Dagblaðið - 23.09.1976, Síða 11
D.KiBLAÐIÐ. I'I.MMrn i)AC,l K 2:í SKPTEMBER 1976.
Helmútarnir tveir, Kohl tii vinstri og Schmidt tii hægri. Schmidt kanslari viðurkennir Kohl ekki sem helzta andstæðing sinn, en
segir hann vera þjón kokksins Franz Josefs Strauss í eldhúsi stjórnarandstöðunnar.
NÚ HEYJA HELMUTARNIR
ORÐASTRÍÐ
starfinu sínu sem formaður
þingflokksins, ef hann missir
kanslarastöðuna. Nú er Her-
bert Wehner, 70 ára gamall
stríðshestur, formaður þing-
flokksins.
Einvígi Helmutanna
Pólitískir fréttaskýrendur í
Þýzkalandi fullyrða, að úrslit
kosninganna 3. október velti
mjög á baráttu Helmútanna
tveggja. Þeir eru menn með
gjörólíka fortiö og gjörólíkir
menn. Kohl er ljúfur sem lamb
og lágraddaður. A meðan
Schmidt hefur barizt fyrir því
að vinna sér álit alheimsins sem
röggsamur kanslari, hefur Kohl
haldið kyrru fyrir á yfirráða-
svæði sínu, Rínarlöndunum,‘og
unnið sér álit þar sem góður
stjórnandi.
Schmidt hefur verið áber-
andi maður í höfuðborginni
Bonn síðan á miðjum sjötta ára-
tugnum. Hann tók við af
Brandt, þegar hann varð að
segja af sér. Hann hefur öðlazt
reynslu og álit fyrir að standa
sig sérstaklega vel, er erfið-
leikar hafa steðjað að. Síðan
hann tók við embætti kanslara,
hefur hann stjórnað iðnríkinu
Þýzkalandi með festu og aukið
álit þess, að meðan önnur
Vestur-Evrópuriki hafa
minnkað í áliti í viðskiptaheim-
inum. Vegna þessa árangurs,
nota sósíaldemókratar það slag-
orð, að Þýzkaland hafi orðið
fyrirmynd annarra ríkja á við-
skiptasviðinu undir stjórn
flokksins.
,,Með tilvísun til 11. gr. laga
um Háskóla íslands getur
læknadeild ekki fallist á að um-
sækjandinn Brynleifur Stein-
grímsson, læknir, sé hæfur til
að gegna prófessorsembætti í
félagslækningum." Tillaga
þessi var samþykkt með 16 at-
kvæðum gegn 10 en 10 seðlar
voru auðir.
Með vantrauststillögu
þessari er ekki aðeins verið að
lýsa vantrausti á viðkomandi
umsækjanda heldur dómnefnd-
ina, sem þó, samkvæmt reglu-
gerð er talin dómbærari á
málið. Og tillagan kemur fram
eftir að atkvæðagreiðsla hefir
farið fram um hvorn umsækj-
enda deildin telji hæfari.
Athyglisvert er að við seinni
atkvæðagreiðsluna taka þátt 36
kennarar og er helmingur
þeirra ekki samþykkur tillög-
unni, þó að hún nái fundarsam-
þykkt.
Eins er það athyglisvert að
við fyrri atkvæðagreiðsluna
taka þátt 32 kennarar en við
hina seinni 36.
Fundargerö læknadeildar
getur e.t.v. gefið skýringu á
þessum atriðum.
En greinilegt er að meiri-
hluti fundarmanna vill ekki
lýsa vantrausti á undirritaðan
en alkunna er að samþykkt,
sem ekki hefir meirihlutafylgi
fundar, hefir mjög veikt gildi.
Það, að allt að þriðjungur
fundarmanna skilar auðu við
atkvæðagreiðsluna, bendir á að
þeir telji aó um formgalla eða
óvanalegt afbrigði sé að ræða.
Eg vil engum getum að því
leiða hvað hér var í rauninni á
ferðinni en tel rétt að það sé
rækilega kannað. En ég tel að
meginmáli skipti það, að ekki
liggur fyrir meirihluti með van-
trauststillögunni, sem deildar-
ráð styður sig svo við.
Eg vil ennfremur leyfa mér
að vekja athygli á því að deildin
samþykkir á fundi sínum 9. mai
1975 tiilögu um nefndarskipan,
þar sem prófessorinn í félags-
lækningum yrði formaður en í
það embætti hafði deildin þá
valið Ölaf Ölafsson.
Hér mun deildin eða flutn-
ingsmaður tillögunnar fyrst og
fremst hafa höfðað til 38. gr.
laga um heilbrigðisþjónustu og,
ef til vill, ætlað að tengja land-
læknisembættið og prófessors-
embættið saman, sem seinna
reyndist ófær leið.
En samkvæmt bréfi mennta-
málaráðuneytisins virðast hug-
myndir læknadeildarinnar
mjög á reiki, samanber bréf 19.
júní 1975. En deildin vill þó að
sem fyrst yrði skipað í
embættið og fer fram á það með
bréfi 30. júní. Þá taldi deildin
enga ástæðu til að bíða með
skipunina.
En eitthvað amar þó að, því
að með bréfi til deildarforseta
2. júlí 1975 vísar menntamála-
ráðune.vlið til umræðufundar
Kjallarinn
deildarforseta og menntamála-
ráðherra 9. f.m. hvað varðaði
prófessorsembættið í geisla-
lækningum en minnir á að
ennþá séu ókomnar tillögur um
vinnutilhögun prófessors í
félagslækningum. Og það líður
og biður.
Með bréfi dagsettu 6. okt. 1975
tilkynnir menntamálaráðu-
neytið rektori Háskóla íslands
að Ölafur Ólafsson landlæknir
hafi dregið umsókn sina til
baka og enn segir orðrétt 1
greindu bréfi: „Jafnframt því
að læknadeild óskast skýrt frá
framanrituðu er óskað tillagna
deildarinnar varðandi ráðstöf-
un prófessorsembættisins að
svo komnu máli. Minnt er
einnig á bréf ráðuneytisins 19.
júní sl. varðandi starfsaðstöðu
prófessorsins i félagslækning-
um.“
Deildarráð (ekki lækna-
deild) tekur ofangreint bréf
til meðferðar 5. nóv. sl. og vísar
til ofangreindrar vantrauststil-
lögu á hæfni undirritaðs frá 9.
maí 1975.
Og nú ítrekar deildarráð
tillögu sína um nefndarskipun
vegna skipulagningar og
tengsla á kennslu í félagslækn-
ingum, heimilislækningum og
heilbrigðisfræðum og tilnefnir
Ölaf Ólafsson sem formann
þeirrar nefndar þótt hann sé nú
afhuga embættinu.
Herra forseti.
Mínar kvartanir eru sam-
kvæmt bréfi þessu og fylgi-
skjölum í skemmstu máli
þessar:
1. Eg tel að menntamálaráð-
herra hafi ekki orðið við ósk
minni um rökstuddan ráðherra-
úrskurð, þó að um tvíhliða og
neikvæða stjórnarathöfn hafi
verið að ræða þegar hann
synjar mér um veitingu þess
starfs, sem ég er talinn hæfur
til að gegna samkvæmt rétttil-
kvaddri dómnefnd.
2. Meðferð og afgreiðslu
Brynleifur H.
Steingrímsson
n
Ríkisstjórnin
gagnrynd fyrir
hroka og sjólfsónœgju
Gagnrýnendur kanslaráns
eru ekki sammála honum og
segja að þessi orð sýni einungis
hversu hrokafullur hann sé og
ríkisstjórn hans ánægð með
sjálfa sig. Þessi röksemd hefur
fengið nokkurn hljómgrunn
hjá kjósendum og er hún ásamt
þeim einfalda vilja margra
landsmanna til að fá fram
breytingar í Ríkisþinginu, talin
geta orðið samsteypustjórninni
að falli.
Samsteypustjórnin bendii
oft á tfðum á það, sem hún
hefur bezt gert í stjórnartíð
sinni. Það helzta er bætur á
skilnaðalöggjöfinni, lög um
frjálsar fóstureyðingar, jafn-
rétti karla og kvenna, að sam-
starfsvilji verkamanna sé f há-
marki og sfðast en ekki sízt lög
um endurmenntun vinnandi
fólks og fullorðinsfræðslu.
Helmut Schmidt vitnar oft til
skoðanakannanar i framboðs-
ræðum sfnum, þar sem 75%
þýzku þjóðarinnar hafa sagt, að
hún komizt mjög vel af fjár-
hagslega. Árleg verðbólga f
landinu er aðeins 5%, en
Schmidt láist ávallt að geta
þess, að tæp milljón vinandi
manna í Þýzkalandi er atvinnu-
laus.
Hœðarmunur Helmutanna
vekur athygli
Enda þótt Helmut Schmidt
staðhæfi það hvað eftir annað,
að baráttan um kanslaraemb-
ættið standi ekki á milli hans og
Helmuts Kohl, heldur hann
stöðugt áfram að svfvirða hann.
Schmidt er aðeins 165 senti-
metrar á hæð og því stundum
nefndur „Járnkanslarinn“ eftir
Otto von Bismarck, sem þótti
fremur lágur í loftinu. Helmut
Kohl er hins vegar 196 senti-
metrar á hæð. Schmidt minnir
fóljc stöðugt á þennan hæðar-
mismun með því að tala um að
sveitapólitfkusinn frá Rfnar-
löndunum sé pólitískur dverg-
ur.
Schmidt er einn albezti ræðu-
maðurinn á ríkisþinginu, bæði
vel að sér í flestum málum og
hraðmælskur. Auk þess hefur
hann. vissa persónutöfra. Það
vekur því talsverða furðu, að
hann hefur neitað að mæta
Kohl f kappræðum í sjónvarpi.
Ástæðan fyrir neitun Schmidts
er sú, að Kohl sé alls ekki leið-
togi stjórnarandstöðunnar,
heldur Franz Josef Strauss.
Margir fiokksbræður Schmidts
vildu þó glaðir, að þeir Helmut-
arnir mættust í sjónvarpi, því
að þá fengju kjósendur tæki-
færi til að sjá, hve litlausan
leiðtoga stjórnarandstaðan
hefur valið sér.
málsins af hálfu læknadeildar
og deildarráðs tel ég mark-
leysu.
3. Eg tel að skeytingarleysi
ráðuneytisins gagnvart undir-
rituðum sé ámælisvert, þar eð
eg hefi nú í meir en eitt og hálft
ár beðið þess að fá niðurstöðu i
málinu en fékk hana ekki fyrr
en eg hafði margítrekað ósk
mfna þar um. Eg tel því að
meðferð málsins af hálfu
menntamálaráðuneytisins sé án
fordæmis og eigi ekki stoð í
gildandi stjórnarfari og réttar-
reglum. Að öðru leyti vísa eg
til bréfs mfns til menntamála-
ráðherra fsk.: I.
4. Mér er kunnugt um að um-
sókn Ölafs Ölafssonar barst
ekki til ráðuneytisins fyrr en
umsóknarfrestur var útrunn-
inn. Eg undirritaður gerði
fyrirspurn til ráðuneytisins
þegar fresturinn var liðinn og
var tjáð að eg væri eini um-
sækjandinn. Seinna hringir
deildarstjórinn, Arni Gunnars-
son, í mig og tjáir mér að Ölafur
Ólafsson hafi sótt um embættið
til sfn munnlega og þvf hafi
umsókn hans ekki komist f
bækur ráðuneytisins í tæka tíð.
5. Eg tel mig eiga rétt á því að
mál þetta verði tekið fyrir að
nýju og það rannsakað hvort
afgreiðsla þess sé samkvæmt
gildandi stjórnarrétti, lögum og
reglum.
Br.vnleifur II. Steingrímsson
héraðsiæknir