Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 4
4 REUTER AP NTB Vlsir. Mánudagur 24. marz 1975. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I MORGUN Um 9000 uppreisnar- menn Kúrda hafa neitað fyrirmælum um að leggja niður vopn i sjálf- stæðisbaráttu þeirra gegn stjórn íraks. Þeir hafa haldið til fjalla i norðurhluta landsins og ætla að halda áfram baráttunni, eins og þeir hafa gert i 13 ár. Frétzt hefur, að Mullah Mustafa Barzani, hinn 72 ára leið- togi Kúrda, sem leitt hefur sjálf- stæðisbaráttu þeirra i gegnum árin, hafi sagt þeim 2 milljónum, sem honum hafa fylgt, að barátt- an væri á enda. En svo virðist sem nokkrir upp- reisnarforingjar hafi ekki viljað láta sér segjast. Frekari barát'ta sýnist vonlaus eftir samkomulagið, sem stjórnir trans og traks gerðu með sér 6. marz um bætta sambúð rikjanna. Samþykktu þá tranar að taka fyrir ferðir Kúrda yfir landamæri rlkjanna. Beggja megin við landamærin, þar sem norðurhluti Iraks er, búa Kúrdar. Hafa upp- reisnarmenn ávallt átt ihlaup hjá frændum sinum i Iran. Auk þess sem tran hefur oftsinnis útvegað þeim vopn og nauðsynjar, þar til endi var bundinn á slfkt 6. marz. Þúsundir Kúrda hafa um helg- ina lagt land undir fót og flúið yfir til trans. Vænta þeir sér einskis góðs af fjendum sinum. Siðustu árin, sem barátta þeirra við stjórn Iraks hefur staðið, hefur stjórnarherinn beitt óspart loft- hemum, sem hellt hefur fosfór- sprengjum yfir fjallaþorp Kúrda. Mustafa Barzani er horfinn ásamt sonum sinum og fréttist ekkert til þeirra i gær eða i morg- un. Útvarp Kúrda i Bagdahd hélt þvi fram, að þeir hefðu haldið úr landi til þess að reyna að leita meðal annarra þjóða liðsinnis við málstað Kúrda. TÉKKNESKA BIFREIDAUMBODIO Á ÍSLANDIH/F AUÐBREKKU 44 - 4é — SiMI 42600 til írans Skipið siglir íbanni stjórn- arinnar Samtök landa Ame- riku efna til sérstaks fundar i dag vegna finnska skipsins, sem er á leið með arsenikfarm til þess að fleygja hon- um i Atlantshafið. Flest riki Suður-Ame- riku hafa tekið undir mótmæli Braziliumanna við þvi, að eitrinu verði fleygt í sjóinn. Finnska stjórnin tók loks á- kvörðun i gær, þegar tankskipið Enskeri var komið suður i gegn- um Ermarsund, að leyfa ekki, að eiturfarminum, 100 smálestir af arsenikúrgangi frá oliuhreinsun- arstöð Finna, verði varpað I Atlantshafið. Hafnaði hún um- sókn oliufélagsins Neste, (sem er rikiseign), um að fá að varpa farminum fyrir borð. En Enskeri heldur áfram sigl- ingu sinni og kviða menn þvi, að banni finnsku stjórnarinnar verði ekki hlýtt. Aður hafði rikisráðið þegar það fjallaði um umsókn oliufélagsins, ekki séð neitt athugavert við að fleygja eitrinu i sjóinn, þar sem það virtist ekki stangast á við neinar alþjóðiegar reglugerðir. — En i gær var þessi afstaða endur- skoðuð, og kvaðst finnska stjórnin þá ekki vilja stuðla að þvi að spilla viðleitni þjóða til að ná samkomulagi um verndun úthaf- anna. Enskeri stefnir suður á bóginn, og er talið, að skipið eigi að fleygja farminum fyrir borð, þeg- ar það verður komið um 1000 km suður af Filabeinsströndinni, sem verður væntanlega á föstudaginn langa, ef áfram heldur sem horf- ir. Brazilia og fleiri Suður-Ame- rikuriki hafa hótað að beita refsi- aðgerðum gegn Finnlandi, ef eitr- inu verði fleygt i sjóinn. Þúsund- ir Kúrda flýia Finnska skipið Enskeri á sigiingu meðarsenikfarm sinn, 100 smá- lestir, frammi á þilfari. Það heldur áfram siglingunni, þrátt fyrir bannið. 9000 héldu til fjalla og œtla að halda ófram baráttunni (g)$H0DRIWL5 5-MANNA, FJDGURRA DYRA. VÉL 62 HESTÖFL. ESENSÍNEYÐSLA 8.5 LlTRAR Á 100 KM. FJOGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GlRKASSI. GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 18.5 SEK. I 100 KM. Á KLST. VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI KR. 619.000,00 VERÐ TIL ÖRYRKJA KR. 449.000,00 IMSHai I YRST A ÍSLENSKA FARÞEGAFLUGIÐ TIL RÁÐSTJÓRNARRÍKJANNA 52 z s (0 Dagana 5—12 júni. Flogið með Boeing þotu Air Viking beint frá Keflavikurflugvelli til Sheremtvo flugvallar i Moskvu. Þaðan er aðeins 1 klukkustundar akstur til hótelsins, sem farþegar dvelja á, og er fyrsta flokks hótel. Margt er að sjá og skoða. Komudag verður farið i skoðunarferð um borgina. Næsta dag til Kreml, og neðanjarðarjárnbrautin i Moskvu skoðuð (en hún er sérstætt listaverk). Farið verður á sýningu Sovétþjóðanna sem er geysistór sýning, hún sýnir þróun þjóðanna og er sýningin alltaf endurnýjuð. Skoðaður verður hæsti sjónvarpsturn i heimi, en á toppnum er veitingarhús. Farið verður i leikhús I Moskvu Bolshoi/Congress höllina. Flogið verður til Leningrad og farið i skoðunarferð um borgina. Skoðað verður m.a. Vetrarhöllin eitt stærsta listasafn heims. tsakskirkjaeitt skemmtilegasta listaverk i húsbyggingarlist, forngripasafn, byltingarsafnið i Leningrad, farið verður til sumarhallarinnar Petrovorets, sem liggur utan við Leningrad Minnisgrafreitur frá umsátrinu um Leningrad verður einnig skoðaður og svo verður farið i Kirov-leikhús á einn frægasta ballet i heimi. Innifalið i þessari ferð er: Flugferðir, fullt fæði, dvöl á 1. flokks hóteli, allar skoðunarferðir og leikhúsferðir. Verð aðeins 57.500 með baði, en 52.000 án baðs. Pantið strax, þvi hver vili missa af svona sérstæðri og skemmtilegri ferð? LAINIDSÝN hf. ALPÝDUORLQF Laugaveg 54 símar 22890 28899 SUNNAY* FERÐASKRIFSTOFA Lækjargötu 2 símar 16400 12070

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.