\sgeir Orn Hallgrímsson. og KA-mað- urinn Arnór Atlason stóð honum nærri með 7 mörk. fslenska liðið leikur gegn Slóvenum á morgun og ef sá leikur vinnst eru þeir komnir í undanúrslitá mótinu. Vala og Aron FRJÁLSAR: Stangar- stökkvarinn Vala Flosadótt- irog kringlukastarinn Magnús Aron Hallgrímsson munu ekki taka þátt í HM í frjálsum íþróttum að þessu sinni. Bæði reyndu að ná lágmörkum í gærkvöld en án árangurs. Vala stökk 4,13 metra á móti í Malmö og varð fimmta. Vala þurfti ekki á HIVI stökk upp á 4,40 metra til að komast á HM. Magnús keppti á kastmóti í Kaplakrika þar sem hann kastaði tæpa 57 metra en lágmarkið fyrir HM var 63,50 metrar. Einu þáttak- endur Islands á HM verða Jón Arnar Magnússon og Þórey Edda Elísdóttir en mótið hefst 23. ágúst. úti og fann mig einhvern veginn ekki. Þess vegna ákvað ég að koma heim og reyna að byrja upp á nýtt. Félagið samþykkti það þótt þeir vildu endilega halda í mig,“ segir Veigar sem sér þó alls ekki eftir tím- anum f Noregi. „Ég lærði mjög mik- ið og það styrkti mig gríðarlega að fá að spreyta mig í svona alvöru deild. Þetta var mikil reynsla," segir Veigar. Sé ekki eftir að hafa valið KR Þegar þær fréttir bárust hingað heim á klakann að Veigar Páll væri á leið heim á ný settu fjölmörg félög sig í samband við kappann. Veigar gat valið á milli liða á borð við KR, Fylki, LA og ÍBV. „Ég valdi á endanum KR og taldi það besta kostinn. Það var kannski smá áhætta, eftir að liðið hafði rétt sloppið við fall árið áður, en ég sé ekki eftir því að hafa farið í Vestur- bæinn,“ segir Veigar sem varð ís- landsmeistari á sínu fyrsta ári með KR í fyrra. „Það er alveg rétt að KR spilaði betri bolta í fýrra. Ég er auðvitað sáttur við að við vinnum leikina núna og erum við ekkert lakari í því heldur en í fyrra. Munurinn er að við erum kannski ekki eins sann- færandi," segir hann. „Við spilum fyrri hálfleikinn mjög vel en síðan dettum við niður í þeim síðari. Ég held að enginn í liðinu hafi skýringu á hvers vegna þetta gerist. En það er ljóst að við getum gert betur.“ heitir fyrir enska boltanum og þar er ég engin undantekning." Hápunkturinn hér heima Veigar var nýlega valinn f ís- lenska landsliðið sem mætir Fær- eyingum í undankeppni EM eftir rúmar tvær vikur. „Kominn tími til," sögðu margir enda Veigar löngu búinn að sanna sig sem einn besti, ef ekki allra besti, leikmaður deildarinnar hér heima. Hann átt fast sæti í yngri landsliðum íslands „Ég vona að ég fái tækifæri til að komast eitthvað út eftir sumar- ið hér heima en efekk- ert gerist verð ég pott- þétt áframíKR." í gegnum tíðina en lítið fengið að spreyta sig með sjálfu A-landslið- inu. „Ég var f sjálfu sér lítið að hugsa um landsliðið. En auðvitað vonað- ist ég til þess að vera valinn og ég er að sjálfsögðu hæstaánægður með að það hafi gerst. Það er eiginlega hápunkturinn hér heima að vera valinn í landsliðið og sannar að það hefur verið fylgst með manni í sumar. Nú er talönarkið að festa sig í sessi í þessum landsliðshópi," segir Veigar. KR tekur titiiinn Spurður um hverjir verði ís- landsmeistarar í haust er Veigar ekki seinn til svars: „Það verður náttúriega KR," segir hann glott- andi. „Nei, ef við tölum í alvöru, held ég að það sjáist klárlega á stigatöflunni að KR og Fylkir munu berjast um dolluna. En ég held að við munum standa uppi sem sigur- vegarar." -Áhverju byggirðu þá spá? „Ég held að hvorki KR né Fylkir muni tapa mörgum leikjum það sem eftir er og að innbyrðis leikur þessara liða muni ráða úrslitum. Hann verður leikinn á heimavelli okkar í Frostaskjóli og við eigum að vinna þann leik. Þeir hafa marka- töluna fram yfir okkur þannig að við verðum hreinlega að taka af þeim stig til að eiga séns í titilinn." - Segjum sem svo að þú lendir í meiðslum. Getur KR orðið íslands- meistari án þín? „Jájá, það er engin spurning. Við erum með stóran hóp og það er fullt af góðum leikmönnum sem gætu leyst mig af hólmi ef eitthvað kæmi upp á,“ segir Veigar Páll að lokum. vignir@dv.is Veiðihornið Ronaldo til Man. Utd Englandsmeistarar Manchester United létu til sín taka á leikmannamark- aðnum í gær þegar þeir keyptu tvo leikmenn fyrir rúma tvo milljarða íslenskra króna. Þeir eru brasilíski landsliðsmaðurinn Kleber- son og portúgalska undra- barnið Cristiano Ronaldo. Þeir greiddu 12,24 milljónir punda fýrir hinn 18 ára Ron- aldo sem skrifaði undir 5 ára . samning við félagið. „Ég er mjög ánægður með að hafa gert samning við besta félagslið í heimi og ég er sérstaklega stolt- ur af því að vera fyrsti Portúgal- inn sem leikur fyrir félagið," sagði Ronaldo sem var úthlutað treyju númer 7 hjá United en í þeirri treyju lék David Beckham einmitt með United. „Eftir leikinn gegn Sporting í síðustu viku töluðu allir strák- arnir í klefanum um hann. Svo í flugvélinni á leiðinni heim báðu þeir mig að kaupa hann - svo mikið er þeirra álit á hon- um. Hann er án efa einn mest spennandi leikmaður sem ég hef séð,“ sagði Sir Alex Fergu- son, framkvæmdastjóri Man. Utd. Það er nokkuð síðan United gekk frá kaupunum á Kleber- son en beðið var eftir að at- vinnuleyfi fengist fyrir hann. Er það gekk í gegn var ekkert því til fyrirstöðu að hann skrifaði undir samning við félagið. „Ein ástæðan fyrir því að við seldum Veron var sú að við vissum að við værum að fá Kleberson og ég hef trú á því að hann fylli hans skarð," sagði Ferguson en hann varð að greiða 6 milljónir punda fyrir kappann. Við þetta má bæta að United semur væntanlega ekki við Túnisbúann Hatem Trabelsi því hann lék með Ajax í Meist- aradeildinni í gær og yrði því ólöglegur með United í keppn- inni. henry@dv.is Langar út á ný Veigar gerði tveggja ára samning við KR á sínum tíma, sem þýðir að samningurinn rennur út eftir tíma- bilið í ár. Veigar segir að KR hafi þegar boðið sér nýjan samning en hann langi mest til að komast aftur út í atvinnumennskuna. „Ég mun að minnsta kosti bíða eitthvað með að skrifa undir hjá KR og sjá til hvað gerist í mínum mál- um. Það hafa nokkur erlend lið ver- ið í sambandi við mig frá Noregi, t.d. Stabæk, og svo vildi Bolton fá mig til reynslu. Ég vona að ég fái tækifæri til að komast eitthvað út eftir sumarið hér heima en ef ekk- ert gerist verð ég pottþétt áfram í KR,“ segir Veigar og bætir við að hann langi mest til að komast að hjá félagi í annaðhvort Englandi eða Hollandi. „Ég hef heyrt það frá öllum sem hafa spilað í Hollandi að það sé rosalega gott að byrja þar og sá bolti sem spilaður sé þar henti mér mjög vel. Svo eru auðvitað allir Veiðin gengur vel íElliðaánum og Leirvogsá: Styttist í 400 laxa múrinn „Úr Elliðaánum koma frá 4 upp í 14 laxa á dag þessa dagana. Alls eru komnir um 370 laxar á land úr ánum í sumar og það er í fínu lagi," sagði Bergur Stein- grímsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í gærdag þegar staðan var könnuð. „Hollið sem hætti fyrir fáum dögum í Andakílsá endaði með 17 Iaxa á tveimur dögum. Alls voru þá komnir tæplega 140 laxar á land úr ánni í sumar sem er hreint frábært. Leirvogsáin er að gera það gott þessa dagana. Veiðin er jöfn og góð og aflinn var um daginn 18 laxar. Alis eru komnir um 350 laxar „Það eru komnir 55 lax- ar og 25 bleikjur úr Þverá og það hefur ver- ið góður gangur í Skógá" úr Leirvogsá í sumar," sagði Berg- ur enn fremur. Veiðimenn í Faskrúði í Dölum voru komnir með 6 laxa eftir einn og hálfan dag, sem verður að telj- ast gott miðað við aðstæður á svæðinu. Eitthvað var af laxi í ósn- um en erfiðlega gekk að fá hann til að koma upp í ána. Góður gangur í Þverá í Fljótshlíð „Það eru komnir 55 laxar og 25 bleikjur úr Þverá og það hefur ver- ið góður gangur 1 Skógá. Laxinn mætair betur þessa dagana," sagði Ásgeir Ásmundsson þegar við spurðum um stöðuna á svæðinu. G. Bender GÓÐ VEIÐI: Sigurgeir Högnason með tvo laxa og fimm silunga úr Þverá ( Fljótshlíð. ♦ ♦ Hád II? FRÍTT fyrir börnin rð w^HÓTEL « i r-i BlandA / / Kjörinn áningarstaður í alfaraleiðl Hótel Blanda, Aðalgötu 6, Blönduósi, Sími 452 4205, E-mail: blanda@lax-a.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.