Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1974, Blaðsíða 10
10
LANDSBÓKASAFNIÐ 1973
Davíð Björnsson, fyrrv. bóksali í Winnipeg, hefur undanfarin ár sent Landsbóka-
safni að gjöf ýmis handrit, er hann hefur skrifað og á eru endurminningar hans, frá-
sagnir, kvæði o. fl. Þá hefur hann jafnframt sent myndabækur og blaðaúrklippur með
margs konar fróðleik um Islendinga vestan hafs.
„Tungufellsmenn í Svarfaðardal“ eftir Björn R. Arnason. Tvær stílabækur, gjöf
Sveinhjarnar Jónssonar, forstjóra Ofnasmiðjunnar.
„Saga af Eyjúlfi illa“ m. h. Sigfúsar þjóðsagnaritara. Gjöf Benedikts S. Benedikz
bókavarðar í Leeds. En honum gaf faðir hans, Eiríkur Benedikz, sem liafði fengið
handritið að gjöf frá Benedikt S. Þórarinssyni föður sínum, er þegið hafði það af
Sigfúsi sjálfum.
Afmælis- og minningargreinar um sr. Jakob Kristinsson. Blaðaúrklippur o. fl. smá-
vegis. Fríða S. Hallgrímsdóttir og Ingvar Brynjólfsson menntaskólakennari afhentu.
Pöntunarfélag Eskfirðinga 40 ára. Vélrit. Höfundurinn, Einar Bragi, gaf. Hann
færði safninu einnig frumdrög og handrit að verki sínu, Sumardögum í Suðursveit.
Jóhann Gunnar Olafsson fyrrv. bæjarfógeti gaf Revíuvísur eftir Guðmund Guð-
mundsson skólaskáld í eiginhandarriti hans.
Málfríður Einarsdóttir gaf „Gilsbakkaþulu“ í vélriti, en þulan er þar eins og föður-
systur Málfríðar, Margrét og Anna Hjálmsdætur í Þingnesi, kenndu henni hana.
Bréf til Hólmgeirs Þorsteinssonar í Vallakoti í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu frá
Benedikt Jónssyni á Auðnum (48 bréf og nótur). Gjöf Þorsteins Glúmssonar í Valla-
koti, sonarsonur Hólmgeirs, um hendur Sveins Skorra Höskuldssonar prófessors.
„Tilgangur í lífinu“. Sögur eftir Jón frá Pálmholti. Vélrit. Gjöf höfundar.
Bjarni Guðjónsson forstjóri í Reykjavík gaf kver m. h. Gísla Konráðssonar og Run-
ólfs Magnússonar Olsens. Á kverinu er 1) ætt JónS Ásgeirssonar jarðyrkjusveins 1857,
2) föðurætt Ingunnar Jónsdóttur, 3) móðurætt hennar, 4) Þingeyra ábótar og klaust-
urhaldarar.
Aðalgeir Friðbjarnarson frá Landamótsseli: Ljóðmæli, skólauppskriftir, einkaskjöl
o. fl. Gjöf Höskulds Einarssonar frá Vatnshorni um hendur Aðalgeirs Kristjánssonar
skjalavarðar.
„Úr fórum Odds í Þúfu“. Gjöf Sigríðar Hjartardóttur kennara og Haralds Guðna-
sonar bókavarðar í Vestmannaeyjum. Er hér um að ræða kvæðakver m. h. Odds Er-
lendssonar í Þúfu í Landssveit, afa Sigríðar, en langafa Haralds.
Baldur Baldursson prentari gaf m. a. „Árna sögu biskups“ eftir Bjarna Jónsson
kennara og meðhjálpara í Reykjavík, og vantar niðurlag sögunnar.
Myndamappa með ljósmyndum, er Englendingurinn J. W. IJowell tók á ferðum sín-
um um ísland. Howell gekk á Öræfajökul 1891, og 1899 fór hann yfir Langjökul.
Hann drukknaði í Héraðsvötnum 3. júlí 1901. Mappan er hingað komin frá sendiráði
íslands í London, er þegið hafði hana að gjöf frá F. E. Warbreck Howell, Ivybrigde,
Devon.
Handrit Kalevalaþýðingar Karls ísfelds. Gjöf Einars sonar hans.
Frú Sigrún Guðmundsdóttir, ekkja Kjartans Ólafssonar, fyrrum bæjarráðsmanns í