Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Blaðsíða 96
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
SVEINBJÖRN EGILSSON
OG CARL CHRISTIAN RAFN
Telja verður víst, að þeir Sveinbjörn Egilsson og Carl Christian Rafn hafi kynnzt
að nokkru á námsárum Sveinbjarnar í Kaupmannahöfn (1814-19). Sveinbjörn var
félagi í Hafnardeild Hins íslenzka bókmenntafélags og vann á vegum þess m. a. að
útgáfu Sturlungu, en hún var prentuð í Kaupmannahöfn í fjórum bindum 1817, 1818
og 1820.
Carl Christian Rafn var kosinn félagi Hafnardeildar bókmenntafélagsins 30. marz
1818, og segir svo frá því í Samkomubók deildarinnar þennan dag:1 „Lieutenant
Rafn cand. jur. var fyrirsleginn [o: borinn upp] áður af stud. Gunnlaugi Oddssyni
með 20 rbdla s. v. [o: silfurverðs] árlegu tillagi til að verða félagsins meðlimur; var
því næst safnað atkvæðum um, í hverja röð lima hann koma skyldi, og vildi þá at-
kvæðafjöldi, að hann verði þess orðulegur limur, hvartil hann þannig er valinn. Frá
honum var og framlagt bréf til félagsins, hvarí hann æskir það seti nefnd manna
til að yfirvega, hvörnig almennt bókasafn verði bezt stiftað á íslandi, með fylgjandi
lista yfir ýmsar bækur, er nokkrir þegar vilja gefa til þessa augnamiðs. Félagið á-
lyktaði, að honum skyldi látast í ljósi þess þakklæti og undir eins tilkynnast, að hér
um skyldi skrifað verða til deildarinnar á íslandi.“
Sveinbjörn hefur að öllum líkindum setið þennan fund og þannig orðið vitni að
viðburði, er varð um það er lauk mjög afdrifaríkur: Fyrrnefnd tillaga Rafns leiddi,
sem kunnugt er, til stofnunar Stiftisbókasafns íslands, og af þeim kynnum, sem þarna
tókust með Rafni og íslendingum, spratt síðar samvinna hans og þeirra um útgáfu
íslenzkra fornrita og annarra verka, flestra í tengslum við þau. Óvæntur atburður
olli því, að Sveinbjörn Egilsson tók mjög snemma virkari þátt í þessu útgáfustarfi
en ráð mun hafa verið fyrir gert í upphafi.
í æviágripi Rafns eftir Benedikt Gröndal fremst í útgáfu hans á bréfum frá og til
Rafns (Breve fra og til Carl Christian Rafn, Kbh. 1869) er vitnað til nokkurra kafla
úr áætlunar- eða fundargerð með hendi Rafns, en dr. Gísli Brynjólfsson hefur skrifað
nafn sitt undir þá auk Rafns.
1 Jón Jacobson: Landsbókasafn Islands 1818-1918. Minningarrit, Reykjavík 1920, 10. bls.