Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 24

Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 24
Mánudagur 24. marz 1975. Brezku skipbrotsmennirnir héldu heim i morgun, og ætluðu að fara að tygja sig I rúmið þeg- ar við^hittum þá á Loftleiðum i gærkvöidi. Til vinstri er sá yngsti sem var i sinum fyrsta túr. Þvi næst kemur háseti og annar, sem var á vakt, þegar skipið strandaði. Þá koma feðg- arnir um borð. Faðirinn hefur þrisvar lent i strandi áður, i öll skiptin með þeim, sem situr hægra megin við borðið, en hann er bátsmaður. Ljósm.BG „HAFIÐ - ALLRA ÞAÐ HELDUR 500 MILUR HELZT ÞUSUND MÍLURI" vísm - sögðu brezku skipbrotsmennirnir sem héldu heim í morgun. Einn var í sínum fyrsta túr og tveir hafa þrisvar strandað óður „200 milur? Hafið fiskveiðilögsöguna heldur 500 milur eða þúsund. Við viljum helzt ekki þurfa að koma of nálægt land- inu. Að okkar áliti eru 50 milurnar allt of stutt. En skipstjórarnir segja vist eitthvað ann- að. Það er góður fiskur hérna hjá ykkur, en við þurfum svo sannarlega að hafa fyrir þvi að fá hann. Þetta er næstum þvi eins slæmur staður og við Grænland, og þar er slæmt að vera”. Það voru nokkrir skipverjar af brezka togaranum D.P. Finn, sem þetta sögðu, þegar við hitt- um þá snöggvast að máli á Hótel Loftleiðum i gær. Þar á meðal var yngsti skipverjinn, 16 ára piltur, sem var i sinum fyrsta túr. Þá voru þar tveir, sem þrisvar sinnum áður hafa lent I strandi. Eitt af þvi var strand brezka togarans Notts County. Togarinn strandaði hér 1968 við Snæfjallaströnd, og var um tima talin litil von um björgun. Einn af áhöfninni þar lézt. Annar þeirra, Graham Edman, kvaðst ætla að hætta á sjónum eftir þetta. ,,Nú er ég búinn að fá nóg. Að minnsta kosti nóg til þess að hætta um tima.” Hinn, Harry Jordan, kvaðst ekki ætla að hætta á sjónum þrátt fyrir þetta. „Þetta er ekki svo slæmt”, sagði hann. ,,En það er kannski bara, að maður er orðinn vanur þessu.” Harry, sem hefur verið á sjó um margra ára skeið, var með syni sinum á D.P Finn, en hann er lika einn af áhöfninni. Hann kvaðst ætla að hvfla sig eitt- hvaö, áður en hann færi á sjóinn aftur. Þeir voru fimm, sem fóru i gúmbjörgunarbátinn, þegar veriö var að bjarga þeim úr tog- aranum. Og þeir viðurkenna svo sannarlega hræðslu sina. Veðrið var lika slæmt, og þeir höfðu verið varaðir við að nota bátinn. — En af hverju fóruð þið um borö i hann? — „Við töldum okkur örugg- asta þar.” „Jú, ég var hræddur”, sagði Gary Clark, sá yngsti skipbrots- mannanna. „Þetta var fyrsti túrinn minn, og ég efast um, að ég haldi nokkuð áfram. Ég var einn af þeim, sem fóru um borö I bátinn, og liklega var ég hrædd- astur þar”. Sá,sem var á vakt, þegar tog- arinn strandaði, vildi litið segja um, hvað gerðist. Ekkert vildu þeir heldur um það segja, hvemig á þvi stóð, að þeir töldu sig vera strandaða við Surtsey, þegar þeir voru rétt við Hjör- leifshöfða. „Við strönduðum um klukkan 8 á fóstudagsmorguninn, og það hafa llklega liðið um 6 timar, þar til við heyrðum i flugvél og það var farið að bjarga okkur i land.” ■ — Voruð þið nokkuð búnir að veiða, þegar þetta skeði? „Nei, við vorum að koma frá Englandi og höfðum þvi ekkert fiskað.” — Er D.P. Finn gott skip? „Já, mjög gott sjóskip. Lik- lega eitt af þeim beztu I Eng- landi. Ef það hefði verið eitt- hvert annað skip, sem strandaði þama, þá hefði það örugglega ekki þolað það.” Skipverjarnir sögðust ætla að tygja sig snemma i rúmið, enda þyrftu þeir að vakna klukkan 6 I fyrramálið til þess að fara til Bretlands. „En við viljum færa okkar beztu þakkir öllum, sem hafa verið okkur hjálplegir hér. Við höfum dvalið hérna i góðu yfir- læti og erum mjög þakklátir. Timanum höfum viö eytt i að skoða okkur um og synda. Það er nefnilega stórfint að synda hérna i lauginni á hótelinu...” Loðnubótar uppi í landsteinum ,,Ég held þeir hafi nú fengið meira út af Akranesi, en það var bara bærileg veiöi þessa storm- daga”, sagði viðmælandi okkar hjá Loðnunefnd, er hann var spuröur, hvernig loðnubátar hefðu fiskað, sem voru að skarka uppi I landsteinum i Bygggarði norður af Seltjarnarnesi nú fyrir helgina. Aö minnsta kosti þrir bátar voru þar að veiðum mjög nærri landi, og það svo mjög, að land- krabbar voru farnir að búast við einu strandinu enn. „Þeir voru skammt undan landi út af Gróttu og Akranesi”, sagði loðnunefndarmaðurinn. „Þeir fengu meira, sem voru á móts við róðrarbaujuna hjá Akranesi, rösklega klukkutima stim frá Reykjavik”. Þessa stormdaga fyrir helgina komust bátar ekki fyrir Reykja- nesiö til að leggja upp i Vest- mannaeyjum, Þorlákshöfn og Grindavik, svo nokkur bið mynd- aöist við móttökustaðinn við Fló- ann. Nú, þegar veðrið er betra, má búast við, að einhverjir fari á þessar hafnir. I gærkvöldi komu 12 bátar með loðnu, samtals um 2200 tonn. Tveir þeirra báta höfðu verið vestur undir Jökli og höfðu þeir fengið sýnu bezt. Reykjaborgin fékk 500 tonn, en Gisli Arni var með 420 tonn. —SHH Langir samningafundir Samningafundir voru langir um helgina. „Það cr nóg að gera”, sagði Ólafur Jónsson fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins i morgun. Að öðru leyti vörðust aðilar alira frétta. Fundur stóð á laugardag frá klukkan tvö og langt fram á nótt, til um klukkan þrjú. i gær var sama sagan og svipaður fundar- timi. Samningafundur hefst i dag klukkan tvö. —HH Kjarabœtur stjórnarfrumvarpsins 4-5 PRÓSENT EÐA ALLT AÐ 7 PRÓSENT — eftir því hvernig er reiknað Efnahagsfrumvarp rikisstiórnarinnar felur í sér talsverðar kjarabaetur/ en deiluaðilar i kjaradeil- unum eru ósammála um< hve miklar. Vinnuveitendur munu telja, að i skattalækkunum frumvarpsins felist 5—6 prósent kjarabætur fyrir launþega almennt, en 7 prósent kjarabætur fyrir þá lægstlaunuðu. Björn Jónsson, forseti ASt, hefur hins vegar sagt, að kjara- bæturnar séu 4—5 prósent. Skýringin mun vera sú, að vinnuveitendur reikna með mis- muninum á þeim sköttum, sem fólk á að greiða, eftir að frum- varpið hefur orðið að lögum, og þeim sköttum, sem það hefði greitt i ár, ef sömu lög hefðu gilt og verið hefur og útsvörin verið 11 prósent, eins og nú mun verða víðast hvar. ASI-menn reikna aftur á móti með þvi, hve mikið skattarnir eiga að lækka frá þvi, sem þeir voru á siðasta ári. —HH Hlýtur stuðn- ing manna úr öllum flokkum — þingmenniriiir gefa fordœmið „Tveir friskir og hressir iþróttamenn fóru niður i þing fyrir helgina og voru að leita þar að ákveðnum manni,” sagði Ragnar Tómasson, lög- fræðingur, um ganginn I ,,tó- bakslausu söfnuninni” I morg- un. „Meðan hann fannst ekki, áttu margir góðir leið fram hjá, sem vildu leggja góðu málefni lið.” Það er ekki að sjá af undir- skriftalistanum, sem út úr þessu kom, annað en að mál þetta sé „ofar flokkum,” því þarna má finna þingmenn stjórnarliðs jafnt og stjórnar- andstöðu. „Við vitum ekki nákvæma tölu ennþá,” sagði Ragnar. „En frá okkur eru farnir rétt um 150 söfnunarlistar. Ef hver þeirra skilar minnst tiu nöfn- uni, hefur markið náðst.” —SHH FULLTRÚINN Á NORÐURLANDA- KEPPNINA KJÖRINN Iialldóra Björk Jónsdóttir heitir hún, sem heldur fyrir ís- lands hönd i fegurðarsamkeppni Norðurlandanna. úrslitin voru kunngerð á Sunnukvöldi á Hótel Sögu I gær, en þrjár stúlkur komu til greina. Var það gesta að tilnefna þá, sem færi. Hinar tvær heita Guðmunda Hulda Jóhannesdóttir og Þór- hildur Arnadóttir. Halldóra Björk er 18 ára gömul. Lét kynnirinn þau orð falla, að hún hefði fengið fjölda tilboða um ljósmyndafyrirsætustörf, en hafnað þeim öllum. t þessu til- viki eru það ferðalög, sem heilla. Það er finnska sjónvarpið, sem sér um Norðurlandakeppn- ina, en hún fer fram i Finnlandi. Halldóra Björk er i miðiö, en hún heldur til Finnlands á feg- urðarsamkeppni Norðurland- anna. Hinar tvær eru Þórhildur Arnadóttir (t.v.) og Guðmunda Hulda Jóhannesdóttir. Ljósm: Bragi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.