Helgarblaðið - 29.05.1992, Blaðsíða 20

Helgarblaðið - 29.05.1992, Blaðsíða 20
Helgar 20 blaðið Karl Þorsteins vann 39. helgarmótið Jóhann Þórir Jónsson, rit- stjóri tímaritsins Skákar, hefur afrekað að halda 39 helgarmót víðsvegar um landið. J»að fyrsta var í Keflavík 1980 og á nokkr- um mánuðum hafði hann staðið fyrir sjö mótum. Síð- an hafa þau verið haldin með reglulegu millibili en óvenjulangt hlé hafði verið gert fram að mótinu sem Flateyringar héldu um síð- ustu helgi. Flateyringar geta státað af því að hafa haldið tvö geysisterk helgarmót; í ágúst 1989 mættu fjórir stórmeistarar til leiks; núna voru þeir þrír og einnig tveir alþjóðlegir meistarar auk frambærilegustu full- trúa ungu kynslóðarinnar, Héðins Steingrímssonar og Helga Ass Grétarssonar. Alls voru þátttakendur 42 talsins. Þessi áttunda hrina helgarmót- anna hófst á Djúpavogi og fjórða mótið í hrinunni var jafnframt það fyrsta sem undirritaður vann ekki, svo maður grípi nú til sinnar al- kunnu hógværðar. Karl Þorsteins kom, sá og sigraði. Fyrir síðustu umferð stóðum við jafnir með 5 1/2 vinning en Karl vann lokaupp- gjörið; greinarhöfúndur féll í þekkta gildru strax i byijuninni. Lokaniðurstaðan: 1. Karl Þorsteins 6 1/2 v. 2.-5. Helgi Olafsson, Héðinn Stein- grímsson, Jón L. Ámason og Guð- mundur Halldórsson 5 1/2 v. 6.-7. Jóhann Hjartarson og Sævar Bjamason 5 v. 8.-16. Andri Áss Grétarsson, Björgvin Jónsspn, Ámi Á. Ámason, Magnús Olafs son, Helgi Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson, Ásgeir Þ. Ámason, Sverrir Gestsson, Magn- ús P. Ömólfsson, allir með 4 1/2 v. Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu var mótið vel skipað enda var hart barist. Af dreifbýlismönnum vöktu sérstaka athygli Sverrir Gestsson, einn sterkasti skák- maður Austurlands, og Sigurður Ólafsson, skipstjóri frá Suðureyri. Guðmundur Halldórsson, sem er búsettur í Noregi, stóð sig frábær- lega vel en klaufaskapur kom í veg fyrir að hann sigraði Héðin Stein- grímsson í síðustu umferð. Héðinn hafði ekki teflt síðan á haustmóti TR og virtist hálf ryðgaður. Öldungaverðlaun hlaut Sturla Ólafsson Pétursson en um þau háði hann að venju harða baráttu við Óla Valdi- marsson. Nú vantaði Benóný heit- inn Benediktsson en Ásgeir Þ. Ámason, sem teflt hefur á 36 helg- armótum, minntist kempunnar í lokahófinu. Þeir fjórir meðlimir ólympíu- sveitarinnar sem mættu til leiks litu á mótið sem lokaæfmgu fyrir slaginn í Manila og er óhætt að segja að þeir hafi haft að leiðar- Ijósi þá gullnu reglu okkar bestu spjótkastara að vera ekki á toppn- um of snemma. Skák mótsins var tvímælalaust eftirfarandi viðureign sem ég tel mína bestu skák í langan tíma: 6. umferð: Helgi Ólafsson-Jóhann Hjartar- son Nimzo-indversk vöm 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 (Afbrigði Capablanca komst í tísku upp úr 1988 og nýtur enn vinsælda þótt menn kunni betur að bregðast við því.) 4... 0-0 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 d6 (Langalgengast er að leika 6. .. b6. Jóhann velur svipaða uppbygg- ingu og hann gerði gegn Kasparov á heimsbikarmótinu 1988.) 7. D Rbd7 8. e4 b6 9. Rh3 c5 10. d5 exd5 11. cxd5 He8 12. Be2 a6(?) (Vafasamur leikur. Sú Ieikjaröð sem Jóhann velur hefur þann kost að biskupinn getur beðið með að „ákveða sig“. En það sama má segja um kollega hans á cl. Best var sennilega 12... De7 sem hótar 13. .. Rxd5.) 13. 0-0 b5 (Til greina kom 13... Rxd5 14. Dd2! ásamt 15. dxd6 og hvítur á betri stöðu.) 14. Hel c4 15. Be3 Rb6 16. Rf4! (15. leikur hvíts krafðist nokkurra útreikninga því svartur hótaði 16. .. Bxh3 og 16. Rbxd5.Ef 16... g5 þá kemur 17. Bd4! Ra4 18. Bxf6 Rxc3 19. Bxd8 Rxe2 20. Rxe2 Hxd8 21. Rd4 og svarta staðan morar í veik- leikum.) 16.. . Ra4 17. Dd2 Rd7 18. Bdl Rdc5 19. Hbl Bd7 20. Bxa4 Rxa4 21. Bd4! (Mislitir biskupar hjálpa hvítum ef eitthvað er.) 21.. . Dg5 22. g3 Hac8 23. Kg2 Rc5 24. h4 De7 25. Bc3 (Hindrar 25. uppskipti með - Rb3. 19. Hbl var að þessu leyti fyrirbyggjandi leikur.) 25.. . Rb3 f6 26. g4! Hf8 (Peðamassi hvíts á kóngsvængn- um er ekki árennilegur og svartur hyggst treysta vamir sínar með þessum eðlilega leik.) 27. h5 (Nú er ekki hægt að leika 27... h6 vegna 28. Rg6.) 27.. . Rb3 28. De3 a5 29. Hhl (Hvítur hefúr í frammi allskyns hótanir á kóngsvængnum, riddara- fóm g6 gæti verið hugmynd. Hrókurinn rýmir einnig reit fyrir drottningunni - Del hindrar mót- spil svarts með b5-b4.) 29.. . Hb8 30. h6! g5 (Hér var tímamörkum náð (11/2 klst. á hvom keppanda og síðan 1/2 klst. til að ljúka skákinni). Meira viðnám veitti 30. .. g6 með hugmyndinni 31. g5 b4 (þvingað 31... fxg5 strandar á 32. Rxg6! hxg6 33. h7+ o.s.ffv.) 32. axb4 axb4 33. Bxf6 Hxf6 34. gxf6 Dxf6 og svartur getur barist skiptamun undir. Hvítur getur einnig leikið 31. Del! sem hindrar -b4 og viðheldur hótuninni -g5.) 31. Rh5 Hbe8 (Nú er of seint að leika 31. .. b4 vegna 32. Rxf6+! Hxf6 33. Dxg5+ og vinnur. Svartur vill hafa drottn- inguna valdaða í þessu afbrigði.) 32. Rxf6+! Hxf6 33. Dxg5+ Hg6 34. Dxg6+! hxg6 35. h7+ Kf7 (Eða 35. .. Dxh7 36. Hxh7 Kxh7 37. Hhl+ Kg8 38. Hh8+ Kf7 39. Hh7+ Kf8 40. Hxd7 Hb8 41. Hxd6 b4 42. axb4 axb4 43. Be5 og vinn- ur.) 36. h8(D) Hxh8 37. Hxh8 - og svartur gafst upp. Hann tap- ar drottningunni eða verður mát, t.d. 37. .. Dg5 38. Hbhl með hót- uninni 39. Hlh7 mát. Margir byrjendur í Sumarbridge Góð þátttaka hefur verið í Sumarbridge í Reykjavík, það sem af er. Síðasta mánudag mættu 42 pör til leiks en laugar- daginn á undan mættu 20 pör til leiks. Samtals hafa 58 spilarar hlotið stig þau 5 spilakvöld sem lokið er í Sumarbridge, þar af 12 kvenmenn. Efstir em Þröstur Ingimarsson og Þórður Bjömsson 106 stig, en næstu spilarar em; Bjöm Theo- dórsson og Gísli Hafliðason 64 stig, Láms Hermannsson og Guð- laugur Sveinsson 51 stig og Guð- rún Jóhannesdóttir 49 stig. Ekki verður spilað í Sumar- bridge á morgun (laugardag) vegna afmælismóts Bridgefélags Reykjavíkur í Perlunni í dag og á morgun. Næsta mánudag hefst spila- mennska kl. 19 í Sumarbridge, á þriðjudag hefst spilamennska kl. 17 til 19 (spilað í riðlum og hefst síðasti riðill kl. 19), á fímmtudag er sama fyrirkomulag og á þriðju- degi og á laugardaginn hefst þriggja umferða barometer, með skráningu para fyrirfram. Spila- fjöldi milli para ræðst af þátttöku, en stefnt er að 30 para þátttöku hið minnsta. Skráð verður í Sumar- bridge og hjá Ólafi Lámssyni í s: 16538. Þegar útsendingar Sjónvarps af Evrópuleikjunum í knattspymu heíjast, verður Sumarbridge hnik- að lítillcga til, innan þess tíma- ramma sem gefst miðað við út- sendingar Sjónvarpsins. Nánar auglýst síðar. Afmælismót Bridgefélags Reykjavíkur hófst á miðvikudag- inn, með firmasveitakeppni yrir 30 sveita. Til leiks eru mætt þrjú af sterkustu landsliðum heims; Bret- ar, Svíar og Pólverjar. Sveita- keppninni lauk í gærkvöldi. I dag verða sýningarlandsieikir 6 liða í Holiday Inn hótelinu við Sigtún. Liðin sem spila em landsliðin þrjú, HM-Iiðið okkar, liðið sem tekur þátt í NM ‘92 í Opnum flokki og sveit Tryggingamiðstöðvarinnar, með þá Val Sigurðsson og Sigurð Sverrisson innanborðs. Valið á þeirri sveit orkar tvímælis, svo ekki sé meira sagt. Eðlilegra heíði verið að velja félagsmeistara BR, sveit sem sigraði aðalsveitakeppni félagsins (með þá Val Sigurðsson, Guðmund Sveinsson, Júlíus Sigur- jónsson, Jónas P. Erlingsson og Rúnar Magnússon innanborðs) frekar en sveit T.M. (þrátt fyrir Sigurð Sverrisson). Á morgun og sunnudaginn verð- ur svo tvimenningsmót í Perlunni og hefst spilamennska kl. 10 báða dagana. Um 50 pör taka þált í mót- inu. í dag lýkur skráningu í VISA- bikarkeppni Bridgesambands ís- lands (sem spiluð verður í sumar, með breyttu sniði). Er þetta er skrifað eru yfir 20 sveitir skráðar til leiks. Betur má ef duga skal. Skráð er á skrifstofu BSl, sem jafnframt veitir allar nánari uppl. um fyrirkomulag. Bjöm Eysteinsson og Þorlákur Jónsson höfnuðu í 3. sæti í mjög sterku alþjóðlegu móti sem spilað var á ltalíu um síðustu helgi. Sig- t urvegarar urðu heimamennimir fittala (fymim HM-meistari) og Mortarotti (sem staðið hefur sig með ágætum í Evróputvímcnn- ingsmótum síðustu árin). Þeir Bjöm og Þorlákur tóku einnig þátt í sveitakeppni mótsins og höfnuðu þar í 11. sæti af 38 sveitum. Félag- ar þeirra vom góðvinir okkar frá Bridgehátíðum, Markland Molson og George Mittelmann, báðir frá Kanada. Sigurvegarar í þeirri keppni urðu Forrester og Robson og gamla kempan Forquet á móti Masucci. Það hefur vakið athygli margra í Sumarbridge, sú Qölgun sem er á „nýjurn" spilurum, gjaman nefndir byrjendur. Nú er það svo, að allir hafa einhvern tímann verið byrj- endur í einhverju og er bridge- spilamennska þar engin undan- Lárusson tekning. í sumar verður ekkert sér- stakt byrjendakvöld, enda eiga svokallaðir bytjendur sem kunna orðið „mannganginn" í leiknum, ekkert erindi í þann félagsskap. Eftir þá örðugleika, að hella sér út í keppnisbridge í byrjun, er ekkert hollara en að spila við sér reyndara spilafólk og læra af því. I þeim efnum er Sumarbridge tilvalið tækifæri; hvert kvöld er sjálfstæð keppni og alltaf má reyna nýja spilafélaga. Sumarbridge hefur þá sérstöðu hér á landi að þar gefst eina tækifærið til að mæta meistar- anum, meðaljóninum og byijand- anum, öllum á einu bretti og hafa gaman af. Það er jú þetta áhugamál sem tengir þessa hópa saman; sjálf bridgeíþróttin. Flestir bridgespilarar hafa gam- an af að spreyta sig á „erfiðum“ úrspilsþrautum. Hér er ein sem kom fyrir hjá Breiðfirðingum um árið. Það náði víst enginn að leysa þrautina á þeim bænum ♦ Áxx 'v’ Kxx O xx 4• ÁlOxxx ♦ XX 4 DGlOxx 0 G109x 08 OKDGlOxxx O x 4»- 4* KDGxxx 4 Kxx vÁDxxx OÁxx 4* 9x Lokasamningurinn er4 hjörtu í Suður. Útspilið er tígulkóngur. Hvemig fær Suður alltaf 10 slagi? í „praksís“ tapast þetta spil sjálf- sagt á flestum borðum. En sett upp sem úrspilsþraut, má leika sér á ýmsan hátt. Ein aðferðin gæti ver- ið; Við tökum slaginn á tígulás, spilum hjarta upp á kóng og tígli úrborði, Austur hendir laufi og Vestur er inni. Vestur spilar að sjálfsögðu hjarta, sem við tökum heima á drottingu og trompum tíg- ul í borði, Austur hendir meira laufi (hafði hent spaða í hjartað). Þá tökum við spaðaás og spaða upp á kóng, hjartaás (Austur hend- ir spaða) og meira hjarta og Vestur á slaginn (Austur hendir laufi). Vestur á ekkert nema tígul að spila og nú getur félagi hans í Austur valið hvort hann hendir síðasta spaðanum eða laufadömunni. Suð- ur rýnir aðeins í afköstin hjá Aust- ur og 10. slagurinn kemur í þeirri lokastöðu sem lýst hefúr verið. Snyrtilegt. Og ein létt fyrir svefninn í kvöld; 474 0532 OÁ2 4- — 4 1065 42 0 76 OD8 OG O D 4* Á 4K3 OKG O — 4* 1094 4* G82 Suður á út í tígulsamning og á að fá 6 slagi. Góða nótt... Föstudagurinn 29. maí

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.