Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 40

Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 40
Þannig hyggjast sjálfstæðismenn fara að: 20 M1LUARÐA NIÐUR- SKURÐURÁ SKÖTTUM VINSTRISTJÓRNAR —tekjuskattur og vömgjaldshækkun afnumin Sjálfstæðisflokkurinn hyggst draga úr skattheimtu alls konar með því að fella niður tekjustofna, sem vinstri stjórnin kom á fót eða nýtti i ríkara mæli en áður var gert. Þetta er liður i 35 milljarða króna lækkun fjárlaga, sem flokkurinn heitir að beita sér fyrir og framkvæma. Rúmlega 21 milljarð króna í skatt- heimtu í fjárlögum 1980 ætlar Sjálf- stæðisflokkurinn að fella niður með því að afnema eftirfarandi: 1. Nýbyggingargjald (400 milljónir). 2. Skatta á verzlunar- og skrifstofu- húsnæði (1.300 milljónir). 3. Tekjuskattar einstaklinga, 2.700 milljónir. 4. Tekjuskattur félaga: 5.300 milljón- ir. 5. Eignaskattur einstaklinga: 900 milljónir. 6. Eignaskattur félaga: 1.800 millj- ónir. 7. Flugvallargjald: öOOmilljónir. 8. Verðjöfnunargjald á raforku: 900 milljónir. 9. Vörugjald: 5.600 milljónir. 10. Gjöld á ferðalög til útlanda, gjaldeyrir á sérstöku ferðamanna- gengi: 1.900 milljónir. Samtals eru þetta 21.400 milljónir króna. í sambandi við síðasta liðinn er stefna flokksins að gefa ferðamanna- gjaldeyri frjálsan og leyfa öllum bönkum að verzla með gjaldeyri. Til að mæta niðurfellingu ofan- greindra tekna fyrir ríkissjóð verður dregið úr útgjöldum með ýmsum hætti, sem síðar verður gerð nánari grein fyrir. Stefnumál er að niður- greiðslur verði lækkaðar, dregið verði úr ríkisumsvifum og sjálfvirkni framlaga samkvæmt fjárlögum verði afnumin. ,,Nema þarf úr gildi í heild sinni, lög vinstri stjórnarinnar um stjórn efnahagsmála,” sagði Geir Hallgrímsson, er hann kynnti stefnu Sjálfstæðisflokksins fyrir helgina. - B& Skelveiöi og vinnsla í óleyfi í Grundarfirði: Ólafur Jóh.íóvæntri heimsókn á ritstjóm DB: „Þið hafið gert blaðamennskuna opnari. Hin blöðin drattast á eftir,” sagði Ólafur Jóhannesson fyrrum forsætisráðherra þegar hann birtist í heimsókn á ritstjórn Dagblaðsins í morgun. Jónas Kristjánsson ritstjóri gekk með Ólafi um húsakynni ritstjórnar og afhenti honum að skilnaði traust- an ferðaáttavita að gjöf. Áttavitinn á að hjálpa Ólafi að rata um refilstigu stjórnmálanna. „Það er nauðsynlegt að þekkja áttirnar,” sagði Ólafur. „Ég fer í gufu á laugardagsmorgn- um. Þar er líká kompásasmiður borg- arinnar. Hann er vís til að líta á grip-- inn fyrir mig gerist þess þörf!” Ólafur Jóhannesson hefur heim- sótt marga vinnustaði að undanförnu og heldur því áfram næstu daga. „Maður heyrir alltaf eitthvað sem kemur að gagni. Ég hef gaman af því að hitta fólk.” -ARH „Það er alltafgotl að þekkja áttimar, ” sagði Ólafiirþegar hann tók við áttavitanum úr hendi ritstjóra Dagblaðsins. A ttavit- inn er I bandi og Ólafurgeturþví haft hann um hálsinn hvar sem hann er staddur á refilstigum stjórnmálanna. DB-mynd Hörður. blöðin drattast áeftir BYÐ RAÐHERRA HEIMI KAFFl FARl f HART —segir framkvæmdastjórinn, sem óttast að báturinn verði stöðvaður Báturinn er á sjó i dag og verður næstu daga. Það er nóg að gera í vinnslunni, unnið úr svo sem 4 tonn- um á dag síðan við byrjuðum á fimmtudag,” sagði Soffanías Cecils- son, framkvæmdastjóri fiskv-rrkunar SC í Grundarfirði i viðtali DB í morgun. Fyrirtækið sem á bátinn Grund- firðing 2. hefur ekki veiðileyfi og er Soffanías var spurður hvort hann ótt- aðist ekki aðgerðir hins opinbera eins og liggur í loftinu, sagði hann: „Ef báturinn verður tekinn byrjum við bara aftur þegar honum verður sleppt, því siðferðilega eigum við all- nær horfin og hóf Soffanias aftur skelvinnslu sem allmargir hafa nú at- vinnu af. Soffanías var spurður hvað hann hygðist fyrir ef málið færi i hart af hálfu sjávarútvegsráðherra: „Þá býð ég honum heim upp á kaffi, það hefur oft gefið góða raun að ræða málin af hreinskilni yfir kaffibolla.” - GS < " -m. Það var mikið að snúast í skel- vinnslusal Fiskverkunar SC i Grund- arfirði um helgina. DB-mynd Bæring Cecilsson an rétt í þessu máli, lög sem mæla gegn því eru ólög,” sagði hann. Skel var unnin í Grundarfirði fyrir nokkrum árum en þar sem þá barst einnig mikill rækjuafli var horfið frá skelinni. Nú er rækjan hins vegar frjálst, úháð daghJað MÁNUDAGUR12. NÓV. 1979, Dagurá Akureyrí kvartar við útvarpsráð: Viljafá báða leið- arana lesna — flókið mál, segir útvarpsstjóri „Við getum tæplega skilið að leiðarar blaðsins séu svo sálarlega háskalegir að ekki megi lesa þá yfir landslýð. Það er fullkomlega eðlilegt að báðir leiðarar vikunnar séu lesnir í útvarpi,” sagði Valur Amþórsson, for- maður blaðstjórnar blaðsins Dags á Akureyri. Dagur kemur út reglulega tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum. Á mánudagsmorgnum er lesið úr þriðjudagsleiðara Dags i útvarpinu, en fimmtudagsleiðarinn fær ekki inni i út- varpinu. Aðstandendur Dags hafa sent útvarpsráði kvörtunarbréf. Þeir vilja báða leiðara lesna. „Við höfum ekki einu sinni verið virtir svars. Það þykir kannski skipta litlu máli hvort okkur, sem búum norður við íshaf, er svarað eða ekki!” sagði Valur Arnþórsson. „Okkur finnst broslegt að útvarpið skuli ekki sjá sóma sinn í að láta Dag njóta rétt- lætis. Spurningin er bara sú, þurfum við að gefa út 3 blöð í viku til að hljóta náð fyrir augum útvarpsmanna, eða 4, 5, 6 blöð í viku? Hvar eru mörkin?” „Ég kom erindi norðanmanna á framfæri við útvarpsráð,” sagði Andrés Björnsson, útvarpsstjóri. „Það verða engar breytingar gerðar á leiðara- lestrinum að minnsta kosti fram yfir kosningar. Þetta er allflókið mál sem þarf að skoða og endanlegur úrskurður bíður sins tíma.” -ARH. HomstaðiríDölum: Allt féð skorið ámorgun — sauðfjárveikivama- nefnd óttast riðuveiki þar Sauðfjárveikivarnanefnd hefur nú tekið þá ákvörðun að allt fé á bænum Hornstöðum í Laxárdalshreppi í Döl- um skuli skorið niður á morgun, alls á annað hundrað fjár. Riðuveiki fannst í tveim kindum frá bænum í fyrravetur og var þeim lógað að Keldum. Að sögn fréttaritara DB í Búðardal, Önnu Flosadóttur, kemur þessi ákvörðun heimamönnum spánskt fyrir sjónir þar sem ekkert ber á þessari veiki í fjárstofninum nú. Einnig undrast menn hvernig smit hefur borizt í kind- urnar tvær, þar sem fé frá Hornstöðum blandast ekki öðru fé, heldur gengur ávallt innan girðingar. - GS

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.