Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1974, Page 9
LANDSBÓKASAFNIÐ 1973 9
Frú Anna Aradóttir, ekkja Stefáns Jónssonar rithöfundar, færði safninu að gjöf
handrit ýmissa verka hans.
Kvæðasyrpur Haralds Ólafssonar Briem, bónda á Búlandsnesi, áður Rannveigar-
stöðum. Gjöf Þrúðar E. Briem kennara í Kópavogi, sonardóttur skáldsins. Aðalsteinn
Gíslason kennari í Kópavogi afhenti.
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, er lézt 6. 4. 1973, gaf síðustu eiginhandarrit Einars
Benediktssonar skálds o. fl.
Þóroddur Guðmundsson rithöfundur afhenti ljósrit af ýmsum verkum Guttorms J.
Guttormssonar skálds.
Þór Magnússon þjóðminjavörður gaf brot (tvö blöð) úr Bertholds sögu, komið frá
Birni G. Bergmann í Svarðbæli í Miðfirði. Þór færði safninu einnig Tólfsonakvæði og
niðurlag Vinaspegils með ungri hendi.
Bragi Jónsson skáld í Hoftúnum færði safninu að gjöf ýmsa þætti, er hann hafði
tekið saman, og hafa sumir þeirra verið prentaðir. Bragi afhenti einnig bréf systur
sinnar, Margrétar skáldkonu, til föður þeirra, Jóns G. Sigurðssonar í Hofgörðum
í Staðarsveit.
Þá barst safninu um hendur Braga „Sagan af Árna á Klömbrum“, skáldsaga eftir
Jón Guðmundsson. Gjöf dóttur hans, Herdísar Jónsdóttur ljóðmóður í Hveragerði.
Birna Oddsdóttir afhenti nokkur gögn úr fórum föður síns, Odds Björnssonar af
Akranesi (d. 14. des. 1972).
Kristján Kristjánsson sjómaður á Sandi og í Keflavík vestra (1843-1918): Dagbæk-
ur 1871-99 og 1906—1914 (auk rímna o. fl.) Tvær bækur. — Hlutartölubók 1860-1914.
-Minnisbók 1877-1918. - Fjögur rímna- og kvæðakver. - Gjöf bróðursonar Kristjáns,
Sigurðar Andréssonar skipstjóra í Reykjavík, sem lét tvö rímnakver fylgja.
Dýrafjörður, kvæði tileinkað Ungmennafélagi Mýrahrepps og Gyðu 120 eftir Sig-
trygg Guðlaugsson og með skýringum hans. Gjöf Jóhannesar Davíðssonar Neðri
Hjarðardal í Dýrafirði.
Benedikt Jóhannesson og Sigurður Helgason, nemendur Menntaskólans í Reykjavík,
afhentu nokkur gögn „Framtíðarinnar“, nemendafélags skólans, frá síðustu árum.
Sigurður Thoroddsen verkfræðingur gaf þrjú kver, komin úr fórum Jóns Árnasonar
(Vasakver. - Annað kver „Hitt og þetta“. - Kvæðakver), auk smátínings. Þá gaf Sig-
urður og eitt bréf Tómasar Guðmundssonar til Theodóru Thoroddsen, móður gefanda,
dags. 12. 2. 1934. Loks færði Sigurður safninu Ijósrit tveggja gamalla gagna, kom-
inna úr fórum afa hans, Jóns Thoroddsens skálds.
Félagaskrá og reikningsgögn „Félags friðarvina“ 1937—1940. Norræna félagið af-
henti með bréfi 27. ágúst 1973.
Grétar Eiríksson tæknifræðingur gaf um hendur Haralds Sigurðssonar bókavarðar
tvær vísur Tómasar Guðmundssonar í eiginhandarriti skáldsins.
Vignir Guðmundsson blaðamaður gaf sautján sendibréf Jóns Mýrdals skálds. Voru
sextán bréfanna til Guðrúnar Jóhannsdóttur, dótturdóttur Jóns, en eitt til Jóhanns
Einarssonar.