Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 8

Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 8
8 Vísir. Mánudagur 24, marz 1975. sagði Róbert Svavarsson, en hann opnaði fyrirnokkrum dögum nýja húsgagnaverzlun i Keflavik, Bú- slóð. Róbert var deildarstjóri hjá Kaupfélaginu og kvaðst hafa ver- iðkominn of langt með áform sitt, þegar gengisfellingin skall á. „Gunnar kaupfélagsstjóri sagði við mig þegar hann kvaddi mig að ég væri alltaf velkominn aftur”, sagði Róbert, sem kvaðst þó bjartsýnn að sjálfsögðu. Ein hús- gagnaverzlun önnur er i Kefla- vik, Garðarshólmi, en helzti keppinautur þeirra beggja er að sjálfsögðu markaðurinn i Reykjavik. Myndin er úr nýju verzluninni. Velja matinn þrjár vik- ur fram i timann Stór nýjung er framundan hjá Kjötiðnaðarstöð SÍS á Kirkju- sandi. Áætlað er að framleiðsla á tilbúnum djúpfrystum mat hefjist I maimánuði á Kirkjusandi. 1 byrjun á framleiðslan að full- nægja þörfum samvinnufyrir- tækjanna i Reykjavik. Maturinn verður eldaður i kjallara kjöt- iðnaðarstöðvarinnar, sem hefur verið innréttaður til þessara starfa. Þarna er maturinn pakkaður i sérstakar umbúðir, 8- 10 skammtar i hverjum, kældur og frystur. 1 mötuneytunum á hverjum vinnustað er skammtin- um stungið i sérstaka ofna og sið- an látinn á diska. Stefnt er að þvi að bjóða viðskiptavinum þriggja vikna matseðla svo fljótt sem auðið er. Námsmenn sáróánægðir með yfirfærsluna Námsmenn erlendis telja mjög að sér þrengt eftir að krónan féll. Fýrir jólin kom i ljós að yfirfærsl- an var sú sama i krónutölu, en þeim mun minni i erlendum gjaldeyri. Munaði þar fimmtungi á fyrri yfirfærslum. „Flestir námsmannanna komust yfir erfiðleikana án teljandi áfalla, ef undan er skilið nagandi öryggis- leysi með dalandi námsgetu, sem fylgikvilla,” segir i fréttatilkynn- ingu frá námsmönnum i Kaup- mannahöfn. „Helztu bjargráð reyndust bankavixlar og bréf- sendir Islenzkir hundraðkrónu- seðlar, sem skipt var með mikl- um afföllum i dönskum peninga- stofnunum. Ofan á þetta koma verðhækkanir viða ytra, svo námsmenn hafa orðið að herða allmjög sultarólina. fyrir þau verk, sem eru á sviðinu i Iðnó um þessar mundir. Auk revi- unnar eru nú fjögur verk i gangi hjá Leikfélaginu, Dauðadans, Selurinn hefur mannsaugu, Fló á skinni og Fjölskyldan. Á stóru myndinni hér til vinstri má sjá Sigriði Hagalin i hlutverki Bergþóru i „Islendingaspjöll”. Opnar, — og treystir á fengsæla vertið „Ég treysti á fengsæla vertið”, Hafa ekki pláss fyrir alla starfsemina i Iðnó Leikfélag Reykjavikur hefur nú flutt reviuna „íslendingaspjöll”, eftir Jónatan Rollingstón Geir- fugl, inn i Austurbæjarbió vegna þess að naumast er lengur rúm Átt þú von á tekjuafgangi frá þínu tryggingafélagi ? Það er vel hugsanlegt, ef þú tryggir hjá gagnkvæmu tryggingafelagi. Verði hagnaður af þeirri grein trygginga, sem þú kaupir hjá Samvinnutryggmgum, mátt þú eiga von á tekjuafgangi til þí Samvinnutryggingar hafa þegar endurgreitt til viðskiptamanna sinna yfir SOO mllljónlr króna á verðgildi dagsins í dag. Att þú von á tekjuafgangi frá þínu tryggingafélagi : SAMYHVNUTRYGGINGAR GT ARMULA 3 SI'MI 38500 i s^iifidi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.