Dagblaðið - 23.09.1976, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976.
Hér sést lan Smith koma til heimilis bandaríska sendiherrans í
S-Afríku. Þar fóru viðræöur Kissingers og Smiths fram.
Kissinger heldur heim frá Afríku í dag:
Bóizt við drœmu
svarí frá Smith
— en jákvœðu þó. Vaxandi stuðningur blökkumannaleiðtoga
í Afríku við hugmyndir Kissingers
Henry Kissinger, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna,
heldur heim á leið I dag eftir
ellefu daga friðarumleitana-
ferð um Afríku. Hann bíður
enn boða frá Ian Smith, for-
sætisráðherra Ródesiu, um af-
stöðu stjórnar hans til tillagna
sinna um lausn Ródesíudeil-
unnar.
Ætlað var að Kissinger
myndi i morgun fara flugleiðis
til London frá Nairobi, eftir að
hann hefði gert Jomo Kenyatta
forseta Kenya grein fyrir til-
raunum slnum til að semja um
að blökkumenn taki við völdum
i Ródesiu.
Flokksmenn Ian Smiths i
Ródesíu ræða nú þær tillögur
sem bandaríski utanríkisráð-
herrann lagði fyrir Smith á
fundum þeirra í Pretoríu. .
Bandarískir embættismenn
í föruneyti Kissingers telja að
svar Smiths muni verða dræmt
„já, en...“
— Þeir óttast það hins vegar
ekki, að Smith muni hafna til-
boðinu alveg, enda virtist hann
hafa fallizt á það í meginat-
riðum á fundunum með
Kissinger sl. föstudag.
Ekki hefur verið skýrt frá i
hverju þetta hugsanlega sam-
komulag er fólgið, en talið er að
það sé nokkuð svipað þeim hug-
myndum, sem James Callag-
han þáverandi utanríkisráð-
herra Breta reifaði á þingi i
mars sl. Aftur á móti þykjast
menn vita, að minnihlutastjórn
hvítra manna i Ródesiu verði
gefinn nokkuð lengri timi en
þau tvö ár sem Callaghan reikn-
aði með, til að láta af stjórn
lapdsins og svartir taki við.
Bandarisku embættis-
mennirnir hafa þráfaldlega
neitað að skýra frá, hvort þetta
er raunin.
Forseti Zaire, Mobuto Sese
Seko, slóst i gær I hóp
Tanzaniuforseta og Zambíufor-
seta sem spá friðsamlegri valda
töku blökkumanna i Ródesíu.
Aður hafi Kissinger skýrt hug-
myndir sinar fyrir honum.
Lockheed-málið í Vestur-Þýzkalandi:
Sannamr um mútuþœgni
Strauss taldar falskar
— Sjá grein um kosningarnar
í V-Þýzkalandi á bls. 10
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa
komizt að þeirri niðurstöðu, að
bréf það sem átti að sanna að
Franz Josef Strauss, fyrrum
varnarmálaráðherra V-
Þýzkalands, hefði þegið mútur frá
Lockheed verksmiðjunum væri
falsað. í opinberri tilkynningu frá
Bandaríkjunum segir að við rann-
sókn á þessu bréfi hafi komið í
ljós að ýmis smáatriði hefðu leitt í
ljós að bréfið hefði ekki verið
ritað af fyrrum yfirmanni CIA,
Allen W. Dulles. Helztu sönn-
unargögnin fyrir því að bréfið sé
falsað eru hvernig dagsetningin
er á bréfinu, svo og hvernig
Strauss er titlaður. Bréfið var
dagsett 5. nóvember 1958, en þá
var Strauss einmitt varnarmála-
ráðherra.
Franz Josef Strauss sjálfur
telur að sovézka leyniþjónustan,
KGB, standi að baki þessu bréfi.
Strauss berst nú harðri baráttu
fyrir því, að flokkur hans, Kristi-
legir sósíalistar, komist í ríkis-
stjórn í V-Þýzkalandi I kosningum
sem fram fara 3. október næst-
komandi.
Strauss sagði vegna bréfsins að
það yrði Sovétstjórninni mikill
þyrnir í augum ef stjórnarand-
staðan í Þýzkalandi Kristilegir
demókratar og Kristilegir sósfal-
istar kæmust til valda. Því notuðu
þau öll hugsanleg meðul til að
sverta sig í augum kjósenda og
þar á meðal að ákæra sig um að
hafa þegið mútur af Lockheed
verksmiðjunum. — í ráðherratíð
Strauss keypti þýzki flugherinn
einmitt Starfighter þotur af Lock-
heed.
Líbanon:
Sarkis tekur við í dag
Elias Sarkis sver í dag
embættiseið sem næsti forseti
Líbanons, við hátíðlega athöfn í
bænum Shtoura nálægt sýr-
lenzku landamærunum. Búizt
er við því að vinstri menn og
hægfara á 97 manna þingi
landsins muni mótmæla
embættistöku Sarkis.
Fréttir frá Beirút í Líbanon
herma að Sarkis efist nú æ
rneir um að honum takist að
leysa borgaradeiluna í landinu.
Alls munu nú um 40.000 manns
hafa látið lífið í þessu borgara-
stríði og landið er algjörlega
aðskilið í tvo hluta.
Sýrlandsher ræður nú yfir
um 60 prósentum af Líbanon.
Hann sýnir engin merki þess að
farið verði að kröfum vinstri-
manna og landið yfirgefið.
Allir stríðandi aðilar í tor-
tímingarstríðinu í Líbanon
hafa lofað að styðja Sarkis. Nú
hafa hins vegar baráttuglaðir
vinstrimenn fundið sér
tylliástæðu til að ráðast gegn
honum. Bærinn Shtoura, þar
sem embættistakan fer fram,.
er á sýrlenzku hernámssvæði
og skammt frá landamærum
Sýrlands og Líbanons. Það telja
vinstri menn næga sönnun þess
að Sarkis sé að ganga á hönd
Sýrlendingum.
Bandaríkjamenn glopra hern-
aðarleyndarmálum í hafið
— reyna að ná „Tomcat" F-14 orrustuvélinni upp í dag
Tilraunir til að ná bandarískri
„Tomcat" þotu upp úr hafinu
norður af Skotlandi hefjast i dag
Þotan fell fyrir borð af flugvéla
móðurskipinu John F. Kenneuy i
Siðú.ilu VIKU.
Bandarikjamenn leggja mikla
áherzlu á. aó ná þotunni upp úr
hafinu. Hún er á 600 metra dýpi
um 75 mílur norðvestur af Skot-
landi. I þotunni eru mikilvæg
hernaðarleg rafmagnstæki.
Að sögn björgunarflokksins,
sem á að draga „Tómcat" upp úr
hafinu, er verkið einfalt og ætti
að takast á stuttum tíma.
Væntanlegir stjórnarherrar i Svíþjóð.
Per Ahlmark er lengst til vinstri. næstur
honum situr Thorbjörn Fálldin og siðan
Gösta Bohman.
„Úrslit kosninganna
frjálslyndisuppreisn
Svíþjóð:
gegn valdhrokanum"
— segir Per Ahlmark,
leiðtogi Þjóðarflokksins
Per Anlmark, leiðtogi
sænska Þjóðarflokksins, sem að
líkindum mun eiga aðild að
væntanlegri samsteypustjórn
þar í landi, sagði í gær að úrslit
kosninganna væru „frjálslynd
uppreisn gegn valdhroka.“
Hann sagði þetta í bréfi, sem
hann sendi Frjálslynda lýð-
ræðisflokknum, systurflokki
Þjóðarflokksins, í Vestur-
Þýzkalandi. Hann sagði einnig
að í sænsku þingkosningunum
hefði hvorki verið kosið um
félagslegt öryggi né utanríkis-
stefnu.
„Þvert á móti voru kosning-
arnar stuðningsyfirlýsing við
frjálslyndar félagshyggjuhug-
myndir, við félagslegar um-
bætur án sósíalisma," skrifaði
hann. „IJrslit kosninganna voru
frjálslynd uppreisn gegn vald-
hroka flokks, sem hefur
stjórnað Svíþjóð í 44 ár.“
Ahlmark átti í gær fundi með
Thorbjörn Fálldin, leiðtoga
Miðflokksins, sem búizt er við
að verði næsti forsætisráðherra
landsins. Gösta Bohman
leiðtogi Ihaldsflokksins, tók
þátt í fundunum síðar í gær.
Umræðuefnið var myndun sam-
steypustjórnar borgaraflokk-
anna. Þeim verður haldið
áfram.
26.000 INDVíRSK
ÞORP UNDIR VATNI
Að minnsta kostí 228 manns
hafa drukknað í flóðum í ind-
verska héraðinu Uttar Pradesh
undanfarna daga. Síðasta sólar-
hringinn hafa 22 lík fundizt. Tals-
maður stjórnarinnar i höfuðborg
Indlands. Nýju Delhi. segir að
þessi flóð hafi skollið á að
minnsta kosti 26 þúsund þorpum.
sem hafa heildaríbúatölu yfir níu
milljónir.
Þá hafa flóð einnig verið í
héraðinu Rihar. Þar er talið að sjö
manns hafi drukknað.