Dagblaðið - 12.11.1979, Page 9

Dagblaðið - 12.11.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1979. 9 Húsin við Hraunbæ fá ný þök á kollinn: SKYNSEMIN SIGRAÐISKRIF- RÆÐK) í BORGARKERFINU —f lötu þökin urðu íbúunum dýrkeypt „Okkur leizt ekkert á flötu þökin í upphafi, þegar húsin voru byggð. En það var ekki nokkur leið að fá skipulagsyfirvöld Reykjavíkur til að leyfa hallandi þök. Því fór sem fór og við sitjum eftir með skaðann og auka- kostnaðinn sem af þessu leiðir,” sagði Haraldur Haraldsson, húsasmíða- meistari, við Dagblaðið. Haraldur var ásamt tveimur öðrum smiðum uppi á þaki á raðhúsum við Hraunbæ í Árbæjarhverfi við vinnu sína. Þeir voru að setja nýtt hallandi þak yfir flatt þak á húsunum. Við Hraunbæinn eru tæplega 50 hús með flötu þaki, byggð á árunum 1965 — 1968. Fljótlega kom i ljós, eins og margir höfðu spáð, að flötu þökin hentuðu illa veðurfarinu sem við búum við. Þakpappinn var sífellt að bila, niðurföll stífluðust og afleiðingin var sú að raki kom í gegnum loft og út úr veggjum. Sífellt hafa húseigendur við Hraunbæ þurft að bæta þakpappann eða endurnýja hann jafnvel alveg. Viðhaldið hefur kostað skildinginn, auk óþæginda af völdum þessa. Snemma á þessu ári skrifuðu nokkrir Hraunbæingar til bygginga- nefndar borgarinnar og kváðust ekki „Við þurfum vonandi ekki að kvlða vetrinum þegar þetta verður komið upp,” sagði Haraldur Haraldsson, húsa- smiðameistari. Hann stendur á þakgrindinni á eigin ibúð að Hraunbæ 17. DB-myndir: Ragnar Th. » og Hraunbæingar fengu að setja hall- andi þök á húsin sín. „Við erum 12 húseigendur, sem erum byrjaðir framkvæmdir. Fleiri koma áeftir,” sagði Haraldur Haralds- son, húsasmíðameistari. Hann er sjálfur eigandi einnar íbúðarinnar, sem fær nýtt þak á kollinn þessa dagana. „Húsnæðismálastjórn teiknaði þök- in, sömu teikningarnar fyrir allar íbúð- irnar. Þær kostuðu 97 þús. pr. íbúð, sem okkur finnst fullmikið. Heildar- kostnaðurinn við hvert þak er 2,5—3 milljónir kr. Lánafyrirgreiðsla er engin. Við 'sóttum um lán til Hús- næðismálastjórnar. Hún synjaði og vísaði á vaxtaaukalán. Okkur þótti lika einkennilegt þegar við komumst að því fyrir tilviljun, að 10 ára ábyrgð hafði verið á flötu þök- unum. Um ábyrgðina höfðum við Hörður Ingi Torfason og Sigfinnur Þorsteinsson voru að vinna við þaksmiðina ásamt Haraldi. í baksýn sést í skallann á öðrum húsum 1 hverfinu sem fá lika húfu á kollinn innan tiðar. una þessu ástandi lengur. Menn á vegum nefndarinnar komu á staðinn og gengu úr skugga um að hér væri hvergi farið með fleipur. Málið fór á hreyf ingu. Skynsemin sigraði skrifræðið aldrei heyrt og hún kom okkur að engu gagni. Yfirvöldunum hefur trúlega þótt allt í lagi að teikna nýtt þak á húsið þegar ábyrgðin var runnin út!” sagði Haraldur. -ARH. Dilkar Magnúsar á Ytra-Ósi þyngri en dilkar Péturs á Reynivöllum STRANDAMAÐUR- INNGERIRTILKALL TIL LANDSMETS „Pétur á Reykjavöllum á ekki hæstu meðalvigtina í ár. Magnús Gunnlaugsson á Ytra-Ósi við Hóbna- vik hefur hærri meðalvigt,” sagði maður einn sem hringdi til blaðsins. Dagblaðið birti frétt á fimmtudaginn um vænt sláturinnlegg Péturs bónda Pálmasonar á Reykja- völlum í Skagfirði. Pétur lagði inn 143 dilka og meðalvigt þeirra reyndist 17,07 kg. Skagfirðingar töldu þetta mögulega vera metvigt á landinu. En Strandamenn hafa hirt þann heiðurinn af Skagfirðingum og halda honum a.m.k. um sinn. Magnús á Ytra-Ósi lagði inn 155 dilka og fékk meðalvigtina 17,35 kg. Magnús hefur löngum átt rígvæna dilka og blandað sér í baráttuna um hæstu meðalvigt landsins haust eftir 'haust. -ARH. húsbyggjeimdur TÆKNIMENN , BYGGINGAFULLTRUAR SI22S 'flSLANDs ^Pykkt • tSflur . ÍM«-ofnl fWir afv 'fMrtSJ, 21“ofa,, ■I*t M -TO,vo?; ®etur eáJc fyrir. ín €ert upp- s r»t=fa4i :jeS.U V, tij f„ ' : * " j Oa !r Prófd6i 08 fyrr er 'ÍSJa 'k c :etur mr * “Vfunu,. a 'ufur Pn>fa„i * »o'fa Var tafja ^ykkt. "n-ku, Að marggefnu tilefni vekj- um við athygli á því að eftirfarandi ofnar eru þeir einu, samkvæmt bréfi Iðntœknistofnunar Islands frá 31. október 1979, sem fullnægja í öllu kröfum íslenzks staðals IST. 69.1 um varmagjöf ofna og þar með kröfum nýrrar byggingareglugerðar frá því í ágúst sl. Þessir ofnar eru: a. HELLU-ofn frá hf. Ofnasmiðjunni GAL-ofn frá hf Ofnasmiðjunni SVISSYL-ofn frá hf Ofnasmiðjunni b. GOLF ofn frá Vélsmiðjunni Odda hf Aðeins framangreindir ofnar eru framleiddir í samræmi við gildandi byggingarreglu- gerð og tryggja hámarksnýtingu heita vatnsins og þar með lægstan hitunarkostnað. Varizt óábyrgar f ullyrðingar um annað! HF. OFNASMIÐJAN Háteigsvegi 7, Reykjavík Sími 91-21220 VÉLSMIÐJAN ODDIHF. Strandgötu 49 Akureyri Sími 96-21244

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.