Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 7
(búar Hebrideseyja mótmæla: VIUA EKKITAKA VIÐ KEFLAVÍKURHERUÐINU „Það er á almanna vitorði, að vinstristjórnarmyndun í Reykjavík mundi valda því, að ráðamenn Atlantshafsbandalagsins færu að hugleiða endurskoðun á gildi her- stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli”. Svo segir í grein í brezka blaðinu The Observer hinn 5. þessa mánaðar. í byrjun greinarinnar segir frá því að ibúar eyjarinnar Lewis, sem er í Hebrideseyjaklasanum vestur af Skotlandi, ætli nú að hefja baráttu gegn mikilli stækkun á flugvellinum við Stornoway. Eru íbúarnir sagðir sannfærðir um að næsta skrefið verði að þar verði komið upp herstöð á vegum Atlantshafsbandalagsins. Brezka varnarmálaráðuneytið hefur borið á móti ölium hug- myndum um að við Stornoway sé verið að koma upp herstöð, sem gæti komið í staðinn fyrir Keflavíkurflug- völl. Ætlunin er að lengja eina flug- brautina við Stornoway um fjögur hundruð metra og síðan á að leggja aðra braut samsíða henni. Hin opinbera skýring á fram- kvæmdunum á Lewis-eyju er sú að þar eigi að koma upp aðstöðu, sem nota megi ef til styrjaidar komi. í greininni í The Observer, sem er mjög virt blað, kemur aftur á móti fram eins og áður sagði að hér sé verið að tryggja aðra herstöð, ef svo færi að nauðsynlegt reyndist að leggja stöðina á Keflavíkurflugvelli niður. í brezka tímaritinu The Statesman birtist grein hinn 13. október í fyrra. Þar var því sama haldið fram að stöðin við Stornoway ætti að vera reiðubúin að taka að sér hlutverk Keflavíkurflugvallar. Brezka hermálaráðuneytið segir að ekki sé ætlunin að setja upp her- stöð við Stornoway á næstunni. Flug- völlurinn þar eigi aðeins að vera viðkomustaður svonefndra Tornado flugvéla, sem ætlað er að stunda eftirlitsflug á Norðaustur-Atlants- hafinu. -ÓG. Verður Hamrahlíðarskóli NM- meistari í þriðja sinn? Norðurlandameistaramót fram- haldsskólasveita í skák verður að þessu sinni haldið í Stokkhólmi dagana 22.- 25. nóv. nk. Skáksveit Hamrahlíðarskóla, núver- andi ísiandsmeistarar, sem tvívegis áður hefur unnið Norðurlanda- meistaratitilinn, árin 1976 og 1977 (tók ekki þátt í fyrra) hlýtur að eiga mjög góða sigurmöguleika á mótinu nú með tvo aiþjóðlega meistara í sínum röðum, þá Margeir Pétursson og Jón L. Árna- son. Auk þeirra skipa Róbert Harðar- son og Þorsteinn Þorsteinsson sveitina en þeir urðu unglingameistarar íslands árin 1978 og 1977. Mun það næsta óvenjulegt, að framhaldsskólasveit hafi á að skipa tveimur alþjóðlegum meisturum. Svo sem kunnugt er varð skáksveit Álftamýrarskóla Norðurlandameistari grunnskóla nú nýverið, annað árið í röð. Ef vel tekst til mun ísland halda báðum titlunum í hinni samræmdu skólaskákkeppni Norðurlanda í grunn- og framhaldsskólum þetta árið. -GAJ- — með tvo alþjóðlega meistara ísínum röðum Hér eigast þeir við félagarnir Margeir Pétursson og Jón L. Árnason á siðasta Reykjavikurmóti. Báðir hafa þeir nú hlotið alþjóðlegan meistaratitil. DB-mynd: Ragnar Th. 850 milljóna lán vegna harðindanna Rikisstjómin setti í gær bráða- birgðalög, sem heimila fjármála- ráðherra að ábyrjast fyrir hönd rikis- sjóðs með sjálfskuldarábyrgð allt að 850 milljóna lán, sem Bjargráða- sjóður tekur vegna stuðnings við harðindasvæðin. Ennfremur opna bráðabirgða- lögin Bjargráðasjóði leið til að verðtryggja lán, sem veitt verða bændum á harðindasvæðunum, en í lögum sjóðsins var áður ekki heimiid til að veita verðtryggð lán eða lán meðyfir 10 prósent vöxtum. Bjargráðasjóður annast fyrir- greiðslu á lánum til þeirra, sem urðu fyrir tjóni af völdum hafíss og vor- harðinda, grasbrests og rýrrar uppskeru á liðnu sumri, samkvæmt ákvörðun vinstri stjórnarinnar. Til þess þarf Bjargráðasjóður sjálfur að taka verðtryggð lán, sem verða endurlánuð ýmist verðtryggð og vaxtalaus eða óverðtryggð með vöxtum. Stjórn sjóðsins ákveður kjör á lánum þessum. -HH. FISKIÞING HEFST í DAG 38. fiskiþingið verður sett i dag kl. 14 i húsakynnum Fiskifélagsins, Höfnvið Ingólfsstræti. Á þinginu verður fjallað um störf Fiskifélagsins á liðnu starfsári, svo og starfsemina, sem fyrirhuguð er á næsta ári. Meðal máiaflokka, sem fyrir þinginu liggja, eru 1. Ástand og horfur í fiskveiðimálum, 2. Nýting fiskistofna, 3. Vinnsla sjávarafurða og markaðsöflun, 4. Sala á fiskiskipum og endurnýjun fiski- skipastólsins, 5. Viöhald hans með tiliiti til íslenzka skipaiðnaðarins, 6. Afkoma sjávarútvegsins með hliðsjón af hinni geigvænlegu verðbólgu, 7. Lánskjör og fjár- magnskostnaður, 8. Orkumál fiski- skipa og bræðsluverksmiðjanna, 9. Öryggismál sjómanna. Fleiri mál, sem varða hag sjávarútvegsins verða til meðferðar og umræðu. Sjávarútvegsráðherra, Kjartan Jóhannsson, ávarpar þingið á morgun. Erindi flytja Þorgeir Páls- son, prófessor, Hannes Hafstein, framkvstj., SFVÍ, Ceir Arnesen, for- stjóri Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins, og Jakob Jakobsson, fiskifræðingur. -BS. Verzlunarráð mót- mælir „skyndiað- gerðum” „Gáleysi í útlánum fyrstu 9—10 mánuði ársins og harkalegar sam- dráttaraðgerðir á siðustu vikum ársins til aðlagastöðu bankakerfisins um áramót veröur að teljast afar óeðlilegt aðhald í útlánum,” segir Verzlunarráð um síðasta „útlána- stoppið”. „Aðhaldvið slikar aðstæður ætti að véra jafnt og stöðugt og gefur ekki tilefni til slíkra skyndiaÖgerða. Frá áramótum hafa almenn útián aukizt um tæp 56 prósent. Það gefur þvi augaleið, að skyndilegur niður- skurður lána um 13 milljarða, sem samsvarar 10 prósent af lánum at- vinnulifsins, annarra en endur- keyptra lána Seðlabankans, hlýtur að skapa gifurlega erfiðleika,” segir ráðið og telur rekstrarfjárskortinn á ábyrgð rikisstjórnarinnar. -H H. NESn vRBIiðaár i leiðmni úr BREIÐHOLTI ogvestur MIKLUBRA UT

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.