Vísir - 28.02.1974, Qupperneq 16
Nýr miðbœr í Kringlumýrmni:
FRAMKVÆMDIR HEFJAST
í SUMAR
Framkvæmdir vegna
nýja miðbæjarins á
Kringlumýrarsvæðinu
hefjast i vor eða sum-
ar.
„Það er stefnt að þvi,
að framkvæmdir hefj-
ist i sumar, fram-
kvæmdir við gerð
gróðurreita, götur og
holræsi,” sagði Jón
Kristjánsson, skrif-
stofustjóri borgarverk-
fræðings, er Visir innti
hann i gær eftir
byggingarmálum
miðbæjarins nýja.
„Þaö er hins vegar ekki ljóst
ennþá, hverjir eða hvaða aðilar
og fyrirtæki muni núna geta
gengið inn i hvers konar fram-
kvæmdaáætlun,” sagði Jón,
„þess vegna hefur endanleg
ákvörðun um framkvæmdir
ekki enn verið tekin.”
Sagði Jón, að sennilega yrði
fljótlega auglýst eftir fyrirtækj-
um með ákveðna starfsemi,
sem gætu hafið framkvæmdir
við byggingar i sumar.
Vitað er um ýmsar stofnanir
og fyrirtæki, sem ætla sér að
byggja á Kringlumýrarsvæð-
inu, svo sem Borgarbókasafn,
Iðnó, Útvarpið, Kron og reyndar
marga aðila fleiri.
Jón Kristjánsson vildi að svo
stöddu ekki tjá sig neitt um fyr-
irhugaðar húsabyggingar — en
ljóst er, að endanleg ákvörðun
verður tekin á næstunni, og
sennilega verður „nýr miðbær”
risinn upp úr mýrinni fyrr en
menn varir. — GG
Loðnan:
Heildaraflinn 340.000 tonn
— Skírnir sprengdi nótina út af Eystra-Horni í gœr — loðnan í Faxaflóa komin að goti.
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
Prófkjörið
Utankjörstaða-
kosningu lýkur
ó morgun
Utankjörstaðakosningu i próf-
kjöri Sjálfstæðismanna i Reykja-
vik lýkur á morgun.
Kosningin fer fram að Laufás-
vegi 47 klukkan 5-7 i dag og á
morgun.
A laugardaginn byrjar svo
prófkjörið fullum fetum, og
verður þá kosið á átta kjörstöðum
viðs vegar um borgina.
— HH
Peningalausir
íslendingar í
London sluppu
naumlega
— Flugfélagsvélin
með 15-20 auð
sœti bjargaði þeim
Nú hefur komið í Ijós, að
Flugfélagsvélin, sem fór frá
Kaupmannahöfn á miðvikudag,
kotn ekki með 15-20 auð sæti til
Reykjavikur, þótt hún færi
þannig á loft.
Vélin lenti i London á leiðinni
til tslands og tók þar islendinga
sem þurftu á heiniferð að halda.
Einn farþeganna, sem fór i
vélina i Glasgow, hafði
samband við blaðið i gær. Hann
sagði, að það hefði verið hin
mesta mildi fyrir þessa is-
lendinga, sem voru i London, að
vélin fylltist ekki i
Kaupmannahöfn.
„Um það leyti sem ljóst var,
að verkfallið var að skella á, var
haft samband við þá, sem höfðu
áætlað far til tslands frá
Glasgow. Sagt var að vegna
hættu á stöðvun flugsins i verk-
fallinu, þyrftum við að koma
okkur heim hið bráðasta. Við
vorum nokkrir tslendingarnir,
sem komum til London og ætl-
uðum þaðan til Glasgow. En þá
er okkur tilkynnt að það verði
engin ferð út af verkfallinu,”
sagði þessi ferðamaður. Og
hann helduráfram: „Við vorum
flest vita peningalaus og höfð-
um treyst á að geta gengið inn i
áætlunarterðina og verið komin
til Islands eftir nokkra klukku-
tima. Það var þvi drjúgur timi,
sem við biðum i óvissu eftir að
vita, hvort við ættum að dúsa
þarna þangað til verkfallið
leystist, án þess að hafa krónu á
okkur. En það vildi svo vel til,
að ég fann gamalt ávisanahefti i
fórum minum og gat leyst út
nokkur pund i banka. Þar þurfti
ég að borga 250 krónur fyrir
pundið, þótt opinbert gengi sé
200 krónur.”
Óvænt fengu tslendingarnir
að vita, að þeir kæmust i lausu
sætin i vélinni frá
Kaupmannahöfn. Þeir voru
drifnir til Glasgow, þar sem þeir
fóru um borð i vélina.
Það varð þá eftir allt gagn af
þvi, að ekki mættu allir, sem
höfðu bókað sig i ferðina. Gagn
fyrir suma, en ekki alla, þ.e.a.s.
þá sem urðu strandaglópar i
Kaupmannahöfn þess vegna.
Heildaraflinn á loðnuveríiðinni
er nú kominn i 340 þúsund tonn.
Aflinn á allri vertiðinni I fyrra
var 160 þúsund tonnum meiri en
aflinn núna, þannig að loðnubátar
ættu auðveldlega að slá metið frá
i fyrra.
Núna er bræla á miðunum og
spáð vondu, skást er veðrið hér i
Faxaflóanum á grunnum sjó, og
þar fengu fjórir bátar afla i nótt.
Keflvikingur fékk 70 tonn, Jón
Garðar 50 tonn, Tálknfirðingur 90
tonn og Bjarni ólafsson 80 tonn.
þessi afli fer allur i frystingu, en
sjómenn segja.að loðnan i
flóanum sé léleg, hún mun að þvi
komin að gjóta, og úr þvi verður
hún varla nýtanleg.
Tveir bátar fengu afla á 2.
veiðisvæði i nótt þ.e. austan við
Ingólfshöfða. Flosi tS fékk 50 tonn
og Sæberg 120 tonn. Þeir fara á
einhverja Austfjarðahafna.
4.700 tonn veiddust i gærdag
austan við Ingólfshöfða, og
væntanlega verður talsverða
veiði að hafa þar eystra á
næstunni, ef veður verða ekki
þeim mun verri. Skirnir fékk svo
stórt kast á 1. svæði i gær út af
Eystra-Horni, að nót hans
rifnaði.
—GG
Þaö gekk erfiðlcga aö koma hinum stóru flutningabílum yfir
snævi þakta Holtavörðuheiðina i gær. Slóðin var erfið, og einn bill-
inn fór út af henni, þannig að langan tima tók að koma honum inn á
aftur. Bilstjórum finnst, að Vegagerðin hefði átt að moka þennan
dag, þótt það væri ekki venjan. Ljósm: Gunnar Jónsson.
Átti að moka?
„Það var fullkomin ástæða til
þess, að Vegagerðin hefði að-
stoðað þessa bflalest vegna þess
ástands, sem hafði orsakazt af
verkfallinu,” sagði Gunnar
Jónsson, bilstjóri hjá Kaup-
félagi Húsavikur, i viðtali við
Vísi i morgun.
Gunnar lenti ásamt öðrum
flutningabilstjórum i erfið-
leikum á Holtavörðuheiði i gær-
dag, en þá reyndu 25 flutninga-
bilar að komast yfir heiðina, án
þess að hún hefði verið mokuð.
Það tókst á endanum, en hafði
tekið 5 til 7 tima. Einnig voru
tvær rútur þar á ferð.
„Það var mikill snjór á
heiðinni og erfiðleikar við að
halda bilunum á slóðinni.
Astæðan fyrir þvi, að við vorum
á ferð á þessum tima, var sú, að
vegna verkfallsins komumst við
ekki af stað fyrr en einum degi
seinna en venjulega. Holta-
vörðuheiðin er mokuð á þriðju
dögum, en bilarnir komu ekki
að henni fyrr en á miðvikudag.
Þá hafði verið mokað daginn
áður. Siðan hafði snjóað og
heiðin orðin illfær. Samt sem
áður lögðum við á hana, og það
tókst eftir allt saman,” sagði
Gunnar ennfremur.
A meðan voru snjóruðnings-
tæki Vegagerðarinnar stödd i
Fornahvammi, sem er sunnan
Holtavörðuheiðar.
Visir hafði samband við
Arnkel Jónas Einarsson, sem
stjórnaði snjóruðningnum.
„Til okkar hjá Vegagerðinni
kom aldrei beiðni um, að við að-
stoðuðum þessa bilalest”, sagði
hann.
„Hins vegar hafði Magnús
Gislason i Staðarskála samband
við okkur og sagði, að bilar
værufarniraf stað yfir heiðina.
Fyrir þennan dag var búið að
ráðstafa snjóruðningstækj-
unum. Þau áttu að ganga
frá ruðningnum við veginn
sunnanmegin Holtavörðu-
— já, segja flutningabílstjórar
sem fóru yfir illfœra
Holtavörðuheiði — aldrei haft
samband, segir Vegagerðin
heiðar. En þegar þangað var
komið, var hætt við vegna skaf-
rennings”.
Arnkell sagðist hins vegar
vera undrandi á þvi,að ekkert
hefði heyrzt frá þeim, sem
ætluðu yfir heiðina þennan dag..
„Það er föst áætlun að moka
Holtavörðuheiði á þriðjudögum
og föstudögum, og þetta vita
þeir, sem þarna fara. En vegna
verkfallsástandsins hefði vitan-
lega komið til greina að færa til
moksturinn, sleppa honum á
þiiðjudag og færa hann yfir á
miðvikudag, þegar flestir
þurftu á honum að halda. En þá
hefðu þurft að heyrast ein-
hverjar raddir frá bilstjórum
um það.”
Arnkell sagði, að ef beiðni
hefði komið frá bilstjórunum
um aðstoð, þá hefði verið hægt
að veita hana. Þó með þeim
skilyrðum, að verkstjóri hefði
talið ástæðu til þess og að þeir,
sem aðstoða átti, greiddu
helming kostnaðar.
Að visu á Vegagerðin að greiða
allan kostnað við mokstur
ákveðinna samgönguleiða, en
ekki nema ákveðinn dagafjölda
i viku eða mánuði. Einnig ber
verkstjórum að varast að láta
moka i óhagstæðu veðri, sem
gæti ónýtt moksturinn sam-
stundis.
„Við mokuðum eins og venju-
lega á þriðjudag, en á miðviku-
dag var orðið ófært. Þá sendum
við út tilkynningu um, að heiðin
væri ófær. Samt reyndu bil-
stjórarnir að fara yfir, og það
var algjörlega að þeirra eigin
frumkvæði. Það kemur aftur á
móti iðulega fyrir, að svona
lagað er gert, og þá freista
mennirnir þess að pina Vega-
gerðina til að bregða út af
reglum sinum,” sagði Arnkell
að lokum.
—ÓH
HITAVEITAN HÆKKAR UM 131/2 PROSENT
790 milljóna lán tekið í Bandaríkjunum vegna framkvœmda í nágrannabyggðum Reykjavíkur
Gjaldskrá Hitaveitunnar
hækkar um 13 1/2% núna um
mánaðamótin.
Jóhannes Zoéga, hitaveit;u-
stjóri tjáöi Visi, að þessi hækkun
væri sú sama og farið hefði verið
fram á seint á siðasta ári, en hún
kæmiseinna til en beðið var um
Nú standa yfir samningar Hita-
veilunnar við Aðalbraut h.f. um
lagningu hitaveitu i Hafnarfjörð,
og er búizt við að framkvæmdir
hefjist með vorinu.
Vegna þessara framkvæmda
Hitaveitunnar utan Reykjavikur
mun hún taka lán I Banda-
rikjunum, samtals um 9 milljónir
dollara, eða rúmlega 790 milljónir
„Við vonum, að þetta náist nú
saman með þessu móti”, sagði
Jóhannes Zoéga, „en verðlags-
málin hér á landi taka breyt-
ingum. Sennilega verða tölurnar
orðnar allt aðrar áður en þessu
verki lýkur”.