Helgarblaðið - 29.05.1992, Blaðsíða 4

Helgarblaðið - 29.05.1992, Blaðsíða 4
Maður og umhverfi A 20% jarðarbúa nota 80% af auðlindum jarðarinnar: Þessu vill þriðji heimurinn fá breytt á ráð- stefnunni í Ríó. ▲ Þróunarlöndin líta Persaflóa- bardagann öðrum augum en Vest- urlönd: herreksturinn var til að tryggja áffamhaldandi aðgang vestrænna ríkja að ódýrri orku. ▲ Lagt er til á ráðstefnunni að ríkar þjóðir leggi fram 0,07% af landsframleiðslu til umhverfismála og þróunaraðstoðar í þriðja heim- inum. Oft er þrautarábi& ab sniffa lím ▲ Legði ísland þetta af mörkum myndi það kosta rikissjóð 2,5 mil- jarða króna á ári. ▲ Árið 1988 vörðum við 0,05% af landsframleiðslu til þróunarað- stoðar sem samsvarar um 175 milj- ónum króna. Þetta er svipað hlut- til a& slá á hungurverkina. fall og undanfarin sjö ár. ▲ Árið 1988 vörðu Norðmenn 1,1% af landsframleiðslu sinni til þróunaraðstoðar. Danir vörðu 0,89%, Svíar 0,87%, Bandaríkin 0,21%, Bretland 0,32% og Frakk- land 0,72%. ▲ Árið 1991 töldu 52% íslend- inga að Island verði hæfilega miklu til þróunaraðstoðar, 5% töldu að of miklu væri eytt. ▲ Þess er vænst að á umhverfis- ráðstefnunni verði samþykkt Rió- yfirlýsing og Dagskrá 21, sem er ffamkvæmdaáætlun sem tekur til allra þátta í umhverfís- og þróunar- málum. Þetta tvennt á að vísa veg- inn inn í 21. öldina einkum varð- andi löggjöf og framkvæmd. ▲ Vonast er til að alþjóðasátt- málar um vemdun andnimsloflsins og um vemdun og viðhald fjöl- breytileika lífs á jörðu verði undir- ritaðir þannig að þeir verði Iaga- laga skuldbindandi fyrir aðildarríki SÞ. Staðreyndir um Brasilíu ▲ 42% Brasilíubúa hafa gengið skemur í skóla en fjögur ár. A 40 miljónir búa í fátækra- hverfúnum (favellas) eða á göt- unni. A 60% þeirra sem búa í norðaustur hémðum Brsilíu lifa undir fátæktarmörkum. A 73% af öllu sorpi er hent beint í sjóinn eða í ár. A 43% af 35 miljónum heim- ila hafa ekki aðgang að hreinu vatni. A 10 miljónir ibúa Brasilíu em heimilislausar. Prjú börn drepin daglega Wellington Barbosa átti aldrei möguleika á því að komast undan. Hann var á göngu með systur sinni og kærastanum hennar þegar maður í grænni skyrtu með lélegar tennur renndi upp að þeim í bíl og skaut Wellington með 38 kal- íbera lögreglubyssu. Systir hans og vinur hennar forð- uðu sér í hvarf en maðurinn ók strax í burtu. Þau voru þó viss um að hann væri fyrrum lögreglumaður sem krakkarnir í Rio de Janeiro kalla Föstudaginn 13. Systir Wellingtons var svo reið að hún staðhæfði að það hefði ver- ið Föstudagurinn 13. sem skaut bróður hennar. Dagblað í borginni birti ásökunina. Nú er hún hrædd um líf sitt. Hún er 15 ára gömul. Unglingadómstóll sendi hana á ör- uggan stað fyrir utan Ríó þar sem hún fékk róandi lyf og svaf í þrjá daga samfleytt. Á síðasta ári voru um 1.000 böm myrt í Brasilíu og er þó ástandið mun betra en næstu þrjú ár þar á undan þegar um 1.500 böm voru myrt árlega. Lög um vemd bama og unglinga eru eigi að síður þau öflugustu sem finnast hjá nokkm ríki. En það dugir ekki til hjálpar þegar ekki er veitl nægilegu íjármagni til að leysa aðalvandann í Brasílíu, sem er fátækt. Vegna þrýstings, bæði innanlands og utan, eru brasilísk stjómvöld að reyna að stemma stigu við þessum morðum en það gengur erfiðlega. Vega- og pappírslaus Umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst í Ríó 3. júní og það er hún sem hefur varpað þessum bömum í kastljós fjölmiðla um all- an heim. Ráðstefhan er haldin í Ríó meðal annars til að vekja fólk til umræðu um vandann í þriðja heiminum, vanda fátæktar og mengunar. Það er talið að um 200.000 böm séu vegalaus í Brasilíu. Sum þess- ara bama eru ekki einu sinni til á pappírunum hjá stjómvöldum. Þau geta ekki sótt rétt sinn annað en til götunnar. Fyrst er reynt að betla en samkeppnin er hörð, þau minnstu og mest veikburða verða undir. Þá reyna sumir að þvo bílrúður á gatnamótum en það er ótrygg af- koma. Þá er eftir að reyna vasa- þjófnað, búðaþjófnað, eða að brjótast inn í búðir og á heimili. Þrautaráðið er vopnað rán. Þessi böm stela til að lifa. En þegar búðareigandinn hefur verið rændur fjómm til fimm sinn- um á jafnmörgum vikum og lög- reglan getur ekkert gert þá leiðist hann gjaman út í það að ráða sér menn til vamar. Hann leitar þá til hinna sjálfskipuðu lögreglusveita sem morðingi Wellingtons hefur eflaust tilheyrt. Mennimir í þess- um sveitum, „vigilantamir“, em gjama fyrrum lögreglumenn og jafnvel starfandi lögreglumenn líka. Þegar búðareigandi ræður dauðasveitir er það til að myrða þjófa en sveitimar gera cngan greinarmun á aldri þjófanna. Hann skiptir ekki máli. Líka fíkniefnasalarnir Þingnefnd sem kannaði bama- morðin í Brasilíu komst að því að í Rio de Janeiro fylki cinu saman væm starfandi 180 dauðasveitir. Vissulcga eiga börnin sök á ýmsu ofbeldi. Ekki alls fyrir löngu var 12 ára drengur staðinn að því að drepa lækni nokkum ásamt fleiri bömum. Þau komust inn til hans með því að segja að flugdrekinn þeirra hefði fiækst í tré í lokuðum garði læknisins. Þetta morð í mars síðastliðnum var eitt af níu á tveim mánuðum sem framin voru af bömum. Það er síðan kaldhæðnis- legt að þau lög sem eiga að vemda bömin vcrða til þcss að erfitt er að lögsækja þau nema að þau séu staðin að verki. Þetta hefur orðið til þess að margir halda að dauða- sveitimar séu eina haldreipið í of- beldiskenndu þjóðfélaginu. n bömunum fækkar ekki og fá- tæktinni linnir ekki. Dauðasveitirnar eiga ekki einar alla sök í þessu máli þótt þær séu fyrirferðarmestar í fjölmiðlunum. Glæpasamtök fikniefnasala em tal- in eiga sök á um helmingnum af öllum morðum í Rio de Janeiro. Bebib eftir tækifæri. Vegalausu barnanna i Rio de Janeiro bíbur engin framtíð. Um 200.000 börn ráfa um götur borga í Brasilíu og eiga fáa ab. Bömin em í augum fikniefnasal- ans tilvalin fómarlömb. Þau em góð til að sendast með efni, þau eru ævintýragjöm, hlýðin, það er erfitt að handtaka þau og lögsækja og glæpamönnunum er sama þótt þau láti lífið. Vinir Wellingtons harðneita því að hann hafi selt eiturlyf eða tengst þeim. Hann hafi bara sniffað lím einsog svo margir krakkar í Rió gera. Þau sniffa til að slá á hungur- verkina í maganum. Fyrir utan sjúkrahúsið þar sem Wellington liggur hafa nokkrir vegalausir krakkar safnast saman. Meðal þeirra er 14 ára gömul vin- kona Wellingtons sem sýgur sígar- ettuna af sama hirðuleysi og full- skotin í höfuðið. Hún flúði úr hverfinu af því að hún óttaðist að hún væri næst á listanum. 1.000 börn - dropi í hafið Úr millistéttahverfinu sem hún flúði í var hún hrakin af yfirvöld- um fyrir nokkmm mánuðum. íbú- amir vom hinir ánægðustu og sögðu á eftir að þeir vonuðust til þess að krakkamir létu heldur ekki sjá sig eftir umhverfisráðstefnuna. Rúm 90 prósent íbúanna vildu að hermennimir, sem ráku bömin úr hverfinu, yrðu þar til frambúðar. En margir verða til þess nú að benda á að þetta ástand sé afleið- Morgunverkin. Heimili manna eru misjöfn en þab eru ekki margir sem þurfa a& klæ&a sig á morgnana undir berum himni líkt og þessi ungi ma&ur i Ríó. orðin manneskja. Það cr ekki hægt að sjá á henni að vinur hennar hafi verið skotinn fyrir stuttu, hún grín- ast með þetta og skammar annan fyrir að gráta þurrum támm. Henn- ar eigin augu em augu gamallar konu. Stúlka sem er 14 ára og búin að vera átta ár á götunni er ekkert bam. Hún fiúði stjúpföður scm misþyrmdi henni, lamdi hana með beltinu sínu, priki eða bemm hnef- unum. Nokkmm ámm seinna vom sex af hennar bestu vinum pyntuð og drepin af dauðasveitum. Oll ing fátæktar og stjómarstefnu sem leiðir af sér fátækt. Það að byggja skýli fyrir vegalausu bömin leysir ekki vandann. Það dóu 150.000 böm í Basilíu í fyrra án þess að ná eins árs aldri og samkvæmt skýrslu Bamahjálpar SÞ em um tvær milj- ónir bama í Brasilíu vannærð. Það er einkennilegt að hugsa til þess að 1.000 myrt böm em einungis dropi í hafið. í Ríó búa um 800.000 manns í fátækrahverfunum sem kallast „fa- vellas“. Þar býr fólkið í hreysum úr tinplötum, spónaplötum eða plasti. Staða landsins er ekki góð. Bras- ilía hefur nú í tíu ár búið við efna- hagskreppu, í 20 ár var einræði í landinu, og kynþáttamisréttið á sér fimm alda sögu. Nú er svo komið að ekki em til neinir peningar til að beijast við fátækt fólks þótt rik- ið uppfýlli samviskusamlega þær skyldur sínar að borga tæplega 500 miljarða á ári í afborganir og vexti af 7.000 miljarða króna skuld sinni við útlönd. Þess vegna dó tveggja ára gömul stúlka um daginn á spítalatröppum - á tröppum þriðja spíalans sem móðir bamsins var vísað frá. En það er einhver von. Stjóm- völd hafa sett upp vinnuskóla fyrir böm. í Ríó er hægt að hringja í símanúmer til að koma upp um meðlimi dauðasveita og nú þegar hafa 48 menn verið handteknir, þar af 33 úr lögreglu hersins. Einnig em um 600 félagasamtök í Rió og nágrenni sem reyna að hjálpa krökkunum. En þótt Iýðræði hafi verið komið á í Brasílíu er enn fjöldinn allur af fólki sem hefur ekkert hald í lög- um og getur átt von á dauða sínum - byssuskoti frá dauðasveitunum - hvenær sem er. Það verður erfitt verk að breyta til en umhverfisráð- stefnan getur verið skref fram á við ef hinar ríku þjóðir Vestur- landa gera sér grein fyrir því að mengunarvandi tengist líka vanda fátæktar. Fólk sem ekki á fyrir mat hugsar ekki út í það hvaða áhrif það hefur á umhverfið - áhrif sem ekki koma fram fyrr en mörgum ámm seinna. Ef málið snýst um að deyja í dag eða höggva regnskóg og deyja á morgun, lái þeim þá hver sem vill. Skuldabagginn sem þjóðimar bera geta haft úrslitaáhrif enda hefur það verið krafa þriðja heimsins fyrir ráðstefnuna að skuldaafskriftir komi í stað að- gerða í mengunarmálum heima fyrir. G. Pétur Matthíasson byggöi á Newsweek, Ny Tid og Tomorrow. Föstudagurinn 29. maí

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.