Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2003, Blaðsíða 13
nery
hlutverkið margfræga.
Næsta Bond-mynd var From
Russia with Love en það var ekki
fyrr en sú þriðja kom út, Gold-
finger, sem James Bond sló
almennilega í gegn. Síðan þá hefur
ekki verið litið til baka og er
Connery hornsteinninn í því veldi
sem Bond er í dag.
Hann var þó orðinn þreyttur á
persónunni eftir fjórðu myndina og
vildi sýna fólki að hann gæti leikið
önnur hlutverk líka og tók að sér til
dæmis að leika skúrk, fyrrum
stríðshetju og klikkað ljóðskáld.
Árið 1964 lék hann meira að segja
aðalhlutverkið í Marnie eftir Alfred
Hitchcock.
Nú segi ég aldrei
Eftir sjöttu Bond-myndina fékk
Connery nóg. Hann lék reyndar
aftur James Bond í Never Say Never
Again árið 1983 en sú mynd hefur
ekki verið viðurkennd sem ein af
Bond-myndunum. Connery lenti í
það miklum vandræðum með
framleiðendur myndarinnar að
hann var endanlega fráhverfur
persónunni. En það gilti einu. Sean
Connery var þá þegar orðinn það
stórt nafn að hann þurfti ekki
lengur á Bond að halda.
Þvert á móti tókst Connery það
sem mörgum þykir erfitt: að vera
þekktur fyrir fýrst og fremst eina
persónu og geta aldrei að losað sig
úr viðjum hennar þegar á að snúa
sér að öðrum hlutverkum. Það að
Sean Connery er þekktur fyrst og
fremst fyrir það að vera leikari, ekki
sem James Bond, ber mikinn
vitnisburð um ótvíræða hæfileika
hans. eirikurst&dv.is
NÝTT BLAÐ Á NÆSTA SÖLUSTAÐ!
Áskriftarsími: 5 1 5 5555