Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1974, Side 14
14 LANDSBÓKASAFNIÐ 1973
AÐSÓKN Hér fer á eftir skýrsla um notkun bóka og handrita, um lesenda-
fjölda, útlán og tölu lántakenda:
000 .......................................... 8.014 bindi
100 ............................................ 385 -
200 ............................................ 418 -
300 .......................................... 1.923 -
400 ............................................ 578 -
500 .......................................... 1.013 -
600 ............................................ 524 -
700 ............................................ 481 -
800 .......................................... 2.506 -
900 .......................................... 2.797 -
Samtals 18.639 bindi
Handrit 3.816
Lesendur 13.527
Útlán (bóka og handrita) 1.305
Lántakendur 217
NORRÆNN Deild bókavarða í rannsóknarbókasöfnum stóð fyrir umræðu-
BOKAVARÐA- fundi í Reykjavík á vegum Norræna rannsóknarbókavarðasam-
REYKJAVÍK bandsins (Nordisk videnskabeligt bibliotekarforbund) dagana 8.
-13. október. Deildin befur verið aðili að norræna sambandinu
síðan 1966, og er þetta fyrsti fundur á vegum þess, er haldinn er hér á landi. Þátttak-
endur voru alls 21, 5 frá Noregi, en 4 frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Islandi,
hverju um sig.
Fundurinn var settur á Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 9. október, og flutti Magnús
Torfi Olafsson menntamálaráðherra þar ávarp, en að því búnu hélt Björn Sigfússon
háskólabókavörður erindi, er nefndist Tilvera íslenzkra rannsókna og staða Islands
sem norræns ríkis. Nokkrar umræður urðu um erindi Björns, og svöruðu hann og
íslenzku þátttakendurnir ýmsum spurningum, sem fram voru bornar um aðstæður hér
á landi og framtíðarhorfur.
Aðalumræðuefni fundarins voru prentskil og margvísleg vandamál, sem þeim eru
tengd. Menn voru á einu máli um, að tilgangur prentskila væri 1) að tryggja varð-
veizlu alls prentaðs efnis í hverju landi um sig, 2) að sjá til þess, að unnt sé að gera
úr garði sem fyllsta skrá um umrætt efni, eða ákveðna hluta þess, og 3) að búa það í
í hendur mönnum, hvort heldur væri vegna rannsókna, opinberrar stjórnsýslu eða
annarra réttmætra þarfa.