Dagblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976.
þrótfir
þróttir íþróftir Iþróffir
Norðmenn
sigruðu Svía —
fyrsta tap
Dana ó órinu
Fjöldi landsleikja fór fram a
meginlandi Evrópu í gærkvöld —
vináttulandsleikir. Fjórar Norð-
urlandaþjóðir voru í baráttunni
og annars staðar á síðunni var
sagt frá stórsigri Finna í
Helsinki.
í Osló vann Noregur góðan
sigur yfir Svíþjóð, sem var án
atvinnumanna sinna. Noregur
vann 3-2, eftir að hafa haft 2-0
yfir í hálfleik.
í Kapmannahöfn á Idræts-
parken áttust við Danir og Italir.
Danir, sem voru ósigrandi á árinu
byrjuðu leikinn mjög vel og fullir
sjálfstrausts. En skyndisókn ítala
á 17. mínútu kom þeim úr jafn-
vægi og Pulici skoraði fyrir ítali.
Danir náðu sér aldrei á strik eftir
þetta áfall og þetta eina mark
nægði Ítölum.
Evrópumeistararnir —
Tékkóslóvakía —léku í gærkvöld
vináttuleik við Rúmeníu í
Búkarest. Jafntefli varð 1-1.
Marina Masny — leikmaður
Slovan Bratislava — skoraði
mark Tékka en Dudu Gerogescu
svaraði fyrir Rúmena.
i Vín léku Austurríkismenn og
Svisslendingar. Austurríkismenn
sigruðu 3-1. Mörk Austurrikis
skoruðu Krankl á 50. minútu —
Koelberger á 52. mínútu.
Trinchero svaraði fyrir Sviss á 62.
minútu en Kreuz skoraði síðasta
mark leiksins aðeins mínútu fyrir
leiksiok .
Olympíumeistararnir A-
Þýzkaland léku við Ungverja í
A-Berlin. Þjóðirnar skildu jafnar.
Riediger skoraði fyrir Þjóðverj-
ana á 20. mínútu en Fazekas
svaraði fyrir Ungverja sjö minút-
um síðar. Því jafntefii 1-1.
í Patras í Grikklandi áttust við
heimamcnn og ísraeismenn.
Nokkuð óvænt sigruðu fsraels-
menn — 1-0 og skoraði Cabak
markið á 55. mínútu.
Búlgaría og Tyrkiand skildu
jöfn í Soffíu í Búlgaríu 2-2.
Sigur Celtic
í Albion
Celtic vann nauman sigur í
gærkvöld á 2. deildarliði Albion í
skozka deildabfkarnum i knatt-
spyrnu. Celtic léK á útivelli og
sigraði með eina markinu í leikn-
um.
Glasgow Rangers lék hins
vegar á Ibrox Park við Clydebank
—sigurvegara 2. deildar á
síðastliðnu vori. Mjög á óvart
lyktaði leiknum með jafntefli —
hvort liðið skoraði þrjú mörk.
Hér eru úrslit í 8-liða úrslitum
skozka deildabikarsins:
Aberdeen — Sterling Albton 1-0
Albion — Celtic 0-1
Hearts — Falkirk 4-1
Rangers — Clydebank 3-3
Þetta eru fyrri leikir liðanna i
keppninni. Þannig er nú ljúst að
Ceitic er nokkuð öruggt í undan-
úrslit keppninnar — en hins
vegar eru hlutirnir ekki svo
skýrir með meistarana frá í tyrra
— Rangers
Keppni um bezla
hnefaleikamann
USA
Bandarikjamenn hafa ákveðið
að koma á keppni í hnefaleikum
þar sem keppt verður um titilinn
„meistari Bandarikjanna". Keppt
verður í öllum þyngdarflokkum
en hingað til hefur engin keppni
verið í Bandaríkjunum þar sem
keppt hefur verið um bandaríska
meistaratitilinn.
Keppnin mun hefjast í byrjun
næsta árs, en hingaó til hafa
bcztu hnefaleikamenn Banda-
ríkjanna einungis keppt um
heimsmeistaratitilinn.
WBA og Tottenh. slegln
út af 3. deildarliðum!
— og til að gera hlutina verri — fyrir framan eigin úhorfendur í deildabikarnum
Það var margt óvæntra úrslita i
deildabikarnum á Engiandi í gær-
kvöldi. Tvö 3. deildarliö —
Brighton og Wrexham gerðu sér
lítið fyrir og slógu út 1. deildarlið
WBA og Tottenham á leikvelli 1.
deildarliðanna. Derby County
varð að gera sér að góðu jafntefli
gegn 2. deildariiði Notts County á
Baseball Ground í Derby og
Manchester United gerði jafn-
tefli við Sunderland á Old
Trafford. Já, það var margt
óvæntra úrslita á Englandi i gær-
kvöld.
En áður en við höldum lengra
skulum við líta á úrslit leikja i
deildabikarnum á Englandi i gær-
kvöld.
Derby — Notts County 1—1
Fulham — Bolton 2—2
Manch. Utd. — Sunderland 2—2
Newcastle — Stoke 3—0
Torquay — Swansea 1—2
Tottenham — Wrexham 2—3
WBA — Brighton 0—2
Brighton og Wrexham eignuðu
sér sannarlega kvöldið með
óvæntum en verðskulduðum sigr-
um gegn 1. deildarliðum Totten-
ham og WBA.
Brighton — sem í síðustu um-
ferð sló út Ipswich — ferðaðist til
Hawthorns í útjaðri Birming-
ham og átti við WBA. Að vonum
var ekki við miklu búizt af
Brighton þrátt fyrir að liðið sé nú
efst í 3. deild. Jú, WBA hafði
slegið sjálfa meistarana út,
Liverpool í umferðinni á undan.
Hvernig gat þá Brighton stöðvað
WBA — þar sem Johnny Giles
hefur gert svo góða hluti.
En áhangendur WBA þögnuðu
fljótt þegar 21 árs gamall leik-
maður — Peter Ward skoraði tví-
vegis í fyrri hálfleik. Brighton lék
ágæta knattspyrnu og kom leik-
mönnum WBA úr jafnvægi. Þessi
kornungi leikmaður — Ward
skoraði tvívegis á laugardag I 7-2
sigri Brighton yfir York.WBA
náði sér aldrei áetrikeftir þessi
óvæntu áföll. Til að gera hlutina
verri fyrir miðlandaliðið þá var
skozki landsliðsmaðurinn —
Willie Johnston rekinn af leik-
velli á 88. mlnútu. Ástæðan jú,
hann reyndi aó sparka i
dómarann en hitti ekki.
Á White Hart Lane f
Lundúnum átti sér stað svipuð
saga. Velska liðið Wrexham var
þar í heimsókn en liðið er nú
meðal efstu liða í 3. deild og stóð
sig með miklum ágætum í Evópu-
keppni bikarhafa á síðastliðnu
keppnistimabili. Já svipuð saga
gerðist þar. Ungur leikmaður —
Miky Thonas skoraði tvö mörk í
fyrri hálfleik án þess að Tottcn-
ham gæti svarað fyrir sig. Fyrra
Willie Johnston — hann var
rekinn af leikvelli fyrir að reyna
að sparka i dómara þegar WBA
tapaði fyrir Brighton i deilda-
bikarnum.
mark Thomas kom á 37. minútu
og fimm minútum síðar bætti
Thomas við öðru marki. Þegar á
fyrstu minútu síðari hálfleiks
bætti Bill Ashcroft við þriðja
marki Wrexham. Glen Hoddle og
Ian Moores svöruðu með tveimur
mörkum fyrir Tottenham en það
var of seint — Wrexham var
ásamt Brighton k'omið-I 16 liða
úrslit deildabikarsins.
Á Baseball Ground i Derby
virtust svipaðir hlutir ætla að
gerast og i West Bromwich og
Lundúnum. Notts County náði
forystu með marki írska landsliðs-
mannsins Ray 0‘Brien. Það var
ekki fyrr en langt var liðið á
sfðari hálfleik að Derby tókst að
svara fyrir sig. Þá jafnaði Charlie
George úr vítaspyrnu fyrir Derby.
Sunderland, sem ekki hefur
unnið leik á nýbyrjuðu keppnis-
tímabili á Englandi náði
óvænt jafntefli á Old
Trafford i Manchester í furðu-
legum leik. Gordon Hill
skoraði snemma mark — en ekki
réttum megin. Hann sendi
knöttinn framhjá markverði
sinum, Alex Stepney og kom
Sunderland yfir. Fyrrum Man-
chester City leikmaðurinn Jeff
Clarke sá aumur á Hill og skoraði
einnig framhjá eigin markverði
og jafnaði þannig fyrir Sunder-
land. Hins vegar virtist stefna i
sigur United þegar Stuart Pear-
son skoraði fyrir liðið en fyrrum
Manch. City leikmaðurinn Tony
Towers, sem nú vill fara frá
Sunderland svaraði fyrir lið sitt
og tryggði því jafntefli 2-2.
Newcastle vann öruggan sigur
á Stoke City. Irving Nattrass og
Tommy Craig úr víti skoruðu
fyrir Newcastle í fyrri hálfleik og
Mikey Burns bætti við þriðja
markinu átta minútum fyrir leiks-
lok.
Að lokum — í Lundúnum gerðu
Fulham og Bolton jafntefli.
George Best — sem nú sýnir
hvern stórleikinn á fætur öðrum
skoraði fyrra mark Fulham.
Hankin til Leeds
Cropley til A. Villa
Mikið var um sölur og tærslur á
leikmönnum I ensku knattspyrn-
unni í gær. Leeds United keypti
miðherja Burnley — Ray Hankin.
á 150 þúsund pund. Hankin
neitaði á sinum tima- að fara til
West Ham United eftir að Burn-
ley og West Ham höfðu komið sér
saman um söluna. Ray Hankin er
marksækinn miðherji og hefur
verið bezti sóknarmaður Burnley
síðastliðin tvö ár.
Aston Villa keypti í gær út-
herjann Alex Cropley frá
Arsenál fyrir 125 þúsund pund
Þessi sala kom nokkuð á óvart
þvi Terry Neill framkvæmda-
stjóri Arsenal og Ron Saunders
framkvæmdastjóri Aston Villa
lentu I hár saman um helgina þar
sem fréttir um nugsanlega sölu
höfðu lekið út. Þá sagði Neill að
Cropley yrði kyrr hjá Arsenal.
Cropley var keyptur frá Hiberni-
an á 150 þúsund pund fyrir tveim-
ur árum.
Miðvörður Manchester United
— Jim Holton skozki landsliðs
maðurinn, sem missti sæti sitt hjá
United og Skotlandi vegna
meiðsla var í gær lánaður til
Sunderland og verður raunin
sennilega sú að Holton Ilengist
hjá Sunderland, borginnimiklu á
n-austur strönd Englands.
Terry Mancini — miðherji
Arsneal og áður QPR gerði I gær
samning við Aldershot sem leikur
I 3. deild. Mancini var i
fyrra styrkasta stoð Arsenal en
hefur nú misst sæti sitt I liðinu.
Slœmt tap Standard Liege í
haf narborginni Ostende
— Standard tapaði 1-5 og Charleroi 1-2 i 1. deild belgísku knattspyrnunnar í gœrkvöld
Lið íslendinganna Guðgeirs
Leifssonar og Ásgeirs Sigurvins-
sonar töpuðu bæði í 1. deild
belgísku knattspyrnunnar í gær-
kvöld. Standard tapaði sínum
fyrsta íeik á keppnistimabilinu—
1-5 fyrir Ostende. Charleroi lék í
Liege við FC Liege og tapaði 1-2.
Sýnu verra er tap Standard
Liege en liðið ferðaðist til hafnar-
borgarinnar Ostende, þar sem
íslendingar hafa gert svolítið af
því að selja Belgum fisk. Fimm
sinnum mátti landsliðsmark-
vörður Belga — Piot hirða
knöttinn úr netinu hjá sér en
Standard svaraði aðeins einu
sinni fyrir sig. Ásgeir Sigurvins-
son Iék ekki með vegna meiðsla
sem hann hlaut í innbyrðisleik
Liegeliðanna. Hann Iá fyrir í gær-
kvöld þar sem þjálfari liðsins
vildi heldur að hann lægi en
léki með liðinu. Þetta var fyrsta
tap Standard en jafnframt fyrsti
sigur Ostende — liðið hafði ekki
hlotið stig í tveimur fyrstu leikj-
um sinum í 1. deild.
Charleroi Iek i Liege við FC
Liege og matti Charleroi þola sitt
annað tap í deildinni. Guðgeir
Leifsson kom inn á í hálfleik og
voru Sebrarnir frá Charleroi
óheppnir að tapa leiknum. Þeir
verðskulcjuðu að minnsta kosti
jbfntefli, að sögh belgíska
sjónvarpsins í gærkvöld.
Áður en lengra er haldið
skulum við líta á úrslit leikja í 1.
deild í gærkvöld.
Beershoot—Beringen 3-0
Lierse—-FC Brugge 0-0
Waregem—Lokeren 0-2
Ostende—Standard Liege 5-1
Molenbeek—Anderlecht 1-1
FC Liege—Charleroi 2-1
Beveren—Courtrai 0-0
Winteralag—Antwerp 1-2
Engir leikir fóru fram í 2. deilc
en þar er Royale Union—lió
Marteins Geirssonar og Stefáns
Halldórssonar nú I efsta sæti.
Stórsigur Finna í
undankeppni HM
Finnar unnu stóran sigur a
Luxemburg í undankeppni
Heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu. Lokatölur urðu 7-1
en liðin eru í 2. riðli ásamt Eng-
landi og Italíu.
Aðeins tæplega 5 pusund
manns sáu leikinn og voru
yfirburðir Finna algjörir. Finnar
skoruðu þrjú mörk i fyrri
hálfleik. Þá voru þeir Eas
Heiskenan 2 og Ak.v Rissanen að
verki.
Finnar bættu síðan fjórum
mörkum við í síðari hálfleik.
Olavi Heiskenen skoraði
fljótlega . en Gilbert Zender
svaraði fyrir Luxemburg 1-4.
Finnar létu þar ekki staðar
numið. Olavi Heiskenen skoraði
sitt annað mark og þeir Teppa
Heikinen og Ari Maekynen sáu
um að skora fyrir r inna.
Staðan í 2. riðli er nú: .
England 1 1 0 0 4-1 2
Finnland 2 10 18-52
Ítalía 0 0 0 0 0-0 0
Luxemburg 10 0 11-70
Finnar höfou áður tapað fyrir
Englandi 1-4.