Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2003, Síða 15
Fimmtudagur 11. september 2003
Magasín
15
ina?
; Sævar Helgason
“Stórsveit Ásgeirs Páls“ á Gullöld-
inni
Hin sívinsæla „Stórsveit Ásgeirs
Páls" sér um að skemmta Grafar-
vogsbúum á Grafarvogsdeginum í
kvöld á Gullöldinni. Við mætum öll
í hörkustuði. Boltinn í beinni og til-
boð á ölinu tU kl. 23.30.
Tvö dónaleg haust á Fat Sam’s
Að kveldi Grafarvogsdags verður
stórdansleikur á Fat Sam’s þar sem
hljómsveitin Tvö dónaleg haust
leikur fyrir dansi. Fjörið hefst að
lokinni kvölddagskrá við Gufunes-
bæ. Allir djamma hjá feita Samma!
Gullfoss & Geysir í Kjallaranum
Það verður allt vitlaust í Kjallaran-
um í kvöld því Gullfoss & Geysir eru
við stjórnvölinn.
HÓD á Kúlture
Hljómsveitin HÓD spiiar á Kaffe
Kúlture, Hverfisgötu 18, t kvöld.
TweekáGlaumbar
Dj Tweek skemmtir gestum á
Glaumbar í kvöld.
Atli á Hverfisbamum
Atli skemmtanalögga spilar fyrir
gesti Hverfisbarsins í kvöld.
Valdi á Felix
Nýgræðingurinn Valdi spilar á Felix
í kvöld.
MasteráAmsterdam
Dj Master sér til þess að gestir
Amsterdam dansi hressilega í
kvöld.
Hermann á Catalínu
Trúbadorinn Hermann Ingi jr. spil-
ar á Café Catalínu í kvöld.
Hilmar og félagar á Fjörukránni
Hilmar Sverrisson og félagar leika á
Fjörukránni í Hafnarfirði í kvöld.
Underwater á Vídalín
Hljómsveitin Underwater heldur
uppi sveitaballastemningu á
Vídalín í kvöld.
Opnanir
Þijár opnanir í Gerðarsafni
f dag kl. 15 verða þrjár einkasýning-
ar opnaðar í Listasafni Kópavogs-
Gerðarsafni. Listamennirnir sem
sýna eru Helgi Hjaltalín Eyjólfsson,
Katrín Þorvaldsdóttir og Olga Berg-
mann í samstarfi við stofnun Dr. B.
Sýningarnar standa til 5. október.
Safniö er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.
Yfirlitssýningjúlíönu Sveinsdóttur
I dag verður opnuð yfirlitssýning í
Listasafni íslands á verkum Júlíönu
Sveinsdóttur (1889-1966). Sýningin
stendur yfir til 26. október.
Sveitin
í svörtum fötum á Castro
Hljómsveitin í svörtum fötum spil-
ar á skemmtistaðnum Castro í
Reykjanesbæ í kvöld. Mikið stuð!
Dis^ó, friskó diskótek í Neskaup-
Dj Nico sér um græjurnar og stuðið
kl. 23-3 í Egilsbúð, Neskaupstað í
kvöld. Aðgangur ókeypis meðan
húsrúm leyfir.
Papar á Akureyri
Stórsveitin Papar leikur í Sjallanum
á Akureyri í kvöld kl. 1-4.
Sálin í Eyjum
Stebbi og félagar í Sálinni leika í
Höllinni f Vestmannaeyjum í kvöld
kl. 1-4.
Brimkló, Halli og Laddi í
Síapanum
Það er boðið upp á mat og kvöld-
skemmtun með Halla og Ladda í
Stapanum f Njarðvík í kvöld. Á eftir
er síðan ball með Brimkló. Forsala
miða er í Stapanum kl. 15-17 á
laugardag.
Rúnarjúl á Akureyri
Rúnar Júl mætir með hljómsveit
sína og spilar á Græna hattinum á
Akureyri í kvöld.
Tónleikar
Mínus og Maus á Grand Rokk
Tvær af betri rokksveitum okkar
um þessar mundir, Mínus og Maus,
leiða saman hesta sína á Grand
Rokk í kvöld. Húsið opnað klukkan
23 og það er 20 ára aldurstakmark.
Miðaverð er 1.200 krónur.
Uppákomur
Dragdrottning íslands á Nasa
Keppnin um dragdrottningu ís-
lands fer fram á Nasa í kvöld. Þema
keppninnar í ár er óskarsverð-
launaafhendingarkvöld. Hægt er að
taka þátt f kosningu sigurvegara á
www.dragdrottning.com eða í
SMS-kosningu. Kynnir keppninnar
er Páll Óskar. Keppnin hefst á Nasa
klukkan 21 en forsala miða er frá
fimmtudegi á Kaffi Cozy í Austur-
stræti.
Orlof á lllugastöðum
„Á föstudag ætla ég að skreppa í sumarbústað ásamt
fjölskyldunni í Illugastaði, sem er orlofshúsabyggð í
Fnjóskadal. Ætlunin er að vera þar yfir helgina. Þangað
reynum við að fara nokkrum sinnum á vetri til að slaka
á. Gæti verið að við reyndum að veiða á laugardags-
morgun," segir Sævar Helgason, framkvæmdastjóri ís-
lenskra verðbréfa á Akureyri.
Hann segir að síðdegis á laugardag sé mikilvægur
leikur hjá sínum mönnum f Arsenal á móti Portsmouth
Valta yfir þau í spili
sem hann og sonurinn, Andri Snær, verði að sjá. „Við
þurfum væntanlega að keyra aftur til Akureyrar tU að
sjá hann því Stöð 2 næst ekki á Illugastöðum. Ætli ég
verði ekki að spá honum 3-0. Við þurfum einnig að
fylgjast með Þórsurum í 1. deildinni og vona að þeir nái
að vinna sér sæti í úrvalsdeild að ári, en sá leikur er á
svipuðum tírna," segir Sævar.
Eftir þetta segir Sævar að leiðin liggi aftur í Illuga-
staði - sennUega verði farið í mínigolf og síðan grUlað.
„Sennilega mun ég líka valta yflr þau í einhverju spili. Á
sunnudag fömm við líklega í sund áður en við leggjum
FRAMKVÆMDASTJÓRINN: „Slaka á í sumarbústað," segir
Sævar Helgason.
af stað aftur til Akureyrar. Þá þarf ég að pakka fötum
niður í tösku þvf ég fer til London á mánudag og verð
þar f nokkra daga.“
sigbogi@dv.is
sePt' - sunnudagur | HV3Ö gfl hlUStO á? VÍgdíS EsradÓttÍf
Bíó
Bama- og unglingabíó í Norræna
húsinu
í dag kl. 14 verður fjölskyldusýning
í Norræna húsinu á dönsku bíó-
myndinni Úlfastelpan Tinke.
Myndin er íyrir 6 ára og eldri og að-
gangur er ókeypis.
Krár
Blues Binns á Vídalín
Rólegheitastemning í kvöld á
Vídalín með Blues Binns.
15. sept. - mánudagur
Sveitin
Bubbi á Skagaströnd
Bubbi spilar í félagsheimilinu á
Skagaströnd. Tónleikarnir hefjast
kl. 21, miðaverð 1500 krónur.
16. sept. - þriðjudagur
Krár
Bjarni Tryggva á Vídalín
Bjarni Tryggva verður með vísna-
kvöld á Vídalín í kvöld. Ekki fyrir
viðkvæma.
Sveitin
Tónleikar Bubba á Blönduósi
Bubbi spilar í félagsheimilinu á
Blönduósi. Tónleikarnir hefjast kl.
21, miðaverð 1500 krónur.
17. sept. - miðvikudagur
Krár
2 Good á Vídalín
2 Good spila á Vídalín í kvöíd, ljúft í
eyra.
Tónleikar
Tónleikar endurfluttir
Uppselt var á lyrstu TÍBRÁR-tón-
leika starfsársins í Salnum, Kópa-
vogi; ljóðatónleika Kristins Sig-
mundssonar bassasöngvara og
Jónasar Ingimundarsonar píanó-
leikara. Ákveðið hefur verið að end-
urflytja tónl. í kvöld kl. 20 og er
miðasala þegar hafin.
Miðaverð 2000 kr.
Ástríða og afburðasöngur
„Undanfarið hef ég verið að hlustað á Missa Brevis
eftir Kodály. Ég syng í Dómkórnum og við erum að æfa
þessa glæsilegu messu til að flytja á Tónlistardögum
Dómkirkjunnar í nóvember," segir Vigdís Esradóttir,
forstöðumaður Salarins í Kópavogi.
Astríðumikil túlkun
Auk þessa kveðst Vigdís mest vera að hlusta á upp-
tökur með ýmsum flytjendum sem koma fram í Tíbrá;
tónleikaröð Salarins á nýbyrjuðu stafsári. „Ég get nefnt
hljóðritanir með finnska barítonsöngvaranum Jorrha
Hynninen sem er einn af eftirsóttustu söngvurum
heims. Einnig upptökur með píanóleikaranum Igor
Kamenz, sem er ævintýralega mikilfenglegur listamað-
ur og leikur í Tíbrá í vor. Ég gæti nefnt fjölmargar upp-
tökur í viðbót því að alls eru Tíbrár-tónleikarnir 44 á
starfsárinu," segir Vigdís og bendir áhugasömum á að
kynna sér ómótstæðilega vetrardagskrá Salarins.
„Leyfa sér þann munað að koma og njóta hvers einasta
tóns í lifandi flutningi listamanna af holdi og blóði."
í bflnum segist Vigdís hlusta á margvíslega tónlist og
þessa dagana mest á diskinn Pá hotell með Bo Kaspers
Orkester. „Svo er það fadóið, sem ég féll alveg fyrir þeg-
ar ég kom fyrst til Portúgals fyrir 15 árum. Núna er ég
að hlusta á fadósöngkonuna Marizu, glænýjan disk,
FORSTÖÐUMAÐURINN: Listamenn af holdi og blóði," segir
Vigdís Esradóttir.
Fado Curvo, þar sem saman fer ástríðumikil túlkun og
afburðagóður söngur."
sigbogi@dv.is
Hvað ertu að lesa? Hanna Birna Kristiánsdótt
Barnabækur og Guð hins smáa
„Ég einsetti mér það fyrir nokkru að vera duglegri að
lesa skáldsögur þar sem bókalestur minn hefur í lang-
an tíma tekið langmest mið af því sem ég er að fást við
f störfum mínum hverju sinni," segir Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarfulltrúi.
Flún segist í sumar hafa lesið margar góðar skáldsög-
Margar góðar skáldsögur
ur og sé þessa dagana að lesa Guð hins smáa, verð-
launaskáldsögu eftir Arundhati Roy um dramatísk ör-
lög indverskrar ijölskyldu. „Verð þó að viðurkenna að
ég hef verið uppteknari af tveimur bókum sem tengjast
Reykjavík og skipulagsmálum. Annars vegar eru
Reyjkjavíkurmyndir Jóns Helgasonar, sem gefin var út
af Árbæjarsafni, og íslandsmyndir. Myndunum fylgir
skýringartexti Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings.
Hins vegar hef ég verið að lesa bók sem eiginmaðurinn
fékk í afmælisgjöf í sumar frá góðum vinum og heitir
Leiðsögn um íslenska byggingarlist og var gefin út af
Arkitektafélagi íslands."
Hún segir að þar sem þau hjónin eigi fimm ára dótt-
ur séu barnabækur áberandi. „Efst á leslistanum eru
barnaljóðabækur Þórarins Eldjárns, sérstaklega Óð-
BORGARFULLTRÚINN: „Lesturinn hefur tekið mið af því sem
ég erað fást við í störfum," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir.
fluga og Grannmeti og átvextir. Fast á eftir fylgja bæk-
urnar um Línu langsokk og Emil eftir Astrid Lindgren.
Þessar bækur eru frábær skemmtun."