Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 22
22 I Iþróttir Iþróttir DAGBLADID. MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1979. Iþróttir Iþróttir 8 Leikmenn Forest voru eins og trjádrumbar gegn Southampton — Dýrlingarnir höfðu tögl og hagldir og sigruðu 4-1. Uverpool komið í 2. sætið eftir stórsigur á Brighton. Evrópumcistarar Nottingham Forest fengu heldur betur útreið á The Dell í Southampton á laugardaginn er þeir sóttu Dýrlingana heim. Southampton hafði tapað fjórum síðustu leikjum sínum í 1. deildinni og hrapaði við það úr 3. sæti niður í það 13. Það var því kominn tími til að liðið hristi slenið af sér og það var gert svo um munaði. Allt frá fyrstu mínútu til hinnar siðustu vissu leikmenn Forest vart hvaðan á sig stóð veðrið, og leik- menn Southampton léku á als oddi. Miðvörðurinn sterki Dave Watson, kom Dýrlingunum á bragðið með góðu skallamarki eftir fyrirgjöf Holmes á 27. mínútu. Fyrsta mark hans fyrir Southampton. Leikmenn Forest voru enn að komast yfir áfallið þegar Mike Channon bætti öðru marki við aðeins þremur mínútum síðar. Framlínumenn Southampton voru með öllu óstöðv- andi og áhorfendur voru heldur betur með á nótunum. Auk markanna fékk Southampton ein þrjú mjög góð mark- tækifæri en tókst ekki að bæta við mörkuirfv. rhálfleik. Gary Birtles skoraði eina mark Forest i leiknum á 56. mínútu og breytti þá stöðunni í 2—1. Phil Boyer, sem er nú markahæstur i 1. deildinni, var þó ekki lengi að svara fyrir Dýrlingana og eftir aðeins tvær mín. var munurinn aftur orðinn 2 mörk, 3— 1 Það var svo Boyer sem átti lokaorðið i leiknum er hann bætti fjórða marki Southampton við. Liðið hoppaði upp um þrjú sæti á töflunni við þennan góða sigur en Forest hefur ekki fengið jafnmörg mörk á sig frá því liðið komst aftur í 1. deildina haustið 1977. Forest hefur ekki unnið nema einn leik á úti- velli i 1. deildinni í vetur og gengi liðsins er mun skrykkjóttara en t.d. i fyrra og árið þar á undan. Meistarataktar Liverpool Þótt Evrópumeistarar Forest hafi hlotið slæman skell létu Englands- meistarar Liverpool engan bilbug á sér finna. Þeir heimsóttu Brighton á Gold- stone Ground í Hove og fóru heim með bæði stigin og fjögur mörk í poka- horninu. Aðeins eitt mark var skorað í fyrri hálfleiknum og var þar að verki Ray Kennedy. Brighton átti lítið minna í leiknum og þeir Ryan og Peter Ward áttu sæmileg færi. Brighton virtist síðan vera að koma meira inn í myndina í byrjun siðari hálfleiksins en þá skoraði Liverpool skyndilega tvö mörk á aðeins þremur mínútum. Fyrst Kenny Dalglish og þá David Johnson. Við þessa orrahríð var allur máttur úr nýliðunum og þótt Ray Clarke skoraði skömmu síðar — hans fyrsta mark fyrir Brighton — var sigur Liverpool aldrei í hættu. Þegar um 15 min. voru til leiksloka bætti Dalglish fjórða marki Liverpool við — hans 6. mark i þremur leikjum — og stórsigur meistaranna var í höfn. Þrátt fyrir mörkin fjögur sköpuðu leikmenn Liverpool sér næg færi til að tvöfalda þá tölu. Ekkert markanna hafði neinn „klassa”-stimpil yfir sér en eins og íslenzkir sjónvarpsáhorfendur hafa séð sl. tvo laugardaga leikur Liverpool- liðið þessar vikurnar eins og vel smurð vél. Varnir andstæðinganna eru skildar eftir í sárum eftir snilldarlega vel út- færðar sóknarlotur. Liverpool hefur nú skorað 11 mörk í síðustu þremur leikjum sínum en Brighton hefur aftur á móti fengið 11 mörk á sig i jafn- mörgum leikjum. Framherjarnir allt of smáir Topplið deildarinnar, Manchester United, mátti þola tap gegn ná- grönnum sínum, City, á Maine Road að viðstöddum 50.000 áhorfendum. United-liðið sem frægt hefur verið fyrir sóknarleik sinn hefur ekki gert mikið af mörkum i vetur og svipað var uppi á teningnum á Maine Road. Framherjar liösins þeir Lou Macari og Steve Coppell eru ákaflega smávaxnir báðir tveir og sóknarleikur liðsins virðist líða fyrir það. Markalaust var í fyrri hálf- leiknum en á 54. mínútu tók City verð- skuldaða forystu er Tony Henry Phil Boyer skoraði tvö marka Southampton og er nú markahæstur í l.deild. skoraði. Við markið færðist mikið kapp í leikmenn City og langtímum saman fór leikurinn fram á vallar- helmingi United, sem átti þó af og til meinlitlar sóknarlotur. Þegar 16 mín. lifðu af leiktímanum skoraði Mick Robinson fallegt mark með heljarmiklu skoti og sigurinn var gulltryggður. United átti sárafá mark- tækifæri er heitið gátu því nafni og aðeins frábær markvarzla hins unga Gary Bailey kom í veg fyrir stærra tap. Malcolm Allison gjörbylti liði sínu frá tapleikjunum gegn C. Palace og . Liverpool. Futcher, Reed, Silkman og McKenzie misstu stöður sínar í liðinu en inn komu leikmennirnir kunnu Deyna, Booth og Donachie auk þess sem Henry var valinn i framlínuna. Þá voru stöðubreytingar og þessar tilraunir Allison heppnuðust — Man. City lék mun betur en í síðustu leikjum. Meiðslahalinn hjá forustuUðinu verður stöðugt alvarlegri. Þeir Gordon McQueenn og Arthur Albiston gátu ekki leikið vegna meiðsla og Joe Jordan og Jimmy Greenhoff eru enn fjarri góðu gamni. Þeir léku þó með varaliði United á laugardag svo það fer nú að styttast í að þeir leiki með aðal- liðinu á ný. Mesta áfallið er meiðsli McQueen — Moran varamaður hans hefur engan veginn fyllt miðvarðar- stöðuna með Buchan. Þrátt fyrir tapið heldur United forystu sinni í deildinni en Liverpool hefur nú tapað fæstum "'stigum. Rétt er að líta á úrslit helgar- innar áður en lengra er haldið. 1. deild. Brighton-Liverpool 1—4 Bristol City-Derby 0—2 Coventry-Leeds Utd. 3—0 Crystal Pal.-Arsenal 1—0 Everton-Middlesbro 0—2 Ipswich-Aston Villa 0-0 Manc. City-Manch. Utd. 2—0 Southampton-Nottm. Forest 4—1 Stoke-Wolves 0—1 Tottenham-Bolton 2—0 WBA-Norwich 2—1 2. deild Charlton-Oldham 2—1 Birmingham-Cambridge I—0 Fulham-West Ham 1—2 Leicester-Burnley 1 — 1 Luton-QPR 1 — 1 Newcastle-Cardiff 1—0 Notts. Co.-Preston 2—1 Orient-Chelsea 3—7 Shrewsbury-Watford 1—0 Swansea-Sunderland 3—1 Wrexham-Bristol Rovers 1—2 3. deild Southend-Grimsby 1—0 Bamsley-Exeter 2—2 Blackburn-Chesterfield frestað Blackpool-Sheffield W. 1 — 1 Brentford-Colchester 1—0 Bury-Millwall 3-0 Mansfield-Swindon 1 — 1 Dave Watson skoraði fyrsta mark sitt fyrir Dýrlingana gegn Forest á laugar- dag. Oxford-Chester 0—1 Plymouth-Carlisle 4—2 Reading-Hull 3—0 Sheffield U.-Gillingham 4—0 Wimbledon-Rotherham 0—1 4. deiid Doncaster-Peterborough 2—1 Rochdale-Aldershot frestað Tranmere-Wigan frestað Bradford C.-Huddersfield 0—0 Darlington-Northampton 0—0 Halifax-Port Vale 0—0 Hartlepool-Hereford 3—0 Lincoln-Bournemouth 1—1 Newport-Crewe 1—1 Scunthorpe-Stockport 1—1 Walsall-Portsmouth 1—1 Torquay—York City 4—3 Tottenham í stuði Tottenham lék um helgina sinn níunda leik í röð án taps og liðið er nú komið í 5. sæti deildarinnar eftir öruggan sigur á lánlausu liði Bolton, sem virðist dæmt í 2. deild. Terry Yorath, sem áður lék með Coventry og þar á undan með Leeds, skoraði fyrra markið og var það að sögn fréttamanna BBC gullfallegt. Tottenham hafði mikla yfirburði úti á vellinum en tókst ekki að bæta við marki fyrr en undir lokin. Þegar aðeins tvær mínútur voru til leiksloka var Don McAlister brugðið innan vitateigs og Glen Hoddle skoraði úr vítaspyrnunni af miklu öryggi. Argentínumennirnir Ardiles og Villa áttu báðir stórleik með Tottenham og Hoddle leikur nú betur en nokkru sinni og alger bylting hefur orðið á leik liðsins frá því snemma í haust. Þetta var 12 leikur Bolton í röð án sigurs í deildinni ög heldur er farið að syrta í álinn hjá þessu fornfræga félagi. Gæðin aukast með árunum West Bromwich Albion tókst að vinna sigur á Norwich þrátt fyrir að Anglíuliðið tæki forystuna strax í sinni fyrstu almennilegu sókn á 5. minútu. Kevin Reeves sendi þá langa sendingu innfyrir vörn Albion og þar var gamla kempan Martin Peters mætt og skoraði af öryggi með skalla. John Wile tókst að jafna metin fyrir hálfleik með skalla eftir homspyrnu og Albion sótti stíft allan fyrri hálfleikinn. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálf- leiknum og sókn WBA var linnulítil. Hvorki gekk þó né rak fyrr en Bryan Robson skoraði með miklum þrumufleyg af um 25 metra færi. Rétt á eftir átti hann mjög svipað skot en í það skiptið sá Kevin Keegan við honum, en hann lék sinn 666. leik fyrir Norwich á laugardag. „Það er eins með þá Martin Peters og Kevin Keelan, að þeir virðast batna með árunum rétt eins og góð vín,” sagði fréttamaður BBC. Peters átti góðan leik með Norwich þrátt fyrir að yfirferð hans væri ekki alltaf mikil. Mick Channon er nú aftur hjá sínu gamla félagi og hann skoraði annað mark Southampton. Aðrir leikir Crystal Palace er enn á meðal toppliðanna eftir hálfgerðan heppnis- sigur á Arsenal á Selhurst Park. Eina mark leiksins „skoraði” Jim Cannon mínútu fyrir leikhlé. Markið var ákaf- lega klúðurslegt því Peter Nicholas skaut að marki og engin hætta virtist vera á ferðum. Knötturinn stendi langt framhjá markinu er hann fór i Cannon og snarbreytti stefnu og sigldi í netið án þess að Pat Jennings í marki Arsenal gæti nokkrum vörnum við komið. Sannarlega slysalegt en stigin tvö eru jafngild eftir sem áður. Derby vann sinn fyrsta útisigur á keppnistímabilinu og það var Bristol City sem varð fómarlambið. Mörk frá þeim Vic Moreland og John Duncan færðu Derby þessi kærkomnu stig og liðið er nú í 19. sæti deildarinnar. Einhverjir kynnu e.t.v. að muna eftir Vic þessum Morland því hann lék með írska liðinu Glentoran gegn Eyja- mönnum í UEFA-keppninni á Kópa- vogsvellinum fyrir rúmu ári síðan. Leeds sekkur æ dýpra og dýpra og hlaut ljótan skell á Highfield Road i Coventry á laugardag. Leeds er nú í 18. sæti deildarinnar og hefur ekki verið svo neðarlega sl. 15 ár. Liðið virðist gersamlega heillum horfið og þeir Mick Ferguson sem skoraði tvö mörk og Ian Wallace sáu fyrir sigri Coventry að þessu sinni. Coventry hefur prýðis- árangur á heimavelli og hefur aðeins tapað einu stigi þar, en árangurinn á útivelli er ekki beint til að hrópa húrra fyrir. Everton er aðeins einu sæti ofar en Leeds og mátti enn einu sinni þola tap á heimavelli — nú fyrir Middlesbrough. Það var Ástralíumaðurinn Craig Johnston, sem skoraði bæði mörk Boro að þessu sinni og liðið er um miðja deild. Gordon Lee gengur illa að tengja stórstjömur sínar saman og Everton er dæmigert fyrir lið, sem hefur á að skipa stórstjömum í hverri stöðu en getur samt ekki neitt. Ipswich er enn í fallsæti þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn Aston Villa á Portman Road. Villa lék á laugardag sinn 8. leik í röð án taps og hlutirnir eru heldur að færast í fyrra horfþótt enn eigi liðið langt í að teljast topplið. Tvær af skærustu stjömum félagsins, þeir Andy Gray og John Gidman, hafa verið seldar til annarra félaga og ungu mennirnir í liðinu hafa enn ekki náð að fylla skörð þeirra fullkomlega. Stoke tapaði á heimavelli fyrir Úlfunum i þrautleiðinlegum leik. Úlfarnir skoruðu eina mark leiksins í fyrri hálfleik og var þar að verki Kenny Hibbitt- á 30. mínútu. í síðari hálfieiknum sótti Stoke án afláts og lokakaflann gerðu framherjar liðsins harða hríð að marki Úlfanna án árangurs. E.t.v. ekki að furða þar sem miðherjarnir Andy Gray og John Richards voru komnir í vörnina og léku stöðu miðvarðar. Markaregn á Brisbane Road Áhorfendur á leikveUi Orient, Brisbane Road, fengu heldur betur eitthvað fyrir aurana sína er Chelsea kom í heimsókn. Eftir skamma stund var staðan orðin 3—0 Chelsea í hag og þannig stóð í hálfleik. Mörkunum hélt áfram að rigna niður og Chelsea komst um tima í 6—1. Orient rétti hlut sinn aðeins lokakaflann og úrslitin urðu 3— 7 Chelsea í hag. Táningurinn Lee Frost skoraði þrennu fyrir Chelsea, Clive Walker gerði tvö mörk og þeir Fillery og Britton eitt hvor. Billy Jennings, fyrrum Watford og West Ham leik- maður, skoraði tvö marka Orient. Luton heldur enn forystunni í deildinni eftir jafntefli á heimaveUi gegn strákunum hans Docherty. Það var miðvörðurinn Saxby sem kom Luton yfir þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleiknum en Clive AUen jafnaði fyrir QPR á 64. mínútu. Eftir það sótti QPR án afláts en tókst ekki að tryggja sér sigurinn. Jafntefli sanngjörn úrsUt. Alan Shoulder skoraði mark Newcastle gegn Cardiff og Newcastle er nú í 2. sætinu. Birmingham hefur læðst upp töfluna að undanförnu og er nú i 3. sæti eftir að hafa unnið Cambridge naumlega á St. Andrews. West Ham er einnig er á uppleið og mörk frá David Cross og Ray Stewart tryggðu sigurinn gegn Fulham. Davies skoraði fyrir Fulham. Alan Brown kom Sunderland í 1 —0 strax á 1. mínútu gegn Swansea en velska liðinu tókst að skora þrivegis áður en yfir lauk og næla sér í tvö stig. Þeir Attley Stevenson og James skoruðu mörkin. Wrexham gekk ekki eins vel og þrátt fyrir að Dixie McNeil skoraði eina mark fyrri hálfleiksins úr vítaspyrnu dugði það ekki til. Bater og White skoruðu fyrir Bristol Rovers í síðari hálfleiknum og liðið vann sinn fyrsta útisigur á keppnistímabilinu. l.deild Manch. Utd. 15 8 4 3 19- -10 20 Liverpool 14 7 5 2 30- -11 19 Nottm. Ford. 15 8 3 4 26—17 19 Crystal Pal. 15 6 7 2 22- -14 19 Tottenham 15 7 4 4 20—23 18 Wolves 14 7 3 4 19- -16 17 Norwich 15 6 4 5 26—20 16 Arsenal 15 5 6 4 16- -11 16 Middlesbr. 15 6 4 5 14- -10 16 Southampton 15 6 3 6 26- -22 15 WBA 15 5 5 5 23- -19 15 Aston Villa 14 4 7 3 14- -13 15 Coventry 15 7 1 7 24—29 15 Manch. City 15 6 3 6 15- -21 15 Bristol City 15 4 6 5 14—17 14 StokeCity 15 4 5 6 19- -23 13 Everton 14 3 6 5 16- -20 12 LeedsUtd. 14 3 6 5 15- -19 12 Derby Co. 15 5 2 8 15- -21 12 Ipswich Town 15 4 2 9 12- -21 10 Bolton W. 15 1 7 7 12- -26 9 Brighton 14 2 3 8 15- -29 7 2. deild Luton Town 15 8 5 2 28- -14 21 Newcastle 15 8 4 3 19- -12 20 Birmingham 15 8 4 3 20- -14 20 QPR 15 8 3 4 28- -14 19 Leicester 15 7 5 3 28- -20 19 Notts. County 15 7 4 4 23- -15 18 Swansea 15 7 4 4 19- -17 18 Chelsea 14 8 1 5 21- -16 17 Wrexham 15 8 1 6 19- -17 17 Preston 15 4 8 3 19- -16 16 West Ham 14 7 2 5 14- -14 16 Sunderland 15 6 3 6 19- -17 15 Cardiff 15 6 3 6 17- -20 15 Oldham 15 4 6 5 17- -17 14 Orient 15 4 5 6 18- -25 13 Charlton 15 3 6 6 17- -26 12 Shrewsbury 15 4 3 8 17- -22 11 Bristol Rov. 15 4 3 8 21- -27 11 Cambridge 15 2 6 7 14—19 10 Watford 15 3 4 8 12- -20 10 Fulham 15 4 3 9 20—31 10 Bumley 15 0 6 9 15- -32 6 -SSv.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.