Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1979. 3 Hvað gerði Nixon? Grandvar skrifar: Sjónvarpsmyndaflokkurinn Véla- brögð í Washington er sérlega vel gerður og vinsæll eftir því. Leikar- arnir eru frábærir og atburðarásin hröð og sannfærandi eins og gerist í bandarískum kvikmvndum. Og íslendingar lifa sig inn í þetta allt því þeir lifa í draumheimi, ef þeir komast fram fyrir hvíta tjaldið, þótt þeir myndu aldrei viðurkenna slíkt, allra sízt þeir sem hafa horn í síðu bandarískra kvikmynda vegna öfundar einnar saman. En hvað um það. Á dögum Nixons, í forsetatíð hans, spöruðu vinstri menn og kommúnistar ekki svívirðingarnar um Nixon og Banda- ríkin í heild. Og það sama gerðist hér á landi. íslenzkir kommúnistar eru engir eftirbátar þeirra erlendu. Það var hrópað um þjóðarmorð í Víetnam. Nbton átti sökina, sagði Raddir lesenda Þjóðviljinn, og menntamannastéttin í Alþýðubandalaginu tók undir. En hvað gerði Richard Nixon? Hann stöðvaði Víetnamstríðið. — Honum tókst það sem Kennedy tókst ekki og það sem Johnson forseta hafði heldur ekki tekizt. Nixon kom á bættum samskiptum milli austurs og vesturs með því að fara til Kína og ræða við þjóðarleiðtoga þar. Hann fór til Rússlands og tók upp þráðinn til betri samskipta en áður höfðu þekkzt milli Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna. Á þetta er sjaldan minnzt. En það er minnzt á Watergate-málið. En hvað var Watergate? Það var einfald- lega innanríkismál Bandaríkjanna, liður i kosningabaráttu, að visu harð- svíraðri en ekkert mjög frábrugðinni þeirri sem alls staðar gerist, meira að segja hér á íslandi. Ef Watergate-málið er það sem þessum fyrrv. forseta Bandaríkjanna er helzt fundið til foráttu, þá er það léttvægt. Sagan mun dæma Richard Nixon einn af fremsu forsetum Bandaríkj- anna og ennfremur einn af merkari stjórnmálaleiðtogum heimsins, hvernig sem andstæðingar hans og öfundarmenn reyna að koma mann- Kichard Nixon Skammsýni og græðgi JVG skrifar: Nú eru öll blöð full af lygi um ágæti þeirra pólitísku flokka sem haldið hafa um stjórnartaumana sl. tuttugu ár. En sannleikurinn sem þeir vilja ekki segja mun renna upp fyrir lands- mönnum með óþægilegu hruni á ríkj- andi kerfi og jafnvel sjálfstæðismissi. Sannleikurinn er t stórum dráttum sá að meiriparturinn af okkar fjárfest- ingum er verðbólgufjárfestingar sem lítið gæfu af sér ef hér ríkti heilbrigt efnahagsástand. í Kastljósi komu fram sérfræðing- ar sem sögðu með fínu orðalagi að hagkvæmasta lausnin á dýrum út- gerðarkostnaði væri að leggja 2/3 hlutum af óborguðum, nýjum fiski- skipaflota. Þeir kölluðu það að of mikið fjármagn væri bundið í flotan- um. Þá vaknar sú spurning hver sé ástæðan fyrir svo stórum flota. Svarið er stjórnleysi, skammsýni og græðgi. í verðbólguástandi er ekker til sem heitir lán. Það er aðeins um að ræða styrki því ,,Iánið” er aldrei borgað til baka þar sem raunvextir eru ekki ríkjandi en þeir eru undirstaða heilbrigðs efnahagslífs. í skipakaupum er lánað frá 80— 115% enda hefur lengst af verið auð- veldara að kaupa togara en 4 her- bergja íbúð. Þar sem styrkirnir (lánin) voru hæstir skipti engu hvað keypt var. Verðbólgan átti að afskrifa það. Togaralánin eru ríkistryggð lán og þegnarnir veðsettir fyrir lánunum. Þess vegna er gagnslaust að fella gengið, þá bara hækka okkar erlendu skuldir, enda segja útvegsbændur að „Stund- inni hrakar” Vilborg Gisladóttir hringdi: Eg er nýkomin af sjúkrahúsi þar sem ég var i hópi margra mæðra. Þar kom Stundin okkar í sjónvarpinu til tals og bar okkur mæðrununt saman um að henni hefði hrakað mjög undir stjórn Bryndísar Schram. Okkur finnst sem Bryndís noti Stundina mest til þess aðgera „glans- númer” úr sjálfri sér. Stundin hefur að mínum dómi aldrei verið tilgerðar- legri eða verri en nú. gengisfelling hjálpi ekkert. Hvaðgera erlendir lánardrottnar þegar þessum flota verður lagt? Kjósendur svari því hver fyrir sig. Þú skalt a.m.k. hug- leiða það vegna barna þinna, lesandi orði hans fyrir kattamef. Fréttamenn vestra höfðu svarið að koma honum úr embætti, hvað sem það kostaði, og það tókst þeim. Og fyrir það eitt að hafa frumkvæðið um endalok Víetnamstríðsins hefði Nixon átt að hljóta þakklæti um viða veröld. En laun heimsins eru venjulega vanþakklæti. Fyrr eða síðar mun þó nafn Richards Nixons málanna fyrir afrek hans í að bæta sambúð í milli þjóða. Afstaða íslendinga er oftast á sveif með meirihlutanum, hverju sinni, því þeir eru hrifnæmir. En um leið og sagan fer að skrá nafn Nixons meðal mikilmenna stjórnmálanna mun álit fólks hér snarsnúast og fylgja þeim meirihluta sem geymir nafn Richards Nixons sem þeirra hæfustu sem gegnt góður. verða hafið til skýjanna í sögu stjórn- hafa hlutverki stjórnmálaforingja. IITSJÓNVARPSTEKI DECC TSJÓNVARPSTÆKJUM MÁ 7 STA eru heimsþekkt fyrir myndgæöi og góðan hljóm. eru búin in-line myndlampa. eru samansett úr einingum fyrir mynd og tal og eru þvi sérlega auðveld i viðhaldi. nota aðeins 130-200 watta orku eftir stærð. eru búin 3ja watta RMS hátalara með tónstilli fyrir bassa og diskant. eru þrautprófuð i heilan sólarhring áður en þau fara frá verksmiðju, auk þess sem nákvæmt eftirlit er haft með framleiðslunni á öllum stigum. eru til frekara öryggis yfirfarin og stillt áður en þau eru afhent úr verzlun okkar. eru framleidd af einum alreyndasta framleiðanda heims, en Decca verksmiðjurnar hófu framleiðslu sjónvarþstækja á árinu 1938. fást með 20", 22" og 26" skjám. 3ja ára ábyrgð á myndlampa - 12mánaða ábyrgð á öðrum hlutum tækisins. Varahluta- og viðgerðarþjónusta á staðnum - ■/' Hagstætt verð. ÚTSÖLUSTAÐIR ÚTI Á LANDkl AKRANES Verzlunin Bjarg BORGARNES Kaupfélag Borgfirðinga STYKKISHÓLNIUR Haraldur Gislason ÍSAFJÖRÐUR Verzi. Kjartan R. Guðmundss. BOLUNGARVÍK Verzlun Einars Guðfinnssonar BLÖNDUÓS Kaupfélag Húnvetninga SIGLUFJÖRÐUR Verzlunin Rafbær AKUREYRI Raftækni HÚSAVlK Bókaverzl. Þórarins Stefánss EGILSTAÐIR Verzlunin Skógar SEYÐISFJÖRÐUR Stálbúðin ESKIFJÖRÐUR-Rafvirkinn STÖÐVARFJÖRÐUR Verzl. Guðmundar Björnssonar HÖFN HORNAFIRÐI Kaupfélag Austur-Skaftfellinga HELLA Verzlunin Mosfell VESTMANNAEYJAR Stafnes FALKIN N ^ SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Hvernig lízt þér á að kona skuli vera orðinn sýslumaður Strandamanna? Magnús Arnfinnsson: Mér lízt vel á það. Edda Sigurbjnrnsdóltir: Mcr lizt vel á það. Sigríður Guðmundsdóttir: l.jómandi vel! Þróun til betri vcgar. Jón Þorvaldsson múrari: Það lizt mér ekkert á. Kristleifur Indriðason: Mér finnst það jákvætt. Anna Guðrún Júliusdóttir: Mér lizt mjög vel á það.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.