Dagblaðið - 20.06.1977, Side 6
t)
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 20. JUNl 1977.
Þjöðhátíð íHerjólfsdal 5-7 ágiíst 1977
Útboð
Knattspyrnufélagið Týr Vestmanna-
eyjum óskar eftir tilboðum í eftirfar-
andi liði á þjóðhátíð Vestmannaeyja
sem haldin verður í Herjólfsdal
dagana 5. 6. og 7. ágúst nk.
1. Hljómsveit fyrir nýju dansana.
Samanlagður tími danslcikja 18 klst.
2. Hijómsveit fyrir gömlu dansana.
Samanlagður tími dansleikja 14 klst.
3. Veitingasala i veitingatjaldi.
4. Öl- og gossala.
5. Sælgætis og tóbakssala.
6. íssaia.
7. Pylsusala.
8. Blöðru- og hattasala.
9. Poppkornsala.
Tilboð skulu send knattspyrnu-
félaginu Tý c/o Birgir Guðjónsson 900
Vestm. merkt tilboð fyrir 1. júlí nk.
Tilboð verða opnuð 4. júlí nk. kl. 18 í
félagsheimilinu við Heiðarveg Vest-
mannaeyjum. Öllum tilboðum mun
verða svarað bréflega. ATH. ekki í
síma
Knattspyrnufélagið TÝR.
Mötuneyti
Starfsmaður, karl eða kona, óskast til
að veita forstöðu mötuneytinu í
Hafnarhúsinu frá og með 1. ágúst nk.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu
Reykj avíkurhafnar. Umsóknarfrestur
ertil 1. júlí 1977.
Reykjavíkurhöfn
Ritari
Sendiráð Sambandslýðveldisins
Þýskalands óskar að ráða starfskraft
til símavörslu, vélritunar- og
þýðingarstarfa með mjög góða
kunnáttu í bæði þýsku og íslensku.
jSkriflegar umsóknir, er greini ævi-
feril, ásamt afritum af meðmælum
sendist í pósthólf 400,121 Reykjavík.
Afgreiösla 1 - 6
Óskum að ráða sem fyrst starfskraft
til afgreiðslustarfa í rafdeild.
Vinnutími 1-6 daglega 5 daga
vikunnar.
Uppl. gefnar á skrifstofunni.
J.L. húsið
Jón Loftsson h/f.
Raðhús á Seltjarnarnesi
Til sölu er raðhúsið Barðaströnd 21. I
húsinu, sem er 5 ára gamalt, eru 4
svefnherbergi, stofa, bað, mjög
vandað eldhús og gott búr. Þá er
þvottahús, stór bílskúr og mikið
geymslupláss í kjallara. Uppl. aóeins á
staónum eftir kl. 20 í kvöld og næstu
kvöld.
REUTER
Forsætisráðherra ísraels
Menachem Begin nýtur
væntanlega stuðnings 64 þing-
manna. Þar á meðal eru 12
þingmenn úr flokki sem setur
trúmálin mjög á oddinn. Þegar
hefur Begin orðið að koma til
móts við samstarfsflokk sinn og
hefur m.a. orðið að herða lög
um fóstureyðingar og einnig
geta læknar í ísrael nú ekki
krufið lík, án þess að ættingjar
hins látna samþykki.
19
ÍSRAEL: BEGIN BIÐUR UM
STUÐNING ÞINGSINS
— Dayan verður utanríkisráðherra
Forsætisráðherra Israels,
Menachem Begin, mun í dag
leggja fyrir þingið stefnu hinn-
ar nýju stjórnar. Einnig mun
reyna á það f dag, hvort hún
hefur stuðning þingsins. Búizt
er við að Begin hafi stuðning
64 þingmanna af 120.
Meirihluti stuðningsmanna
hans eru flokksmenn hans
úr Likud flokknum, eða 45.
Einnig hefur Begin stuðning
þingmanna úr flokki fyrrver-
andi hershöfðingja. Tólf
stuðningsmenn hans eru úr
flokki sem erhægri sinnaðurog
hefur mjög fastmótaða stefnu
hvað varðar trúmál. Begin
hefur þegar orðið að draga í
land hvað varðar stefnu hans í
trúmálum, m.a. hefur hann
orðið að lofa að herða lög varð-
andi fóstureyðingar og einnig
verða læknar að fá undir-
skrifað leyfi ættingja látsins
manns til þess að hægt sé að
kryfja líkið.
Moshe Dayan.sem núer utan-.
flokka, verður utanrikis-
ráðherra í stjórn Begin. Hann
mun taka með sér stuðning
margra, sem kusu hann innan
verkamannaflokksins.
Stefna stjórnar Begin er sú.
að fjölga mjög ísraelum, semi
eiga að hafa fasta búsetu á
vesturbakka Jórdan-ár.
Moshe Dayan verður utanriklsráðherra i hinni nýju stjórn Begins.
Brezhnev forseti
heimsækir Frakkland
Leonid BrezKnev forseti Sovét-
ríkjanna heldur í dag í opinbera
heimsókn til Frakklands. Talið er
að hann muni eyða næstu þremur
dögum við að endurheimta það,
sem Sovétmenn kalla sórstakt
samband við Frakka. — Ferð
þessi er sú fyrsta, sem Brezhnev
fer eftir að hann bætti á sig störf-
um forseta landsins.
Vestrænir fréttaskýrendur
telja, að forsetinn muni einnig
reyna að hægja á hægfara þróun
Frakka í átt til samstarfs við
vestrænar þjóðir. — Sú þróun má
segja að hafi byrjað eftir hvarf de
Gaulle hershöfðingja frá völdum.
Frakkar líta svo á að samvinna
þeirra og Sovétmanna svo og að
slökunarstefnunni sé við haldið
séu hornsteinar utanríkisstefnu
landsins. Brezhnev kom síðast í
opinbera heimsókn til Frakk-
lands árið 1973 og siðan þá hefur
margt breytzt í samskiptum þjóð-
anna. Giscard d’Estaing kom til
valda árið 1974 og tók þegar upp
mun gagnrýnni stefnu gagnvart
Sovétmönnum en fyrirrennarar
hans, Georges Pompidou og de
Gaulle. Allir frönsku stjórnmála-
flokkarnir — þar á meðal
kommúnistaflokkurinn — hafa''
lýst yfir áhyggjum sinum með
stefnu Sovétmanna í innan- og
utanrikismálum.
Brezhnev — fyrsta ferð
hans til útlanda eftir að
hann varð forseti Sovét-
rikjanna.
KÓLERUFARALD-
UR í JAPAN SSA
Svo virðist sem yfirvöld í
Japan hafi komizt fyrir
kólerufaraldur, þann versta
síðan 1946. Faraldurinn kom
upp í bænum Arida i Vestur-
Japan. Sérfræðingar telja lík-
legt að komizt hafi verið fyrir
faraldurinn og han’n ekki lik-
legur til að breiðast út meira en
orðið er.
Hjúkrunarfölk i bænum
hefur gengið um götur og
spraulað sóttvarnarefni á
byggingar og götur. Talið er
vísf að komizt hafi verið fyrtr
faraldurinn með þeim
aðgerðum, sem hjúkrunarfólk
hefur gripið til. Aðeins einn
maður hefur látizt af
kólerunni, en 64 hafa veikzt
alvarlega.
Frá Jakarta i Indónesíu hafa
þær fréttir borizt að þar i landi
hafi ellefu manns látizl úr
kóleru.
Árið 1946 gekk faraldur og
þá létust 560 manns i Japan.